Morgunblaðið - 22.05.2013, Side 35

Morgunblaðið - 22.05.2013, Side 35
ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013 allt var ennþá handskorið. Eftir- sóknin eftir slíkri vandaðri þjónustu var gífurleg og maður kynntist fjöld- anum öllum af skemmtilegu og dug- miklu fólki. Ég hafði alltaf meira en nóg að gera og maður sló aldrei af. Að lok- um varð þetta of mikil vinna í of langan tíma. Ég sá að þetta gekk ekki lengur, fór til læknis sem spurði mig hvers konar lífi ég lifði eiginlega og hvað ég héldi að ég væri – og lagði til að ég söðlaði alveg um. Þá skrifaði ég grein í Morgun- blaðið sem varð fræg að endemum. Þetta var árið 1997 og greinin hét Útkeyrða ofurkonan. Hún vakti feikileg viðbrögð. Í kjölfarið tók Val- gerður Jónsdóttir við mig langt við- tal í Morgunblaðið og á fjölmennri ráðstefnu um heilbrigðismál varð ég að einhvers konar yfirskrift ráðtefn- unnar þar sem birtist af mér mynd í supermanbúningi. Ég hefði getað skapað mér heilmikla vinnu vegna greinarinnar en féll nú samt ekki í þá gryfju. Þess í stað fór ég í nudd, lærði sjálf nudd árið 1998 og lærði síðan jóga. Ég flutti austur á mínar heima- slóðir um aldamótin og hef síðan verið búsett í Miðtúni í nábýli vð bróður minn sem er þar organisti, kórstjóri og tónlistarkennari. Frá því ég flutti austur hef ég kennt alhliða líkamsrækt og hef ver- ið með líkamsrækt á Hótel Rangá frá 2005. Ég hef nóg að gera en gæti þess auðvitað að hafa ekki of mikið að gera. Það verður hver og einn að finna sinn takt.“ Um 2005 fékk Katrín nöfnu sína, Katrínu Briem, til að halda teikni- námskeið fyrir austan. Í kjölfarið fór Katrína svo að teikna hross og hefur nú síðastliðin fjögur ár unnið mikið við gerð portrettmynda. Fjölskylda Eiginmaður Katrínar Jónínu er Eysteinn Fjölnir Arason, f. 23.4. 1938, fyrrv. kaupmaður sem starf- rækti Faco við Laugaveg. Hann er sonur Ara Jónssonar klæðskera og Heiðbjartar Pétursdóttur sem bæði eru látin. Börn Katrínar eru Ríkharður, f. 11.11. 1980, smiður í Reykjavík en kona hans er Karen Halldórsdóttir og á hann tvær dætur og eina fóstur- dóttur; Ívar, f. 26.12. 1982, tónlistar- maður, búsettur í Njarðvík en kona hans er Elín Þorvarðardóttir og á hann tvö börn, og Rebekka, f. 8.1. 1988, tónlistarmaður, söngkona og ljósmyndari, búsett í Reykjavík en maður hennar er Magnús Haralds- son. Systkini Katrínar eru Margrét Óskarsdóttir, f. 4.4. 1949, skrif- stofumaður hjá Landsvirkjun, bú- sett í Reykjavík; Valgerður Ósk- arsdóttir, f. 31.5. 1957, kennari, búsett í Reykjavík; Guðjón Halldór Óskarsson, f. 8.1. 1966, organisti, kórstjóri og tónlistarkennari, bú- settur í Miðtúni. Foreldrar Katrínar: Óskar Karelsson, f. 31.7. 1925, d. 31.3. 2001, bóndi í Miðtúni í Hvolshreppi, og k.h., Ingigerður Margrét Guðjóns- dóttir, f. 29.1. 