Morgunblaðið - 22.05.2013, Síða 16

Morgunblaðið - 22.05.2013, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „Á Norðurlöndum ríkir almenn sam- staða á vinnumarkaðnum um að út- flutningsgreinar í alþjóðlegri sam- keppni séu leiðandi (undanfarar) í launamyndun og gerð kjarasamn- inga í hverri lotu og skapi fordæmi fyrir aðra. Kjarasamningar í öðrum greinum eru nánast undantekninga- laust innan ramma sem settur er af útflutningsgreinum.“ Þetta kemur fram í skýrslu vinnu- hóps aðila vinnumarkaðarins um hvernig staðið er að undirbúningi og gerð kjarasamninga annars staðar á Norðurlöndum, sem kynnt var í gær. Um 170 fulltrúar allra stærstu samtaka launafólks, stéttarfélaga og samtaka vinnuveitenda á almennum og opinberum vinnumarkaði komu saman til fundar í gær þar sem farið var yfir þann lærdóm sem draga má af gerð kjarasamninga annars stað- ar á Norðurlöndunum vegna und- irbúnings að næstu lotu kjaravið- ræðna í haust. Fulltrúar stærstu launþegasam- taka, Samtaka atvinnulífsins, Sam- bands íslenskra sveitarfélaga og fjármálaráðuneytisins auk ríkissáttasemjara heimsóttu fjögur Norðurlandanna í febrúar sl. til að fræðast um skipulag vinnumarkað- arins og hvernig staðið er að kjara- samningagerð í þessum löndum. Meðal þess sem fram kemur í skýrslunni um ferðina er að annars staðar á Norðurlöndunum er al- menn samstaða um að launahækk- anir allra kjarasamninga verði að vera innan þess ramma sem iðnað- urinn ræður við. ,,Ákveðið svigrúm er fyrir sveigjanleika í útfærslum en ekki til kostnaðarfrávika.“ Norðurlöndin glímdu við mikla verðbólgu á níunda áratugnum og launahækkanir voru mun meiri en í samkeppnislöndunum. „Á níunda áratugnum hækkuðu laun mikið á Norðurlöndum en kaupmáttur jókst ekki að sama skapi. Á tíunda ára- tugnum og fyrsta áratug þessarar aldar jókst kaupmáttur launa meira en á þeim níunda þrátt fyrir að launahækkanir væru mun minni vegna þess að það dró úr verðbólgu. Þessar niðurstöður geta bent til þess að sterkt samband sé á milli aukins kaupmáttar og efnahags- stjórnar sem stuðlar að lítilli verð- bólgu,“ segir í skýrslunni. Þó að staðið sé að gerð kjara- samninga með mismunandi hætti í þessum löndum kemur fram í skýrslunni að Norðurlöndin eiga sameiginlegt að mikið er lagt upp úr vönduðum undirbúningi fyrir kjara- samninga. Sumsstaðar s.s. í Noregi er löng hefð fyrir þríhliða samstarfi stjórnvalda og heildarsamtaka á vinnumarkaði, þó að launamyndunin sé dreifstýrð. Aðilar vinnumarkað- arins eiga einnig með sér náið sam- starf um tölfræðiupplýsingar við undirbúning samninga s.s. launatöl- fræði fyrir mat á því svigrúmi sem er til launahækkana á hverjum tíma. „Þegar kemur að samningsferlinu er unnið eftir umsömdum tímaáætl- unum og t.a.m. þurfa kröfur um breytingar á kjarasamningi að koma fram fyrir ákveðinn tíma og eftir það er ekki hægt að koma fram með nýj- ar kröfur,“ segir í skýrslunni. Einnig kemur fram að á Norður- löndunum hafa samtök atvinnurek- enda og stéttarfélög í atvinnugrein- um í alþjóðlegri samkeppni gert svonefnda iðnaðarsamninga um hvernig staðið er að kjarasamning- um, sameiginlegum markmiðum að- ila, samvinnu, menntun, rannsókn- um, nýsköpun og jafnrétti. „Markmiðið er að tryggja hóflegar launa- og verðhækkanir í samræmi við þróun í viðskiptaríkjunum og stuðla að samkeppnishæfu rekstrar- umhverfi atvinnulífsins,“ segir þar. Annaðhvort allir eða enginn Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir gagnlegt að sjá hvernig staðið er að samningum annars staðar á Norðurlöndunum. Aðferðfræðin sé Íslendingum þó ekki ókunn, þar sem byggt er á tiltölulega breiðu sam- komulagi á vinnumarkaðinum, því hún hafi á sínum tíma legið til grundvallar þjóðarsáttarsamning- unum 1990. „En jafnframt er ljóst að grund- völlur svona samninga sem við höf- Útflutningsgreinar leiða launamyndun  Aðilar vinnumarkaðar draga lærdóm af Norðurlöndunum Kaupmáttarþróun á Íslandi og öðrum Norðurlöndum 1990-2012 150 140 130 120 110 100 90 144 136 Heimild: OECD, Hagstofa Íslands 1990 1992 1994 1996 1998 2000 2002 2004 2006 2008 2010 2012 Norðurlönd Ísland Málstofa um Ísland og norðurslóðir verður haldin á föstudag í stofu 101 í Lögbergi, Háskóla Íslands, klukk- an 12-13.30 á vegum Rannsóknaset- urs um norðurslóðir, Háskólans á Bifröst og Norðurslóðanets Íslands. Fram kemur í tilkynningu, að á málþinginu verði rætt um þær áskoranir sem ríki og samfélög á norðurslóðum standi frammi fyrir, svo sem loftslagsbreytingar, örygg- ismál og fiskveiðideilur en einnig um norðrið sem samfélagslegt sköpunarverk. Þá verði Norður- slóðanet Íslands sérstaklega kynnt ásamt tímaritinu Samtíð. Norður- slóðanetinu er ætlað að auka sýni- leika og skilning á málefnum norð- urslóða. Málstofan fer öll fram á íslensku. Fundarstjóri verður Jón Ólafsson prófessor. Morgunblaðið/Einar Falur Á pólnum Íslendingurinn Haraldur Örn Ólafsson á norðurpólnum árið 2000. Málstofa um Ísland og norðurslóðir Jarðhitaháskóli Sameinuðu þjóð- anna og Háskól- inn í Reykjavík hafa samið um að um að Jarð- hitaháskólinn styrki nemendur úr skólanum til meistaranáms við Háskólann í Reykjavík. Samkvæmt samningnum mun Jarðhitaskólinn beita sér fyrir því að afla styrkja til MSc-náms fyrir nemendur sem hyggja á fram- haldsnám. Tækni- og verk- fræðideild HR mun veita að há- marki þremur nemendum árlega sem koma á vegum Jarðhitahá- skólans í framhaldsnám við deild- ina styrk sem nemur skólagjöldum í framhaldsnámi. Gera samning um meistaranám Rauði krossinn er þessa dagana að senda sérmerkta fatapoka á öll heimili í landinu. Er þetta liður í ár- legu fatasöfnunarátaki Rauða krossins um næstu helgi. Gámum verður komið fyrir við sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu. Á landsbyggðinni er tekið á móti fötum á móttökustöðvum Eimskips Flytjanda og í merktum fatagámum Rauða krossins. Rauði krossinn með fatasöfnun STUTT SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 3. júní. Í blaðinu verður fjallað um tískuna sumarið 2013 í fatnaði, förðun og snyrtingu auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira. Tíska & förðun Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Tísku & förðun föstudaginn 7. júní ...alveg með’etta Fylgir Morgunblaðinu alla fimmtudaga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.