Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Qupperneq 46

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.9. 2013 Þ eir eru ófáir mennirnir sem þrá heitt að kanna heiminn en þó öllu færri sem virkilega leggja fyrir sig það verðuga markmið að heimsækja öll heimsins lönd. Ingjaldur Hannibalsson, prófessor og deild- arforseti viðskiptafræðideildar Háskóla Ís- lands, er maður sem hefur alið þann draum sinn með ástríðuna fyrir framandi slóðum að vopni. Alls hefur hann komið til 183 landa og á aðeins 10 eftir til að hafa komið til allra þátttökuríkja Sameinuðu þjóðanna, sem er einmitt lokamarkmið hans. Þegar blaðamann bar að garði á skrifstofu deildarforsetans blasti við honum heimskort á veggnum sem sýnir alla 183 viðkomustaði Ingjalds til þessa með rauðum límmiðum. Ingjaldur er nýkominn heim úr ferð og fór meðal annars til Vestur-Afríku þar sem hann bætti ríkjunum Grænhöfðaeyjum, Gí- nea-Bissá, Gíneu, Líberíu, Síerra Leóne og Gambíu við „landasafnið“ sitt auk þess sem hann fór til Míkrónesíu og Marshall-eyja í Kyrrahafinu, Katar og Jemen í Mið- Austurlöndum og Erítreu í Austur-Afríku. Heimsflakkið segir Ingjaldur hafa byrjað fyrir 49 árum. „Ég fór í mína fyrstu utan- landsferð 13 ára gamall með farþegaskipinu Heklu til Færeyja, Bergen og Kaup- mannahafnar. Frá Kaupmannahöfn fór ég með ferju til Svíþjóðar og svo með Gullfossi heim í gegnum Edinborg. Þarna náði ég því að fara til fjögurra þátttökuþjóða í SÞ, Fær- eyjar teljast ekki með. Það hvarflaði ekki að mér þá að ég ætti seinna eftir að ferðast til allra heimsins landa,“ rifjar prófessorinn upp. Á námsárum sínum í Bandaríkjunum ferð- aðist Ingjaldur nokkuð þar innanlands en hann fór í sitt fyrsta langa ferðalag árið 1981. „Þá var ég þrítugur og fór til Suður- Ameríku, Galapagos-eyja, sá Macchu Pichu í Perú, skoðaði Iguazu-fossana á landamærum Argentínu og Brasilíu, svo dæmi séu nefnd. Það má segja að með þessari ferð hafi áhugi minn á fjarlægum slóðum vaknað. Tveimur árum síðar fékk ég tækifæri til að fara til Austur-Asíu, til Japans, Hong Kong og Singapúr. Ég fór síðan í fyrsta skipti til Kína 1986 og þar upplifði ég augnablik sem ég gleymi aldrei. Þá var ég í viðskiptasendinefnd sem fylgdi Steingrími Hermannssyni eftir, hann var þá í opinberri heimsókn í boði forsætis- ráðherra Kína. Það var mikil upplifun að vera Íslendingur á Torgi hins himneska frið- ar þar sem sjá mátti íslenska og kínverska fána hringinn í kringum torgið. Það var tek- ið á móti Steingrími á tröppum Hallar alþýð- unnar eins og hann væri leiðtogi 300 millj- óna þjóðar. Hann fékk sömu móttökur og forseti Bandaríkjanna hafði fengið ein- hverjum mánuðum áður, enda segja Kínverj- ar að allar þjóðir séu stórar í sínum augum.“ Skemmst er frá því að segja að upp frá því hefur Ingjaldur komið 25 sinnum til Kína. Fyrsti Íslendingurinn Ingjaldur segir um 10 ár liðin síðan hann áttaði sig á raunverulegum möguleika sínum á að heimsækja öll heimsins lönd. „Þá var ég kominn upp í um 125 ríki og sá ég að þetta væri gerlegt. Það eru nokkur þúsund manns í heiminum sem hafa gert þetta og mér hefur verið sagt að það sé til einhver Facebook-hópur fyrir þá sem hafa ferðast til allra þessara landa, en ég er nokkuð viss um að það hafi enginn Íslendingur leikið þennan leik,“ segir Fargjaldur, eins og hann hefur verið uppnefndur í gegnum árin. Þegar spurt er hve mikill tími hafi farið í heimsflakkið hlær Ingjaldur en hefst handa við hugarreikning. „Jóla-, páska- og sum- arfríin mín undanfarin 35 ár hafa farið í þetta svo ætli dagafjöldinn samsvari ekki rúmlega 3 ár samanlagt. Ef ég reikna þetta út frá sex vikna ferðalaginu mínu frá því í sumar, þá voru flugstundirnar nálægt því að vera 100. Það voru þá svona 4 dagar af 40 sem fóru í flug. Ef ég yfirfæri það hlutfalls- lega á þessi 3 