Morgunblaðið - 22.05.2013, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.05.2013, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013 ✝ Pálína Jóhann-esdóttir fæddist í Hamarshjáleigu í Gaulverjabæjar- hreppi 2. apríl 1925. Hún lést á Droplaugarstöðum 13. maí 2013. Foreldrar henn- ar eru Jóhannes Ormsson, f. 9.9. 1893, d. 23.12. 1981, og Sigurbjörg Helgadóttir, f. 20.2. 1890, d. 3.4. 1976. Systkini hennar eru Anna Jóhannesdóttir, f. 21.11. 1921, d. 20.6. 2008, Sigurður Helgi Jó- hannesson, f. 26.7. 1923, d. 2.10. 1959, Sigríður Jóhannesdóttir, f. 3.2. 1928, d. 31.7. 2011, og Helga Jóhannesdóttir, f. 23.7. 1929. Pálína giftist 20.9. 1947 á Ísa- firði Sigurði M. Jónssyni, f. 23.9. 1923, d. 13.8. 1988. Börn þeirra eru 1) Jón Haukur, f. 12.11. 1949, eiginkona hans var María Pétursdóttir, f. 21.5. 1949, þau slitu samvistir, börn þeirra eru Pétur og Maríanna, barnabörnin eru fjögur. 2) Benedikt T., f. 27.1. 1951, eiginkona hans er Ásta Kristín Níelsdóttir, f. 25.2. 1950, börn þeirra eru Hanna Guðfinna, María Björg og Níels Sigurðsson, f. 24.7. 1952, börn þeirra eru Sigrún Hanna og Sig- urður Ingi, barnabörnin eru þrjú. 8) Helgi G., f. 6.8. 1960, eig- inkona hans var Guðrún Magn- úsdóttir, f. 10.11. 1959, þau slitu samvistir, synir þeirra eru Gunnar Páll, Jóhann Örn og Sig- hvatur Magnús. 9) Einar Már, f. 14.1. 1965, eiginkona hans er Ellen Baer, f. 21.5. 1965, börn þeirra eru Jonathan Coleog Hannah Jane. 10) Guðrún Fann- ey, f. 30.5. 1966, eiginmaður hennar er Laurent Nicolas Bont- honneau, f. 20.4. 1964, dætur þeirra eru Eyja Camille Pauline og Telma Jeanne. Pálína ólst upp á Hamars- hjáleigu í Gaulverjabæjarhreppi með foreldrum sínum, ömmu og systkinum. Hún var húsmóðir í Kópavogi og Reykjavík lengst af en það var ærið starf með allan þennan barnahóp. Heimili þeirra hjóna var alla tíð opið fyr- ir gestum og gangandi og bjuggu þar oft ættvinir til lengri og skemmri tíma, því það var umtalað að þar væri gott að vera. Í seinni tíð þegar börnin voru komin á legg tók hún að sér ýmis hlutastörf til að sitja ekki með auðar hendur eins og hún sagði sjálf. Lokastarfsár sín vann hún á Droplaugarstöðum þar sem hún bjó síðustu þrjú ár- in. Útför Pálínu fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 22. maí 2013, og hefst athöfnin kl. 13. Pálmar, barnabörn- in eru sex. 3) Elín Stella, f. 29.4. 1952, eiginmaður hennar er Helgi Hauksson, f. 19.9. 1952, börn þeirra eru Erla Hlín, Sigurður Heiðar og Sigrún Ella, barnabörnin eru fjögur. 4) Erla Sigurlín, f. 3.5. 1955, d. 8.1. 1957. 5) Jóhannes Ómar, f. 1.10. 1956, eiginkona hans er Soffía Krist- jánsdóttir, f. 7.11. 1953, börn þeirra eru Herdís Telma, Ester, Ylfa Björg og Erla Soffía, barna- börnin eru tvö. 6) Sölvi Ellert, f. 21.3. 1958, sambýliskona hans er Sigurveig Guðmundsdóttir, f. 13.2. 1952, synir þeirra eru Daníel Ísak og Alexander Veig- ar, auk þeirra á Sigurveig fjögur börn frá fyrra hjónabandi, þau eru Guðrún Finnborg Guð- mundsdóttir, Kjartan Óskar Guðmundsson, Eva Rós Guð- mundsdóttir og Íris Dögg Guð- mundsdóttir, barnabörnin eru sjö. 7) Ása Líney, f. 1.6. 1959, d. 20.7. 2011, dóttir Ásu er Linda Rós Pálsdóttir, eftirlifandi eig- inmaður Ásu er Þorgrímur Óli „Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér.“ (H.K. Laxness.) Þau voru allmörg sporin, mamma mín, sem þú tókst á átta- tíu og átta ára ferðalagi þínu á þessari jörð. Sum tókstu dansandi í glitrandi ballkjólum, önnur voru erfiðari að taka, með sorg í hjarta og börn í gröf. En áfram hélstu og gerir enn. Og nú ertu stokkin aftur af stað í þitt næsta ferðalag. Næsta segi ég því þú átt örugglega eftir að ferðast um fleiri heima en þá sem kunnir eru okkur sem hér á jörðu búa. Ferðinni nú er heitið til Sum- arlandsins. Þú undirbjóst það ferðalag vel enda skipulögð kona. Þar vissir þú að pabbi biði eftir þér með nýja húsið sem hann lofaði að smíða handa þér og þig var farið að lengja eftir að fá að flytjast inn í. Fyrir nokkrum mánuðum hélstu svo að allt væri klappað og klárt. Þú kvaddir mig eitt kvöldið ákveðin á svip og baðst mig um að skila kveðju til allra. Svo ákveðin varstu að fara, enda vön að gera og ganga frá hlutunum strax. En eitthvað seinkaði ferðinni og kom að því að þér fór að leiðast biðin. Einn morguninn vaknaðir þú og sagðir okkur að sennilega væri hann pabbi okkar ekki tilbúinn með nýja heimilið og þú sagðist vera hætt við að fara. „Þeir vilja mig ekki strax,“ sagðir þú, byrj- aðir að stokka spilin og skipu- leggja næstu listaverk. Þú vissir svo margt og þú kunn- ir svo margt. Það er ofar mínum skilningi hvernig þú fórst að því að hafa allt í röð og reglu með okkur systkinin níu skoppandi í kringum þig og allan vinahópinn sem þeim fylgdi. Kannski smelltir þú saman fingrum eins og Mary Poppins og þvotturinn af öllum hvarf hreinn og samanbrotinn niður í skúffur, eldhússkáparnir fylltust af góm- sætum kanilsnúðum, prjónarnir tikkuðu, saumavélin sló taktinn og flóknar flíkur urðu til, útsaums- dúkar skreyttu stofuborð og eld- húsborðið fylltist gómsætum kræsingum þar sem ávallt var hægt að sitja þéttar og koma fyrir aukadiskum fyrir vinahópinn. Kannski smelltirðu saman fingr- um þegar við sáum ekki til. Þú lifði fyrir heimilið og börnin, barnabörnin, barnabarnabörnin, barnabarnabarnabörnin og öll aukabörnin sem þú tókst að þér að passa þegar við Einar vorum orð- in nógu stór til að bursta tennurn- ar sjálf. Heimilið var þitt fyrirtæki og þú varst framkvæmdastjórinn. Verkefnin voru mörg og gott skipulag nauðsynlegt. Þú kenndir eldri börnunum að sjá um þau yngri og þau yngri unnu sér inn aur með því að skutlast fyrir þau eldri. Allir höfðu sitt hlutverk og sinntu sínum verkum. Og lífsþræðirnir margfölduð- ust. Eitt af öðru flugum við úr notalega hreiðrinu sem þið pabbi umvöfðuð okkur með til að búa til okkar eigin, með ferðatösku fulla af ráðleggingum og visku, bjart- sýn með bros á vör. Nú er þitt spunaverk hér á jörðu fullunnið en þú gekkst svo frá endum að þræðirnir sem þú spannst spinna áfram í gegnum ókomna tíð. Allt sem þú kenndir okkur kennum við okkar börnum og barnabörnum, þó að enn hafi ég ekki almennilega náð tökum á að smella saman fingrum eða segja „Supercalifragilisticexpia- lidocious“. Góða ferð, elsku mamma mín. Guðrún Fanney Sigurðardóttir (Dúna). Þegar ég hugsa til baka um mömmu birtast margar myndir í huga mér, hún í eldhúsinu í Víði- hvammi 3 í Kópavogi þar sem við ólumst upp, að gefa krakkaskaran- um skyrhræring í morgunmat, á útitröppunum að kalla okkur inn í mat og með pabba að fara á gömlu dansana, eins og böllin sem þau sóttu voru kölluð. Á hverju sumri þegar ég var krakki fórum við fjölskyldan í ferðalög um landið og heimsóttum vini og ættingja og á ég góðar minningar frá þeim ferðum. Þar sá hún um að okkur vantaði ekkert. Þegar við krakkarnir vorum ung var hún heimavinnandi og stjórn- aði