Morgunblaðið - 29.04.2013, Qupperneq 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013
HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ
Í GÓÐUMHÖNDUM
Snjallt að
kíkja á okkur
á adal.is
Við erummeð fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í
Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á
þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-0
4
6
7
Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár
Reykjavík
Grjóthálsi 10
Sími 590 6940
Reykjavík
Skeifunni 5
Sími 590 6930
Hafnarfjörður
Hjallahrauni 4
(við Helluhraun)
Sími 590 6900
Kópavogur
Skemmuvegi 6
(bleik gata)
Sími 590 6935
Reykjanesbær
Holtsgötu 52
(við Njarðarbraut)
Sími 590 6970
www.adalskodun.is og www.adal.is
Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn
á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með
bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt.
Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
• Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
• Hnoðar deig
• Býr til heita súpu og ís
• Uppskriftarbók og
DVD diskur
fylgja með
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 106.900
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 125.765
Meira en bara
blandari!
LifunHeimili og hönnun
Morgunblaðið
gefur út
glæsilegt
sérblað um
Heimili og
hönnun
föstudaginn
10. maí
Í blaðinu verða kynntir geysimargir möguleikar
og sniðugar lausnir fyrir heimilin.
Skoðuð verða húsgögn í stofu, hjónaherbergi,
barnaherbergi og innréttingar bæði í eldhús og bað.
SÉRBLAÐ
Heimili & hönnun
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16mánudaginn 6. maí.
Það er um hálf öld
liðin síðan hún Stína,
þá ung sveitastúlka
frá Vestfjörðum, fór í
sína fyrstu borg-
arferð. Sagan væri
vart í frásögur fær-
andi nema fyrir það
að í þessari borg-
arferð fór hún á dans-
leik og hitti hann
Stjána, ungan borg-
arpilt. Eins og í öllum góðum æv-
intýrum litu þau hvort annað hýru
auga, felldu hugi saman og fóru að
skipuleggja framtíðina.
Þau sátu tímunum saman og
létu sig dreyma um að kaupa hús,
flytja saman og eignast börn og
lifa hamingjusöm alla sína ævi-
daga … „Happy ending“!
Stína og Stjáni létu drauminn
rætast, keyptu hús, fluttu saman,
eignuðust börn og …
Já, kannski er það hér sem sag-
an byrjar? Stína, sem var alin upp
í sveit, fékk uppeldi í samræmi við
það. Ákveðnar reglur voru um
hvað mátti og mátti ekki í sveit-
inni og gildi hennar mótuðust af
reglum foreldranna og því um-
hverfi sem hún bjó í. Þegar hún
nú eignast sín eigin börn og komið
er að henni að ala þau upp í góð-
um siðum og guðstrú hefur hún
eigin gildi að leiðarljósi.
Þar sem maður hennar, hann
Stjáni, er alinn upp í borginni og
hjá öðrum foreldrum þar sem aðr-
ar reglur og gildi eru ráðandi
kemur hann inn með aðrar hug-
myndir um barnauppeldi.
Vegna þess að Stína og Stjáni
eru skynsamir einstaklingar finna
þau lausn og gera málamiðlun.
Þau setjast niður, og ræða saman
um það sem er mikilvægt fyrir
þau hvort fyrir sig og hvernig þau
geta sameinað þessi ólíku gildi
sem þau koma með inn í sam-
bandið. Vegna þess að þau bera
virðingu fyrir ólíkum uppruna
gildanna tekst þeim að sameina
það sem er mikilvæg-
ast og gera það að
nýjum gildum sem
þau í sameiningu
fylgja í uppeldi barna
sinna. Börn þeirra
komast þannig til
manns með eitt sett
af nýjum gildum, þeg-
ar þau flytja að heim-
an. Stína og Stjáni
eru nú komin að nýj-
um kafla í lífi sínu!
Dag einn þegar
þau, nú miðaldra,
sitja tvö ein við mat-
arborðið uppgötva þau að vinnan,
börnin og barnauppeldi hafa tekið
allan hug þeirra og tíma síðustu
árin. Þau vita ekki lengur hvað
þau eiga að tala um, þau horfa
hvort á annað og velta fyrir sér
hver þessi manneskja er sem situr
þarna við hinn enda borðsins, hver
það er sem liggur í hinum helm-
ingi rúmsins!
Stína og Stjáni eru enn skyn-
samar manneskjur og komast að
því að þau eiga hugsanlega eftir
30 eða jafnvel 50 ár saman. Þau
horfa hvort á annað og finna út að
nú sé tími til kominn að kanna
verðgildin á ný, hvað er mikilvægt
og hvert þau vilja stefna.
Þau byrja að vinna í gildunum
sínum, endurskoða og raða upp á
nýtt. Leggja drög að nýrri stefnu-
mótun þar sem áhersla er nú lögð
á þau tvö, líf þeirra og langanir …
og vinna í að gera gott samband
enn betra og „að ganga í takt“.
Verðgildi og sannfæringar
hvetja okkur til að gera eða gera
ekki á hvaða sviði lífsins sem er. Á
þessu þrepi skapast einnig ágrein-
ingur og ósætti, því þegar verð-
gildum okkar er ógnað förum við í
varnarstöðu, verjum þau og berj-
umst fyrir því að aðrir skilji sýn
okkar á heiminn, sem byggist á
sannfæringum okkar og gildum.
Þegar ósætti eða ágreiningur
kemur upp í samböndum getum
við verið nokkuð viss um að það
eru verðgildi okkar sem verða fyr-
ir ógnun eða væntingar okkar ekki
uppfylltar.
Það er því góð regla að gefa sér
tíma fyrir sambandið og endur-
skoða verðgildin og það sem er
mikilvægt fyrir mig, fyrir þig og
fyrir okkur.
Hvenær tókuð þið síðast til í
verðgildunum ykkar?
Hvaða merkingu hafa gildin;
öryggi, samstarf, frelsi, ást, kynlíf,
vinur?
Ert þú viss um að þið leggið
sömu merkingu í þessi orð?
Hvað er gott samband fyrir
þig?
Líklega lætur þú fagmenn skoða
og gera við bílinn þinn, en hver
sér um viðhald sambandsins?
Hver sér um viðhald og viðgerðir
á samskiptum þínum?
Er ekki undarlegt að við oft á
tíðum gleymum að viðhalda og
endurskoða það sem virkilega
skiptir máli í lífi okkar, okkar eig-
in gildi. Bíllinn, tölvan og húsið …
þessu viðhöldum við, því við vitum
að ella bila þessir hlutir og verða
ónothæfir á endanum.
Hversu margir eru það ekki á
ári hverju sem „bila“, veikjast og
eru „útbrenndir“, falla brott af
vinnumarkaði eða slíta samvistir
vegna þess að þeir gleyma að
halda sjálfum sér við, skoða gildi
sín og það sem virkilega skiptir
máli í lífinu og gefur vinnulífs-
gleði.
Kannski er kominn tími á að
uppfæra fullkomnustu tölvu í
heimi – heilann?
Lætur þú skoða bílinn reglu-
lega … og hjónabandið þitt?
Eftir Hrefnu
Birgittu
Bjarnadóttur
» Líklega lætur þú
fagmenn skoða
og gera við bílinn
þinn, en hver sér um
viðhald á hjónaband-
inu eða viðhald og
viðgerðir á sam-
skiptum þínum?
Hrefna Birgitta
Bjarnadóttir
Höfundur er NLP-kennari,
HR-coach, mannauðs- og
starfsþróunarþjálfi.