Morgunblaðið - 22.05.2013, Page 29

Morgunblaðið - 22.05.2013, Page 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013 ✝ Þórunn Bergs-dóttir fæddist á Akureyri 9. sept- ember 1947. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 11. maí 2013. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jón- ína Sveinsdóttir húsfrú, f. 18.2. 1917, d. 9.3. 1974, og Bergur Pálsson skipstjóri, f. 13.9. 1917, d. 14.11. 1991. Systkini Þórunnar eru: Guðmundur, f. 1942. Maki Sigríður Jóhannsdóttir, f. 1946. Þau eiga þrjú börn og fjögur barnabörn. Guðný, f. 1944, d. 2012. Fyrri maki hennar var Hólmar Kristmundsson. Þau skildu. Seinni maki var Birgit Reinholdt Nissen, f. 1954, d. 1996. Páll, f. 1945, d. 1992. Maki Helga Guðnadóttir, f. 1953. Þau eignuðust tvo syni. Áður átti Páll þrjár dætur. Barnabörn eru níu. Guðrún, f. 1949. Maki Páll Sigurðarson, f. 1948. Þau eiga tvö börn og fjögur barnabörn. Bergur, f. 1955. Ógiftur og barnlaus. Fyrri maður Þórunnar var Friðrik Steingrímsson, f. 1945. Börn þeirra eru: 1) Guðrún Jónína, f. 1967, maki Steinar þar sem hún lagði stund á sál- fræði, stjórnun og tengdar greinar við háskólann í Örebro. Kennaraferill Þórunnar var langur. Frá 1975-1985 starfaði hún í Barnaskóla Akureyrar og 1985-1987 í Lundarskóla á Ak- ureyri. Þaðan fór hún til Dal- víkur og starfaði fyrst sem kennari og síðan skólastjóri frá 1987-1998. Jafnframt gegndi hún stöðu skólastjóra sjáv- arútvegsdeildar Dalvíkurskóla í sex ár. Árið 1998 tók Þórunn við skólastjórastöðu Lundar- skóla sem hún gegndi til ársins 2006. Þaðan fór hún í Gilja- skóla á Akureyri þar sem hún lauk starfsferlinum. Þórunn hafði brennandi áhuga á skóla- málum og var í ýmsu frum- kvöðull þegar kom að skólaþróun sem sneri að starfs- háttum kennara. Þórunn var alla tíð mikil félagsvera og sótti mikið í ýmiss konar fé- lagsskap. Hún var ein af stofn- endum Delta Kappa Gamma á Akureyri, starfaði í ýmsum kórum og spilaði mikið brids. Á Dalvík stofnaði hún til kvennablaks og var það mik- ilvægt framlag til samfélagsins þar. Hún var líka virk í Golf- klúbbnum Hamri. Þegar Þór- unn flutti aftur til Akureyrar gekk hún í Golfklúbb Akureyr- ar og starfaði í stjórn og nefndum félagsins. Útför Þórunnar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 22. maí 2013, og hefst athöfnin kl. 13.30. Smári Tryggvason, f. 1971. Dóttir Guðrúnar er Sunn- eva Björk, f. 1993. 2) Steingrímur, f. 1969. Maki Jó- hanna Freydís Þorvaldsdóttir, f. 1974. Börn: Frið- rik, f. 2000, Haf- rún, f. 2005, og Þórir, f. 2009. 3) Guðný, f. 1971. Maki Þorsteinn Guðbjörnsson, f. 1966, þau skildu. Börn: Vig- dís Birna, f. 1996, og Helgi Hrafn, f. 1998. 4) Hrefna, f. 1973. Seinni maki Þórunnar var Helgi Þorsteinsson, f. 1936, d. 2008. Dætur hans eru: 1) Yrsa Hörn, f. 1968, maki Gunnar Gíslason, f. 1958. Börn; Jara Sól, f. 1989, Kolbeinn Höður, f. 1995, Melkorka Ýrr, f. 1998, og Iðunn Rán, f. 2005. 