Morgunblaðið - 29.04.2013, Page 23

Morgunblaðið - 29.04.2013, Page 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013 Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is Varahlutir í bíla Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki Dreymir þig nýtt eldhús! Hjá þaulvönum starfsmönnum GKS færðu sérsmíðað eldhús og allar innréttingar sem hugurinn girnist. Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og gæðasmíði alla leið inn á þitt heimili. Seint á síðasta ári var auglýst staða rekt- ors við Listaháskóla Íslands. Hjálmar H. Ragnarsson hafði fyrr um haustið gefið út yf- irlýsingu um að hann hygðist láta af störf- um við lok þess skóla- árs sem þá fór í hönd. Hjálmar hafði þá stýrt skólanum frá stofnun árið 1999 og unnið gott uppbygg- ingarstarf, svo sem skólinn ber með sér. Í auglýsingu um stöðuna kom m.a. þetta fram um hæfniskröfur til rektors: Meistara- eða doktorspróf í list- um og/eða listtengdum greinum. Yfirgripsmikil reynsla af list- sköpun og/eða akademísku starfi getur verið metin jafngild ofan- greindum menntunarkröfum. Umtalsverð reynsla af starfi í listsköpun og/eða af akademísku starfi ásamt stjórnunarreynslu. Leiðtogahæfni, innsæi og lipurð í samskiptum. Þá kemur einnig fram í auglýs- ingunni að skólinn starfi skv. lögum um háskóla. Í lögunum sem eru frá 2006 og með viðbót frá 2012 stend- ur m.a. þetta í 15. grein: Rektor skal uppfylla kröfur 1. mgr. 18. gr. sem háskólakennari á einu eða fleiri viðurkenndum fræðasviðum viðkomandi háskóla. Í 18. greininni má svo lesa þetta: Háskólar skulu setja á fót dómnefnd til að meta hæfi prófessora, dósenta, lektora og sérfræðinga. Þeir skulu jafn- framt hafa sýnt þann árangur í starfi að þeir njóti viðurkenningar á viðkomandi sérsviði. Umsóknarfrestur um stöðuna rann út snemma í janúar á þessu ári og nokkru eftir jafndægur var tilkynnt hver yrði næsti rektor skólans, en í millitíðinni hafði hinn kaþólski heimur misst sinn páfa og kosið sér nýjan á nokkrum dögum. Fríða Björk Ingvarsdóttir varð fyr- ir valinu úr 15 manna umsækj- endahópi. Í fréttatilkynningu frá stjórn skólans er Fríða Björk kynnt svona: Fríða Björk er með MA gráðu frá University of East Anglia í Norwich, í 19. og 20. aldar skáldsagnagerð en námið var sam- tvinnað deild skólans í ritlist. Veigamikill þáttur í náminu var menningarfræðileg greining á skapandi listum og samhengi þeirra við umhverfið. Fríða Björk er með BA gráðu frá Háskóla Íslands í al- mennri bókmenntafræði og stund- aði einnig nám til BA prófs í Centre Universitaire de Lux- embourg. Þá er nokkuð fjallað um störf hennar sem bókmennta- og menn- ingarrýnir, rithöf- undur, blaðamaður og þýðandi og greint frá störfum hennar við RÚV og þá eru tíund- uð nefndarstörf. Áður en lengra er haldið er líklega best að geta þess að ég er ágætlega kunnugur skólanum. Ég sat í stjórn hans í um tíu ár og mótaði meðal ann- ars helstu reglur hans um akademíska starfs- hætti, val á starfsmönnum og dóm- nefndarstörf og fleira sem að þann- ig málum snýr. Einnig ber mér að geta þess að ég þekki Fríðu Björk ágætlega og hef átt við hana sam- starf og kunningsskap í fjölda ára. Þegar ég settist í stjórn LHÍ ár- ið 1998, fyrst sem undirbúnings- stjórn og síðar sem formlega stjórn skólans, var það eitt af fyrstu verk- um stjórnarinnar að fella hann að gildandi háskólareglum, móta sjálf- stæði hans innan þeirra og semja honum starfsmannastefnu. Í sem allra stystu máli var það álit stjórn- armanna að afar mikilvægt væri að í stöðu rektors veldist listamaður með afgerandi vægi á sínu sviði og hefði styrk til að berjast á opinber- um vettvangi fyrir framgangi mála. Bæði skilyrðin náðust með ráðn- ingu Hjálmars og um það þarf ekki að fjölyrða frekar. Sama regla hef- ur verið notuð við ráðningu í allar helstu stjórnunarstöður við skól- ann, enda stendur hann faglega vel á sínum sviðum. Með ráðningu Fríðu