Morgunblaðið - 29.04.2013, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 29.04.2013, Qupperneq 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013 ✝ FinnbogiHaukur Sig- urjónsson málari fæddist á Krums- hólum í Borg- arhreppi í Mýra- sýslu, 6. október 1922. Hann lést í Reykjavík 16. apríl 2013. Foreldrar hans voru Sigurjón Kristjánsson, bú- fræðingur og bóndi, f. 25.8. 1878, d. 5.6. 1951, og kona hans Lára Guðmundsdóttir húsmóðir, f. 2.8. 1876, d. 9.3. 1946. Systkini Finnboga Hauks, sammæðra, eru, Steinþór Sig- tryggur Guðmannsson, f. 10.3. 1903, d. 22.3. 1954, og Kristján Guðmannsson, f. 11.8. 1905, d. 24.12. 1908. Alsystkini Finn- boga Hauks eru, Sigurbjörn, f. 7.4. 1909, d. 20.5. 1964, Guð- mundur Friðrik, f. 18.5. 1911, d. 16.2. 1928, Kristján, f. 24.9. 1913, d. 11.5. 1975, og Guðlaug, f. 12.4. 1918, d. 31.5. 2007. Finnbogi Haukur giftist hinn 6.10. 1951 Sigríði Ingimund- ardóttur, verkakonu og hús- dulson, f. 16.5. 2008. 3) Lárus, f. 27.9. 1959, maki Hulda Rós Rúriksdóttir, f. 2.3. 1964, synir þeirra eru, a) Lárus Sindri, f. 28.2. 1992 og b) Arnar Heimir, f. 26.3. 1994. Uppeldisdóttir Finnboga Hauks og dóttir Sigríðar er 4) Bára, f. 26.2. 1948, eiginmaður hennar er Reynir Eggertsson, f. 28.2. 1951, dóttir þeirra er a) Sigríður Þóra, f. 2.7. 1975. Finnbogi Haukur hóf nám í málaraiðn í Reykjavík 1944, lauk sveinsprófi 1948 og fékk meistarabréf í greininni 1951. Hann fór einnig í framhalds- nám í einn vetur við Det Tekn- iske Selskabs Skole í Kaup- mannahöfn. Framan af starfsævinni vann hann mikið við skiltagerð og málun skreyt- inga, en starfaði alla tíð við húsamálun, ýmist hjá öðrum eða á eigin vegum og síðustu starfsárin vann hann sem mál- ari hjá Ríkisspítölunum. Hann hafði mikinn áhuga á fé- lagsmálum. Starfaði mikið inn- an Málarafélags Reykjavíkur, vann að hagsmunamálum íbúa í Selás- og Árbæjarhverfum auk þess að vera virkur þátttakandi í starfi vinstrihreyfinga, eink- um framan af ævi. Finnbogi Haukur verður jarðsunginn frá Seljakirkju í Reykjavík í dag, 29. apríl 2013, og hefst athöfnin kl. 15. móður, f. 5.10. 1923, d. 14.2. 2008. Synir þeirra eru: 1) Bragi, f. 18.8. 1952, maki Guðný Stefanía Guðgeirs- dóttir, f. 30.8. 1952, dætur þeirra eru a) Halldóra, f. 8.3. 1978, börn hennar og Halls Jónassonar, f. 24.5. 1978, eru Embla Líf, f. 21.2. 2001, og Viktor Adam, f. 20.7. 2004, b) Sigrún, f. 7.8. 1981, sambýlismaður Kristinn Már Magnússon, f. 30.4. 1982, börn þeirra eru Re- bekka Lind, f. 27.11. 2007, og Brynjar Már, f. 23.10. 2010. 2) Birgir, f. 2.10. 1954, maki Mar- grét Ásgeirsdóttir, f. 15.6. 1956, synir þeirra eru a) Ás- geir Rafn, f. 25.2. 1981, b) Finnbogi Haukur, f. 26.5. 1986, dóttir Margrétar og uppeld- isdóttir Birgis er, c) Björg Rós Guðjónsdóttir, f. 1.5. 1976, maki Abdul Rastagar, f. 9.1. 1976, synir þeirra eru Isaac Rastagar Abdulson, f. 5.5. 