2) Ylfa Mist, f. 1974, maki Haraldur Ringsted. Börn: Björgúlfur Eg- ill, f. 1994, Birnir, f. 2001, og Baldur Hrafn, f. 2004. Þórunn ólst upp í Austur- byggð 4 á Akureyri, gekk í Barnaskóla Akureyrar og svo Gagnfræðaskóla Akureyrar. Hún lauk kennaraprófi 1981. Þá bjó hún í Svíþjóð í eitt ár Elsku mamma, við kveðjum þig í hinsta sinn með miklum söknuði og hlýju. Það er fátt erfiðara en að kveðja móður sína. Margar góðar og skemmti- legar minningar koma upp í hugann sem munu fylgja okkur um ókomna tíð. Það var ekki til neitt í orðabók þinni sem hét að láta sér leiðast enda lifðir þú líf- inu lifandi og hafðir ávallt eitt- hvað fyrir stafni. Fjölskyldan, vinir, golfið, bridsið, matar- klúbbar og vinnan skipuðu stór- an sess í lífinu og sinntir þú því öllu af mikilli alúð. Keppnis- skapið var einkennandi fyrir þig á öllum sviðum og minnumst við þess sérstaklega með bros á vör þegar þú spilaðir við barna- börnin. Þegar veikindin börðu að dyrum kom það einmitt sterklega í ljós en það var aldr- ei nett sem hét að gefast upp og barðist þú hetjulega til síðasta dags. Þú lifðir lífinu fallega með já- kvæðni, bjartsýni, hlýju og góð- an húmor að leiðarljósi og kaust að horfa á möguleikana í öllu í stað þess að horfa á erfiðleika eða hindranir. Þú varst mikil kjarnakona og góð fyrirmynd í alla staði og horfum við til baka fullar af stolti yfir þeirri mann- eskju sem þú hafðir að geyma. Þær eru margar góðar stund- irnar sem við systkinin getum rifjað upp saman í framtíðinni og fyrir það þökkum við þér. Snert hörpu mína, himinborna dís, svo hlusti englar guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Úr furutré, sem fann ég út við sjó, ég fugla skar og líka úr smiðjumó. Í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. Þeir geta sumir synt á læk og tjörn, og sumir verða alltaf lítil börn. En sólin gyllir sund og bláan fjörð og sameinar með töfrum loft og jörð. Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt Um varpann leikur draumsins perluglit. Snert hörpu mína, himinborna dís, og hlustið, englar guðs í Paradís. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.) Elsku mamma, takk fyrir allt. Guð geymi þig, Hrefna og Guðný. Elsku besta amma mín. Ég vil þakka fyrir allar æðislegu stundirnar sem við áttum sam- an og allt það góða sem þú hef- ur gert fyrir mig. Ég man svo vel eftir því hvað ég hlakkaði mikið til að komast í sumarfrí og jólafrí því það þýddi bara að ég væri á leiðinni norður til þín í krúttlega ömmuhúsið í Skála- gerði þar sem alltaf var svo gaman. Það var líka svo gaman þegar ég var að keppa í íþrótt- um á Akureyri og þú komst að horfa á því að þér fannst svo gaman að íþróttum enda varstu í þeim sjálf. Þú ert án nokkurs vafa sterkasta og duglegasta manneskja sem ég hef kynnst og ég gæti ekki verið stoltari og heppnari að hafa átt þig sem ömmu. Ég hef og mun alltaf líta upp til þín. Elska þig og mun alltaf gera. Þitt barnabarn Vigdís Birna. Elsku stóra systir. Jæja, systir góð, þú kvaddir þá næst af okkur systkinum. Þá erum við bara þrjú eftir. En svona er lífið, það ræður enginn sínum næturstað. Ég man þegar við vorum litl- ar, þá vorum við kallaðar „litlu stelpurnar“. Þér fannst móðg- andi að vera kölluð lítil og vera í sama flokki og ég, litla systir þín, en seinni árin höfum við skemmt okkur yfir þessu og fundist þetta bara notalegt. Við erum aldar upp af góðum foreldrum, bjuggum í stóru og góðu húsi þar sem oft var glatt á hjalla og mikið hlegið, slegist og hamast eins og búast má við í stórum systkinahópi. Mamma átt nú ekki alltaf létta daga með okkur, enda hún oftast ein með hópinn því pabbi var úti á sjó. Við vorum ekki alltaf öll sam- mála um hlutina en alltaf end- uðu