ár, þá hef ég sjálfsagt verið fljúgandi í 100 daga af ævinni,“ svarar hann og hlær. Viðmið Ingjalds um hvað þarf til að löndin teljist með í söfnun hans er að hann gisti eina nótt í hverju landi. „Ég hef í það minnsta reynt það en stundum er það ekki mögulegt. Um síðastliðna páska ætlaði ég að fara til Kongó og fékk vegabréfsáritun frá ræðismannsskrifstofu þeirra í New York. Þegar ég lenti á flugvellinum í Kinsasha fór ég í biðröð eins og aðrir til að komast í gegnum vegabréfsskoðun en þar er mér sagt að þeir geti ekki samþykkt þessa áritun. Ég er leiddur út og látinn standa undir flugvél- arvængnum í hálftíma þangað til það kemur náungi til mín og segir að búið sé að vísa mér úr landi. Þá var passinn minn tekinn af mér og flogið með mig til Eþíópíu en ég mátti ekki heldur koma inn í landið þar svo ég varð að sofa á flugstöðinni í hálfgerðu stofufangelsi,“ lýsir Ingjaldur. Eftir að hafa náð sambandi við íslenska utanríkisráðu- neytið, sem gat kippt í einhverja spotta, fékk Ingjaldur loks að halda ferðalagi sínu um Afríku áfram. „Að mínu mati er ég samt búinn að koma til Kongó. Það var ekki mér að kenna að mér var vísað úr landi,“ út- skýrir hann. Hættur á veginum Eftir lýsinguna á atvikinu í Kongó og stofu- fangelsinu í Eþíópíu leikur blaðamanni for- vitni á að vita hvort ferðalangurinn hafi mætt miklum hættum á heimsflakki sínu. „Ég hef sjaldan hugsað út í að ferðalögin séu hættuleg, en ég er kannski bara svona vitlaus,“ svarar hann og glottir. „Ég fór eitt sinn til Kasmír og þá var hálfgert stríðs- ástand þar, sambandið milli Indlands og Pakistans var erfitt. Ég var eini túristinn í borginni Srinagar þar sem ég varð vitni að því að tveir hótelrekendur fóru bókstaflega að slást um viðskipti við mig. Á öllum þessum ferðalögum hefur ein- ungis verið gerð tilraun til að ræna mig alls þrisvar. Fyrsta skiptið var í Rio de Janeiro í Brasilíu. Þar notaði þjófurinn trikk sem ég féll fyrir en hef ekki fallið fyrir síðan. Ég var að labba meðfram Copacabana- ströndinni og ég labbaði yfir bílastæði þegar ungur strákur bauðst til að bursta skóna mína og ég þáði það eins og vitleysingur. Síðan tók ég upp veskið til að borga honum en þá sló hann það úr höndunum á mér og þegar ég leit upp var mættur tíu unglinga hópur í kringum mig. Sem betur fer komu þá nokkrir menn hlaupandi og við það flúðu unglingarnir og ég náði veskinu. Í Bogota í Kólumbíu var mér sagt að það væri hættu- legt að fara út á kvöldin en ég ákvað samt að kíkja út og fá mér einn bjór. Ég tók af mér öll verðmæti og gekk bara út með fimm dollara. Þegar ég kom að gatnamótum fór ég yfir án þess að hugsa út í hvers vegna það var enginn hinum megin við götuna. Um leið og ég kom yfir kom maður til mín og setti hníf í bakið á mér og sagði „money, money, money!“. Hann tók fimm dollarana og ég fór skjálfandi til baka. Þar að auki var ég rændur í New York,“ segir Ingjaldur og játar að á augnabliki vopnaða ránsins hafi hann óttast um líf sitt. „Almennt er nið- urstaða mín sú að fólkið sé alls staðar eins og það sé almennt vingjarnlegt og hjálplegt. Ef maður er kurteis og brosandi er manni alls staðar vel tekið. Núna þegar ég var í Vestur-Afríku var ég ekkert alltaf að horfa í spegilinn svo ég var nú eiginlega búinn að gleyma því að ég væri eitthvað öðruvísi á lit- inn en fólkið í kringum mig.“ Það er kannski vegna þessarar upplífgandi Fólkið er alls staðar eins INGJALDUR HANNIBALSSON ER „LANDASAFNARI“. HANN HEFUR KOMIÐ TIL 183 LANDA YFIR ÆVINA OG VANTAR AÐEINS 10 UPP Á TIL AÐ HAFA HEIMSÓTT ÖLL ÞÁTTTÖKULÖND SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA. ÞAU LÖND HYGGST HANN EINMITT HEIMSÆKJA Á NÆSTA ÁRI. Einar Lövdahl elg@mbl.is Fallegasta dýralífið er að finna í Kenía, segir Ingjaldur. Viðtal
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.