Morgunblaðið - 22.05.2013, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 22.05.2013, Qupperneq 4
SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Þetta eru krakkarnir sem hafa oft- ar en einu sinni verið vistaðir á neyðarvistun Stuðla. Mörg þeirra hafa fengið meðferð á meðferð- ardeildum og verið á fleiri en einu fósturheimili. Sum hafa verið í vímuefnum og afbrotum, þau eru með greiningar eins og einhverfu, þroskaskerðingar, geðsjúkdóma, to- urette, mótþróaþrjóskuröskun eða ADHD. Þau hafa glímt við erfiðar félagslegar aðstæður og upplifa endalausa árekstra því þau passa ekki inn í kerfið. Þetta eru ein- staklingar með ýmsa hæfileika en hafa aldrei náð að blómstra og nýta sína getu vegna aðstæðna og um- hverfisins. Þetta eru krakkarnir sem við viljum ná til.“ Þetta segja Aðalheiður Þóra Bragadóttir og Jóhanna Flecken- stein, forstöðumenn Vinakots, nýs heimilis sem tekur að sér 12-18 ára börn og unglinga sem eiga í marg- þættum hegðunarvanda og geta ekki búið á heimilum sínum af ýms- um ástæðum. Þær segja marga af krökkunum hafa farið á milli meðferða, velkst í kerfinu og þannig hafi vandi þeirra stundum aukist. „Þau eiga mörg svo sorglega sögu. Það er sagt að skóla- kerfið sé fyrir alla, en þannig er það ekki í raun. Þessi dæmi sýna það,“ segir Aðalheiður. Eiga mörg 12-18 ára börn í svona miklum vanda? „Við erum að tala um nokkra tugi barna á höfuðborgarsvæðinu sem eru í þessum aðstæðum,“ segir Jó- hanna. Þetta er kannski ekki há prósentutala, en mörg líf.“ Eignast vini í gegnum neysluna Þær segja vímuefnavanda barna með raskanir og fatlanir vanmetinn. „Það er eins og það sé ekki gert ráð fyrir því að þessir krakkar fari út í vímuefni,“ segir Aðalheiður. „En það verður að hafa í huga að um leið og barn er komið með svona flóknar greiningar er það komið í áhættu- hóp.“ „Sum byrja í neyslu til að eignast vini, það er tiltölulega auð- velt að kynnast unglingum í neyslu,“ segir Jóhanna. En hvað um foreldrana, hvernig styðja þeir við börnin sín? „Bakgrunnur krakkanna er mjög misjafn. Mörg þeirra eru með marg- ar og flóknar greiningar og hafa þurft mikla umönnun sem hefur oft veruleg áhrif á atvinnuþátttöku for- eldranna þannig að það er ekki óal- gengt að litlir peningar séu til á heimilunum. Svo reynir líka mikið á fólk að eiga börn sem eru svona erf- ið, sumir hafa hreinlega ekki verk- færin sem þarf til að umgangast þau og hafa lítinn stuðning. Þetta eru flókin mál,“ segir Aðalheiður. Áratuga reynsla er í Vinakoti Aðalheiður er þroskaþjálfi og kennari og hefur starfað með börn- um í vanda í mörg ár. Jóhanna hef- ur starfað að málefnum unglinga í Hafnarfirði í 14 ár. „Ég hef fundið það í starfinu á götunni að það er gríðarlega mikil þörf, kerfið er svo seinvirkt og á meðan verið er að fylla út pappíra og skýrslur getur margt gerst. Þess vegna var ég svo fegin þegar Aðalheiður stofnaði Vinakot.“ Starfsemi Vinakots er kynjaskipt, drengirnir búa í einbýlishúsi í suðurbæ Hafnarfjarðar, stúlkurnar eru í öðru húsi í sama hverfi. Þær segja þetta eina kynjaskipta úrræð- ið á höfuðborgarsvæðinu og þessi leið hafi verið valin til að koma í veg fyrir ýmis vandamál. Samtals starfa 12 starfsmenn á vöktum á báðum stöðum, meðal þeirra eru sálfræð- ingur, tómstundafræðingar og ráð- gjafar. Vandamálin geta verið umfangs- mikil og sú spurning vaknar hvort dagarnir séu ekki stundum erfiðir. „Við lítum ekki þannig á málin. Þó að hér sé veitt fagleg þjónusta þá er þetta fyrst og fremst heimili barna sem hafa reynt margt.“ „Þetta er kannski svolítið eins og óhreinu börnin henn- ar Evu. Okkur finnst óþægilegt að vita af þeim, en þau eru til. Við viljum að sam- félagið opni augun fyrir því að vand- inn hverfur ekki nema tekið sé á honum,“ segir Jóhanna. Týndu börnin fá athvarf í Vinakoti  Þar er veittur faglegur stuðningur en Vinakot er fyrst og fremst heimili  Vímuefnavandi barna með raskanir er vanmetinn  Segja börn velkjast á milli úrræða og að sum eigi sér sorglega sögu Vinakot Þrátt fyrir að þar sé veitt fagleg þjónusta er það fyrst og fremst heimili barnanna sem þar búa sem mörg hafa þurft að reyna margt. Þær Að- alheiður Þóra Bragdóttir og Jóhanna Fleckenstein segja þörfina mikla, sum barnanna hafa velkst á milli meðferðarúrræða sem hafa gert þeim lítið gagn. