Morgunblaðið - 22.05.2013, Page 40

Morgunblaðið - 22.05.2013, Page 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013 Hið viðamikla og metnaðarfulla verkefni sem nefnist Rýmin & skáldin hófst á Listahátíð í gær- kvöldi, þegar nýtt leikrit Auðar Övu Ólafsdóttur, Lán til góðverka, var flutt í sviðsettum leiklestri í Að- alsafni Borgarbókasafns. Alls verða sex ný verk flutt í útibúum safnsins, í þessu samstarfsverkefni Listahátíðar, Borgarbókasafns og Útvarpsleikhússins. Í kvöld, þriðjudag klukkan 20, verður leikverkið Rökrásin eftir Ingibjörgu Magnadóttur flutt í Ár- safni í Árbæ. Leikstjóri er Harpa Arnardóttir. Verkið er um 50 mín- útur í flutningi og fjallar um hjón á sjötugsaldri sem reka útvarpsstöð heima hjá sér. Inn hringja fasta- gestir, sumir fastir í árshátíðum, aðrir í samböndum, segir í lýsingu á leiknum. Seinni leiklestur á Rök- rásinni verður í Ársafni á laugar- daginn kemur klukkan 17.30. „Bókasöfnin eru í sex hverfum og eru einskonar menningar- miðstöðvar; menningarhlið inn í hverfin,“ segir Viðar Eggertsson útvarpsleikhússtjóri um verkefnið. „Þetta eru verk í vinnslu,“ bætir hann við. Í kjölfar þessa flutnings gefst höfundum tækifæri til að þróa verkin áfram og þá verða þau hljóð- rituð til flutnings í Ríkisútvarpinu. Ljósmynd/Rafael Pinho Samvinna Leikstjórinn Harpa Arnar- dóttir og Ingibjörg Magnadóttir. Rökrás Ingibjargar flutt í Ársafni Tíu frumflutt íslensk verk eru í far- vatninu hjá Útvarpsleikhúsinu. Í þessari viku og næstu eru í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík sýnd sex ný verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur, Ingibjörgu Magnadóttur, Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur, Braga Ólafsson, Steinunni Sigurðardóttur og Sigurð Pálsson. Næsta vetur verða síðan fjögur ný útvarpsleikrit frumflutt í Útvarps- leikhúsinu, en þau eru: Árshátíð vatnsveitunnar eftir Gunnar Gunnarsson í leikstjórn Guðmundar Inga Þorvaldssonar; Best í heimi eftir Maríu Reyndal í leikstjórn höfundar; Hér eftir Krist- ínu Ómarsdóttur í útvarpsleikgerð og leikstjórn Bjarna Jónssonar og loks Skáldið gleymda eftir Árna Kristjánsson, sem unnið er í sam- vinnu við Leik- félag Akureyrar. Verkið fjallar um Davíð Stefánsson skáld og verður flutt sem hljóð- verk með leik- rænni innsetn- ingu í Davíðshúsi á 50 ára dán- arafmæli skálds- ins, 1. mars 2014, og síðan frumflutt í Útvarpsleikhúsinu. Viðar Eggerts- son mun leikstýra bæði útvarpsgerð- inni og innsetningunni í Davíðshúsi. Samkvæmt upplýsingum frá Út- varpsleikhúsinu mun því á næsta leikári takast að jafna hlut karla og kvenna í hópi leikskálda og leik- stjóra, þannig að ekki séu færri en 40% af hvoru kyni fyrir sig. Mikil gróska hjá Útvarpsleikhúsinu Viðar Eggertsson Átta fræðimönnum hefur verið út- hlutað fræðimannsíbúð Húss Jóns Sigurðssonar til afnota frá ágúst- lokum 2013 til ágústloka 2014. Þeirra á meðal eru Hrafnhildur Schram sem mun vinna verkefni um Nínu Sæmundsson, fyrsta ís- lenska kvenmyndhöggvarann; Jón Ólafsson sem mun vinna verkefni um Íslendinga í danska Komm- únistaflokknum og