1927, lengst af hús- freyja í Miðtúni, nú búsett á Kirkju- hvoli á Hvolsvelli. Úr frændgarði Katrínar Jónínu Óskarsdóttur Katrín Jónína Óskarsdóttir Margrét Bárðardóttir húsfr. á Syðri-Rauðalæk Halldór Halldórsson b. á Syðri-Rauðalæk Margrét Halldórsdóttir húsfr. í Arabæ og á Hellu Guðjón Þorsteinsson b. í Arabæ og síðar smiður á Hellu Ingigerður Margrét Guðjónsdóttir húsfr. í Miðtúnum, nú á Kirkjubóli á Hvolsvelli Þorsteinn Þorsteinsson b. á Berustöðum í Holtum, systursonur Guðmundar, afa Nínu Sæmundsdóttur listakonu Guðbjörg Guðnadóttir húsfr. á Brekkum Guðjón Jóngeirsson b. á Brekkum í Hvolhreppi Katrín Jónína Guðjónsdóttir húsfr. Karel Ingvarsson sjóm. sem fórst með bv. Jóni Ólafssyni Óskar Karelsson bóndi í Miðtúni í Hvolhreppi Diðrika Jónsdóttir húsfr. í Hvíld Ingvar Karelsson form. í Hvíld á Stokkseyri Guðríður Ingvarsdóttir húsfr. í Bakkakoti Ingigerður Runólfsdóttir húsfr. á Berustöðum Árni Runólfsson b. á Áshóli Hróbjartur Árnason forstjóri Bursta- gerðarinnar Jón Dalbú Hróbjartsson sóknarprestur í Hallgrímskirkju Guðmundur Halldórsson b. á Sandhólaferju Gunnar Guðmundsson iðnskólakennari Guðmundur Gunnarsson forstjóri Hjónin Katrín og Eysteinn Fjölnir. Heimsins öflugasta Hersluvél 1057Nm 20Volt Iðnaðarvélar fyrir fagmenn Síðumúla 11, 108 Reykjavík, sími 568 6899, vfs@vfs.is www.vfs.is W7150 ½ Rafhlöður 2* 3,0 Ah Li-Ion Létt og þægileg aðeins 3,1 kg Páll Ragnar Karlsson hefur varið doktorsritgerð sína í læknisfræði – „Morphological assessment of nerve fibers from skin biopsies in healthy individuals and patients with small fiber neuropathy“ – við dönsku verkjarannsóknamiðstöðina, deild klínískra læknisfræða við Háskólann í Árósum. Páll notaði í verkefninu þrívíddar- greiningu til að rannsaka taugatre- fjar (sársaukanema) í húð sjúklinga sem þjást af taugakvillu. Einkenn- andi fyrir sjúkdóminn er að sjúkling- ar hafa fáar taugatrefjar og þjást oft af langvarandi verkjum og skynt- ruflunum sem erfitt er að með- höndla. Taugatrefjarnar virka sem eins konar sársaukanemar og hafa þann tilgang að senda upplýsingar um hitastig, snertingu og sársauka til miðtaugakerfisins. Með notkun þrívíddargreining- arinnar sýndi Páll Ragnar fram á að sjúklingar hafi ekki aðeins færri skyn-taugatrefjar í húðinni, trefj- arnar séu einnig styttri samanborið við heilbrigt fólk. Verkefnið styrkti tilgátur enn frekar um að taugatrefjar gangi í gegn um verulega hrörnun í sjúk- lingum með taugakvillu. Niðurstöðurnar geta gefið upplýs- ingar um hvers vegna sumir sjúk- lingar eru með eðlilegan fjölda skyn-taugatrefja, en eru samt með klínísk einkenni taugakvillu. Verk- efnið getur einnig verið grundvöllur nýrra aðferða við greiningu á þess- um sjúklingum.  