Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Blaðsíða 42
*Fjármál heimilannaMilljónamæringar bera sig saman við milljarðamæringa og líta ekki á sig sem auðmenn Annasamur vetur er framundan hjá Uglu Stefaníu Jónsdóttur. Þessi 22 ára yngismey úr sveit er fræðslustjóri Samtakanna 78 samhliða því að leggja stund á BA-nám í fé- lags- og kynjafræði við HÍ. Ugla er sólgin í sólberjasafa en sparar með því að fá kjötið beint frá bónda. Hvað eruð þið mörg í heimili? Ég og kærastinn minn búum tvö saman í huggulegri lítilli íbúð á Leifsgötunni í Reykjavík. Ekki er fyrirhugað að fjölga heimilsfólkinu í bráð. Hvað áttu alltaf til í ísskápnum? Kjúkling, brauð, mjólk og sólberjasafa. Við elskum kjúkling og kaupum hann meira að segja í gegnum frænda minn á heild- söluverði til að spara pening. Ég er alin upp í sveit og drekk mjólk í hvert mál og er ný- mjólkin sú sem kemst næst því að bragð- ast eins og kúamjólkin beint úr tanknum. Svo eigum við líka alltaf til sólberjasafa, enda er hann svo hrikalega góður og sval- andi. Hvað fer fjölskyldan með í mat og hreinlætisvörur á viku? Ætli það séu ekki svona 12.500-15.000 kr. Fer mikið eftir vikum, samt! Hvar kaupirðu helst inn? Við kaupum nauðsynjavörur í Bónus og förum einstaka sinnum í Krónuna. Hvað freistar helst í matvörubúðinni? Ég er svakalegur tækifærissinni og er alltaf að prófa eitthvað nýtt. Nýjar sósur, krydd og nýjar og framandi uppskriftir eru málið. Hvernig sparar þú í heimilishaldinu? Ég fæ flestallt kjöt heiman úr sveit. Einnig kaupi ég eingöngu matvörur í Bónus eða Krónunni. Hvað vantar helst á heimilið? Diskókúla væri svaka töff. En annars væri ég reyndar alveg til í djúpsteikingarpott eða stærri fataskáp. Eyðir þú í sparnað? Á maður ekki að gera það? Maður er ekki fátækur námsmaður fyrir ekki neitt. Skothelt sparnaðarráð? Við geymum alltaf peninginn okkar á einum góðum sparnaðarreikningi og erum svo með heimilisbókhald þar sem allt er skipu- lagt og reiknað saman miðað við hversu mikið við þénum á mánuði. Svo eyðum við alltaf í samræmi við hversu mikinn pening við eigum þann og þann mánuðinn. Ætli það sé ekki gott ráð fyrir alla að læra á Excel og setja upp skjal fyrir heimilisbókhaldið! NEYTANDI VIKUNNAR UGLA STEFANÍA JÓNSDÓTTIR Excel bjargar málunum Uglu þætti gaman að eiga diskókúlu en vantar líka stærri fataskáp. Ljósmynd/Eva Ágústa Aradóttir – Samtökin 78 Fyrr í mánuðinum dúkkaði upp undarleg rukkun á greiðslukorta- reikningi Aurapúkans. Upp úr þurru virðist sem fjarskiptafyr- irtæki sem Púkinn verslaði við fyrir mörgum árum hafi tekið upp á því að skuldfæra á kreditkortið um 5.000 kr. Varla hefur tekið Púkann meira en 10 mínútur í allt að skrifa nokkra tölvupósta og komast til botns í málinu. 5.000 kr. ávinningur á 10 mínútum jafnast á við 30.000 kr. tímakaup, sem er ekki amalegt. Líf nútímamannsins er engin lognmolla og í mörg horn að líta. Vinnan tekur sinn toll, uppeldi barna, tómstundir, íþróttir og heimilishaldið kallar á töluverða fyrirhöfn og umstang og getur ver- ið freistandi að skauta yfir smá- atriðin, eins og banka- og greiðslu- kortayfirlitin. En sá stutti tími sem fer í að skima yfirlitin getur sparað stórar fjárhæðir. púkinn Aura- Fundið fé í yfirlitinu V enjulegi launamaðurinn kallar það oft gott að eiga hús, bíl og ísskáp fullan af mat. Að eiga bílinn og húsið skuldlaust er fjar- lægur draumur fyrir flesta. Jafn- vel fólk með allhá laun hefur áhyggjur af reikningunum sem hrúgast inn hver mánaðamót og getur ekki leyft sér hvað sem er. Þau okkar sem eiga lítið