Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Blaðsíða 33
Morgunblaðið/Árni Sæberg
1.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
OSTAKAKA
10 litlar krukkur
30 g smjör, brætt
1 tsk. púðusykur
170 g hafrakex, til dæmis graham (eða kex að eigin vali)
400 g rjómaostur
240 ml rjómi
2 tsk. vanilludropar
Myljið kexið og blandið púðursykri og smjöri saman við. Hellið í
botninn á krukkunum.
Hrærið rjómaost þar til hann er orðinn léttur, bætið þá rjóma og
vanilludropum saman við og hrærið þar til blandan er orðin létt og
ljós. Skiptið rjómaostsblöndunni á milli krukknanna. Geymið í kæli
og útbúið karamellusósuna.
KARAMELLUSÓSA
6 msk. síróp
½ bolli sykur
3 msk. smjör
½ bolli rjómi
¾ tsk. sjávarsalt
Hitið síróp á pönnu við meðalhita. Bætið því næst sykrinum saman
við, en hrærið þessu ekki saman. Látið malla þar til blandan er orð-
in dökkleit. Takið þá af pönnunni, hrærið smjör strax saman við og
hellið þá rjóma rólega saman við. Hrærið stöðugt á meðan. Leyfið
sósunni að kólna aðeins áður en henni er hellt í krukkurnar.
Eftirrétturinn er ekki síður tilvalin tækifærisgjöf.
Ostakaka með karamellusósu
COBB-SALAT
1 búnt romain-salat
1 poki spínat
1 avókadó, skorið í teninga
8 beikonsneiðar, steiktar þar til þær
eru stökkar
1 krukka fetaostur
4-5 tómatar, skornir í sneiðar
4 egg, harðsoðin
2 kjúklingabringur, grillaðar og skorn-
ar í teninga
HUNANGS-LIME-SÓSA
1 skalottlaukur, smátt skorinn
4 msk. hvítvínsedik
4 msk. hunang
4 msk. dijon-sinnep
1 tsk. salt og pipar
1½ bolli ólífuolía
Blandið spínati og romaine-salati saman og
leggið á disk. Raðið síðan í beinni röð á
diskinn avókadó, eggjasneiðum, tómötum,
kjúklingi, beikoni og fetaosti.
Gerið salatsósuna með því að blanda öllu
saman í matvinnsluvél að olíunni undanskil-
inni. Bætið henni varlega út í. Þá á sósan að
þykkna. Hellið henni yfir salatið og berið
fram.
Salatið er fljótlegt að útbúa að sögn Berglindar.
Cobb-salat með sósu
Framleiðendur bresku Rowlett brauðristanna
hafa aldrei verið sammála því að brauðristar eigi
að vera ódýrar, ónákvæmar og ónýtar alltof snemma.
Þær hafa verið handsmíðaðar í tæp 70 ár og hvert
einasta tæki er prófað áður en það fer úr húsi. Það
hlýtur að vera öfundsvert starf að sjá um gæða-
eftirlitið með öllu þessu ristaða brauði.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Brauðristar-
gæðaeftirlit