2006, og Aaron Rastagar Ab- Nú þegar hann pabbi hefur lokið sinni lífsgöngu vil ég kveðja með nokkrum orðum. Pabbi og mamma hófu sinn búskap árið 1951. Árið 1954 fluttu þau í Selásinn, byggð sem var að þróast úr sveit í úthverfi borgar. Á þeim tíma var hús- næðisskortur í Reykjavík. Í sumarbústöðum í Selási og Ár- bæjarblettum bjó fólk allt árið, auk þess sem byggð voru ný hús. Erfiðlega gekk að fá Reykjavíkurborg til að sinna grunnþjónustu fyrir hverfin. Íbúarnir stofnuðu „Framfara- félag Seláss og Árbæjarbletta“, til að berjast fyrir vatnsveitu, strætisvagnaferðum, síma og skóla fyrir hverfin. Pabbi var einn af forystumönnum í þeirri baráttu. Í Selási 13 vorum við systkinin alin upp í frelsi dreif- býlisins til ársins 1972. Þá flutt- um við á Ránargötu 30, í gamalt steinhús sem þarfnaðist mikilla lagfæringa. Á fáum árum var húsið lagfært og lóðinni breytt úr órækt í fallegan garð. Árið 1995 fluttu pabbi og mamma í Árskóga 8. Vegna veikinda mömmu auðnaðist þeim ekki að búa þar saman nema örfá ár. Mamma lést í Seljahlíð 14. febr- úar 2008. Pabbi starfaði allan sinn starfsaldur sem málari. Hann var virkur í félagsstarfi fyrir Málarafélagið í mörg ár. Hann hafði mikinn metnað fyrir sínu fagi og lagði sig alltaf fram um að skila góðu verki. Þannig vildi hann líka sjá aðra vinna og ól börn sín upp með það að leið- arljósi. Í Selásnum voru ræktaðar kartöflur og ýmislegt annað grænmeti. Eftir að við fluttumst á Ránargötuna var fengið garð- land á Korpúlfsstöðum sem fjöl- skyldan hafði í nokkur ár. Þá höfðu nokkur barnabörn bæst í fjölskylduna. Við minnumst fjöl- skylduboðanna á Ránargötunni, á jólum, 17. júní o.fl., ekki má gleyma sláturgerðinni. Það var alltaf tilhlökkunarefni, sérstak- lega hjá barnabörnunum, að hittast hjá ömmu og afa á Rán- argötunni. Pabbi hafði mikið yndi af hestum, átti hesthús í Víðidal í ríflega 20 ár. Hluti barnanna og afabarnanna höfðu þetta sama áhugamál og áttu margar ánægjustundir með honum í hestamennskunni. Heilsan fór smám saman versnandi hjá pabba síðustu ár- in. Þá fékk hann heimaþjónustu sem var aukin eftir því sem þörf- in krafði. Haustið 2011 fluttist hann á Hjúkrunarheimilið Eir. Pabbi barðist í sínum veik- indum af sömu seiglu og hann hafði gert í gegnum alla lífsbar- áttuna. Sem dæmi um baráttu- viljann má nefna að á Eir var hann settur í herbergi með öðr- um manni. Þeir áttu ekki vel saman. Lítið virtist hlustað á umkvartanir hans, synirnir voru margbúnir að óska eftir úrbót- um. Það endaði með því að gamli maðurinn greip til sinna ráða, pantaði leigubíl með sína blindu, parkinson og göngugrind og fór heim í Árskóga. Daginn eftir fékk hann sig fluttan í skárra pláss. Það var ekki hans stíll að biðja um hjálp við það sem hann gat mögulega gert sjálfur. En hann var þakklátur öllum þeim sem hjálpuðu honum, í heima- hlynningu og á hjúkrunarheim- ilinu Eir. Þar vinnur fólk oft erf- ið störf undir miklu álagi. Ég vil þakka öllu því góða fólki sér- staklega fyrir umönnunina. Ég kveð með