Morgunblaðið - 09.07.2013, Side 2

Morgunblaðið - 09.07.2013, Side 2
SVIÐSLJÓS Skúli Hansen skulih@mbl.is Sigmundur Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra mun óska eftir til- nefningum allra þeirra stjórnmála- flokka sem eiga sæti á Alþingi í níu manna stjórnarskrárnefnd sem taka mun til starfa á næstu vikum. Nefnd- in mun meðal annars hafa hliðsjón af vinnu undanfarinna ára, þ.á m. til- lögum stjórnlagaráðs og stjórnlaga- nefndar, þjóðaratkvæðagreiðslunn- ar í fyrra og starfi stjórnar- skrárnefndar sem starfaði á árunum 2005-2007. Þetta kemur fram í minn- isblaði frá 2. júlí síðastliðnum sem gert var í kjölfar samkomulags for- manna allra stjórnmálaflokkanna á Alþingi. Morgunblaðið hefur umrætt minnisblað undir höndum. „Forsætisráðherra mun óska eftir tilnefningum þeirra stjórnmála- flokka, sem sæti eiga á Alþingi, í 9 manna stjórnarskrárnefnd sem tek- ur til starfa á næstu vikum. Með nefndinni munu starfa þrír sérfræð- ingar,“ segir á minnisblaðinu. „Hlið- sjón verður höfð af vinnu undanfar- inna ára um efnið, m.a. tillögum stjórnlagaráðs og stjórnlaganefnd- ar, niðurstöðum þjóðaratkvæða- greiðslu og starfi stjórnarskrár- nefndar sem starfaði 2005-2007. Þá verði nýlegar stjórnarskrárbreyt- ingar í nágrannalöndum einnig hafð- ar til hliðsjónar, sem og önnur þróun í stjórnarskrármálum á alþjóðavett- vangi. Nefndin gerir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis grein fyrir framvindu nefndarstarfsins eftir því sem eðlilegt er,“ segir þar ennfrem- ur. Þá kemur þar jafnframt fram að óskað verði eftir því að nefndin ljúki vinnu sinni tímanlega svo hægt verði að samþykkja frumvarp á núverandi kjörtímabili en unnt verði að áfanga- skipta vinnunni eftir því sem henta þykir. Að öðru leyti mun nefndin ákveða sjálf verklag sitt. Árni Páll Árnason, formaður Sam- fylkingarinnar, hefur tjáð sig um þetta samkomulag á fésbókarsíðu sinni. Þar greindi hann frá því í síð- ustu viku að samhliða því að sam- þykktar voru breytingar á breyting- arákvæði stjórnarskrárinnar hafi samkomulag náðst um að vinna við stjórnarskrá haldi áfram á kjörtíma- bilinu. „Sérstakt ánægjuefni“ „Sérstakt ánægjuefni er að þar er vísað beint til tillagna stjórnlagaráðs og niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar síðasta haust. Við munum leggja kapp á að freista þess að nýta þennan glugga til stjórnarskrár- breytinga. Nú er tryggt að vinna við stjórnarskrá heldur áfram á nýju kjörtímabili. Hvernig til tekst er undir okkur öllum komið,“ sagði Árni Páll á fésbókarsíðu sinni.  Skipuð verður níu manna nefnd samkvæmt samkomulagi formanna stjórnmálaflokkanna á Alþingi  Hafa á hliðsjón af vinnu undanfarinna ára, stjórnarskrárnefndar 2005-07 og tillögum stjórnlagaráðs Skipa nýja stjórnarskrárnefnd Morgunblaðið/Ómar Alþingi Samkomulag hefur náðst um að skipa nýja stjórnarskrárnefnd. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2013 Ómissandi á pizzuna, í ofn- og pastaréttina, á tortillurnar og salatið. Heimilis RIFINN OSTUR ÍSLENSKUR OSTUR 100% Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is „Á föstudagskvöldið var kolvitlaust veður, mígandi rign- ing og allt á floti. Við vorum bara að reyna að bjarga fólki í hús og koma því í skjól um allt. Svo breyttist veðr- ið strax á laugardag og skánaði. Þetta breytist mjög hratt þarna upp frá,“ segir Hilmar Baldursson, hópstjóri hjá hálendisvakt Landsbjargar. Hann er nýkominn af vikuvakt á hálendisvaktinni á Fjallabaksleið. Þar stjórn- aði hann hópi björgunarsveitarmanna frá Flugbjörgunarsveitinni í Varmahlíð og Skagfirð- ingasveit frá Sauðárkróki. Hilmar giskar á að þeir hafi bjargað um tuttugu bílum upp úr ám og sköflum á vakt- inni. Áfram er spáð vatnaveðri á næstu dögum og segir Hilmar að talsverðir vatnavextir séu á svæðinu. Hita- stigið sé reyndar búið að vera nokkuð lágt og því bráðni minna af snjónum. Því séu vextirnir ef til vill