Morgunblaðið - 29.04.2013, Side 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013
Framsóknarsigur í kosningum, meistaratitill Man. Utd. oghelstu tíðindi í bæjarlífinu eru þau umræðuefni sem ÓlafurÁsgeirsson, fv. aðstoðaryfirlögregluþjónn á Akureyri, ætlar
að brydda upp á í heita pottinum í kvöld. „Ég fer daglega í sund,
ekki síst til þess að hitta fólk. Þá tek ég þátt í margvíslegu fé-
lagsstarfi, er í KA, skátunum, frímúrarareglunni og Framsókn-
arflokknum. Já, áhugamálin eru mörg, ég sýsla í ýmsu og læt mér
ekki leiðast,“ segir Ólafur.
Átján ára gekk Ólafur í lögreglulið á Akureyri og stóð vaktina í
47 ár. Lét af störfum fyrir þremur árum. „Starfið var lærdómsríkt
og á margan hátt gefandi. Mér telst svo til að á mínum ferli hafi ég
starfað með þremur kynslóðum bæjarbúa og þannig sá ég oft að
mannlegur breyskleiki fylgir sumum fjölskyldum í nokkra liði. Það
var og er dapurlegt,“ segir Ólafur sem er kvæntur Bente Lie Ás-
geirsson. Þau eiga þrjú uppkomin börn.
„Konan mín er norsk og eftir að ég hætti að vinna höfum við tals-
vert verið í Noregi. Þar bjuggum við raunar um skeið fyrir fjörutíu
árum og þá vann ég á Möllersgate 19, í frægu og alræmdu fangelsi.
Kynntist þar helstu krimmum Noregs, sem voru allt öðruvísi en ís-
lenskar fyllibyttur. En með tímanum breyttist þetta og þegar kom
fram undir 1990 voru norskir glæpir orðnir íslenskur veru-
leiki,“segir Ólafur Ásgeirsson. sbs@mbl.is
Ólafur Ásgeirsson er 68 ára í dag
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Lögga Mér telst svo til að á mínum ferli hafi ég starfað með þremur
kynslóðum bæjarbúa, segir Akureyringurinn Ólafur Ásgeirsson.
Framsókn og
fótbolti í pottinum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Reykjavík Dagný
Alva fæddist 6. maí
kl. 16.39. Hún vó
3.410 g og var 52 cm
löng. Foreldrar henn-
ar eru Anna Heiður
Eydísardóttir og
Eliths Freyr Heim-
isson.
Nýr borgari
M
agnús fæddist í
Reykjavík og ólst
þar upp. Hann var í
Austurbæjarskóla
og Gagnfræðaskóla
Austurbæjar, stundaði nám við MR
en hætti í 5. bekk og hóf þá nám við
Akademíuna í Kaupmannahöfn og út-
skrifaðist þaðan eftir sex ára nám.
Magnús var lengi búsettur í
Reykjavík en festi kaup á jörðinni
Ökrum III á Mýrum, við ósa Hítarár,
1988 og hefur verið þar búsettur að
mestu frá því um 2000.
Magnús hannaði ný og frumleg
leiktæki fyrir Reykjavíkurborg á átt-
unda áratugnum, einkum í Vest-
urbænum og kom auk þess að hönnun
skólalóða í samvinnu við Ingimund
Sveinsson arkitekt. Hann hannaði auk
þess leikmyndir fyrir RÚV - Sjónvarp
og Þjóðleikhúsið og Leikfélag Ak-
ureyrar.
Magnús starfaði með SÚMurum
fyrstu árin, vann með Torfusamtök-
unum að friðun eldri húsa og blandaði
litina á Bernhöftstorfuna er húsin þar
voru máluð af áhugafólki, vorið 1973.
Hann hefur að öðru leyti látið fé-
lagsstörf lönd og leið enda segist hann
vera skelfilegur félagsskítur.
Einkasýningar Magnúsar
Magnús hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga um dagana en helstu
einkasýningar hans eru
Bogasalur Þjóðminjasafnsins,
Reykjavík, 1962; Bogasalur Þjóð-
minjasafn, Reykjavík, 1965; Gallerí
SÚM, Reykjavík, 1969; Gallerí SÚM,
Reykjavík, 1977; Kjarvalsstaðir,
Reykjavík, Smámunir/Objects, 1978;
Bernhöftshús, Torfunni, Reykjavík,
1979; Kjarvalsstaðir, Reykjavík, Sýni-
ljóð ll /Visual Poetry ll & Skulptur,
Magnús Tómasson myndlistarmaður 70 ára
Morgunblaðið/RAX
Þotuhreiðrið Eitt þekktasta verk Magnúsar og glæsilegur inngangur að íslenskri list fyrir erlenda ferðamenn.
Skondinn og frumlegur
Morgunblaðið/Frikki
Afmælisbarnið Magnús er ekki bara frumlegur, heldur afar skemmtilega
frumlegur myndlistarmaður.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður
sem hefur hafið göngu sína
í Morgunblaðinu. Þar er
meðal annars sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum, barnsfæðingum
eða öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ -ÞAÐ ER TENGI
Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 • www. tengi.is • tengi@tengi.is
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
TEKA
BLÖNDUNARTÆKI
ÓTRÚLEGT VERÐ!! gildir á meðan birgðir endast.
Teka MT-plus handlaugartæki
Verð kr. 11.633.-
Tilboð kr. 8.100,-
Teka INDIC sturtutæki
Verð kr. 23.266.-
Tilboð kr. 13.990,-
Teka INDIC bað-og sturtutæki
Verð kr. 33.503.-
Tilboð kr. 19.990,-
Teka SP
eldhúsblöndunartæki
Verð kr. 20.884.-
Tilboð kr. 12.500,-
Teka ARK
eldhúsblöndunartæki
Verð kr. 46.741.-
Tilboð kr. 27.900,-
Teka SPIRIT handlaugartæki
Verð kr. 13.506.-
Tilboð kr. 9.450,-