Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Blaðsíða 38
Ein klassísk – hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns?
Gallabuxur sem ég keypti þegar var fjórtán ára og ég nota mikið ennþá. Þegar
ég hætti að passa í þær ætla ég að labba út í sjó. Eða kaupa mér aðrar galla-
buxur.
En þau verstu?
Kynþokkafull kjólaútgáfa í anda lífvarða drottningar sem ég keypti í Adam og
Evu fyrir eitthvert búningapartí. Það var
auðvitað hárbeitt ádeila á klámmenn-
inguna hjá mér en þetta var alveg
mögulega ljótasta flík sem nokkurn
tímann hefur verið gerð.
Hvar kaupir þú helst föt?
Zöru, Top shop, Gloríu og Aft-
ur.
Hvert er þitt eftirlætistísku-
tímabil og hvers vegna?
Ég held að allir geti sam-
mælst um að upphaf þessarar
aldar muni gefa af sér gott grín
um ókomin ár.
Áttu þér eitthvert gott stef,
ráð eða mottó, þegar kemur
að fatakaupum?
Já. Ekki kaupa ljót föt sem
eru dýr.
Hvaðan sækir þú innblástur?
Úr íslenskri náttúru. Eða ég
segi það allavega af því að þá
hljóma ég gáfulega.
Áttu þér tískufyrirmynd?
Nei. En ef hún væri til væri hún ein-
hvers staðar mitt á milli Nicki Minaj og
Diane Keaton.
Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl?
Amma mín fussar og sveiar yfir hon-
um en mér finnst hann stórgóður. Ég er
bara mikið í peysum og gallabuxum en
með eitthvert skemmtilegt hliðarspor.
Eins og Life-vestið mitt, allir halda
að ég sé klædd í rúmteppi.
Ef þú þyrftir aldrei að kíkja
á verðmiðann, hvaða flík
eða fylgihlut myndirðu
kaupa?
Sá fallega Marc Ja-
cobs-tösku í KronKron
um daginn sem kost-
aði hönd og fót sem
væri draumur að
eignast. Ég myndi
gefa hönd eða fót
fyrir hana en ekki
hvort tveggja. Maður
þarf að draga línuna ein-
hvers staðar.Tískufyrirmynd Steingerðar væri sambland af Nicki Minaj og Diane Keaton.
Steingerður Sonja í vesti frá
Jet Korine sem hún notar yfir
peysur, kápur og leðurjakka.
Morgunblaðið/Eggert
GÆFI HÖND EÐA FÓT FYRIR MARC JACOBS-TÖSKU
Upphaf þessarar
aldar mun gefa
af sér gott grín
STEINGERÐUR SONJA ÞÓRISDÓTIR STUNDAR NÁM VIÐ
SKAPANDI SKRIF Í HÁSKÓLA ÍSLANDS. STEINGERÐUR HEFUR
LENGI HAFT ÁHUGA Á TÍSKU OG FALLEGUM FLÍKUM OG
VAKIÐ ATHYGLI FYRIR SKEMMTILEGAN OG PERSÓNULEGAN STÍL.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Steingerður gæfi
annaðhvort hönd
eða fót fyrir Marc
Jacobs-tösku.
Stíll Steingerðar ein-
kennist að hluta til af
peysum og gallabuxum.
Peysa: Selected
*Föt og fylgihlutir Gráir og drungalegir tónar setja svip sinn á hausttískuna og pönkið er ekki langt undan »36