minni en þeir gætu verið. Þeir hafi engu að síður valdið þeim fjölda bíla sem var á ferðinni vandræðum. Hilmar segir það matsatriði hvort að óhætt sé fyrir fólk að vera á ferðinni á hálendinu þegar aðstæður eru sem þessar. „Fyrir vant fólk er kannski ekki mikið mál að keyra þarna upp eftir en vandamálið er að útlending- arnir hafa ekki reynslu af því að keyra í vatni og keyra of hratt. Það er yfirleitt málið þó að auðvitað ráði bílarnir stundum ekki við árnar. Það er samt í minnihluta- tilfellum. Menn keyra þannig að þeir fá vatn inn á vél- arnar og eyðileggja þær,“ segir hann. Jónas Guðmundsson, verkefnastjóri slysavarna ferðamanna hjá Landsbjörg, segir að frá því að hálend- isvaktin hófst fyrir tíu dögum þetta sumarið hafi tugir atvika átt sér stað á hálendinu, engin alvarleg þó. Óvenjumörg hafi verið um helgina vegna veðurs, sér- staklega sunnanlands. Vegna veðurspárinnar beinir Jón- as því til þeirra sem starfa í ferðaþjónustunni að benda ferðamönnum á að skoða vel aðstæður áður en lagt er af stað í ferð. Þeir þurfi að vera duglegir við að vara ferða- menn við að aðstæður geti verið erfiðar. Enn eru margir fjallvegir lokaðir, t.d. hluti af Fjallabaki, Eyjafjarðarleið á Sprengisandi og Gæsavatna- og Dyngjuleið. Í heildina munu fleiri en þrjátíu hópar frá þrjátíu björgunarsveitum sinna hálendisvaktinni á fjórum stöð- um; að Fjallabaki, á Kili, á Sprengisandi og á svæðinu norðan Vatnajökuls. Allt er það gert í sjálfboðavinnu og nota björgunarsveitarmennirnir margir sumarfríið sitt í það. „Það að björgunarsveitir séu í hálftíma-klukkutíma fjarlægð í staðinn fyrir þriggja-fjögurra tíma getur breytt heilmiklu. Það hefur sýnt sig á hverju sumri að þessi nærvera þeirra leysir atvik sem hefðu getað orðið mjög alvarleg,“ segir Jónas um hálendisvaktina. „Þetta breytist mjög hratt þarna upp frá“  Ferðaþjónustuaðilar vari ferðamenn við aðstæðum Markarfljót Flestir þeir sem hálendisvaktin aðstoðaði á Fjallabaksleið um helgina festu sig í ám. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir aslaug@mbl.is Á fundi skólanefndar Verzlunar- skóla Íslands nú í vor var samþykkt að hefja vinnu við endurskipulagn- ingu skólans með það að markmiði að stytta skólann um eitt ár. „Þessi vinna fer á fullt í ágúst og er miðað við að Verzlunarskólinn verði tilbúinn að innrita fyrstu nemendurna í þriggja ára nám vorið 2015,“ segir Ingi Ólafsson, skólastjóri Verzlunarskóla Íslands „Þetta hefur mikið verið rætt bæði af Samtökum atvinnulífsins og Við- skiptaráði, þar er kallað eftir að ár- um til stúdentsprófs sé fækkað. Auð- vitað eru skiptar skoðanir á þessu, en við höfum mikið rætt þetta í skólanefndinni, þar er fólk sem hefur mikil tengsl við atvinnulífið. Niður- staðan var sú að unnið verður að því að Verzlunarskólinn verði þriggja ára skóli,“ segir Ingi, en ekki hefur þó verið útilokað hvort boðið verður einnig uppá fjögurra ára nám í ein- hvern tíma. Stúdentsprófið endurhugsað Vinnan sem hefst í haust felst í því að stúdentsprófið verði endurhugsað og mögulega verði námsefnið eitt- hvað minna. „Það er ýmislegt utan- aðkomandi sem þarf að ganga upp, en við treystum því að það gangi eft- ir og við förum í þessa vinnu strax í haust,“ segir Ingi sem bætir við að þau treysti því að lögum frá 2008 verði hrint í framkvæmd, sem kveða á um að lengja skólaárið um fimm virka daga. Einnig segir Ingi mik- ilvægt að ná samningum við Kenn- arasambandið um endurskipulagn- ingu kennarastarfsins. „Nú er skólaárið 175 dagar og þar af 145 kennsludagar og 30 prófdagar. Við getum ekki fækkað prófdögum og fjölgað kennsludögum nema það ná- ist um það samningar,“ segir Ingi. Kvennaskólinn í Reykjavík var fyrstur til að bjóða uppá þriggja ára nám. „Við munum klárlega reyna að læra af þeim í þessum málum.“ Verzló verður þriggja ára skóli  Stefnt að innritun í 3 ára nám 2015 Ingi Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.