málin þó vel. Okkar líf hefur alltaf verið samtvinnað og höfum við meiri hlutann af lífi okkar búið ná- lægt hvor annarri með fjöl- skyldur okkar. Við áttum mörg góð ár saman við fjögur, þið Helgi og við Palli. Við fórum í mörg ferðalög út um allt land, austur, vestur og suður um landið og oftast var nú golf inni í ferðinni seinni árin, þegar allir í hópnum voru farnir að spila golf. Mikið var oft gaman og við samtaka um að skemmta okkur á góðan máta. Við fórum reglu- lega saman í sumarbústað á haustin, þar sem sú regla var viðhöfð að ræða ekki vandamál gagnvart vinnu eða fjölskyldu. Þar var grillað, lesið, spilað, púslað og farið í golf og göngu- túra ef veður var til þess. Sann- arlega var þá verið að hlaða batteríin fyrir veturinn. Við hjónin heimsóttum ykkur til Svíþjóðar þegar þið voruð þar í árs námsleyfi, þaðan ókum við til Kaupmannahafnar í heim- sókn til Guðnýjar systur. Það var dásamlega skemmtileg ferð sem gleymist seint. Takk fyrir allar góðar sam- ræður og rökræður um lífið og tilveruna. Takk fyrir allar góðu ferðirnar okkar. Takk fyrir öll matarboðin. Takk fyrir allar góðu samverustundirnar heima og að heiman. Takk fyrir allan stuðning síðustu árin í gegnum mín veikindi. Takk fyrir allar góðar stundir í lífinu okkar saman. Ég kem til með að sakna þín mikið. Guð veri með börnum þínum og gefi þeim styrk til að komast í gegnum þessa miklu sorg og halda áfram að lifa sínu lífi. Elsku systir, ég veit að það verður vel tekið á móti þér og þú berð þeim öllum kveðju mína eins og við ræddum um. Takk fyrir allt og allt, guð veri með þér og hvíl í friði. Guðrún systir og fjölskylda. Tóta vinkona okkar var óvenjulega vel gerð og vel gefin kona. Hún var góð mamma barna sinna og amma barna- barna og var þeim góð fyrir- mynd. Hún hafði til að bera mikla stjórnunarhæfileika sem fram komu í lífsstarfi hennar við kennslu og skólastjórnun. Það má segja að allt hafi leikið í höndunum á Tótu. Hún var góð- ur teiknari, söng vel, spilaði bæði brids og golf og hún bjó til veislu þegar kom að matargerð. Ekki er hægt að minnast Tótu án þess að nefna Helga. Hann kom inn í líf hennar þegar bæði voru komin á miðjan aldur. Með þeim var jafnræði og áttu þau góð og skemmtileg ár saman. Þau deildu áhugamálum sínum og nutu lífsins. Þau voru höfð- ingjar heim að sækja hvar sem þau bjuggu. Minningarbrot kemur upp í hugann þegar þau komu hingað suður til Þor- bjargar og kepptu hvort þeirra gæti matreitt betri villibráð fyr- ir okkur sunnan-bridskonur. Kvöldið er ógleymanleg og stemmningin sem með fylgdi. Ekki eru síðri minningar heim- sóknir til þeirra á Dalvík og síð- ar á Akureyri. Alltaf var slegið upp dásamlegum veislum og síðan sest við bridsborðin. Við minnumst Tótu vinkonu okkar með þakklæti og gleði yf- ir að hafa fengið að njóta sam- vista við hana og vottum að- standendum hennar okkar dýpstu samúð. Guðrún Jónasdóttir, Kristín Jónsdóttir, Kristín Pálsdóttir, Þorbjörg Snorradóttir Fetaðu eftir slóð regnbogans, fetaðu eftir ljúfri laglínunni og fegurðin mun ljóma allt um kring. Til er leið út úr dimmri þokunni fetaðu slóð regnbogans. (Sönglag Navahó-indíána) Regnboginn er brú á milli heima. Yfir þá brú hefur Tóta nú fetað og við óskum henni góðrar heimferðar. Tóta var ein af „stýruhópn- um“ okkar. Sá félagsskapur á sér rætur í hópi