Morgunblaðið - 29.04.2013, Qupperneq 10
Gæðastund Jenný og Hjörtur maður hennar skoða bók með ömmu- og afabarninu sínu, Hrefnu.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég hef bæði skrifað ogteiknað alla mína hundsog kattar tíð. Ég er víð-frægt skúffuskáld, en ég
er að koma út úr skápnum með þetta
allt saman núna. Ég fór á námskeið í
skapandi skrifum hjá Þorvaldi heitn-
um Þorsteinssyni fyrir fimm árum
og hann gaf mér leyfi til að vera ég,
að skrifa á minn máta. Ég fór á tvö
námskeið hjá honum, það seinna var
eina framhaldsnámskeiðið sem hann
hélt. Á þessum námskeiðum kynnt-
ist ég fjölmörgu góðu fólki og við er-
um fimm konur sem höldum enn
hópinn. Við köllum okkur Blekbytt-
urnar og við hittumst mánaðarlega,
lesum hver fyrir aðra og reynum að
benda á hvað mætti betur fara í
skrifunum, en það er illmögulegt
þegar í hlut á einhver sem manni
bæði þykir vænt um og ber virðingu
fyrir. Við erum því orðnar ansi færar
í að gagnrýna á uppbyggilegan og
fallegan máta. Við höfum skrifað eft-
ir orðum, setningum, litum og til-
finningum og það hefur verið áskor-
un í hverjum mánuði sem hefur gert
okkur gott og fengið okkur til að
takast á við söguformið og rísa
hærra. Við höfum í raun verið í fimm
ára námi hjá sjálfum okkur. En
þetta hefur haldið okkur við efnið og
við ætlum að gefa út bók núna í maí,
sem inniheldur tuttugu og fimm
smásögur eftir okkur,“ segir Jenný
Kolsöe og bætir við að Silja Að-
alsteinsdóttir og Hlín Agnarsdóttir
hafi lesið yfir og gefið þeim góð ráð.
Styrkir Regnbogabörn
Smásögur Blekbyttanna eru
fullorðinssögur en Jenný hefur mest
skrifað fyrir börn og hún mynd-
skreytti bókina Halla hrekkjusvín.
„Fimm strákar í Verslunarskólanum
stóðu að þeirri útgáfu og allur ágóði
af sölunni rennur til styrktar Regn-
bogasamtökunum. Einn þessara
drengja er frændi minn, en mamma
hans og litla systir sömdu saman
söguna. Þessi litla systir hans, Eva
Lynn, lést í bílslysi í ágúst 2011, en
hún var afskaplega ljúf og vildi öll-
um vel. Hún var hæg og feimin og
hún vildi ekki að fólki liði illa, svo
þær mæðgurnar fundu upp þá að-
ferð að segja bara „sóóó“ ef einhver
er að stríða manni. Og það virkar
mjög vel, ég hef heyrt skemmtilegar
sögur um það í leikskólum þar sem
þetta hefur verið tekið fyrir.“
Bók á þremur tungumálum
Jenný segir að eftir útkomu
bókarinnar um Halla hrekkjusvín
hafi hún farið á flug með teikningar.
„Ég ætla að halda þessu áfram og ég
er með þrjár barnabækur tilbúnar
sem ég bæði skrifa og myndskreyti.
Ég ætla að gefa þær út á rafrænu
formi á vefsíðunni emma.is.“ Bæk-
urnar heita Ljótapadda, sem ætluð
er yngstu börnunum 1-4 ára, Kanka
Ég er víðfrægt
skúffuskáld
Hún segir Þorvaldi heitnum Þorsteinssyni að þakka að hún kom út úr skápnum
með skrif sín og teikningar. Jenný Kolsöe ætlar að gefa út þrjár barnabækur á net-
inu sem hún hefur bæði skrifað og myndskreytt. Hún er með óbilandi víkinga-
áhuga og á leiðinni er bók frá henni um landnámsbörn.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013
Íslenski alpaklúbburinn í samstarfi
við Bíó Paradís, Íslenska fjallaleið-
sögumenn og 66° Norður kynnir hina
árlegu BANFF-fjallakvikmyndahátíð.
Þann 1. og 2. maí verður hátíðin
haldin í Bíó Paradís. Hægt er að
kaupa miða á midi.is en til að fá betra
verð á bæði kvöldin er mælt sterk-
lega með því að mæta í miðasöluna á
Hverfisgötu til að tryggja sér miða.