söknuði kæran föður og trúi að nú taki við betri tímar hjá honum. Bragi Finnbogason. „Drottinn, vertu oss nálægur á þessari alvörustundu og öllum ævistundum vorum. Láttu ylgeisla föðurelsku þinn- ar streyma inn í sálir vorar, svo að aldrei geti læðst þangað inn efi um það að þú ert sá eini sem aldrei getur brugðist oss. Algóði faðir, opnaðu augu vor, svo að við sjáum að það er almættishönd þín sem ávallt leiðir oss og einnig þá er oss virðist að erfiðleikar lífsins ætli að verða ofurefli vorum veiku kröftum. Vér þökkum þér góði Guð fyrir ævi- starf hins framliðna manns sem nú hefur fengið hvíld eftir langa lífsbar- áttu. Sérstaklega þökkum við allt það góða sem hann vann fyrir vandamenn sína, þökkum öll hans þróttmiklu handtök í báráttunni fyrir lífi þeirra meðan þeir vour ósjálfbjarga og höfðu enga eða litla hugmynd um hvað fyrir þá var gert. Láttu sál hins framliðna finna sælan frið á æðri sviðum tilverunnar og vertu honum og oss öllum miskunn- samur faðir, í Jesú nafni – Amen.“ Þessa bæn samdi föðurafi minn Sigurjón Kristjánsson og fór með við kistulagningu föður síns. Ég læt hana fylgja í kveðju til föður míns sem ég minnist með kærleika og þakklæti. Birgir Finnbogason. Í dag er tengdafaðir minn, Finnbogi Haukur Sigurjónsson, borinn til grafar. Hann var að mörgu leyti mjög einstakur mað- ur. Haukur kom til Reykjavíkur ungur maður. Hann lærði mál- araiðn hér og fór svo til Dan- merkur til að læra skiltamálun og vann við það á meðan það tíðkaðist að mála skilti en vann síðar sem húsamálari. Haukur var mikill nákvæmismaður í sínu fagi og eftir hann liggur ótrúlega fallegt handbragð í skrautmálun kistla og húsgagna. Haukur var róttækur á sínum yngri árum. Hann eltist ekki við það lífsgæðakapphlaup sem flestir Íslendingar gerðu. Þegar hann keypti fyrsta bílinn fyrir fjölskylduna voru börn hans orð- in fullorðin. Hann keypti bíla frá austantjaldslöndunum á meðan það var hægt, allt þar til hann neyddist til að kaupa bílana sína frá öðrum löndum því að ekki fengust lengur slíkir bílar. Á meðan hann gat keyrt hafði hann mikla ánægju af því að keyra upp í Borgarfjörð á sínar heimaslóðir og heimsækja vini sína þar. Haukur átti ávallt sín áhuga- mál. Þau sneru að bókum og hestum en hvorttveggja gaf hon- um mikið. Haukur hafði miklar skoðanir á öllu. Á meðan hann hafði fulla heilsu kom það ósjaldan fyrir að hann ryki upp yfir umræðuefn- um sem voru til umfjöllunar við kaffiborð hjá þeim hjónum þegar þau bjuggu á Ránargötu 30. Hann var ekki maður sem hægt var að tala til og fá á sína skoð- un. Hann myndaði sér sína eigin skoðun og henni varð ekki hagg- að. Haukur var mikill fjölskyldu- maður. Hann gerði allt fyrir Sig- ríði eiginkonu sína, sem hann gat. Hann var mjög ánægður með fjölskyldu sína, börn og af- komendur þeirra. Hann fylgdist vel með því hvað þau gerðu og hvernig þeim vegnaði, þó að hann hafi kannski ekki viljað sí- fellt hafa þau í kringum sig. Hann