Morgunblaðið - 22.05.2013, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 2. M A Í 2 0 1 3
Stofnað 1913 117. tölublað 101. árgangur
INGIBJÖRG HELGA
SKER ÞJÓÐSÖGUR
ÚT Í LINDITRÉ LEIKA Í NIÐAMYRKRI
VÆNTANLEG ÍSLENSK
TEIKNIMYND SELDIST
VEL Í CANNES
STRENGJAKVARTETT Í HÖRPU 39 GUNHIL OG LÓUUNGINN 38LANDNÁMSSETUR 10
Baldur Arnarson
Kjartan Kjartansson
Ný ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks undir for-
sæti fyrrnefnda flokksins tekur að líkindum við völdum á morg-
un. Flokksráð Sjálfstæðisflokksins og miðstjórn Framsóknar-
flokksins funduðu í gærkvöldi og samþykktu ríkisstjórnar-
samstarf flokkanna en stjórnarsáttmáli þeirra verður kynntur á
Laugarvatni kl. 11.15 í dag.
Samkvæmt stjórnarsáttmálanum verður ESB-umsóknarferlið
stöðvað og ekki tekið upp á ný nema að undangenginni þjóð-
aratkvæðagreiðslu. Veiðigjöldum verður breytt, skattkerfið ein-
faldað og skattar lækkaðir. Þá verða hækkanir á virðisaukaskatti
á ferðaþjónustu dregnar til baka.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar-
flokksins og verðandi forsætisráðherra, segir að tillaga hans að
ráðherraskipan flokksins verði ákveðin á þingsflokksfundi í kvöld
og býst við að ný stjórn taki við á ríkisráðsfundi á Bessastöðum
síðdegis á morgun. Til að byrja með verða framsóknarmenn með
fjögur ráðherraembætti og sjálfstæðismenn fimm en til skoðunar
er að skipta upp ákveðnum ráðuneytum eða sameina og jafnvel
stofna nýtt ráðuneyti. Hvor flokkur verði þegar upp verður staðið
með fimm ráðuneyti. Framsóknarflokkurinn fær forsætis-, utan-
ríkis- sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, félagsmálaráðu-
neytið og umhverfisráðuneytið. Sjálfstæðismenn taka hins vegar
fjármála-, innanríkis-, heilbrigðis-, menntamála- og iðnaðarráðu-
neytið. Sigmundur Davíð vildi ekki fjölyrða um hvaða verkefni ný
ríkisstjórn tæki sér fyrst fyrir hendur fyrr en búið væri að kynna
stjórnarsáttmálann. Hann sagði þó að fyrstu mál á dagskrá vörð-
uðu hag heimilanna. „Ég geri ráð fyrir því að menn verði sam-
mála um að sumarþingið verði nýtt til þess að koma í gegn nokkr-
um málum sem tengjast stöðu heimilanna en eðli málsins
samkvæmt þá taka sum þeirra mála lengri tíma en svo að þau
verði kláruð á sumarþinginu,“ sagði hann.
Einfaldari og lægri skattar
Morgunblaðið/Golli
Valhöll Bjarni Benediktsson var glaður í bragði á flokksráðsfundi sjálfstæðismanna.
Morgunblaðið/Kristinn
Framsókn Sigmundi Davíð var vel fagnað þegar hann mætti til miðstjórnarfundarins.
ESB-viðræðunum verður hætt og veiðigjöld endurskoðuð Ný ríkisstjórn tekur líklega við á morgun
M Færist ekki of mikið í fang »2
Slæm efna-
hagsstjórnun og
tillitssemi gagn-
vart hagsmunum
erlendra kröfu-
hafa varð fráfar-
andi ríkisstjórn
að falli. Sú
ákvörðun ís-
lenskra kjósenda
að veita henni
ekki áframhaldandi brautargengi í
kosningunum var því rökrétt.
Þetta segir Jón Daníelsson, for-
stöðumaður rannsóknarstofnunar
um kerfislæga áhættu á fjár-
málamörkuðum við LSE, í nýrri
grein sem hann hefur ritað. »18
Þjónkun við kröfu-
hafa felldi stjórnina
Jón Daníelsson
„Ég væri á götunni ef ég væri
ekki hér,“ segir 17 ára stúlka sem
greind hefur verið með ýmsar rask-
anir og býr í Vinakoti, heimili fyrir
12-18 ára börn og unglinga sem
eiga í margþættum hegðunarvanda
og geta ekki búið á heimilum sínum
af ýmsum ástæðum. Mörg barn-
anna hafa farið á milli meðferða og
velkst í kerfinu. »4
Hafa velkst í kerfinu
og fá skjól í Vinakoti
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífs-
ins telja skynsamlegt að samið verði
til skamms tíma við gerð næstu
kjarasamninga vegna óvissu sem
uppi er í efnahagsmálum. Kjara-
samningar á almennum vinnumark-
aði renna út í lok nóvember og hafa
forystumenn SA sett fram þá hug-
mynd að skammtímasamningar
gætu t.d. gilt til áramóta 2014-15.
Tíminn fram að því verði notaður til
að leggja grunn að samkomulagi til
lengri tíma.
Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri SA, segir mikla óvissu
um gengisstöðugleika á næstu árum.
„Við höfum verið efins um að það
séu forsendur til þess að reyna að
ráðast í gerð langtímasamnings við
þessar kringumstæður,“ segir Þor-
steinn í samtali við Morgunblaðið.
„Við höfum velt fyrir okkur ýms-
um möguleikum. Eitt þeirra vanda-
mála sem við stöndum frammi fyrir
er sú mikla óvissa sem er um þróun
hagkerfisins næstu misserin, hvern-
ig við munum bera okkur að og
hvernig til tekst með samninga við
kröfuhafa bankanna,“ segir hann.
Mikilvægast sé að koma á stöðug-
leika í gengismálum og að ríkisfjár-
málin stuðli að því að náð verði og
viðhaldið efnahagslegum stöðug-
leika.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir að við þær flóknu aðstæður
sem uppi eru geti verið rétt að byrja
á því að ganga frá einhvers konar
skammtímasamningi á meðan menn
átta sig á hver þróunin verður og
hvernig ný ríkisstjórn ætlar að taka
á verkefnunum, áður en menn skuld-
binda sig til lengri tíma. En spurn-
ingin sé sú hvort menn beggja vegna
borðsins sjá verðmæti í því fólgin
fyrir sína hópa að nota kjarasamn-
inga og samráð við stjórnvöld til að
koma hér á stöðugleika. »16-17
SA vilja semja
til skamms tíma
Forseti ASÍ telur skammtímasamning koma til greina
Þorsteinn
Víglundsson
Gylfi
Arnbjörnsson
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og
Bjarni Bjarnason, forstjóri fyrir-
tækisins voru ekki einhuga um þátt-
töku OR í Hrafnabjargavirkjun.
Meirihluti stjórnar samþykkti að
selja hlut fyrirtækisins á fundi í síð-
asta mánuði, gegn atkvæði Kjartans
Magnússonar. Í bókun Kjartans
kemur fram að Bjarni hafi lýst full-
um áhuga á þessum virkjunarkosti í
bókun á fundi í stjórn Hrafnabjarga-
virkjunar í fyrrasumar, svo framar-
lega sem vel tækist til með umhverf-
ismálin. »14
Morgunblaðið/BFH
Stjórn OR
og forstjóri
ekki einhuga