Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.04.2013, Blaðsíða 34
International Harvester Scout II
Árgerð: 1973.
Breyttur: Fyrir 44 tommu dekk.
Vél: Chrysler-mótor.
Hlutföll: 3:18.
Eyðsla: Eyðir öllu sem sett er á hann.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
É
g er að vinna hjá Arctic Trucks sem sá
um þessa ferð fyrir Top Gear USA.
Það var safnað saman fjölda af bílum
sem þeir gátu valið um og þeir völdu
meðal annars þennan,“ segir Herjólfur Guð-
bjartsson sem á þennan glæsilega Scout-bíl.
Scout-inn er frá 1973 og er því kominn til
ára sinna en hann ber aldurinn vel. Yfirskrift
þáttanna var að gamlir amerískir jeppar kæm-
ust upp að Eyjafjallajökli en auk bílsins hans
Herjólfs var Bronco og GMC pallbíll. Rutledge
Wood þáttastjórnandi keyrði Scout-inn. „Hann
er upprunalega hvítur en var filmaður svona
appelsínugulur til að hann myndaðist betur í
snjónum.
Ég fór ekki með en það fóru nokkrir frá
okkur í ferðina. Þetta var mikill leiðangur sem
tók viku að taka upp.“
Þeir félagar í Top Gear USA, Tanner Foust,
Rutledge Wood og Adam Ferrera fóru meðal
annars í sandspyrnu við Eyrarbakka áður en
keyrt var að toppnum. Þátturinn verður sýnd-
ur í sjónvarpi vestan hafs í næstu viku.
Bíllinn er búinn allra
nýjustu tækni og ber
aldurinn vel.
40 ÁRA GAMALL SCOUT Á BARMI HEIMSFRÆGÐAR
Stjarnan í Top
Gear USA
LIÐSMENN ÞÁTTANNA TOP GEAR
USA KOMU HINGAÐ TIL LANDS Í
MIKLA ÆVINTÝRAFERÐ. VÖLDU ÞRJÁ
GAMLA EN GÓÐA AMERÍSKA JÁLKA
TIL AÐ KEYRA UPP AÐ EYJAFJALLA-
JÖKLI. MEÐAL ANNARS VÖLDU ÞEIR
SCOUT, ÁRGERÐ 1974.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
*Græjur og tækniBörn geta vel lært að nota spjaldtölvur en ráðlegt er að foreldrar fylgist með notkuninni »36
brún efst og neðst á símanum, efst fyrir myndavélarlinsu, hátalara,
gaumljós og ljósskynjara, og neðst fyrir hljóðnema. Annar hljóðnemi
er á bakhlið símans, en þar er líka myndavélarlinsa, leifturljós og
NFC-skynjari. Síminn er eilítið kantaður í útliti, ef svo má segja,
þ.e. ekki eins rúnnaður og til að mynda Samsung Gaxy SIII, en
svipar frekar til iPhone 5, svo dæmi sé tekið. Hann er þó mun
breiðari en iPhone, álíka breiður og SIII, en held-
ur hærri en sá síðarnefndi.
Eitt það fyrsta sem maður tekur eftir þegar
síminn er handleikinn er hnappur um miðja hægri
hlið hans, en sá er notaður til að kveikja á síman-
um / skjánum, eftir því sem við á og líka til að
slökkva á síma / skjá. Mér fannst þetta ankanna-
legt til að byrja með en það vandist fljótt og mjög
þægilegt í sjálfu sér því að þá veit höndin altaf
hvernig síminn snýr þegar hann er dreginn upp
úr vasanum.
Skjárinn á símanum er framúrskarandi, eins og
getið er um hér að ofan og betur skýrt til hliðar,
en myndavélin er ekkert slor heldur, 13 MP vél
með LED-flassi og hristivörn, en á framhlið er 2,2
MP myndavél. Hægt er að taka 1080p HD vídeó
á 30 römmum á sek., með ljósi og hristivörn.
Þó lítið hafi borið á Sony á farsímamarkaði undanfarin ár hefurfyrirtlækið átt sína spretti á því sviði, þá helst með Xperia-símalínuna. Fyrsti Xperia-síminn kom á markað 2008 og þá sem
Sony Ericsson Xperia X1. Á síðasta ári hvarf Ericsson-
vörumerkið af farsímamarkaði og eftir stóð Sony
Xperia, nú síðast Xperia Z sem kom á markað í
febrúar.
Á pappírnum er Xperia
Z magnaður sími, og hann
er það líka í raun, fer vel í
hendi, er mjög sprækur í
allri vinnslu og með frá-
bæran skjá. Þegar svo við
bætist að hann er vatns-
og höggvarinn er þar kom-
ið einkar forvitnilegt appa-
rat.
Síminn er býsna stór um
sig, þ.e. að flatarmáli, 13,9 x 7,1 cm, enda er skjár-
inn 5", en rúmmálið ekki ýkja mikið enda er hann
mjög þunnur, ekki nema 7,9 mm. Hann er 146 g að
þyngd.
Örmjór kantur er til hliðanna við skjáinn og smá
FRÁBÆR SONY-SÍMI
FARSÍMAR FRÁ SONY HAFA EKKI VERIÐ ÁBERANDI Á SÍÐUSTU ÁRUM, EN FYRIRTÆKIÐ ÆTLAR GREINILEGA
AÐ SÆKJA FRAM AF KRAFTI EINS OG SJÁ MÁ Á NÝJUM FRÁBÆRUM SONY-SÍMA, XPERIA Z.
Græja
vikunnar
* Stýrikerfið á símanum erAndroid 4.1.2, en hann bauð upp
á BaseBand-uppfærslu frá Sony
um leið og kveikt var á honum,
Örgjörvinn er fjögurra kjarna
Snapdragon S4 Pro, með 1,5 Ghz
tiftíðni og 2GB vinnsluminni. 16
GB minni er í vélinni og líka rauf
fyrir microSD minniskort - já mic-
roSD, ekki Micro Memory Stick,
þó síminn sé frá Sony. Kortið get-
ur verið allt að 32 GB.
* Upplausnin á skjánum erævintýraleg; 1920x1080 dílar sem
gefur ríflega 440 díla á tommu. Til
samanburðar er iPhone 5, sem er
með Retina-skjá, 1136×640 dílar
eða 326 dílar á tommu. Tvímæla-
laust besti skjár sem ég hef séð á
síma og skilar ótrúlegum gæðum
þegar myndir eru skoðaðar, vídeó
eða bíómyndir. Algrímin sem Sony
notar til að sýna vídeó á símanum
eru sérþróuð af fyrirtækinu og
kallast Bravia Engine eftir sjón-
varpslínu Sony. Það hefur sjálfsagt
eitthvað að segja með hve vídeó
koma vel út á skjánum, en skjár-
inn er þó í aðalhlutverki.
ÁRNI
MATTHÍASSON