Morgunblaðið - 09.07.2013, Síða 15

Morgunblaðið - 09.07.2013, Síða 15
STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Afar góð veiði er áfram á Vestur- landi og mikið af laxi að ganga. Í fyrradag var 92 löxum landað í Norð- urá en mikið vatn er í ánni og virðist laxinn því ganga hægt upp á efstu svæðin; 90 af löxunum veiddust fyrir neðan Glanna og munu tvær stangir hafa sett í fjörutíu laxa á morgun- vaktinni í fyrradag og landað þrjátíu þeirra. Er veiðin í Norðurá komin yf- ir 1.000 laxa. Jafnframt tekur laxinn vel í Straumunum, við ármót Norð- urár og Hvítár, en samkvæmt vef SVFR veiddust þrjátíu laxar þar á stangirnar tvær á tveimur dögum. Þar af veiddist 21 á morgunvaktinni í fyrradag. Það virðist vera sama hvar spurt er fregna við ár á svæðinu; fjögurra stanga holl í Hítará fékk tæplega 30 laxa á fjórum dögum. Og í Langá á Mýrum hefur laxinn gengið af krafti síðustu daga. Mikið og vaxandi vatn hefur verið í ánni, og kalt í veðri, og hefur laxinn því gengið hægt upp á fjallið, en neðsta svæðið og miðsvæð- ið verið að gefa vel. „Veiðin hefur verið mjög fín hér í Langá og í gær veiddust fjörutíu. Síðustu sex daga hafa veiðst 206 lax- ar og það er mjög gott svona snemma í júlí,“ sagði Haraldur Ei- ríksson sem var þar við leiðsögn í gær. „Það vekur áfram athygli hvað laxinn er gríðarvel haldinn og falleg- ur. Það er í raun með ólíkindum.“ Stórar sjóbleikjur í Vatnsdal Það hefur verið líflegt í Hnausa- streng í Vatnsdalsá síðustu daga og einnig virðist talsvert vera að ganga af laxi þar norðan heiða. Í gær sagði Pétur Pétursson leigutaki mikið hafa rignt, áin væri vaxandi og að skolast og við þær aðstæður hlyti laxinn að ganga upp fyrir Flóð og dreifa sér á efri svæðin, betur en verið hefði. „Svo er sjóbleikjan mætt og marg- ar stórar, 50 til 60 cm langar, og sjó- birtingur í sama stærðarflokki. Við fengum fimm laxa í Hnausastreng í morgun og sex punda sjóbirtinga með, þá fengust laxar í Hólakvörn og efst upp frá, í Stekkjarfossi. En hvað getur maður beðið um meira þegar svona fallegir silungar eru að ganga í bland við laxinn?“ sagði Pétur. Hann bætti við að byrjunin væri góð og full ástæða til bjartsýni, þótt hún hefði einnig verið ágæt í fyrra áður en botninn datt úr veiðinni. Þeir eru líka að fá hann í Ísafjarð- ardjúpinu því í Laugardalsá veidd- ust 23 á tveimur vöktum um helgina. Yfir 1.000 veiddir í Norðurá  Kröftugar laxagöngur í ár á Vesturlandi  „Síðustu sex daga hafa veiðst 206 laxar,“ segir leiðsögu- maður við Langá  „Hvað getur maður beðið um meira þegar svona fallegir silungar eru að ganga?“ Drottningin Ásgeir Heiðar hampar 115 cm langri hrygnunni. Vitaðsgjafi og Hornflúð í Laxá í Aðaldal í baksýn. FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2013 FRAMÚRSKARANDI Þú veist það strax og þú sérð hann. Það er eitthvað sérstakt við Range Rover Evoque. Hönnunin togar í þig um leið. Útlitið hvíslar að þér einhverju um ævintýri, þægindi og óbeislaða upplifun. Búnaðurinn er á heimsmælikvarða, hvort sem um ræðir aksturseiginleika, fjöðrunarbúnað, drifkerfi eða afl. Leyfðu honum að heilla þig. Komdu og reynsluaktu Evoque. Hafðu samband í síma 525 8000 eða komdu í heimsókn. www.landrover.is E N N E M M / S ÍA / N M 5 7 9 8 9 *M ið að vi ð up pg ef na r vi ðm ið un ar tö lu r fr am le ið an da um el ds ne yt is no tk un íb lö nd uð um ak st ri . NÝR RANGE ROVER EVOQUE – VERÐ FRÁ 8.770.000 KR. 4x4 - TD4 2,2 dísil, sjálfskiptur - Eyðsla 6,5 l/100 km.* BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílahúsið Reykjanesbæ www.bilahusid.is 421 8808 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 Margir hafa dáðst að myndum sem birtust á Mbl.is af 30 punda laxinum sem Ásgeir Heiðar veiddi við Hornflúð á Nesveiðum í Aðaldal á laug- ardaginn var. Hrygnan tók kvarttommmu-langa svarta Frances og var landað eftir um 25 mínútna viðureign. Var hún færð til bókar sem 115 cm löng, en hún var mjög þykk og afar vel haldin. Viðmiðunarkvarði Veiðimálastofnunar nær ein- ungis upp í 114 cm og segir það vera 29 punda lax. Fullvíst má telja að þessi hafi verið 30 pund, eða 15 kíló, að lágmarki. Er þetta stærsti lax sem hér hefur verið skráður síðan jafn- stór hængur veiddist í Vatns- dalsá fyrir sjö árum. „Miðað við það hvað laxarnir eru gríðarvel haldnir núna tel ég að þessi lax hafi verið vel yfir 30 pundin,“ segir Árni Pétur Hilmarsson, staðarhaldari í Nesi. Segir hann veiðina nú í byrjun vera á pari við 2010, en þá var besta veiði síðan 1979. Gríðarþykk hrygna 30-PUNDARINN Í NESI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.