var einstaklega ánægður alltaf þegar kom að laufa- brauðsgerð fjölskyldunnar í byrjun aðventu á hverju ári. Þar var verkaskipting ávallt skýr. Allir skáru saman í byrjun en þegar leið á fóru hann og synir hans saman afsíðis til að steikja. Í síðasta desembermánuði var hann með í steikingu þó að hann gæti ekki lengur staðið yfir pott- unum með drengjunum sínum. Heilsa Hauks var orðin af- skaplega bágborin síðustu miss- erin. Hann var illa haldinn af parkinsons og var nánast blind- ur. Þá greindist hann með krabbamein fyrir u.þ.b. tveimur árum. Allt fram til síðasta dags hlustaði hann þó á upplesnar bækur af geisladiskum og hafði mikla ánægju af því. Hann fylgdist með öllum fréttum og vissi líklega mun betur en við hin sem höfum fulla heilsu, hvað kom fram í útvarpi. Hann gat leiðrétt aðra í fjölskyldunni, sem ekki tóku nógu vel eftir í kring- um sig. Haukur fór á hjúkrunarheim- ilið Eir fyrir u.þ.b. einu og hálfu ári. Þar var vel hugsað um hann. Haukur áttaði sig fyllilega á því þegar leiðarlok hans nálguðust. Hann var sáttur við að ljúka sínu lífi. Lífsgæði hans voru ekki orð- in mikil undir það síðasta. Nú leggst hann til hvílu við hlið lífs- förunautar síns, Sigríðar Ingi- mundardóttur, og ég veit að hann er mjög sáttur við það. Hulda Rós Rúriksdóttir. Elsku afi, nú er kominn tími til að kveðja og er það alltaf erf- itt. Þegar okkur verður hugsað til þín eru hestarnir það fyrsta sem kemur upp í hugann. Við munum alltaf eftir því að heim- sækja þig í hesthúsið í Víðidaln- um þegar við vorum pínulitlir og kíkja á hestana og var Gosi alltaf í miklu uppáhaldi. Það að fá að kíkja í hesthúsið til þín, finna hestalyktina og klappa hestun- um voru okkar fyrstu kynni af hestum og má segja að þú og hestarnir þínir hafi haft mikil áhrif á okkur bræður þar sem að í dag þá kemst ekkert annað að hjá okkur heldur en hestar. Svo seldirðu hestana og hesthúsið og þá voru aldrei aftur neinar heim- sóknir í hesthúsið. En þegar við kíktum í heimsókn höfðum við þó alltaf hestana að tala um og þegar við spjölluðum saman þá þraut aldrei hjá okkur umræðu- efnið. Við gleymum því heldur aldrei þegar þú gafst okkur bræðrum tvær bækur sem heita Horfnir góðhestar og innihalda þær sögur af hinum ýmsu gæð- ingum sem uppi hafa verið hér- lendis. Þessar bækur höfum við lesið alveg út í gegn og eru þetta fyrstu bækurnar sem við bræður höfum lesið af virkilegum áhuga. Við ræddum svo sögurnar úr bókunum við þig og alltaf hlust- aðirðu á það sem við höfðum að segja og alltaf gastu sagt okkur eitthvað meira um hestana sem við höfðum lesið um. Kæri afi, það voru forréttindi að fá að kynnast þér og við mun- um aldrei gleyma þér, hvíldu í friði og skilaðu kveðju frá okkur til Sigríðar ömmu. Lárus og Arnar. Finnbogi Haukur Sigurjónsson ✝ Ólafur Guð-mundsson fæddist í Reykjavík 30. desember 1928. Hann lést á Hrafn- istu í Hafnarfirði 17. apríl 2013. Foreldrar hans voru hjónin Sess- elja Einarsdóttir frá Einarsstöðum í Biskupstungum, f. 26.11. 