Morgunblaðið - 29.04.2013, Page 4

Morgunblaðið - 29.04.2013, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013 Skó hlíð 18 í i 595 1000 www.heimsferdir.is eimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. getur breyst án fyrirvara. gar • s m • Birt með fyrirvara um prentvillu. H Ath. að verð Costa del Sol Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á Hotel Tropicana þann 9. maí í 11 nætur. Frá kr. 129.900 með hálfu fæði 11 nátta ferð - ótrúleg kjör! Hotel Tropicana 129.900 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í herbergi með hálfu fæði. Ath. Flogið er til Íslands með viðkomu í Kaupmannahöfn. 9. maí Birgitta Jónsdóttir hjá Pírötum var ánægð með niðurstöður kosninganna en flokkurinn fékk þrjá þingmenn kjörna. Hún telur hugmyndafræðina eiga eftir að vaxa í vitund almenn- ings á næstu árum. „Þetta verður mjög óvenjulegt þing. Ég get ímynd- að mér að það muni taka langan tíma að mynda ríkisstjórn því ljóst er að sumir þurfa að gefa mikið eftir af sínum áherslum,“ segir Birgitta. Hún segist munu nýta sér þá reynslu sem hún hafi aflað sér á þingi og miðla til þeirra frambjóð- enda flokksins sem fengu þingsæti. Auk hennar komust þeir Jón Þór Ólafsson og Helgi Hrafn Gunnarsson inn á þing fyrir flokkinn. Birgitta segist stefna að því að upplýsa almenning um vinnubrögð Alþingis og hvernig fólk geti tekið þátt í ákvarðanatöku. „Við viljum meðal annars vera aðhald við þingið. Það gerum við t.a.m. með því að upp- lýsa hvernig þingmenn kjósa í ákveðnum málum og hvort þeir séu viðstaddir atkvæðagreiðslur eða nefndarstörf. Með þessu viljum við draga tjöldin frá störfum þingsins,“ segir Birgitta. Píratar eru alþjóðleg hreyfing en þetta er í fyrsta skipti sem hún kemst að á þjóðþingi. Að sögn Birg- ittu tók flokkurinn nýlega formlega upp tengsl við hreyfinguna. „Við höf- um verið að vinna saman í því að miðla þekkingu og reynslu á milli landa. Hreyfingin hefur vaxið hratt og á næstu tíu árum verður hún af- gerandi afl um allan heim. Við erum pólitískur armur upplýsingabylting- arinnar hinnar nýrri,“ segir Birgitta. Píratar vilja draga tjöldin frá störfum þingsins  Pólitískur armur upplýsingabyltingar Morgunblaðið/Eggert Í kjörklefa Birgitta Jónsdóttir á kjördag eftir að hafa greitt atkvæði. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Ég er á því að við eigum að byrja á að klára snjóhengjuvandann, afnám hafta og auðvitað skuldaleiðréttinguna. Í framhaldi af því verð- um við í stakk búin að taka ákvarðanir um önn- ur mál,“ sagði Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, formaður Framsóknarflokksins, um fyrstu verkefnin sem hann telur að ný rík- isstjórn eigi að takast á við, eigi Framsókn- arflokkurinn aðild að henni. „Við erum ákaflega ánægð með niðurstöð- una og þessa miklu fylgisaukningu,“ sagði Sig- mundur Davíð um kosningasigur Framsókn- arflokksins. Hann sagði að í hinum mikla stuðningi sem flokkurinn varð aðnjótandi í al- þingiskosningunum fælist skýr krafa stórs hluta þjóðarinnar um að forgangsraðað yrði í samræmi við málflutning framsóknarmanna í kosningabaráttunni. „Sem betur fer þá veitir þetta okkur sterka stöðu til þess að knýja á um að sú verði raunin,“ sagði Sigmundur Davíð. Hann kvaðst vera bjartsýnn á að það tækist að ná samstöðu um baráttumálin. Þótt póli- tískir andstæðingar hefðu gagnrýnt Fram- sóknarflokkinn í aðdraganda kosninganna, sérstaklega eftir að fylgi flokksins fór að aukast, hefði umræðunni miðað töluvert áfram. „Mér heyrist menn almennt vera orðnir sammála um að þetta svigrúm sem við höfum talað um sé til staðar. Þá er eftir spurningin um hvort rétt sé að nýta það, að minnsta kosti að hluta, í þágu skuldsettra heimila. Ég held að það sé víðtækur stuðningur við það innan margra annarra flokka, þó að forysta þeirra hafi ekki beinlínis viljað taka undir það í kosn- ingabaráttunni.