samskipti hans við KFÍ og Sósíalistaflokkinn á Ís- landi 1930 til 1968 og Sigurður Gylfi Magnússon sem mun vinna verkefni er nefnist „Hugmynda- fræði hversdagslífsins á 19. öld“. Í útthlutunar- nefnd eiga sæti prófessorarnir Ágúst Einarsson og Anna Agnars- dóttir sem er for- maður nefndar- innar, en ritari er Jörundur Kristjánsson, al- þjóðaritari hjá Alþingi. Alls bárust 32 umsóknir. Fræðimannsíbúðin er skammt frá Jónshúsi í Sankt Pauls Gade 70, en fræðimaðurinn hefur vinnustofu í Jónshúsi. Átta fræðimenn fá aðstöðu í Jónshúsi Jón Ólafsson Sýning á nýjum verkum eftir Darra Lorenzen stendur nú yfir í galleríi ÞOKU að Laugavegi 25. Darri held- ur áfram tilraunum sínum á skynj- un og upplifun í rými, eins og því er lýst í tilkynningu. „Darri notar hanska úr samtímanum sem hafa ákveðinn tilgang og birtast þeir í mörgum endurteknum myndum og veltir hann fyrir sér, með vísun í brotakenndan sýndarheim hins stafræna, hvernig rými þeirra og ytra borð getur tekið á sig ólík gervi,“ segir m.a. um sýninguna. Hanskar Darri sýnir í ÞOKU. Tilraunir á skynjun og upplifun í rými Lagið „War“ eftir íslensku lagahöf- undana Gísla Kristjánsson og Sig- urð Sigtryggsson var flutt í spjall- þætti grínistans Jimmy Fallon, Late Night with Jimmy Fallon, í fyrra- kvöld af bandarísku hljómsveitinni Ahmir. Textann við lagið samdi danska söngkonan Victoria Han- sen. Þáttur Fallons er einn vinsæl- asti spjallþáttur Bandaríkjanna og hljómsveitin Ahmir mun eiga all- miklum vinsældum að fagna þar í landi þessa dagana en hún leikur R&B-tónlist. „War“ er fyrsta smá- skífan af væntanlegri breiðskífu hljómsveitarinnar. Gísli hefur starfað sem lagahöfundur og upp- tökustjóri í Lundúnum undanfarinn áratug eða svo, m.a. unnið með heimskunnum tónlistarmönnum á borð við Duffy og Jamie Cullum og íslenskum, m.a. Elizu Newman og Þórunni Antoníu. Útgáfufyrirtækið EMI hefur gefið út tvær breiðskífur með tónlist Gísla og hann hefur starfað fyrir fyrirtækið sem laga- höfundur. Þess má einnig geta að hann er einn af höfundum lagsins „Ég syng!“ sem náði 2. sæti í Söngvakeppninni í ár. Gísli býr nú á Íslandi og vinnur að þriðju sóló- plötu sinni. Grínisti Jimmy Fallon stýrir einum vinsælasta spjallþætti Bandaríkjanna. Íslenskt lag í þætti Jimmy Fallon AFP Þjónusta og síur fyrir allar tegundir af loftpressum ÞRÝSTILOFT FYRIR ALLAN IÐNAÐ LOFTPRESSUR – SÍUR – LOFTÞURRKARAR idnvelar@idnvelar.is | www.idnvelar.is | Smiðjuvegur 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 Gott ú rval á lager ÞÝSKAR GÆÐA PRESSUR Komdu í bíó! Þú finnur upplýsingar um sýningartíma okkar og miðasölu á www.emiði.is og www.miði.is EIN STÆRSTA SPENNUMYND SUMARSINS! -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is POWE RSÝN ING KL. 10 :40 - T.K. kvikmyndir.is H.V.A -Fréttablaðið LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar 12 12 12 16 FAST AND FURIOUS 6 Sýnd kl. 5:20 - 8 - 10:40(P) STAR TREK 3D Sýnd kl. 5:20 - 8 - 10:40 MAMA Sýnd kl. 8 OBLIVION Sýnd kl. 5:30 - 10:30 Stórmyndin sem tekin var upp á Íslandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.