1904, d. 31.5. 2000, og Guðmundur Ólafsson frá Hólum í Dýrafirði, f. 26.12. 1893, d. 5.12. 1989. Systkini Ólafs: Gylfi, f. 3.4. 1936, d. 22.1. 2010, Ramón, f. 6.10. 1934, d. 20.5. 1935, Einar Örn, f. 31.5. 1938, d. 17.1. 1943, Hrafnhildur, f. 9.7. 1943, búsett í Þorlákshöfn, Klara Kolbrún, f. 13.1. 1947, búsett á Kjalarnesi. Hálfbróðir samfeðra er Erling- ur, f. 8.11. 1924, búsettur í Dan- mörku. Eiginkona Ólafs var Unnur Ágústsdóttir, f. 7.1. 1927, d. 5.9. 2012. Þau giftu sig 10.11. 1951. Börn þeirra eru: 1) Erling, f. 28.9. 1949, maki Margrét Sig- urgeirsdóttir, f. 23.7. 1957, börn þeirra Þröstur, f. 1978, Gígja, f. 1984 og Víðir, f. 1989. 2) Ingibjörg Svala, f. 25.6. 1953, maki Björgvin Björgvinsson, f. 12.7. 1955, börn þeirra Unnur Ósk, f. 1973, Eva Dís, f. 1980, Heiðrún, f. 1986, Elísa Björg, f. 1991 og Björgvin Guðmundur, f. 1992. 3) Guðmundur, f. 21.1. 1955, d. 20.7. 1992, dætur hans Lísabet, f. 1979, móðir hennar Þórunn Kristín Sverrisdóttir, f. 1961, og Þórunn, f. 1980, móðir hennar Steingerður Matthías- dóttir, f. 1958. 4) Örn, f. 1.6. 1956, maki Kristín Jensdóttir, f. 29.8. 1954, börn þeirra Ólöf Erna, f. 1974, Örn, f. 1981 og Erla, f. 1990. 5) Friðrik Ágúst, f. 24.12. 1958, maki Erna Snævar Óm- arsdóttir, f. 22.10. 1962, börn þeirra Ómar Snævar, f. 1980, Sindri Snæv- ar, f. 1988 og Berglind, f. 1991. 6) Kolbrún, f. 4.10. 1962, maki Hilmar Halldórsson, f. 29.6. 1962, börn þeirra Ester, f. 1980, Ólafur, f. 1984, Helga, f. 1988 og Daníel, f. 1994. Barna- barnabörnin eru 27 talsins. Ólafur ólst mestmegnis upp í Reykjavík, en öll sín búskap- arár bjó hann í Hafnarfirði, lengstum á Vesturbraut 20, deildi húsinu með tengdafor- eldrum þar til þeirra naut ekki lengur við, og bjó þar síðan áfram til 1987. Fluttist þá að Miðvangi 14 í Hafnarfirði og bjó þar þangað til hann fluttist á Dvalarheimilið Hrafnistu í Hafnarfirði í febrúar 2010. Ólafur nam bifvélavirkjun við Iðnskólann í Reykjavík og starfaði lengi við málefni tengd bílum, á viðgerðaverkstæðum, þjónustubifreiðum FÍB og við tjónamat hjá Hagtryggingu. Hann starfaði um árabil sem lögregluþjónn í Reykjavík. Sjó- mennska við fiskveiðar og fraktflutninga var einnig stund- uð langtímum, svo og fisk- vinnsla í landi. Auk þessa vann Ólafur við fjölbreytileg störf á ýmsum öðrum vígvöllum, gjarnan í aukavinnu. Ólafur var um langt skeið einn fremsti sundmaður landsins og segja má að líf hans hafi alla tíð snú- ist um sundíþróttina. Kveðjuathöfn hefur farið fram í kyrrþey. Faðir okkar kom víða við á lífsleiðinni og skulu hér nefnd- ar nokkrar vegstikur. Hann ólst upp hjá foreldrum í Reykjavík, elstur sex alsystk- ina. Frakkastígur 15 var kjöl- festan. Átti ættir að rekja í Dýrafjörð og Biskupstungur. Missti bróður fimm ára gam- all og aftur fjórtán ára gamall. Þau sár fjölskyldunnar greru aldrei um heilt. Yngri bróðir (d. 2010) og tvær systur uxu