Á hátíðinni verða sýndar klifur-
myndir, skíðamyndir, hjólamyndir og
kajakmyndir svo eitthvað sé nefnt.
Mikil keyrsla og húmor hafa fylgt
þessum sýningum í gegnum árin og
má segja að í boði séu um 4 klukku-
stundir af fjöri á hátíð sem sameinar
iðkendur og aðdáendur jaðarsports á
Íslandi. Nánar á bioparadis.is.
Vefsíðan www.bioparadis.is
Morgunblaðið/Ómar
Kajakróður Margvíslegar kvikmyndir verða á hátíðinni, m.a. kajakmyndir.
Fjörug fjallakvikmyndahátíð
Á morgun, þriðjudag 30. apríl, verður
spilaður djass út um allan heim að
undirlagi UNESCO, menningarmála-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna. Þetta
er eini alþjóðlegi dagur UNESCO sem
tengist beint tónlist og var hann í
fyrsta sinn haldinn hátíðlegur á síð-
asta ári, og í ár verður Ísland með svo
um munar. Íslenska UNESCO-nefndin í
samvinnu við ýmsa aðila er búin að
setja upp tónleika og málþing í Hörpu
og auk þess verða viðburðir út um all-
an bæ og bein útsending á RÚV.
Í hádeginu kl. 12-13 spilar á Jóm-
frúnni Reykjavik Swing Syndicate,
með þeim Hauki Gröndal á saxófón,
Gunnari Hilmarssyni á gítar, Jóhanni
Guðmundssyni á gítar og Gunnari
Hrafnssyni á bassa.
Á Café Rosenberg kl 20:30 fagnar
Jazzhátíð Reykjavíkur hinum alþjóð-
lega degi djassins með mikilli djass-
veislu. Meðal þátttakenda verða Hilm-
ar Jensson, Haukur Gröndal, Hans
Andersson, Matthías Hemstock, Pétur
Grétarsson, Óskar Guðjónsson og
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson.
Á Kex hosteli kl. 20:30 kemur Flosa-
son/Lauritsen-kvartett fram á útgáfu-
tónleikum undir nafninu Nightfall.
Meðlimir eru Sigurður Flosason á
saxófón, Kjeld Lauritsen á hammond-
orgel, Andrés Þór Gunnlaugsson á gít-
ar og Erik Qvick á trommur.
Ókeypis aðgangur er á alla atburði.
Í Kaldalóni Hörpu kl. 17-18.30 verð-
ur málþing og tónlist undir yfirskrift-
inni: Hvað er djass? Þar munu flytja
erindi Vernharður Linnet, djass-
gagnrýnandi og formaður Jazzvakn-
ingar, Tómas R. Einarsson, tónlistar-
maður og sagnfræðingur, Sigurður
Flosason, tónlistarmaður og yfirmað-
ur djassdeildar Tónlistarskóla FÍH, Eg-
ill B. Hreinsson, prófessor og tón-
listarmaður, Lana Kolbrún Eddudóttir,
dagskrárgerðarmaður á RÚV, og Pétur
Grétarsson, tónlistarmaður og fram-
kvæmdastjóri Jazzhátíðar Reykjavík-
ur. Hljómsveit frá Tónlistarskóla FÍH
flytur Gaukshreiðrið í Kaldalóni.
Margt um að vera á Íslandi
Alþjóðlegi
djassdagurinn
Morgunblaðið/Einar Falur
Snillingur Sigurður Flosason spilar
og flytur erindi á djasshátíðinni.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Heildsöludreifing: Oddi Höfðabakka 7, S: 515 5000
m
ag
gi
@
12
og
3.
is
21
.8
52
/0
1.
13
sem brotna auðveldlega niður í náttúrunni
Lífrænir maíspokar
Pokarnir henta vel við flokkun á lífrænum eldhúsúrgangi sem fer til jarðgerðar. Þeir eru fram-
leiddir úr maíssterkju og samlagast moltunni við jarðgerðina á nokkrum vikum. Þessir pokar eru
allt öðru vísi en hefðbundnir plastpokar sem eyðast afar hægt og geta verið skaðlegir náttúrunni.
Fást í öllum helstu verslunum.