Morgunblaðið - 22.05.2013, Page 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú vilt tileinka þér einhver djúp sann-
indi í dag og nemur þau hugsanlega í gegnum
fjölmiðil, æðri menntun eða kennara. Það eru
breytingar framundan sem verða þér til góðs.
20. apríl - 20. maí
Naut Sýndu þolinmæði og gefðu þér tíma til
þess að leita þess rétta. Mundu að nú er ekki
rétti tíminn til að tala hreint út um hlutina.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Aðrir eru reiðubúnir að veita fjár-
hagslega aðstoð svo þú getir framkvæmt
áform þín. Gefðu þér tíma til að spjalla því þú
hittir ekki slíkt fólk á hverjum degi.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Reyndu að halda aftur af þér í sam-
tölum við aðra; þeir þurfa líka að komast að
með sín sjónarmið. Þú ert kannski ekki um-
kringdur því fólki sem þarfnast hæfileika
þinna núna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Varðveittu undrun þína yfir eiginleikum
makans, þótt þið hafið verið saman í óralang-
an tíma. Varastu samt að ganga of langt svo
ekki komi til eftirmála.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Dagurinn einkennist af fjaðrafoki.
Núna er rétti tíminn fyrir þig að ákveða hvað
þú ætlar að rækta – bæði líkamlega og ekki
síður það sem snýr að innri fegurð.
23. sept. - 22. okt.
Vog Einfaldaðu, á hvaða hátt sem þú getur, líf
þitt. Stoppaðu, brettu upp ermarnar og taktu
á þeim málum sem þú verður að leysa.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hrapaðu ekki að ályktunum og
allra síst í viðkvæmum einkamálum. Byggðu
þig frekar upp fyrir framtíðina. Stundum eru
hlutirnir hreint ekki eins og þú áttir von á.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft að koma hjartans máli á
framfæri og hefur ekki tíma til að vera list-
rænn eða klár. Samræður verða áhugaverðar
þar sem hugur þinn leitar inn á ófyrirsjáan-
legar brautir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Stundum þarf að grípa til sér-
stakra aðgerða til þess að vekja athygli sam-
ferðamannanna. Leyfðu sjálfstraustinu að
njóta sín.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ekki reyna að þröngva foreldri eða
fjölskyldumeðlimi til þess að vera sammála
þér í dag. Gættu þess jafnan að gera ekkert
það sem er öndvert samvisku þinni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það væru mistök af þinni hálfu að
leita að einhverjum til að halda uppi fjörinu,
því þú ert sá sem ýtir undir hlátur um þessar
mundir. Opnaðu augun.
Davíð Hjálmar Haraldsson varheima í sveitinni 4. maí síðast-
liðinn og var þar óvenjumikill snjór
miðað við árstíma eða eins og hann
lýsti því: „... girðingarstaurar á kafi
og hvergi örlar á fjárréttinni. Í
brekkunni sunnan við íbúðarhúsið
er skafl sem ég gæti trúað að sé 10
metra þykkur. Farfuglarnir voru
ósköp umkomulausir þarna á sköfl-
unum.
Bláhvítt hjarnið felur flóa,
fjall og mel og hverja laut.
Ein á hólnum hímir lóa,
hungruð, köld og fótablaut.“
Mikið var rætt um afmæli Ólafs
Ragnars Grímssonar forseta Ís-
lands í hópi hagyrðinga, en sama
dag varð Jóhannes Sigfússon á
Gunnarsstöðum sextugur. Friðrik
Steingrímsson orti:
Veðrið er með versta brag
og von að úti snjói,
því afmæli þeir eiga í dag
Ólafur og Jói.
Hjálmar Freysteinsson bregður á
leik í limru:
Teitur jarðaði tíkina
– taldi þágufallssýkina,
afleitan vana,
er varð henni að bana –
norðan við Neslandavíkina.
Sigrún Haraldsdóttir kastaði líka
fram limru:
Herjólfur húkti við lindina,
horfði í spegilmyndina,
þarna hann hékk
þar til hann fékk
kröftugan krampa í þindina.
Ingólfur Ómar Ármannsson kast-
ar fram hringhendum sléttubönd-
um:
Ljóðin glettin hljóma hér,
heldur léttist öndin,
óðinn fléttar vísna ver,
vandar sléttuböndin.