skólastjórn- enda á Akureyri en þar vorum við „kvennadeildin“. Skóla- stjórahópurinn var frábær og stundum buðum við „strákun- um“ að vera með okkur. Einu sinni röðuðum við saman mynd- um af okkur öllum á barnsaldri og fengum þá til að spreyta sig á því að þekkja okkur í frum- bernsku. Þeim var fyrirgefið þó að þeir rugluðu okkur öllum saman en myndirnar góðu eig- um við ennþá og varðveitum vel. Margar ógleymanlegar minn- ingar streyma fram í hugann. Bókaleikurinn líður okkur ekki úr minni, né heldur ferð skóla- stjórnenda til Noregs. Þar missti kvennadeildin sig örlítið í langri heimsókn í Hadeland- glerverksmiðjuna. Á síðustu stundu ákvað Tóta að kaupa sér stóran, appelsínugulan disk sem hún pakkaði vel inn á meðan óþolinmóður karlpeningurinn beið úti í rútu. Hún hélt svo á diskinum í fanginu alla leið heim og síðan höfum við horft á hann í stofuglugganum hjá henni og minnst þessarar ferðar með gleði. Í upphafi voru miklar um- ræður um skólamál í klúbbnum okkar en smám saman hefur það breyst og umræðuefnin hafa orðið fjölbreytt og óþrjót- andi. Tóta var alltaf til í að skipuleggja utanlandsferðir og hluti hópsins fór með henni í ferðir til Riga, Tallinn og Prag. Þær sem heima sátu fengu góð- ar gjafir þegar ferðalangarnir sneru til baka og allar getum við skartað hinum skrautleg- ustu svuntum sem þær stöllur færðu okkur eftir einhverja heimkomuna. Tóta var mikill golfari og átti ófá sporin á ýmsum golfvöllum, innanlands og utan. Oft var hún líka búin að bjóðast til að leiða okkur fyrstu sporin á vellinun. Við vorum eitthvað tregar í taumi og höfum enn ekki fylgt í fótspor hennar þar, hvað sem síðar verður. Tilhlökkunin var hins vegar alltaf mikil þegar kom að heimboði Tótu í mat- arklúbbnum okkar. Hún klikk- aði aldrei og var frábær kokkur. Eftir að hafa setið við snark- andi arineldinn og dreypt á rauðvínstári var boðið til borðs, þar sem Tóta töfraði fram dýr- indis humar og gæs með öllu tilheyrandi. Yfir slíkum krásum gátum við setið langt fram á kvöld. Að leiðarlokum þökkum við fyrir vináttu og ógleymanlegar stundir og sendum fjölskyldu Tótu okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Þótt enga vængi Guð þér gefið hafi og gert þér hafi ekki flugið kleift, í hjarta þínu átt þú andans vængi og öllu skiptir þá að geta hreyft. Þú getur með þeim hafið þig til himins, til hæða látið stíga þína sál, með augum fuglsins nýjar víddir numið og náð að lesa hjartans tungumál. (Svavar A. Jónsson) Þorgerður, Halldóra, Sigríður Ása, Magna, Bryndís, Svanhildur og Helga. Kveðja frá starfsmönnum og nemendum Giljaskóla Þórunn Bergsdóttir hóf kennslu við Giljaskóla haustið 2006. Hún átti þá þegar að baki langan og farsælan feril sem skólastjóri og þar áður kennari. Tóta var eljusöm baráttukona sem hugsaði vel um skjólstæð- inga sína og hafði trú á að þeim væru allir vegir færir ef þeir legðu sig fram. Hún var fylgin sér og samviskusöm og þrátt fyrir erfiða baráttu við krabba- mein síðustu árin var uppgjöf aldrei í hennar huga. Hún skyldi aftur til vinnu, eða að spila golf, sinna fjölskyldu og vinum. Skapgerð þín var hrein og heið. Örlát mundin vinum veitti, viðmótshlýju ekkert breytti alla þína ævileið. Þú varst hetja að hinstu stund, hugrökk kona, hress í anda, horfðir beint mót hverjum vanda, djörf í fasi, létt í