upp með honum á Frakkastígnum. Hann var einn fremsti af- reksmaður landsins í sundlaug- unum. Braut var þar mörkuð fjölskyldunni til að fylgja. Uppi stendur ein mesta sundfjöl- skylda landsins. ÍR, Haukar, SH. Ólafur á sundspretti, þjálf- ari, á bakkanum með flautu og startbyssu, á Sundsambands- fundum, að taka skóflustungu fyrir nýrri sundlaug í Hafnar- firði, heiðraður. Þetta á sinn stað í sundsögunni. Bifvélavirkinn Ólafur. Bíla- verkstæðin í Hafnarfirði. Bílar voru aldrei langt undan. Við- gerðarþjónusta FÍB á þjóðveg- um. Áberandi Landrover-jepp- ar á sumrin. Gjarnan sat eitthvert barna í farþegasæti. Mörgum var bjargað úr vand- ræðum. Skipt um kúplingsdisk um hánótt við Hreðavatnsskála. Og fleira tengt bílum. Hag- trygging. Tjónamat. Bílnúmerið G-548 einkenndi prívatbílana þar til númeraplöt- um var breytt. Þá tók við KR-141. Það tók tíma að sætta sig við KR. KR hafði hýst skæða keppinauta á árum áður! Ökuskírteinið, hlaðið stimplum, staðfesting á því að allir vegir væru færir. Að lokum lagðist ljón á veginn og ekki varð leng- ur ökufært. Starfaði um skeið hjá setulið- inu á Keflavíkurflugvelli, ef til vill í óþökk móður. Það var al- ist upp við andúð á Könum, andúð sem átti sárar skýringar. Sjómennskan var löngum skammt undan. Fiskirí. Síðu- togararnir í Hafnarfirði. Far- skipin ýmis. Skeiðsfoss varð kjölfesta. Það var góður tími var sagt. Ekki voru þó allar stundir góðar. Hryggbrot með afleiðingum sem kvöldu til hins hinsta. Stundum fylgdi frúin með í siglingum. Lögregluþjónninn Ólafur bar einkennisbúning lögreglunnar einkar vel enda íþróttamanns- lega vaxinn. Mótorfákarnir. Fjölskyldan. Vesturbraut 20. Þetta tvennt var samofið. Verð- andi tengdafaðir á Vesturbraut 20 gætti yngstu dóttur, Unnar, dyggilega fyrir heimsóknum. Samt fæddist frumburður 1949. Hjónaband 10. nóvember 1951. Alls urðu börnin á þröngu heimilinu sex, fjórir synir, tvær dætur. Vesturbraut 20 varð áfram vettvangur fjölskyldunn- ar eftir að tengdaforeldrar lét- ust. Hugur hjónanna tók að leita út fyrir landsteina þegar skyld- ur við barnahópinn voru að baki. Víða var komið við í lönd- um nær og löndum fjær, sólar- strendur, borgir, framandi menningarheimar. Árið 1987 var flust í blokk- aríbúð á Miðvangi 14. Þar bjuggu þau hjónin á meðan stætt var. Veikindi í höfði tóku að hreiðra um sig og ágerast. Afleiðingarnar urðu föður okk- ar fjötur um fót. Í febrúar 2010 fluttist hann á Hrafnistu í Hafnarfirði og dvaldi þar við góða umönnun til dánardags. Sonarmissir 1992, Guðmundur deyr af völdum hvítblæðis. Eig- inkonan deyr í september 2012. Minningu föður, afa, langafa verður á lofti haldið um ókomin ár. Erling, Ingibjörg Svala, Örn, Friðrik Ágúst og Kolbrún. Ólafur Guðmundsson Ástkær faðir okkar, JÚLÍUS AGNARSSON upptökustjóri, lést á heimili sínu, Grettisgötu 13b, síðastliðinn föstudag. Eiríkur, Agnar og Björn Júlíussynir, og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.