Morgunblaðið - 09.07.2013, Page 17

Morgunblaðið - 09.07.2013, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2013 www.boconcept.is X E IN N IX 13 07 001 Húsgögnin frá BoConcept sameina framúrskarandi hönnun, gæði, góð verð og óteljandi möguleika. Þú getur notað teikniforritið á www.boconcept.is til að hanna þinn eigin sófa – og líka borðið, stólana, skenkinn eða hvað sem hugurinn girnist. Þú smellir einfaldlega á flipann „Design in 3D Home Creator“ undir hverri mynd, byrjar að hanna og reiknar verðið! Skannaðu QR kóðann og sjáðu hvernig teikniforritið virkar *Tilboðin gilda um allar útfærslur og öll áklæði á Milos og Carmo sófum til 15. ágúst. Sófatilboð í sumar!!* MILOS 25% Su mar- afsláttu r CARMO25% Sumar-afsláttur eins slæmt og í Sýrlandi þar sem meira en 100.000 hafa látið lífið í átökum sem hafa staðið í rúm tvö ár. Leitað til harðlínumanna Manndrápin í Kaíró í fyrrinótt urðu til þess al-Nur, stærsti flokkur salafista í Egyptalandi, tilkynnti að hann hefði ákveðið að draga sig út úr viðræðum um myndun bráðabirgða- stjórnar. Áður hafði al-Nur lagst gegn þeirri ákvörðun hersins og bráðabirgðaforsetans að tilnefna Mohamed ElBaradei, leiðtoga sam- taka frjálslyndra stjórnmálahreyf- inga, í embætti forsætisráðherra til bráðabirgða. Andstaða salafistanna við ElBaradei varð til þess að hætt var við að skipa hann í embættið. Fregnir hermdu í gær að bráða- birgðaforsetinn vildi nú að ElBar- adei yrði varaforseti og virtur hag- fræðingur og lögfræðingur, Ziad Bahaa Eldin, yrði forsætisráðherra. Reyndar virðist það einkennilegt að bráðabirgðaforsetinn og leiðtogar hersins, sem ráða ferðinni í viðræð- unum, skuli hafa leitað eftir stuðn- ingi salafistaflokksins vegna þess að hann hefur verið mun aftur- haldssamari en Bræðralag múslíma, samtökin sem herinn lagðist gegn. Flokkar salafista fengu tæpan fjórðung sætanna á þingi Egypta- lands í kosningum á síðasta ári og stærstur þeirra er al-Nur sem er jafnframt næststærsti stjórnmála- flokkur landsins á eftir flokki Bræðralags múslíma. Al-Nur beitti sér ákaft fyrir stjórnarskrárákvæð- um um að landinu yrði stjórnað sam- kvæmt íslömskum lögum. Salafist- arnir kröfðust t.a.m. þess að íslamskir fræðimenn fengju stjórnarskrárbundið vald til að ógilda lög sem þeir teldu stangast á við sjaría, lögmál íslams. Bræðralag múslíma snerist hins vegar á sveif með frjálslyndu öflunum í því máli og kom í veg fyrir að slíkt ákvæði yrði sett í stjórnarskrána. Al-Nur tókst aftur á móti að hindra sérstakt stjórnarskrárákvæði um jafnrétti kynjanna. Eitt af fyrstu verkum leið- toga hersins eftir að Mohamed Morsi var steypt af stóli var að af- nema þessa umdeildu stjórnarskrá. Al-Nur er eini íslamistaflokkurinn sem studdi þá ákvörðun hersins að steypa Morsi af stóli forseta. Talið er að leiðtogar al-Nur hafi ákveðið að snúast gegn Bræðralagi múslíma í því skyni að styrkja stöðu salafista- flokksins. „Þeir eiga möguleika á því að verða helsti flokkur íslamista í stjórnmálunum í Egyptalandi eftir fall Morsi,“ hefur The New York Times eftir Samer Shehata, stjórn- málafræðingi sem er sérfróður um íslamista í Egyptalandi. Bræðralag múslíma sakar leiðtoga al-Nur um svik við íslam. „Þeir hafa verið notaðir til að fegra og hvítþvo valdarán hersins,“ sagði talsmaður Bræðralags múslíma. Talið er að leiðtogar hersins leggi mikla áherslu á að tryggja stuðning al-Nur við borgaralega bráðabirgða- stjórn til að minnka líkurnar á borg- arastríði og sannfæra Egypta um að valdaránið beinist ekki gegn íslam. Eitt af meginverkefnum bráða- birgðastjórnarinnar verður að semja um nýja stjórnarskrá og fallist salaf- istaflokkurinn á að eiga aðild að stjórninni verður mjög erfitt að sætta sjónarmið íslamistanna og frjálslyndu aflanna sem krefjast þess að stjórnmálunum og trúar- brögðunum verði haldið aðskildum. Reynt að afstýra blóðugu stríði AFP Blóðsúthellingar Hermenn beita táragasi til að dreifa stuðningsmönnum Bræðralags múslíma við bækistöðvar úr- valssveita hersins í Kaíró í fyrrinótt. Tugir manna biðu bana í skotárás á stuðningsmenn íslömsku samtakanna.  