“ Forseti Íslands hefur boðað Sigmund Davíð á sinn fund eftir hádegi í dag. Mun Sigmundur Davíð óska eftir umboði til stjórnarmyndunar? „Ég geri ráð fyrir að forsetinn taki ákvörð- un um það hverjum hann felur stjórn- armyndun, ég bíð bara eftir því,“ sagði Sig- mundur Davíð. Stjórnarmyndun ekki enn hafin – En eru ekki hafnar þreifingar um stjórn- armyndun, formlegar eða óformlegar? „Nei, það hefur í rauninni ekki verið neitt svigrúm til slíks frá því á kosninganótt. Ég lagði mig aðeins en hef svo verið í viðtölum og sjónvarpsútsendingum. Erlendir fjölmiðlar virðast líka vera mjög áhugasamir um þessar kosningar. Auðvitað hafa formennirnir hist í sjónvarpi og við höfum mikið verið á sömu stöðum og vinsamlegt á milli formannanna allra. En við höfum ekki hafið stjórnarmynd- unarviðræður,“ sagði Sigmundur Davíð. Með hverjum vill hann helst vinna í ríkisstjórn? „Við munum vinna með þeim sem treysta sér til að fara í þessi verkefni með okkur sem við teljum vera mjög brýn. Það þarf að leysa þau, sama hvaða flokkar verða í ríkisstjórn. Við teljum að það sé skynsamlegast að gera það á þann hátt sem við höfum talað fyrir,“ sagði Sigmundur Davíð. Hann sagði aðspurður að Framsóknarflokkurinn mundi setja það sem skilyrði fyrir stjórnarþátttöku að tekið yrði á málefnum skuldsettra heimila. En hvað með verðtryggingu og skattamál? „Verðtryggingin tengist þessu og það að breyta fjármálakerfinu á þann hátt að leiðrétt- ing núna brenni ekki upp eða þurrkist út. Þetta er allt í samhengi. Hvað skattamálin varðar þá höfum við lagt áherslu á að einfalda skattkerfið og innleiða aftur jákvæða hvata í staðinn fyrir þá neikvæðu. Mér heyrist vera skilningur á því víða að það sé þörf fyrir það,“ sagði Sigmundur Davíð. – Hvenær vilja framsóknarmenn taka ákvörðun um aðildarviðræðurnar við Evrópu- sambandið? „Ég hef verið opinn hvað dagsetn- ingar varðar og hef ekki neglt niður neina dag- setningu varðandi framhald málsins.“ Sigmundur Davíð sagði stór mál krefjast úr- lausnar og því gætu stjórnarmyndunarvið- ræður tekið einhvern tíma, þótt svo hann þyrfti ekki að vera mjög langur. „Það er mik- ilvægt að ný ríkisstjórn hafi skýra sýn á hvern- ig leyst verður úr þeim stóru málum sem bíða.“ Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Við gleðjumst yfir því að njóta mests stuðn- ings kjósenda í landinu. Það er ekki annað hægt og við erum þakklát fyrir það. Þetta eru um margt mjög sérstakar aðstæður sem þess- ar kosningar fara fram í, meðal annars vegna fjölda framboða og fylgi flokka hefur verið á milli ferð. Við náðum að rétta mjög verulega úr kútnum á lokasprettinum og erum ánægð með það,“ segir Bjarni Benediktsson, formað- ur Sjálfstæðisflokksins, um útkomu flokksins í alþingiskosningunum á laugardag. Í þeim bætti flokkurinn við sig þremur pró- sentum og jafnmörgum þingmönnum. Hann er nú stærsti flokkurinn á þingi ásamt Fram- sóknarflokknum með nítján þingmenn. Að mati Bjarna er mikilvægasta markmiðið nú að mynda sterka ríkisstjórn með skýra efnahagsáætlun til að hefjast strax handa við að bæta lífskjör og auka ráðstöfunartekjur fólks. Eðlilegast sé að láta reyna á tveggja flokka stjórn en það sé þó ekki sjálfgefið að hægt sé að mynda slíka stjórn. Menn verði að ná málefnalegri samstöðu til að það gangi. „Aðalatriðið er að það verði lagt af stað með skýra efnahagsáætlun sem leggur grunn að stöðugleika og vexti. Ég ætla að leyfa mér að vera bjartsýnn á að það verði hægt.