Foreldrar Páls Ragnars eru Karl Eskil Pálsson ritstjóri og Jóhanna Hlín Ragnarsdóttir hárgreiðslu- meistari. Páll er búsettur í Hammel í Danmörku. Hann er kvæntur Árúnu Ósk Guðgeirsdóttur kjóla- klæðskera og eiga þau saman tvær dætur. Doktor Doktor í læknisfræði 90 ára Baldur Sigurðsson Jytte Inge Árnason Steinunn A. Bjarnason 85 ára Guðrún Jónsdóttir Ragnheiður Ásgrímsdóttir Sveinn Rafn Eiðsson 80 ára Margrét Margeirsdóttir María Björk Þórsdóttir 75 ára Arnar S. Guðmundsson Emil Vilmundarson Guðbrandur Árnason Jósefína Friðriksdóttir Magnús Vilmundarson Ólöf Hulda Karlsdóttir Þóra Minerva Hreiðarsdóttir 70 ára Atli Ásmundsson Áslaug Þorleifsdóttir Helgi Vigfús Karlsson Jónína Davíðsdóttir Karólína Þorgrímsdóttir Kristín R.H. Benediktsdóttir Kristján Þórarinsson 60 ára Atli Viðar Jónsson Ásdís Gunnarsdóttir Berta Sigrún Jónsdóttir Guðrún Jónsdóttir Hilmar Þór Pálsson Ingibjörg Benediktsdóttir Jakob Gunnar Hjaltalín Jón Guðbjörnsson Stefanía Borghildur Ólafsdóttir 50 ára Bozena Sobiecka Eðvarð Rúnar Lárusson Helga Guðjónsdóttir Íris Elfa Haraldsdóttir Kristín Björk Friðbertsdóttir Ragnheiður L. Eyjólfsdóttir Sigurvin B. Hafsteinsson Skarphéðinn Reynisson Steindór Kristinn Ívarsson Þorleifur Kristinn Karlsson 40 ára Bjarney Sigrún Lúðvíksdóttir Bryndís Sigurðardóttir Guðmundur Skúlason Guðmundur Þór Brynjólfsson Guðrún Ósk Sigurðardóttir Hallur Kristmundsson Heiða Ingólfsdóttir Helga Árnadóttir Hólmar Már Gunnlaugsson Janusz Wojciechowski Joomjan Kongkham Olaf Ronhardt Ludek Sunneva Flosadóttir Vernharður Reynir Sigurðsson 30 ára Alda Björg Sveinsdóttir Andri Árnason Anna Þóra Sveinsdóttir Arturs Mikusans Eggert Árni Kristjánsson Ellert Jósteinsson Erla Hjördís Torfadóttir Halldór Örn Tulinius Lilja Birgisdóttir Ragnhildur Ingibjörg Bjarnadóttir Til hamingju með daginn 30 ára Ösp lauk BA-prófi í bókmenntafræði frá HÍ, B.Ed.-prófi frá HA og starfar í tæknisamn- ingadeild Actavis. Maki: Jón Grétar Leví Jónsson, f. 1981, starfsm. hjá Odda. Synir: Hreiðar Ægir Leví, f. 2007, og Óðinn Logi Leví, f. 2010. Foreldrar: Ásgeir Guðna- son, f. 1947, vélstjóri, og Bryndís Símonardóttir, f. 1956, kennari. Ösp Ásgeirsdóttir 30 ára Halla Karen ólst upp í Reykjavík, lauk BA- prófi í félagsráðgjög frá HÍ og stundar nú MA-nám í náms- og starfsráðgjöf við HÍ. Maki: Andri Már Óttars- son, f. 1983, rafvirki. Dætur: Embla Eir, f. 2004, og Hekla, f. 2008. Foreldrar: Jón Halldór Guðmundsson, f. 1962, hárskeri, og Erla Arnars- dóttir, f. 1964, d. 2012, var bókari. Halla Karen Jónsdóttir 30 ára Þóra ólst upp í Reykjavík, hefur búið og starfað í London við að leikstýra tónlistar- myndböndum á und- anförnum árum. Hún lauk prófum í listrænu kvik- myndanámi frá Central St. Martins í London og hefur verið að vinna að stuttmynd um þessar mundir. Foreldrar: Kristín Ingva- dóttir flugfreyja og Hilmar Karlsson blaðamaður. Þóra Hilmarsdóttir mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.