heimilinu en pabbi var alltaf að vinna eins og þá var siður. Ekki man ég eftir að hún væri ströng en það var einhvernveginn þannig að maður fór eftir því sem hún sagði eða lagði fyrir. Hún hafði metnað fyrir okkar hönd varðandi nám og fór vel yfir allar einkunnirnar og bar saman við einkunnir eldri systkina. Það var sem sagt gerð ár- angursmæling. Varðandi skóla- göngu okkar þá gerði hún kröfu um gagnfræðapróf eða sambæri- legt að lágmarki. Við höfðum þó val um að hætta eftir skylduna en þá sagðist hún rukka um fullt verð fyrir fæði og húsnæði, sem var frítt meðan á skólagöngu stóð. Valið var því ekki erfitt þó að nám væri ekki í fyrsta sæti hjá mér sem unglingi og öll lukum við systkinin námi á framhalds- eða háskólastigi. Þetta var dæmigerður stjórnunarstíll hjá henni, hún kláraði með lagni það sem hún ætlaði sér. Ferðalög til sólarlanda voru mikið áhugamál hjá henni og pabba eftir að börnin fóru að heim- an og eftir að hún varð ekkja rúm- lega sextug var hún dugleg að fara með vinkonunum sínum til Kanarí og Spánar. Síðustu utanlandsferð- ina fór hún haustið 2008 með okkur Soffíu til New York þar sem Einar bróðir býr, en stuttu síðar fór heils- an að bila og hún fluttist á hjúkr- unarheimili. Hún var alla tíð mikið fyrir hannyrðir og handverk og var af- kastamikil á því sviði nánast fram í andlátið sem bar að með friðsælum hætti. Blessuð sé minning hennar. Jóhannes Ómar Sigurðsson. Elsku mamma, þegar ég hugsa til baka þá var lífshlaup þitt ótrú- legt, allt það sem þú afrekaðir á þinn hljóðláta hátt. Þú hafðir yndi af allri handavinnu og liggja mörg verk eftir þig hjá okkur systkinun- um. Þú passaðir upp á alla afmæl- isdaga hjá öllum þínum afkom- endum og væntanlega fellur það í minn hlut að halda því áfram. Þú varst mjög berdreymin og vissum við alltaf ef það var barn eða barnabarn á leiðinni í fjöl- skyldunni, ég veit ekki hver tekur við því hlutverki. Núna ertu komin í sumarlandið þitt, þú hafðir þá trú að það væri líf eftir þetta líf og þú varst farin að þrá að hitta þá sem voru farnir á undan þér. Ég veit að pabbi, Ása og Erla taka vel á móti þér og er gott að vita af þér í þeirra höndum. Takk fyrir allt, mamma mín. Þín dóttir Stella. Pálína Jóhannesdóttir HINSTA KVEÐJA Yndislega kona, orð fá ekki lýst hvað ég var hepp- inn að þú varst móðir mín. Ég kveð þig með ljóði Stefáns frá Hvítadal. Erla, góða Erla! Ég á að vagga þér. Svíf þú inn í svefninn í söng frá vörum mér. Kvæðið mitt er kveldljóð, því kveldsett löngu er. Helgi. ✝ Guðrún Guð-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 3. ágúst 1928. Hún lést á líknardeild- inni í Kópavogi 12. maí 2013. Hún var dóttir Ingveldar Ágústu Jónsdóttur, f. 24.8. 1902, d. 3.10. 1997 og Guðmundar Gíslasonar, f. 14.11. 1898, d. 14.5. 1968. Eftirlifandi systkini Guðrúnar eru Gísli, f. 1925, og Jóhann, f. 1936. Guðrún giftist árið 1950 Klem- enzi Jónssyni leikara, f. 29.2. 1920, d. 22.5. 2002. Guðrún og Klemenz eignuðust þrjú börn. 1) Ólafur Örn, f. 30.7. 