Morgunblaðið - 09.07.2013, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.07.2013, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2013 Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00. ODORITE ÖRVERUHREINSIR MILDEX-Q MYGLUEYÐIR WIPE OUT OFNA OG GRILLHREINSIR NOVADAN KLÓRTÖFLUR - Í POTTINN SEPT-O-AID ÖRVERUR FYRIR ROTÞRÆR HÁÞRÝSTIDÆLUR ERTU Á LEIÐ Í BÚSTAÐINN ÚRVALS VÖRUR FYRIR VIÐHALDIÐ OG VERKIN Í BÚSTAÐNUM. KÍKTU Í KEMI BÚÐINA OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Íslenskar vísindaskáldsögur eru að byrja að ryðja sér til rúms í bókahill- um landsmanna en lítið hefur borið á þeirri bókmenntagrein í nokkurn tíma. Einhver ætti þó að kannast við og þekkja bækur Kristmanns Guð- mundssonar en hann skrifaði sög- urnar Ferðin til stjarnanna, Æv- intýri í himingeimnum og Stjörnuskipið, sögur sem hafa gjarn- an verið taldar fyrstu íslensku vís- indaskáldsögurnar. Nú eru að koma fram nýir höf- undar sem takast á við viðfangsefni og tækla hugarheim vísindaskáld- skapar enda eru bókmenntir af þess- ari tegund að verða sífellt vinsælli meðal almennings. Einar Leif Nielsen steig nýlega fram á sviðið sem ungur og efnilegur rithöfundur en Hvítir múrar borg- arinnar er ný íslensk vísindaskáld- saga eftir Einar og er jafnframt frumraun hans á þessu sviði. Úr stærðfræði í skáldskap Einar varð stúdent af eðlis- fræðibraut úr MR og lauk síðar grunnnámi í iðnaðarverkfræði og meistaranámi í hagnýtri stærðfræði. Það kom því mörgum í kringum hann á óvart þegar hann steig fram á rit- völlinn. „Þetta hefur blundað í mér lengi og mig hefur langað að skrifa sögu sem þessa í mörg ár,“ segir Ein- ar en hann segist þó hafa verið ódug- legur við að lesa sem barn. „Áhugi minn á lestri og þá helst á æv- intýrabókum og vínsindaskáldskap vaknaði þegar ég komst yfir bókina Hobbitinn í íslenskri þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar og Úlfs Ragn- arssonar. Eftir það varð ekki aftur snúið og í Hagaskóla lifði ég mig al- gjörlega inn í ævintýraheima á borð við Star Trek, Star Wars og ýmsar ævintýraveraldir borðspila, bóka og sjónvarpsþátta.“ Einar segir að á menntaskólaárum sínum hafi áhuginn á ævintýra- heimum annarra dvínað en þá hafi löngunin að skapa sinn eigin vaknað. „Það er í menntaskóla sem ég fer að hugleiða að skrifa mínar eigin bækur en lét þó ekki verða af því strax.“ Saga tveggja ólíkra heima Einar sækir efnivið í bók sína úr stjórnmálum en þau hafa verið hon- um hugleikin þó svo hann segist ekki skipta sér af pólitísku starfi í dag. „Upphaflega langaði mig að skrifa tvær sögur og sem sýna öfgar sitt í hvora áttina í pólitíska litrófinu. Hugmyndin var að byrja á bókinni um heim þar sem öfgar til vinstri ráða ríkjum en hún varð nokkuð flók- in og ég náði ekki almennilega utan um hana,“segir Einar en hann ákvað í kjölfarið að hefja skrif á bókinni Hvítir múrar borgarinnar sem fjallar um anarkískt framtíðarsamfélag. „Anarkisminn er sá angi frjálshyggj- unnar sem nær lengst og mig langaði að sýna hvernig slíkt samfélag gæti þróast og orðið. Grunnurinn er í raun og veru að sýna að frjálshyggjan get- ur líka farið út í öfgar en samt passa ég mig á að reyna að sýna það sem er gott í henni líka. Hvort mér hefur tekist það eða ekki er alltaf á end- anum mat lesandans.“ Á metsölulistann strax Bók Einars kom út í janúar á þessu ári í rafbókarformi og fór strax á metsölulista. Einar segist fáar skýringar hafa á því nema þá kannski að eftirspurn sé eftir ís- lenskum vísindaskáldskap og að fólki líki við bókina. „Það er gaman að sjá afrakstur vinnu sinnar fá góðar við- tökur en þessi bók er búin að vera lengi í fæðingu. Ég byrjað að skrifa hana 2004 og lauk henni á rúmu ári. Síðan fór hún ofan í skúffu og ég dró söguna ekki fram fyrr en ég sá aug- lýsingu á síðu sem heitir Rithring- urinn frá Þorsteini Mar. Hann að- stoðaði mig svo við að laga handritið til og koma því í prentvæna útgáfu. Núna er bókin komin út í kilju og ég vona að hún fari jafn vel í fólk og raf- bókin.“ Morgunblaðið/Styrmir Kári Rithöfundur Verkfræðingurinn Einar Leif Nielsen gaf nýleg út sýna fyrstu bók í rafbókarformi. Hún hefur fengið góðar viðtökur og fór strax á met- sölulista þegar hún kom út í janúar. Bókin er nú nýlega komin út í kilju og vonar Einar að hún fái álíka viðtökur og rafbókin. Vísindaheimur verkfræðingsins  Einar Leif Nielsen gaf nýlega út bókina Hvítir múrar borgarinnar  Hann heillaðist af Star Trek og Star Wars sem unglingur en féll fyrir bókum þegar hann las Hobbitann Ofurhetjan Súpermann verður að láta í minni pokann fyrir hetjunum í vestranum The Lone Ranger þegar bíóaðsókn nýliðinnar helgar er skoð- uð. Johnny Depp og Armie Hammer þykja fara á miklum kostum í vestr- anum í viðleitni sinni til að ná fram réttvísinni. Rúmlega sex þúsund manns sáu myndina hérlendis um nýliðna helgi. Frá frumsýningu fyrir þremur vikum hafa tæplega 24 þús- und manns fylgst með ævintýrum Súpermanns. Töframennirnir í Now You See Me virðast hafa fallið vel í kramið hjá landanum, því frá frum- sýningu hafa rúmlega 15 þúsund manns séð myndina. Bíóaðsókn helgarinnar Bíólistinn 5.- 7. júlí 2013 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd The Lone Ranger This is the End Man Of Steel White House Down Epic The Big Wedding Internship, The Now You See Me The Purge The Iceman Ný Ný 1 2 6 3 5 7 8 9 Ný Ný 3 2 6 2 4 5 2 3 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nýjar hetjur tróna á toppi Eðaltöffari Johnny Depp fer með hlutverk indíánans Tonto.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.