Morgunblaðið - 29.04.2013, Side 20

Morgunblaðið - 29.04.2013, Side 20
FRÉTTASKÝRING Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Á Alþingi Íslendinga munu 27 nýir þingmenn taka sæti í kjölfar al- þingiskosninganna á laugardaginn var eða sem nemur tæpum 43%. Munar þar mest um tólf nýja þingmenn Fram- sóknarflokksins og átta nýja þing- menn Sjálfstæðisflokks. Samfylk- ingin er eini flokkurinn þar sem engin nýliðun varð í þingliðinu. Í kosningunum 2009 náðu einnig 27 ný- ir þingmenn kjöri. Af þeim náðu fjór- tán endurkjöri nú. 65% núverandi þingmanna hafa því verið kjörin í kosningum sem haldnar voru eftir bankahrunið 2008. Steingrímur J. í sérflokki Þegar rýnt er í þingreynslu ein- stakra þingmanna sést að Stein- grímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, er í algjörum sérflokki en hann var fyrst kjörinn á þing í kosn- ingunum árið 1983 og hefur því setið í þrjátíu ár á þingi. Hann hefur átta ára forskot sem aldursforseti þings- ins á næstu tvo þingmenn en þeir Einar K. Guðfinnsson og Össur Skarphéðinsson voru báðir fyrst kjörnir á þing árið 1991. Tveir af nú- verandi þingmönnum voru ekki fæddir þegar Steingrímur J. náði fyrst kjöri og sá þriðji, Björt Ólafs- dóttir hjá Bjartri framtíð, var nokk- urra vikna gömul þegar kosning- arnar 1983 fóru fram. Innan VG er Ögmundur Jónasson sá sem hefur setið næstlengst, en hann fór fyrst á þing fyrir Alþýðubandalagið og óháða árið 1995. Bjarkey Gunn- arsdóttir kemur nú ný inn fyrir VG í Norðausturkjördæmi en hún var varaþingmaður á síðasta kjör- tímabili. Eini þingmaðurinn sem getur sagst hafa verið á þingi á undan Steingrími J. er Sigrún Magnús- dóttir, þingmaður Framsóknar- flokks, en hún tók tvisvar sæti sem varaþingmaður Ólafs Jóhannessonar, fyrst árið 1980 og svo árið 1982. Þó að Sigrún hafi nú fyrst náð kjöri sem þingmaður er óhætt að segja að hún sé enginn nýgræðingur en hún sat í borgarstjórn Reykjavíkur frá 1986 til 2002, fyrst fyrir Framsóknarflokkinn og svo fyrir R-listann. Sigrún er ekki eini nýliðinn sem tekur með sér reynslu úr sveitarstjórn inn á þing, því að Hanna Birna Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur setið sem borgarfulltrúi frá 2002 og gegndi embætti borgarstjóra frá 2008 til 2010, svo eitt dæmi sé nefnt. Þá má einnig geta þess að tveir af sex þingmönnum Bjartrar fram- tíðar, þeir Óttarr Proppé og Páll Val- ur Björnsson, tóku báðir sæti í sveit- arstjórnum í kosningunum 2010. Framsókn með mesta nýliðun Þingflokkur framsóknarmanna er áberandi yngstur þegar horft er til starfsaldurs á þingi fyrir hefðbundnu flokkana fjóra. Aldursforseti þeirra á þingi er Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Norðausturkjördæmis, en hann fór fyrst á þing í kosning- unum 2007. Eygló Harðardóttir kem- ur þar næst en hún tók sæti sem varamaður Guðna Ágústssonar þeg- ar hann sagði af sér þingmennsku haustið 2008. Fimm þingmenn flokksins bættust við í þingliðið 2009 en hinir tólf eru allir nýliðar á þingi. Það má segja að í síðustu þrennum kosningum hafi orðið mikil nýliðun á þingi því að í kosningunum 2007 náðu 24 nýir þingmenn kjöri. Hins vegar sitja einungis tíu þeirra enn á þingi, þar af fimm í Sjálfstæðisflokknum. Um 85% þingheims hafa því sest á þing á síðustu sex árum. Mikil endurnýjun á þingi eftir hrunið Morgunblaðið/Ómar Setning Alþingis Í kosningunum á laugardag náðu 27 nýir þingmenn kjöri. 