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013 „Ég hafði aldrei áður hitt neinn sem trúði á mig. Enginn hafði sagt við mig; þú getur þetta. Eig- inlega höfðu allir gefist upp á mér,“ segir 17 ára stúlka sem býr í Vinakoti „Ég væri á götunni ef ég væri ekki hér og ég held að það sem hjálpaði mér mest hafi verið að fá trú á sjálfa mig.“ Saga hennar er lík sögu margra annarra skjólstæðinga Vinakots. Hún hefur verið greind með ýmsar raskanir, ADHD, mótróaþrjóskuröskun, tourette og einhverfu. „Ég var alveg rosa- lega erfið,“ rifjar hún upp um grunnskólaárin. „Ég var í fóstri hjá sjö fjölskyldum og var líka í heima- vistarskóla. Ég kláraði engin próf í 10. bekk og síðan fór ég í ruglið, fór a.m.k. 30 sinnum á Stuðla og 13 sinnum á Bugl á minna en tveimur árum. Ég var oft á götunni og svaf í stigagöngum.“ Af hverju varstu á svona mörgum fósturheimilum? „Mér fannst eins og ég væri ekki neins staðar velkomin, mig lang- aði svo til að þetta gengi upp, en ég vissi ekki hvernig ég átti að fara að því.“ Hálfu ári eftir að hún settist að í Vinakoti hefur stúlkan lokið einni önn í framhaldsskóla og segir þetta vera í fyrsta skiptið sem hún „klárar eitthvað“. Hún sýnir blaðamanni gamla frétt þar sem greint var frá miklum vanda sem hún átti við að stríða fyrir nokkru. Spurð að því hvort henni þyki ekkert óþægilegt að skoða fréttina og lesa um sjálfa sig og erfiðleika sína, segir hún svo ekki vera. „Þetta er ekki ég, ég er ekki svona lengur.“ Allir höfðu gefist upp á mér 17 ÁRA STÚLKA SNERI LÍFI SÍNU VIÐ Í VINAKOTI Jóhanna og Aðalheiður reka Vinakot. Vinnueftirlitið mun koma að tækni- legri rannsókn á þeim tækjum og búnaði sem var í hjólhýsi hjóna, sem létust af slysförum sunnudaginn 19. maí síðastliðinn í Þjórsárdal. Rannsóknin beinist að miðstöðv- arbúnaði og loftræstingu í hjólhýs- inu. Líkur benda til að gasbruni eða koltvísýringseitrun hafi eytt öllu súrefni og hjónin látist af þeim sök- um, að sögn lögreglu. Vinnueftirlitið hefur áður gert tæknilega úttekt á búnaði sem hefur valdið sambærilegum slysum en vinnueftirlitið hefur markaðseftirlit með tækjum sem brenna gasi. „Tryggja þarf nægileg loftskipti þar sem notað er gas eða opinn eldur til að hita upp eða lýsa í litlu rými. Þetta er grundvallaratriði sem fólk þarf að huga að,“ sagði Steinar Harðarson, svæðisstjóri Vinnueftir- litsins. „Við förum vel yfir alla notkun á tækjum og búnaði, með kaupand- anum, þegar við afhendum ferða- vagna. Við brýnum ávallt fyrir fólki að tryggja loftskipti í vögnunum þegar tækin eru notuð,“ segir Þór Ragnarsson, sölumaður ferðatækja hjá Ellingsen. Öryggi og skynjarar Innbyggt öryggi er á gastækjum í nýjum ferðavögnum sem Ellingsen selur. Gasið á ekki að geta flætt frjálst út, þó að það gleymist að skrúfa fyrir. Í ferðavögnum frá Am- eríku eru hins vegar til staðar gas- skynjarar. Hægt er að kaupa gasskynjara og svokallaðan kolsýringsskynjara sem nemur kolsýringseitrun í rýminu, og koma fyrir í ferðavögnum til að tryggja fyllsta öryggi. thorunn@mbl.is Tryggja skal loftskipti  Gasbúnaður sem var í hjólhýsi hjóna sem létust af slysförum á sunnudag er í rannsókn hjá Vinnueftirlitinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Ferðavagnar Hægt er að kaupa gas- skynjara og koma fyrir í vögnunum. SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan. Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur sínum náttúrulega lit. GERUM SÓLPALLINN EINS OG NÝJAN info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is S: 897 2225 Húsgögn og raftæki » Heimilin tvö sem tilheyra Vinakoti eru nýstofnuð og þar vantar flest af því sem þarf til heimilis. » Húsgögn og eldhúsáhöld vantar, en einnig væru raftæki vel þegin. » Þeir sem eru aflögufærir með húsbúnað eða annað til heimilis geta sent tölvupóst til vinakot2@gmail.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.