Morgunblaðið - 29.04.2013, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013
TF-GNA, þyrla Landhelgisgæsl-
unnar, var á laugardagskvöld flutt
með flutningabifreið frá Kvískerj-
um til Reykjavíkur og kom hún í
flugskýli Landhelgisgæslunnar rétt
fyrir klukkan tvö um nóttina. Þyrl-
an TF-SYN flutti mannskap og
búnað að Kvískerjum til að und-
irbúa GNA fyrir flutninginn og
gekk framkvæmdin í alla staði mjög
vel, að því er fram kemur í frétt frá
Gæslunni. Fyrir helgi stóð til að
þyrlan yrði flutt á mánudag en þar
sem spáð var stormi á sunnudag
var ákveðið að klára verkið strax.
Sérstakt hífingarbeisli þurfti til að
flytja þyrluna á flutningapallinn og
var það fengið að láni hjá Bristow-
þyrlufyrirtækinu í Aberdeen.
Ákveðið var að framlengja gæslu-
flug TF-SIF sem farið var um suð-
austur- og austurmið til að sækja
búnaðinn og lenti SIF á Horna-
fjarðarflugvelli um það leyti sem
SYN kom austur. Hefði annars
þurft að bíða eftir búnaðinum fram
yfir helgi og var álitið að of mikil
áhætta fælist í að bíða svo lengi.
Flutningi þyrlunnar
flýtt vegna veðurspár
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Á pallinn Þyrlan var hífð upp á flutningavagn með sérstökum búnaði sem fenginn var að láni.
FÍLD, Félag Ís-
lenskra listdans-
ara, mun halda
Alþjóðlega dans-
daginn hátíðleg-
an á Dansverk-
stæðinu, heimili
sjálfstæða dans-
geirans mánu-
daginn 29. apríl.
Dans-æði mun hertaka Dans-
verkstæðið við Skúlagötu með fjöl-
breyttri dagskrá frá 10:00 – 16:00.
Dans Æði er lifandi safn um dans
fyrir börn á aldrinum 4-12 ára. Í
safninu verður hægt að hitta dans-
ara, vera dansari, sjá dans og jafn-
vel skapa dans á veggjunum. Höf-
undur og listrænn stjórnandi er
Aude Busson.
Milli 12:00 og 13:00 verður dans-
partí í boði Choreography Reykja-
vík. Plötusnúðurinn verður dans-
höfundurinn, dansarinn,
plötusnúðurinn og formaður FÍLD,
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir.
Dansæði í boði á al-
þjóðlegum dansdegi
Vegna bilunar TF-GNA hefur
Landhelgisgæslan aðeins eina
þyrlu tiltæka.
Danska herskipið Triton kom til
hafnar í Reykjavík á föstudag.
Fulltrúar Landhelgisgæslunnar
fóru um borð til viðræðna við skip-
herra skipsins til að athuga hver
staðan væri með Lynx-þyrlu sem er
um borð og flogið er af flug-
mönnum danska flughersins.
Þar kom í ljós að þyrlan er klár
til útkalls en til stóð að annar flug-
manna hennar færi til Danmerkur
á laugardagsmorgun. Skipherra
Triton, Lars Jensen, féllst á að
halda flugmanninum um borð í
skipinu þar til að danska herskipið
Vædderen kemur til Reykjavíkur
en það var væntanlegt til hafnar kl.
23 í gærkvöldi. Þá mun þyrla
Vædderen taka við viðbragðsstöðu
af þyrlu Tritons. Fyrirhugað er að
herskipið Vædderen verði í Reykja-
vík fram á miðvikudag og mun
Landhelgisgæslan njóta aðstoðar
danska sjóhersins vegna viðbragðs
þyrlna þangað til. Lynx-þyrlurnar
hafa 150 sjómílna drægi og geta því
komið til aðstoðar á haf út fyrir TF-
SYN sem því nemur. Samstarf
Landhgæslunnar og danska sjó-
hersins byggist á áratuga góðri
samvinnu sem meðal annars felst í
samæfingum, starfsmannaskiptum
og samstarfi við leit og björgun í
Norður-Atlantshafi.
Danskar þyrlur
verða til taks ef
Gæslan þarf
Ljósmynd/Gassi
Tekur eldsneyti Lynx-þyrlur danska sjó-
hersins hafa 150 sjómílna drægi