1951, hag- fræðingur. Maki Inga Aðalheiður Valdimarsdóttir hjúkrunarfræð- ingur. Þeirra börn: a) Guðrún, f. 1982. Maki: Bjarni Þór Gíslason. Guðrún ólst upp í Reykjavík, fyrstu árin við Bergþórugötu og síðan við Brávallagötu. Hún sótti menntun sína í Austurbæjarskól- ann og lauk prófi frá Kvennaskól- anum. Að skólagöngu lokinni hóf hún störf hjá Almennum trygg- ingum. Guðrún vann hjá Ríkis- sjónvarpinu fyrstu ár þess allt til 1969. Árið 1972 hóf hún störf á skrifstofu Þjóðleikhússins, sem ritari og síðar fulltrúi og vann þar óslitið fram á eftirlaunaldur. Tónlist og kórastarf var Guðrúnu afar hugleikið, og starfaði hún í mörg ár með Þjóðleikhúskórnum, sat í stjórn hans og tók þátt í fjölda sýninga með kórnum. Lengst af bjuggu Guðrún og Klemenz á Bræðraborgarstíg 26, allt fram til ársins 1995 þegar þau fluttu að Eiðismýri 30 á Seltjarn- arnesi. Þar tók Guðrún þátt í öllu því góða félagsstarfi sem bæjar- félagið býður upp á, námskeið í bókbandi og bútasaum, sem hent- aði henni afar vel þar sem henni fór ekki vel að sitja auðum hönd- um. Útför Guðrúnar fer fram frá Seltjarnarneskirkju í dag, 22. maí 2013, kl. 11. Þeirra börn: Ingunn Erla og Ólafur Kári. b) Valdís, f. 1986. Sambýlismaður Thomas Lorentzen. c) Valdimar, f. 1989. Soninn Sigurð Jök- ul, f. 1973, eignaðist Ólafur Örn með Sig- ríði Sigurðardóttur, f. 1952. Sambýlis- kona Sigurðar Jök- uls er: Kristbjörg Hildur Guðmundsdóttir, f. 1983. Soninn Alex Þór eignaðist Sig- urður Jökull með Dagnýju Erlu Gunnarsdóttur. 2) Sæunn, f. 8.10. 1956, starfsmaður Landsbanka Íslands. Maki Hallur Helgason vélstjóri og starfsmaður Þjóð- leikshússins. Þeirra barn: Hallur, f. 1980. Maki: Valdís Hrund Hauksdóttir. Þeirra sonur: Brynj- ar Örn. 3) Guðmundur Kristinn, f. 9.11. 1969, svæfingalæknir. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. (Hugrún.) Amma mín var einstök kona; sönn fyrirmynd. Hún var ein sú klárasta sem ég hef þekkt og bjó yfir óbilandi fróðleiksþorsta. Amma var listamaður. Hvort sem um ræddi teikningu, matargerð, prjóna- eða saumaskap, það lék allt í höndum hennar. Minningar af heimili ömmu og afa á Bræðraborgarstígnum eru afar margar enda vorum við systkinin þar tíðir gestir. Amma spilaði klassíska tónlist og Gufuna og fór í sólbað á svölunum. Hún laumaði að okkur pening til að fara í sjoppuna á móti og kaupa nammi. Hún fór með okkur í Þjóð- leikhúsið og ferðalög. Hún bauð upp á ristað brauð með osti og marmelaði, vanilluís með appelsíni og fjöldamargar tegundir af kök- um og öðru sætmeti. Samveru- stundirnar voru jafnmargar eftir að þau hjónin, amma og afi, fluttu út á Nes. Amma bauð skaranum gjarnan í mat og gerði fram yfir áttrætt. Hún var alltaf svo dugleg; hún hélt góðu sambandi við vin- konur sínar, fór nánast daglega í sund, hélt heimilinu óaðfinnan- legu, stundaði leikfimi, sinnti tóm- stundum og ferðaðist, bæði innan- og utanlands. Hún var sannarlega kona í heimsklassa. Amma var ekki eingöngu besta amman heldur var hún börnunum mínum tveimur besta langamman. Hún hafði unun af því að fá lang- ömmubörnin og hundinn í heim- sókn; stjanaði við þau sem mest hún mátti og var alltaf tilbúin að hlusta á allt það sem þau höfðu að segja, knúsa þau og kyssa, segja þeim sögur og hlusta á montsögur af þeim. „Þetta er sko besta amm- an!“ var setning sem féll í einni heimsókninni. Amma hét „Amma sem bakar pönnukökur“ í huga barnanna en það nafn ber hún með rentu. Missir okkar er meiri en orð fá lýst og munum við sakna ömmu og langömmu óheyrilega, hún var okkur allt og er verulega drjúgt skarð hoggið í fjölskylduna. Guðrún, Ingunn Erla og Ólafur Kári. Mér finnst heimurinn mun fá- tækari eftir að amma mín yfirgaf hann. Hún var sannarlega einstök og sterk kona. Amma mín kenndi mér afskaplega margt um lífið. Hún kenndi mér mikilvægi já- kvæðni og vinnusemi. Hún kenndi mér mikilvægi hreyfingar og