Grá Skeggur segir erfitt að halda
sér í kjörþyngd:
Oft er staut í heimi hér
að halda sínu striki,
og torveld þraut að taka af sér
2 kíló af spiki.
Ármann Þorgrímsson lýsir lífs-
hlaupi sínu svona:
Stýrði á móti straumi oft,
stundum vel á bátinn gaf,
það var í mér þingeyskt loft,
þess vegna ég lifði af.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af limrum, afmælum
og 2 kílóum af spiki
Í klípu
EKKI NÁÐIST Í GÚSTA VIÐ VINNSLU
FRÉTTARINNAR. EN ÞAÐ HEFÐI VERIÐ
NOTALEGT EF EINHVER HEFÐI REYNT.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„AÐRA LEIÐ.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... diskódraumur.
INNRITUN
ÞESSI HÓPUR VAR SÉRVAL-
INN Í EINSTAKLEGA ERFIÐA
OG KREFJANDI RÁNSFERÐ!
ERUÐ ÞIÐ
TILBÚNIR,
HÖRKUTÓL?
ÉG ÞARF Á KLÓSETTIÐ!
Í FRAMTÍÐINNI MUNU
KETTIR STJÓRNA HEIMINUM.
ENNÞÁ.Víkverji dagsins hefur tamið sér aðstanda við skrifborðið sitt í stað
þess að sitja. Hann tók upp á þessum
ósið vegna þess að langar setur áttu
til að hlaupa í bakið á honum. Eftir
að hann stóð upp hefur bakið hins
vegar að mestu leyti verið í lagi. Vík-
verji fer stundum í ræktina og þá
hleypur hann á bretti. Hann rak hins
vegar í rogastans þegar hann sá
mynd í tímaritinu New Yorker af
manni á bretti við skrifborðið sitt.
x x x
Maðurinn á brettinu heitir JamesLevine og leiðir rannsóknir í
aðgerðaleysi við Mayo-heilsugæslu-
stöðina í Scottsdale í Arizona. Le-
vine gerði rannsókn árið 1999 á því
hvers vegna sumir virtust bæta á sig
aukakílóum á meðan aðrir væru
ónæmir þótt þeir borðuðu nákvæm-
lega jafn mikið. Sextán manns tóku
þátt í rannsókninni. Þeir fengu ná-
kvæmlega það sama að borða og var
fylgst með hegðun þeirra út í hörgul.
Niðurstaða rannsóknarinnar var sú
að þeir, sem ekki þyngdust, voru á
stöðugu iði, fiktuðu, gengu um,
hreyfðu fæturna. Þessi hreyfing,
sem lítið fór fyrir, hafði í för með sér
að umrætt fólk brenndi allt að 800
kaloríum meira á dag en hinir.
x x x
Við frekari rannsóknir komst Le-vine að því að það væri slæmt að
sitja mikið, jafnvel fyrir þá, sem
væru í góðu formi. Einstaklingi, sem
fer í ræktina þrisvar í viku, kann að
líða vel, en efnaskiptin eru ekki í
lagi. Við að sitja fara vöðvarnir í eins
konar dvala, rafboð stöðvast og
framleiðsla ensímsins, sem brýtur
niður fitu í blóði, leggst af. Efna-
skiptin fara niður í um eina kaloríu á
mínútu, sem „er aðeins örlítið meira
en væri maður dauður“ eins og segir
í grein um málið í New Yorker.
Bandaríska krabbameinsfélagið
gerði rannsókn árið 2006 þar sem
kom fram að karlar, sem sitja sex
klukkustundir á dag eða lengur, eru
tuttugu prósent líklegri til að deyja
af „einhverjum völdum“ en þeir, sem
hreyfa sig. Samkvæmt breskri rann-
sókn eru konur í sérstakri hættu ef
þær sitja mikið. Víkverji sér stólinn í
nýju ljósi eftir lesturinn á greininni í
New Yorker. víkverji@mbl.is
Víkverji
En helgið Krist sem Drottin í hjörtum
ykkar. Verið ætíð reiðubúin að svara
hverjum manni sem krefst raka fyrir von-
inni sem þið eigið. (Fyrra Pétursbréf 3:15)
GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ -ÞAÐ ER TENGI
Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 • www. tengi.is • tengi@tengi.is
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
HREINSIEFNI FYRIR HEITA POTTA