lund. (Gunnar Einarsson) Samleik eru systurnar, sorg og gleði háðar. Ef þú leitar annarrar, oft þú finnur báðar. (Höf. ók) Við gleðjumst yfir að hafa kynnst henni Tótu, söknum góðs starfsfélaga og þökkum henni kærlega samstarfið og það sem hún lagði af mörkum til starfsins í Giljaskóla. Við sendum fjölskyldu Þórunnar samúðarkveðjur og fallegar hugsanir á þessari sorgar- stundu. Blessuð sé minning Þórunnar Bergsdóttur. Jón Baldvin Hannesson. Umhyggjusöm, glaðleg, já- kvæð, traust, hlýleg og fé- lagslynd eru þau orð sem koma fyrst í hug samstarfsfólks Þór- unnar úr Lundarskóla þegar hennar er minnst. Einnig víð- sýni, atorkusemi og kraftur. Þessi orð segja mikið um hvaða mann Þórunn hafði að geyma. Þessir eiginleikar nýttust henni vel þegar hún tók við stjórn Lundarskóla árið 1998. Í skóla- stjóratíð hennar tók skólinn miklum breytingum. Í hennar stjórnartíð breyttist Lundar- skóli í heildstæðan hverfisskóla fyrir 1.-10. bekk. Hún lagði sig fram við að byggja upp ung- lingadeildina og naut sín í sam- starfi við unglingana. Vegna fjölgunar nemenda í skólanum var byggt við hann og það voru ófáir fundir sem Þórunn átti vegna þess. Í hennar skólastjó- ratíð var gefin út ný aðalnám- skrá sem setti nýjar skyldur á herðar skólans og Þórunn skipulagði þær breytingar af miklum myndarbrag. Hún hafði forgöngu um ým- iss konar þróunarstarf innan skólans og fékk sérfræðinga í fremstu röð til ráðgjafar. Það skipti hana miklu máli að í skól- anum væru viðhafðir fjölbreytt- ir kennsluhættir og góð sam- vinna væri milli allra. Henni var ekki einungis umhugað um fag- legan styrkleika Lundarskóla heldur var henni ekki síður um- hugað um vellíðan nemenda og starfsmanna og að í skólanum væri góður starfsandi. Hún vissi að leiðin að hjarta mannsins liggur í gegnum magann og hún kom starfsfólki oft á óvart með því að leggja kræsingar á borð. Þannig þakkaði hún fólki fyrir vinnusemi og jákvæðni. Hún var líka virk í félagslífi starfs- fólks og var alltaf tilbúin til að skemmta samstarfsfólki og taka þátt í eða jafnvel skipuleggja saklausa stríðni. Þannig var hún bæði faglegur og félagsleg- ur leiðtogi, hvort sem var hér innan lands eða í námsferðum erlendis. Það var ekki alltaf lognmolla í kringum hana og oft var tekist á um strauma og stefnur í mál- efnum skólans án þess þó að það hefði eftirköst og Þórunn stóð alltaf þétt að baki kenn- arahópnum þegar á reyndi. Það var bæði styrkleiki og veikleiki hennar sem stjórnanda hversu vel hún vildi fylgjast með öllu sem sneri að skólastarfinu þannig að það var ótalmargt sem hvíldi á hennar herðum sem kostaði bæði tíma og orku. Fólk sem vann með henni minnist hennar með hlýju og brosi á vör. Hún setti sann- arlega mark sitt á skólastarfið og hafði djúpstæð áhrif á þá sem kynntust henni. Starfsfólk Lundarskóla vottar aðstandend- um Þórunnar samúð sína. Blessuð sé minning hennar. Starfsfólk Lundarskóla 1998- 2006, Helga R. Gunnlaugsdóttir. Þórunn Bergsdóttir Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Sé óskað eftir birt- ingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minning- argreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Minningargreinar Blómasmiðjan Grímsbæ v/Bústaðaveg S: 588 1230 Samúðarskreytingar Útfaraskreytingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.