20 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Kosn-ingaúrsliteru ekki alltaf skýr. En ekki þarf að kvarta yfir því að þau séu þokukennd núna. Eftir að hafa haft forystu fyrir ríkisstjórn í aðeins fjögur ár hrökklast Sam- fylkingin frá völdum með hrak- smánarlegum hætti. Vinstri grænir skreppa mjög saman. Þeir síðartöldu fengu 14 þing- menn í kosningunum 2009, en aðeins sjö þingmenn nú. Helm- ingur þinghópsins er hrokkinn fyrir borð. Sumir þoldu illa of- ríki og sviksemi Steingríms J. Sigfússonar og höfðu yfirgefið þingflokkinn á kjörtímabilinu. En samanburðurinn á milli kosninganna tvennra stendur, hvað sem því líður, og hann sýn- ir að helmingur fylgisins er horfinn. Stjórnarflokkarnir sem byrj- uðu kjörtímabilið með 34 þing- menn hafa aðeins 16 þingmenn nú! Það er næstum því svo að orð eins og „afhroð“ nái ekki til slíkra úrslita. Það er ekki nóg með það að stjórnarandstaðan sé orðin stærri en stjórnarliðið. Það eitt hefði jú verið næg tíð- indi. En þannig fór að hvor stjórnarandstöðuflokkurinn um sig hefur þrjá þingmenn um- fram stjórnarflokkana sam- anlagt! Það eru mikil ólík- indaúrslit. Árni Páll Árnason hafði ber- sýnilega ekki áttað sig til fulls á því hvað hafði gerst í kosning- unum fyrsta sólarhringinn á eft- ir og talaði í umræðuþáttum eins og Samfylkingin væri ennþá turn, þótt hann væri að vísu ekki mikill á hæðina: „Flokkur getur verið stór þótt hann hafi lítið fylgi,“ sagði formaðurinn. „Hann er stór ef hann hugsar stórt.“ Það er eins og einhver úr áfallahjálparteymi hafi reynt að hugga hann með þessu. Á þenn- an mælikvarða mælt er flokkur Þorvaldar Gylfasonar vakt- stjóra enn mjög stór, þrátt fyrir uppgefin úrslit. Vaktstjórinn talaði jafnan í nafni þjóðarinnar, sem eins konar sjálfskipaður umboðsmaður hennar, og hafði í hótunum við alla þá sem ekki færu að vilja þjóðarinnar, eins og Þorvaldur einn túlkaði hann. Árni Páll Árnason talar enn um Samfylkinguna 12 prósent sem einslags handhafa sálar sérhvers vinstrimanns á Íslandi. Hann lætur eins og engin kosn- ing hafi farið fram um helgina, en aldrei í sögunni hafði verið lýst öðru eins frati á einn stjórn- málaflokk og gert var þá. „Mesta tap stjórnmálaflokks í Vestur-Evrópu frá stríðs- lokum,“ sagði fræðimaðurinn. Árið 1991 var mynduð vel- heppnuð Viðeyjarstjórn Sjálf- stæðisflokks og Alþýðuflokks. Menn höfðu í upphafi nokkrar áhyggjur af miklum stærðar- mun stjórnarflokkanna tveggja, því að Alþýðuflokk- urinn hafði einungis 10 þingmenn. Sam- starfið gekk þó lengst af mjög vel og býsna góður ár- angur náðist. En þegar leið á kjörtímabilið sprengdi Jóhanna Sigurðardóttir sig út úr Alþýðu- flokknum og myndaði Þjóðvaka og réttlætti það m.a. með of miklum áhuga Jóns Baldvins og félaga á inngöngu í ESB! Þessi klofningur varð með öðru til þess að Alþýðuflokkurinn kom laskaður frá kosningunum og hafði ekki burði til áframhald- andi stjórnarsetu. Í framhaldinu hófust tilraunir til sameiningar vinstrimanna í eina hreyfingu og tókst að koma Alþýðuflokki, Alþýðubandalagi og Kvennalista í hinn sameinaða flokk. Þetta flokkabandalag fór ekki illa af stað. Nú, aðeins hálf- um öðrum áratug síðar, er Sam- fylkingin sú orðin minni en Al- þýðuflokkurinn einn var árið 1991, og þótti þá ekki stór. Sam- fylkingin er nú aðeins með níu þingmenn, jafnmarga og Al- þýðubandalagið eitt hafði fyrir sameiningu flokkanna þriggja í breiðfylkinguna. Þótt þingflokkur VG minnki úr 14 þingmönnum í sjö má þó benda á að fylgi hans er áþekkt því sem það var að jafnaði þar til „búsáhaldabyltingin“ skilaði þeim illa fenginni fylgisaukn- ingu. Lítill vafi er á að for- mannsskipti á síðustu metr- unum fyrir kosningar björguðu því sem mátti fyrir VG. Það fælist mikil ögrun í því, ef hinum stórlöskuðu stjórnar- flokkum yrði ætlað sæti við rík- isstjórnarborð núna. Það væri einnig áfall fyrir stjórnar- andstöðuflokkana tvo ef þeir svöruðu ekki kalli kosninganna fljótt og af festu. Úrslitin verða ekki án útúrsnúnings túlkuð nema á einn veg. Ekki er líklegt að forystu- menn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks muni gera ein- falt mál flókið. Í umræðunni er mjög mænt til forystusætisins í hugsanlegri ríkisstjórn þessara tveggja flokka. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur náð því að verða á ný stærsti flokkur þjóð- arinnar þegar horft er til at- kvæða. Framsóknarflokkurinn fékk glimrandi góða kosningu. Þingflokkar beggja eru jafn- stórir. Báðir formennirnir hafa alla burði til að valda embætti forsætisráðherra. Ef góð sátt, byggð á gagn- kvæmri tillitssemi við stefnu flokkanna, næst um öflugan málefnagrundvöll er engin ástæða til að ætla að annað kæmi í veg fyrir stjórn í sam- ræmi við niðurstöðu kosning- anna. Ef forsætisráðherrastóll stendur út af, eftir að málefna- grundvöllur er kominn, og finn- ist ekki betri aðferð mætti þess vegna „henda upp á það“ hvor fengi sætið við enda borðsins. Það gefur aldrei góða raun að gera einföld mál flókin} Afgerandi úrslit K osningaúrslitin liggja fyrir og ljóst er að kjósendur hafa hafn- að þeirri vinstripólitík sem frá- farandi ríkisstjórn hefur lagt áherzlu á undanfarin ár sem hefur ekki sízt einkennzt af gegndarlausum skattahækkunum og aðgerðum sem grafið hafa undan atvinnulífinu og þannig hægt veru- lega á endurreisn landsins. En það er ljóst að kjósendur hafa hafnað fleiru og þar á meðal því stefnumáli Samfylkingarinnar að halda áfram umsókninni um inngöngu í Evrópusam- bandið en flokkurinn lagði sem kunnugt er höfuðáherzlu á það mál í kosningabaráttunni. Formaður Samfylkingarinnar, Árni Páll Árnason, ítrekaði allt fram á kjördag að eina leiðin til þess að hægt yrði að halda umsókn- inni um inngöngu til streitu væri að flokkur hans fengi nógu góða kosningu. Hann var þannig nánast einn um það að minnast á Evrópumálin í leiðtogaumræð- unni í Ríkissjónvarpinu síðastliðið föstudagskvöld. Nokkuð sem hann gerði við hvert tækifæri. Það breytti þó ekki því að Samfylkingin varð fyrir mesta fylgistapi í sögu íslenzkra stjórnmála. Þessi áherzla á Evrópusambandið hefur vafalítið skað- að flokkinn mikið í kosningabaráttunni enda augljóslega ekki kosningamál og ekki það sem kjósendur voru með hugann við. Samfylkingunni til varnar má þó segja að hún hafi verið sjálfri sér samkvæm með þessari fram- göngu. Flokkurinn lagði jú áherzlu á inngöngu í Evrópu- sambandið fyrir þingkosningarnar 2009 og hefur gert það allt kjörtímabilið. En mikill meirihluti þjóðarinnar vill hins vegar ekki í sambandið eins og allar skoðanakannanir undanfarin nær fjögur ár hafa borið með sér. Skoðanakannanir um það hvort halda eigi umsóknarferlinu áfram hafa í bezta falli verið misvísandi og andstæðingar inngöngu í Evr- ópusambandið sem vilja ljúka viðræðunum vilja væntanlega aðeins fá samning á borðið til þess að hafna honum. Við þær aðstæður er vitanlega tilgangs- laust að halda áfram og hreinlegast að hætta umsóknarferlinu eins og bæði Sjálfstæð- isflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa á stefnuskrá sinni en almennt er talið líklegast að þessir tveir flokkar myndi næstu rík- isstjórn svo framarlega sem samkomulag ná- ist á milli þeirra. Aðrir mögulegir kostir bjóða upp á rík- isstjórnarsamstarf þriggja flokka sem verður að teljast mun lakari niðurstaða. En það má nefna fleira til sögunnar sem hafnað var í nýafstöðnum kosningum. Flokkar sem lögðu meg- ináherzlu á nýja stjórnarskrá byggða á drögum stjórn- lagaráðs riðu ekki feitum hesti frá þeim þrátt fyrir að hafa gjarnan talið sig hafa umboð til þess að tjá sig fyrir hönd þjóðarinnar. Það er hins vegar ekki að sjá að þjóðin sé þeim sammála en úrslit kosninganna verða vart túlkuð öðruvísi en svo að þessum sjálfskipuðu talsmönnum hafi verið sagt upp störfum. hjortur@mbl.is Hjörtur J. Guðmundsson Pistill „Fulltrúar þjóðarinnar“ reknir STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Þegar horft er yfir þá þing- menn sem mynda þingflokka Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks er eftirtektarvert að einungis sjálfstæðismenn- irnir, Einar K. Guðfinnsson og Guðlaugur Þór Þórðarson, hafa reynslu af ráðherradómi. Báðir sátu þeir í öðru ráðuneyti Geirs H. Haarde, ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylk- ingar, Einar sem sjávarútvegs- ráðherra og Guðlaugur Þór sem heilbrigðisráðherra. Í frá- farandi stjórnarflokkum hafa tíu af sextán gegnt ráðherra- embætti. Einungis tveir af 38 RÁÐHERRAREYNSLA Einar Kristinn Guðfinnsson Guðlaugur Þór Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.