annað en skuldir í bankanum myndu halda að sá sem á tugi milljóna króna og jafnvel hundruð milljóna í eign sé á grænni grein, kaupi allt sem hugurinn girnist og líði í gegnum lífið áhyggju-, streitu- og áreynslulaust. Veruleikinn er allt annar. Nýleg rannsókn á vegum bank- ans UBS skoðaði viðhorf vel stæðra fjárfesta og komst m.a. að því að mörk þess að vera „ríkur“ eru í huga auðmannanna dregin við fimm milljóna dala markið, sem er vel yfir hálfur milljarður króna. Af þeim sem eiga nettó- eign upp á eina til fimm milljónir dala sögðust aðeins 28% telja sig „rík“ en hlutfallið hækkaði upp í 60% þegar auðurinn var komin yfir fimm milljóna dala markið. Algjört frelsi Það vekur líka athygli í nið- urstöðum rannsóknarinnar að sá mælikvarði sem auðmennirnir setja á það að vera „ríkur“ er að geta verið alveg laus við allar fjárhagslegar skorður – að geta gert og keypt n.v. allt sem hug- urinn girnist. Þetta skýrir breyt- inguna sem verður við fimm milljóna dala markið því jafnvel sá sem á „bara“ nokkur hundruð milljónir króna gæti þurft að passa sig við t.d. kaup á mjög veglegu íbúðarhúsi, listaverki eftir heimsfræga málara eða hrað- skreiðum ofursportbíl. Jafnvel með eins og tvö hundr- uð milljónir króna inni á banka- reikningnum er ekki svo mikið eftir þegar búið er að kaupa ein- býlishús á Arnarnesinu, vegleg- ustu gerðina af Land Rover, gista nokkrar nætur á Savoy- hótelinu í London og fylla nokkra innkaupapoka í Harrods. Óöryggi og samanburður Samt stendur eftir að það er hálffurðulegt að maður eða kona sem á mörg hundruð milljóna sjóð tiltækan skuli geta litið á sig sem annað en ríka mann- eskju, eða að algjört frelsi frá fjárhagslegum skorðum sé sá þröskuldur sem auðmennirnir miða við. Fjallað var um þetta fyrirbæri í grein í New York Times á sín- um tíma og bent þar á að oft er það raunin í Bandarikjunum að vel launað fagfólk, sem á bæði dýr hús og dýra bíla, starfar iðu- lega með og lifir í návígi við fólk sem er miklu ríkara. Millj- ónamæringnum finnst hann ekki svo ríkur við hliðina á millj- arðamæringnum. Fyrsta farrými er hálfsjoppulegt borið saman við einkaþotur. Aðrir finna til óöryggis eða fjárhagslegrar vanmáttarkenndar því þeim finnst auðurinn hafa mikið til ráðist af heppni. Ef að- eins ein ákvörðun á framabraut- inni hefði verið öðruvísi væri staðan allt önnur í dag. Er þá allur auðurinn kannski hverfull? Svo má ekki heldur gleyma að margir sem orðið hafa ríkir hafa upplifað bæði sigra og áföll. Sennilegt er að frumkvöðullinn sem í dag býr í stóru setri með þjónustufólki eigi að baki fleiri en eina og fleiri en tvær stórkost- lega mislukkaðar viðskipta- hugmyndir þar sem allt var lagt undir. Hversu margir af t.d. milljónamæringunum í net- og hugbúnaðargeiranum fóru ræki- lega á hausinn þegar netbólan sprakk? Með það í huga að leiðin á toppinn er torsótt er kannski ekki skrítið að milljóna- og milljarðamæringarnir séu ekki í rónni nema þeir eigi ákaflega digran varasjóð sem þolað getur öll áföll. STÓREIGNAMENN GANGA OFT Í GEGNUM SIGRA OG ÓSIGRA Á LEIÐINNI Á TOPPINN Hvað þarftu að eiga mikið til að vera „rík(ur)“? RANNSÓKN Á VEGUM ALÞJÓÐEGA BANKANS UBS LEIÐIR Í LJÓS AÐ ÞEIM VELLAUÐUGU FINNST ÞEIR EKKI VERA RÍKIR FYRR EN ÞEIR EIGA YFIR FIMM MILLJÓNIR DALA, JAFNVIRÐI RÖSKLEGA HÁLFS MILLJARÐS KRÓNA. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þeir ríku virðast skilgreina sig sem ríka þegar auðurinn er svo mikill að engar fjárhagslegar skorður eru lengur til staðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.