Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.04.2013, Blaðsíða 13
Stórmót ÍR er verðmætasti
viðburður frjálsíþróttadeild-
arinnar. Það var fyrst haldið í
janúar 1997, í tilefni 90 ára af-
mælis ÍR og hefur farið fram
árlega síðan. Stórmótið var
boðsmót þar sem stór-
stjörnur mættu til leiks, en frá
árinu 2000 greiða erlendir
keppendur sjálfir ferðir og
uppihald og meira að segja
þátttökugjald. Á síðasta móti
tók 71 útlendingur þátt og
sumir hafa komið ár eftir ár.
„Við lítum ekki á við-
burðina okkar fyrst og fremst
sem fjáröflun heldur erum við
að skapa fólki tækifæri til að
reyna sig við aðra og svo vilj-
um við halda keflinu á lofti
sem aðrir hafa gert á undan
okkur. Gamlárshlaup ÍR og
Víðavangshlaup ÍR sumardag-
inn fyrsta voru, svo dæmi sé
tekið, lengi vel ein af fáum
hlaupum sem haldin voru hér.
Víðavangshlaup ÍR er sá við-
burður sem lengst hefur verið
haldinn samfleytt í íþrótta-
sögu landsins og verður
þreytt í 98. sinn í vor. ÍR-ingar
eru mjög stoltur af sögunni og
mega vera það,“ segir Mar-
grét formaður.
Skemmtilegt dæmi er Silfur-
leikar ÍR. Mótið var upp-
haflega kallað Haustleikar en
2006 var nafninu breytt í til-
efni þess að 50 ár voru liðin
frá því Vilhjálmur Einarsson
hlaut silfurverðlaun á Ólymp-
íuleikunum. Þegar tíu ár voru
liðin frá því að Vala Flosadótt-
ir nældi í bronsverðlaun á ÓL
árið 2000, fór deildin að halda
árlega Bronsleika fyrir 10 ára
og yngri. „Fyrst var mótið
haldið fyrir krakka sem voru
fæddir eftir að Vala fékk
bronsið og höfum haldið okk-
ur við það að halda mótið fyr-
ir 10 ára og yngri, enda vant-
aði viðfangsefni fyrir þann
aldurshóp á haustin.“
BORGA FYRIR AÐ FÁ AÐ
KOMA Á STÓRMÓTIÐ
Stofnað 1957
Jarðvegsþjöppur - Vatnsdælur - Malbikunarvélar
Vinnustaðamerkingar - Vélsópar - Hellulagningatæki
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Tæki til verklegra
framkvæmda
árin, en það er þveröfugt hjá
krökkum í deildinni hjá okkur:
Mamma, þú verður að mæta. Ein-
hver verður að mæla langstökkið
og taka tímann!
Margrét segir aðspurð að deildin
hafi ekki á að skipa neinum laun-
uðum starfsmanni öðrum en þjálf-
urum. Það er hugsanlega einsdæmi
að deild með jafn mikil umsvif í
mótahaldi og öðru sé rekin þannig,
að minnsta kosti afar sjaldgæft.
„Hjá ÍR er starfsfólk á skrif-
stofu og við fáum aðstoð þar við
ýmislegt, m.a. launagreiðslur; við
reiknum að vísu sjálf út laun þjálf-
ara og leggjum inn hjá ÍR, en
launafulltrúi félagsins sér um
skattahliðina. Það er gott að nýta
þá sérfræðiþekkingu.“
Mottó að allir borgi
Hún segir að hver hópur innan fé-
lagsins eigi að standa undir sér.
„Ef við myndum fella niður æf-
ingagjöld fyrir elsta fólkið, jafnvel
frá unglingsaldri, þyrftum við pen-
inga annars staðar í reksturinn og
okkur finnst ekki sanngjarnt að
foreldrar yngri barna greiði kostn-
að fyrir meistaraflokk. Á þeim tíma
sem krakkar eru að flytja að heim-
an og byrja að reka eigið heimili
finnst sumum þeir ekki hafa efni á
þessu, en þá er oft brugðist við
með því að fólk tekur að sér ákveð-
in verkefni fyrir deildina. Segja má
að það vinni af sér, en mottóið hjá
okkur er að allir borgi æf-
ingagjöld.“
Margrét segir nokkur mjög vel-
viljuð fyrirtæki styðja við bakið á
deildinni en mikil breyting hafi
orðið þar á 2008. „Það eru ekki
miklir peningar í frjálsíþróttum á
Íslandi en einstaka fyrirtæki
styrkja einstaka íþróttamenn sem
er vel.“
Eyði ekki tíma en ver tíma
Hvað sem öðru líður blómstrar
starfið og margar hendur vinna
létt verk. „Ég er oft spurð hvernig
ég nenni að eyða svona tíma í starf
deildarinnar. Ég lít þó aldrei svo á
að ég að sé að eyða tíma í ÍR, en
ég ver hins vegar miklum tíma í
félagið. Það er mikill munur þar á.
Mér finnst við vera svo miklu rík-
ara samfélag ef okkur tekst að
halda úti vönduðu íþróttastarfi fyr-
ir krakka, það er mikilvægt fyrir
þá að hafa eitthvert val því við er-
um ekki öll eins. Það er skemmti-
legt að fá að taka þátt í svona öfl-
ugu starfi þar sem fólk hefur
hugsjónir,“ segir Margrét.
Morgunblaðið/Kristinn
7.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Smiðjuvegi 2 (við hliðina á Bónus) • Kópavogi • sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 • www.rumgott.is
ÞÉR
ER BOÐIÐ
Í FRÍA LEGU-
GREININGU
Rúmgott er eini aðilinn á
Íslandi sem býður upp
á legugreiningu.
ÍS
LE
N
SK GÆ
I60
ÁR