“ Aðeins Sjálfstæðisflokkur og Framsóknar- flokkur hafa samanlagðan þingstyrk til þess að mynda tveggja flokka stjórn. Bjarni segir að sér finnist eðlilegt að flokkarnir ræði sam- an. „Við erum ekki búin að setjast niður en ég sé fyrir mér að við gerum það. Það verður ekki í beinni útsendingu en það verður mjög fljótlega,“ segir hann. Vill ekki lofa tiltekinni fjárhæð Bjarni segist ekki vilja nálgast viðræður við aðra flokka með því hugarfari að setja ein- hver ófrávíkjanleg skilyrði fyrir stjórn- armyndun heldur muni flokkurinn leggja áherslu á öll sín helstu stefnumál. Eðli máls- ins samkvæmt þurfi menn svo að ná saman jafnvel þó að þeir séu ekki sammála í öllum aðalatriðum. „Að grípa strax til aðgerða til að létta undir með fólki finnst mér mikilvægast.“ Framsóknarflokkurinn hefur teflt fram mjög ákveðinni stefnu í því að færa niður verðtryggð lán um allt að 20% sem yrði fjár- magnað með fé frá erlendum kröfuhöfum föllnu bankanna. Sjálfstæðismenn hafa hins vegar margir lýst efasemdum sínum um þá leið. Því má spyrja hvort flokkarnir tveir geti náð saman í þessum málaflokki, sem var eitt helst kosningamálið að þessu sinni. „Það er eitt af okkar helstu stefnumálum að koma betur til móts við skuldsett heimili. Við höfum lagt til að nýta skattaafslátt til að aðstoða fólk við að lækka skuldir. Ég á eftir að heyra nánar hvaða nálgun Framsókn- arflokkurinn vill hafa. Hafi ég tekið rétt eftir hafa þeir líka talað fyrir skattaafslætti.“ Bjarni segist þó ekki enn hafa áttað sig á til fulls hvað það sé sem framsóknarmenn leggi til í þessum efnum. „Ég er ekki tilbúinn til þess að lofa tiltek- inni fjárhæð og ráðstöfun hennar vegna af- léttingar haftanna. Það verður hins vegar enginn skortur á því að við munum gæta ýtr- ustu hagsmuna Íslendinga vegna uppgjörs á þrotabúunum og afnáms haftanna, sem er eitt mikilvægasta og stærsta viðfangsefni næstu ríkisstjórnar,“ segir Bjarni. Ekki krafa um einstök ráðuneyti Það er aukaatriði að dómi Bjarna hvernig ráðherraembættum verður skipt á milli flokk- anna í viðræðum um stjórnarmyndun í sam- anburði við stefnu næstu ríkisstjórnar. „Það vantar ekkert upp á það að ég er tilbúinn að leiða næstu ríkisstjórn ef hægt verður að koma málefnasamningi á. Það er bara ótímabært að úttala sig um þetta.“ Þá vill Bjarni lítið tjá sig um formaður hvors flokksins eigi að fá stjórnarmyndunar- umboð. Hlutverk forsetans sé afar takmarkað þegar tveir flokkar sem hafa yfirgnæfandi meirihluta á þingi hafi vilja til að ná saman. Stór mál bíða nýrrar stjórnar  Lausn á málefnum skuldsettra heimila er skil- yrði fyrir stjórnarþátttöku Framsóknarflokksins Morgunblaðið/Kristinn Stjórnmálaleiðtogar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, þykja líklegir til að starfa saman í næstu ríkisstjórn. Tilbúinn að leiða næstu ríkisstjórn  Á von á viðræðum við Framsókn á næstunni  Tafarlausar aðgerðir til að létta undir með fólki

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.