Bjarkar hef- ur verið farið af þessari leið. Fríða er menntaður bókmenntafræðingur og hefur starfað á því sviði með eft- irtektarverðum hætti. Hún hefur markað sér stöðu sem gagnrýnandi og blaðamaður, en aldrei unnið á fræðasviðum skólans. Hún væri þ.a.l. ekki gjaldgeng sem kennari eða prófessor við skólann og við það geri ég alvarlegar athugasemd- ir. Og ef rýnt er í lagabókstafinn hér að ofan má vel spyrja hvort farið hafi verið að lögum með þess- um gerningi. Ný stjórn hefur ekki aðeins vikið af þeirri leið að ráða listamann í stöðu rektors, heldur hefur hún einnig slegið af akadem- ískum kröfum. Fagleg dómnefnd getur ekki komist að þeirri nið- urstöðu að mastersgráða í bók- menntum sé skólanum samboðin og hærra metin en sambærileg gráða í listum og listrænn ferill þar á ofan. Það sem vekur sérstaka athygli mína í auglýsingunni um rekt- orsstarfið er þetta og/eða sem hnýtt er aftan við listrænar kröfur til væntanlegs rektors. Þar eru list- tengdar greinar og önnur almenn akademísk störf og reynsla metin til jafns við yfirgripsmikla og um- talsverða reynslu af listsköpun. Það er engu líkara en strax þarna hafi verið ákveðið að listamaður ætti ekki að leiða listrænt starf við skól- ann. Og að teknu tilliti til þessarar viðbótar, þá spyr ég hvort Fríða Björk hafi nauðsynlega reynslu af akademísku starfi. Í ítarlegri kynn- ingu á henni á heimasíðu LHÍ er hvergi getið um önnur akademísk störf en almenna háskólakennslu víð HÍ. Ég sat einn kynningarfund með stjórnarmönnum LHÍ um auglýs- ingu á rektorsstarfinu, en á honum var stjórn LHÍ að kynna sér sjón- armið stjórnarmanna í Félagi um LHÍ. Á þeim fundi lagði ég þunga áherslu á að ráðinn yrði listamaður með áðurnefnda hæfileika. Kolbrún Halldórsdóttir, formaður stjórnar LHÍ, gerði á þeim fundi ekki grein fyrir stefnubreytingu hjá stjórn skólans. Ég hinsvegar trúði því og treysti að manneskja í hennar stöðu, og forseti BÍL í ofanálag, hefði þetta sjónarmið líka og berð- ist fyrir því að listamenn gegndu svona stöðum. Á fundinum kynnti ég líka hugmynd mína um opnara ráðningarferli sem ég taldi að væri mikilvægt fyrir umsækjendurna, starfsmenn skólans og ekki síður nemendur og almenna umræðu um málefni skólans. Ekkert þessara at- riða var haft til hliðsjónar í þessu ferli. Mér er ekki kunnugt um hvernig þessi niðurstaða var fengin, en mér er hinsvegar kunnugt um að meðal umsækjenda voru vel hæfir lista- menn sem þekkja innviði skólans mjög vel og hafa gegnt þar ábyrgð- arstöðum og eflaust aðrir sem starfað hafa utan skólans. Nú er það auðvitað svo að starfsmenn við skólann eiga engan rétt til að vera ráðnir sem rektor skólans, en þeir hafa a.m.k. verið metnir hæfir til að kenna þar eða gegna öðrum stjórn- unarstöðum og ættu þar af leiðandi að vera gjaldgengir kandídatar. Þeirra listræni ferill, menntun og hugmyndir um starfsemi skólans hafa verið vegin og metin í sam- bærilegu umsóknarferli og hér um ræðir. Það eru mér mikil vonbrigði að skólinn hafi ekki listamann í fremstu fylkingu. Listaháskóli verður að hafa sterka listræna sýn og hana verður listamaður að leiða. Ég óska Fríðu Björk velfarnaðar í starfi og vil taka fram að þessi skrif eru ekki henni til höfuðs. Það er hinsvegar von mín að stjórn skólans taki mark á þessum skrif- um og svari því sem að ráðningunni snýr og efni til umræðu um málefni skólans, ekki síst þá hlið sem hér var gerð að umtalsefni – og/eða fari yfir málið með lögfræðina að leið- arljósi, þó það sé að jafnaði öllu leiðinlegri umræða en sú listræna. og/eða um ráðningu rektors við Listaháskóla Íslands Eftir Kristin E. Hrafnsson »Ný stjórn hefur ekki aðeins vikið af þeirri leið að ráða listamann í stöðu rektors, heldur hefur hún einnig slegið af akademískum kröfum. Kristinn E. Hrafnsson Höfundur er myndlistarmaður og fyrrverandi stjórnarmaður í Listaháskóla Íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.