Morgunblaðið - 09.07.2013, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 09.07.2013, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2013 Styrmir Gunnarsson vekur at-hygli á frásögn Wall Street Jo- urnal um að þrjú af þeim fjórum aðildarríkjum ESB, sem hafa þurft að leita eftir neyðaraðstoð í fjár- málum sínum, þurfi enn meiri pen- inga:    Á sama tíma birt-ast fréttir í norskum blöðum um að Skoti að nafni Niall Fergu- son, sem hefur orð- ið heimsþekktur fyrir bækur um hagsögu hafi í er- indi hjá norsku Nóbelsstofnuninni í síðustu viku haldið því fram að evrukreppan gæti enn dýpkað og reyndar að ef ráðamenn í Evrópu grípi ekki til róttækari aðgerða verði Evrópa landsvæði í heim- inum eftir nokkra áratugi, sem litlu máli skipti.    Loks birtist grein í Daily Tele-graph í dag eftir þarlendan sérfræðing sem heldur því sama fram að því fari fjarri að evr- ukreppan sé liðin undir lok. Allt ber að sama brunni í þessum um- ræðum. Evrusvæðið sem slíkt er fen sem hættulegt er að fara út í. Evrópusambandið sjálft er í póli- tísku uppnámi vegna þess að þar er engin samstaða um hvert skuli stefna. Á að stefna í átt til Banda- ríkja Evrópu eða ekki?    Núverandi ríkisstjórn hefurákveðið að setja upp vinnu- hóp til að leggja mat á þróun Evr- ópusambandsins. Það er stærra verkefni en það, sem snýr að stöðu viðræðna Íslands við Evrópusam- bandið og ólíklegt að niðurstaða þeirrar könnunar liggi fyrir í bráð. En í raun og veru þarf enga könnun heldur bara heilbrigða skynsemi til að átta sig á, að við Ís- lendingar eigum ekkert erindi inn í þá óvissu, sem nú einkennir Evr- ópu og er líkleg til að haldast um ófyrirsjáanlega framtíð.“ Styrmir Gunnarsson Forað til að ana í STAKSTEINAR Meirapróf Næsta námskeið hefst 10. júlí 2013 Upplýsingar og innritun í síma 567 0300, 894 2737 Veður víða um heim 8.7., kl. 18.00 Reykjavík 12 þoka Bolungarvík 12 léttskýjað Akureyri 10 alskýjað Nuuk 1 þoka Þórshöfn 10 alskýjað Ósló 17 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 léttskýjað Stokkhólmur 21 heiðskírt Helsinki 21 léttskýjað Lúxemborg 23 léttskýjað Brussel 17 heiðskírt Dublin 17 léttskýjað Glasgow 18 heiðskírt London 13 skýjað París 22 heiðskírt Amsterdam 16 léttskýjað Hamborg 17 léttskýjað Berlín 22 skýjað Vín 21 léttskýjað Moskva 22 skýjað Algarve 17 léttskýjað Madríd 17 léttskýjað Barcelona 17 léttskýjað Mallorca 22 léttskýjað Róm 26 léttskýjað Aþena 26 léttskýjað Winnipeg 11 léttskýjað Montreal 12 súld New York 14 skýjað Chicago 10 léttskýjað Orlando 23 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 9. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:26 23:42 ÍSAFJÖRÐUR 2:40 24:37 SIGLUFJÖRÐUR 2:21 24:22 DJÚPIVOGUR 2:45 23:22 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég er með hana inni á gólfi til að reynslukeyra allan stjórnbúnaðinn. Hún fer upp í næstu viku og ætti að vera farin að snúast um aðra helgi,“ segir Haraldur Magnússon, bóndi í Belgsholti í Melasveit, um vindmyllu sem hann hefur verið að endurhanna og endursmíða. Vindrafstöðin var sett upp fyrir tveimur árum og hóf framleiðslu inn á landskerfið. Hagur bóndans grundvallaðist þó meira á sparnaði á rafmagnskaupum en sölu inn á kerf- ið. Ekki gagnaðist vindmyllan lengi því hún féll í lok nóvember, vegna bilunar og ófullkomins búnaðar, að sögn Haraldar. Snúningsnemi til vandræða Hann hefur síðan unnið að því að endurhanna og endursmíða raf- stöðina. Bátasmiðjan Seigla á Akur- eyri smíðaði nýja spaða og þar eru nú til mót af þeim ef fleiri vilja reyna sig. Skipt hefur verið um ýmsan búnað og settur upp nýr tölvubún- aður. Haraldur segir að mesti tíminn hafi farið í það að reyna að láta snún- ingsnema virka rétt með nýju tölv- unni. Hann og tölvumennirnir frá Raftákni hafa notað loftpressu til að búa til vindinn til að hægt væri að prófa búnaðinn á verkstæðisgólfinu. Mikilvægt er að mylluhausinn snúist rétt undan vindi. Ekki tókst að láta þetta vinna saman og því var keypt- ur nýr nemi og nú er kerfið farið að vinna rétt. Haraldur hefur lagt í mikinn kostnað við að þróa og endurbæta vindrafstöðina og er kostnaðurinn að nálgast þann kostnað sem hann lagði upphaflega í vindrafstöðina sem féll. „Ég er bjartsýnn á að þetta virki. Við erum búnir að fara vel í gegn um hlutina,“ segir Haraldur. Hann skoð- aði vindmyllur Landsvirkjunar við Búrfell fyrir nokkrum dögum og þegar fréttist hver var á ferðinni fékk hann einkaleiðsögn í gegnum stöðina. Honum líst vel á en segir að ýmis vandamál komi upp við rekstur svona stöðva sem þurfi að leysa. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Vindrafstöð Nýir spaðar vindmyllunnar í Belgsholti verða settir upp á næstunni og ekki líður á löngu þar til stöðin fer að framleiða rafmagn á ný. Endurhönnuð vindmylla sett upp í Belgsholti  Framleiðsla fyrir býlið hefst á ný Rangur dánar- mánuður Rangt var farið með dánarmánuð Jens Sigurðssonar, rektors Lærða skólans, í grein í tilefni af því að 200 ár eru liðin frá fæðingu hans, í Morgunblaðinu á laugardag. Jens fæddist 6. júlí 1813 og lést 2. nóv- ember 1872. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT Annar Lottóvinningshafi helg- arinnar er kominn fram en tveir skiptu á milli sín sexföldum potti. Maðurinn sem er 25 ára var heldur betur ánægður og í hálfgerðu sjokki skv. Íslenskri getspá. Hann keypti sér 10 raða miða og vann rúmar 28 milljónir. Hefur hann hug á kostnaðarsömu námi en ekki séð sér fært að stunda það hingað til. 25 ára vinningshafi vann 28 milljónir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.