þess að maður skuli ekki láta aldurinn halda aftur af sér í þeim málum. Hún synti daglega í Seltjarnar- neslaug og fór auk þess í leikfimi. Hún var hressasta 84 ára kona sem ég hafði kynnst, þegar veik- indin náðu henni. Hún kenndi mér um heimagerða tísku og mikil- vægi þess að setja á sig andlitið. Amma kenndi mér að teikna, enda var hún mikill listamaður í sér, hvort sem það sneri að handverki, að því að mála eða teikna. Hún studdi mig alltaf heilshugar í námi mínu og átti stóran þátt í því, bæði í grunnskóla og menntaskóla. Ég var nefnilega svo heppin að fá meira eða minna að flytja inn hjá henni um jólin og á vorin, þegar próf voru, og fékk góðu ömmu mína til að dekra við mig. Hún hélt mér líka við efnið og ég fékk ekki að slæpast of lengi frammi í pás- unum mínum. Inni á gömlu skrif- stofunni hans afa sat ég stundum vikum saman, sérstaklega í stúd- entsprófunum en þá var ég hjá henni í tæpa tvo mánuði. Þetta þykir mér ómetanlegur tími núna. Amma var mér sannur og dýr- mætur innblástur fyrir hvernig lifa á lífinu. Hún lifði fyrir ferða- lögin sín og hafði ferðast mikið þegar hún féll frá. Hún var svo klár hún amma, hún lærði á gam- alsaldri á internetið og miklaði ekki fyrir sér að bóka ferðir til Kína, Rússlands og Ítalíu, alger- lega ein á netinu – á áttræðis- og níræðisaldri! Hún naut þess að lesa bækur, fara á tónleika og að sinna handverki sínu og ég get ekki talið hversu hversu oft hún sagði við mig að hún „léti sér aldr- ei leiðast“. Hún var sannur nautnaseggur og kunni einstak- lega vel að meta góðan mat, enda sérstaklega góður kokkur. Hún kynntist rauðvíni á Spáni á ferða- lögunum sínum þangað og naut þess að fá sér gott rauðvínsglas við tilefni. Hún kenndi mér að borða vanilluís með appelsíni á heitum degi, að dýfa kringlu ofan í kaffi, að borða brauðsúpu og mik- ilvægi góðs frómass. Amma var fæddur og alltaf tignarlegur gest- gjafi. Allar máltíðir hjá henni voru veisla. Og byrjuðu alltaf á slaginu sjö. Það er hjartaskerandi að hafa misst ömmu mína fyrir aldur fram, því ég var búin að ákveða að hún yrði hundrað ára. Hún sýndi mér hvernig hægt er að lifa með reisn, bæði í með- og mótlæti. Hún mótaði mig að svo mörgu leyti og ég er þakklát fyrir það. Ég er þakklát fyrir öll skiptin þegar hún sagði „hvað heldur þú“, þegar ég spurði hana hvort ég mætti fá mér eitthvað eða koma í heimsókn. Ég er þakklát fyrir alla nammimol- ana, alla kossana og brúnu lag- terturnar. Ég er þakklát fyrir að hafa náð að kveðja hana í hinsta sinn. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst henni og fyrir öll árin okk- ar saman. Heimurinn verður ekki samur án elsku ömmu minnar. Valdís Ólafsdóttir. Guðrún Guðmundsdóttir Smáauglýsingar Gisting Gisting Akureyri Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm einbýlishús, 4 svefnherbergi. Að- staða fyrir ca. 13 manns. Leyfilegt að h f h d í Skó hlíð E ð fl i i Geymslur Málarar Málarar Tökum að okkur alla málningar- vinnu. Tilboð eða tímavinna. Aðeins faglærðir málarar Upplýsingar í síma 696 2748 Húsviðhald Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um inn- sendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morg- unblaðslógóið efst í hægra horn- inu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf grein- in að hafa borist á hádegi tveim- ur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skila- frests. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.