Bræðralag múslíma hvetur til uppreisnar í Egyptalandi eftir að tugir stuðningsmanna samtakanna voru skotnir til bana  Flokkur róttækra íslamista slítur viðræðum um myndun bráðabirgðastjórnar FRÉTTASKÝRING Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Mikil óvissa ríkir um tilraunir leið- toga hersins og nýskipaðs bráða- birgðaforseta í Egyptalandi til að af- stýra blóðugu borgarastríði og mynda borgaralega bráðabirgða- stjórn eftir að tugir manna biðu bana í skotárás á stuðningsmenn Bræðra- lags múslíma og Mohameds Morsi sem herinn steypti af stóli forseta í vikunni sem leið. Leiðtogar Bræðralags múslíma sökuðu herinn og lögregluna um „fjöldamorð“ á stuðningsmönnum íslömsku samtakanna í Kaíró og hvöttu íslamista til að hefja uppreisn gegn hernum og bráðabirgðaforset- anum Adly Mansour. Þeir líktu yfir- hershöfðingjanum Abdel Fattah al- Sisi við forseta Sýrlands, Bashar al- Assad, og vöruðu við því að aðgerðir hans gætu leitt til borgarastríðs líkt og í Sýrlandi. Nokkrir fréttaskýrendur sögðu að manndrápin í Kaíró og harðorð við- brögð leiðtoga Bræðralags múslíma við aðgerðum hersins ykju hættuna á blóðugu stríði. „Leiðtogar Bræðra- lags múslíma hafa tekið mjög hættu- lega afstöðu. Þeir eru staðráðnir í því að magna spennuna,“ hefur frétta- veitan AFP eftir Hassan Nafaa, pró- fessor í stjórnmálafræði við Kaíró- háskóla. Nafaa lýsti leiðtogum Bræðralags múslíma sem „öfga- mönnum“ og hvatti hófsamari menn í samtökunum til að knýja þá til að reyna að lægja öldurnar í stað þess að hvetja til uppreisnar. Óttast glundroða á Sínaískaga Egypski fréttaskýrandinn His- ham Kassem segir að hætta sé á því að íslamskir öfgamenn notfæri sér ólguna í landinu til að hefja vopnaða baráttu, þeirra á meðal liðsmenn ísl- ömsku hreyfingarinnar Gamaa Isla- miya og vopnaðir hópar íslamista á Sínaí-skaga. Íslamistahóparnir hafa gert árásir á hermenn, lögreglu- menn og kristna Egypta á Sínaí- skaga síðustu daga. Kopta- prestur lét lífið í skotárás á laugardaginn var og lög- reglumaður skotinn til bana í annarri árás um helgina. Að sögn breska ríkisútvarps- ins hafa yfirmenn hersins miklar áhyggjur af vax- andi glundroða og ófriði á Sínaí- skaga. Hisham Kassem telur þó ólíklegt að ástandið í Egyptalandi verði Nýskipaður bráðabirgðaforseti Egyptalands, Adly Mansour, fyrir- skipaði í gær dómurum að rann- saka skotárás sem kostaði tugi stuðningsmanna Bræðralags múslíma lífið við bækistöðvar úr- valssveita hersins í Kaíró í fyrri- nótt. Leiðtogar Bræðralags múslíma sökuðu her- og lögreglumenn um að hafa skotið á stuðningsmenn samtakanna sem höfðu safnast saman við bækistöðvarnar til að mótmæla þeirri ákvörðun hersins að steypa Mohamed Morsi af stóli forseta á miðvikudaginn var. „Stuðningsmenn Morsi voru á bæn þegar her- og lög- reglumenn skutu byssukúlum á þá og beittu táragasi,“ sagði talsmaður Bræðralags múslíma. Talsmaður hersins sagði hins vegar að „vopnaðir hryðjuverka- menn“ hefðu verið að verki, reynt að ráðast inn í bækistöðvarnar og orðið tveimur lögreglumönn- um og hermanni að bana. Hann bætti við að talið væri að leyni- skyttur hefðu tekið þátt í árás- inni á öryggissveitirnar. Fréttaveitan AFP hefur eftir sjónarvottum, þeirra á meðal stuðningsmönnum Bræðralags múslíma, að „óþokkar“ í borg- aralegum klæðnaði hefðu skotið á fólkið. Hermennirnir hefðu að- eins skotið viðvörunarskotum upp í loftið og beitt táragasi eftir að stuðningsmenn Bræðralags múslíma hefðu kastað grjóti á þá. Yfirvöld sögðu að minnsta kosti 51 hefði beðið bana í skot- árásinni. Hermt er að 435 manns hafi særst í átökunum. Talið er að Mohamed Morsi sé haldið í bækistöðvum úrvals- sveitanna. Manndrápin rannsökuð TUGIR MANNA LÁGU Í VALNUM EFTIR SKOTÁRÁS Stuðningsmaður Mohameds Morsi mótmælir valdaráninu. Varar við borgarastríði » Ahmed al-Tayeb, æðsti múfti al-Azhar, helsta menntaseturs súnníta í Egyptalandi, varaði í gær við borgarastyrjöld í land- inu. Hann kvaðst ætla að dvelja á afskekktum stað þar til blóðsúthellingunum lyki. » Leiðtogar egypskra lýð- ræðissinna neita því að herinn hafi framið valdarán. Þeir segja að 22 milljónir Egypta hafi undirritað áskorun um að forsetanum yrði vikið frá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.