Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.9. 2013
Menning
M
ironov fæddist í
Saratov og bjó
í litlum herbæ
sem kallaðist
Tatis. Í fjöl-
skyldu hans voru bæði áhuga-
leikarar og listamenn. Alltaf
eitthvað að skapa. Mironov bjó
meðal annars til brúður, skrifaði
handrit að leikriti og lék sjálfur
í brúðuleikhúsinu sem hann og
systir hans sköpuðu. Hann var
ungur að árum þegar hann fór
fyrst í leiklistarskóla, aðeins 14
ára. Hann hélt áfram að læra
við Listaháskólann í Moskvu og
útskrifaðist þaðan 1990.
Sérhæfir sig í
klassískum verkum
Hann leikur aðalhlutverkið í
verkinu The Passions of Bumb-
arash sem hefur verið sýnt fyrir
fullu húsi síðan 1993. Kvik-
myndaferill hans nær aftur til
1988 en frægð hans tók stökk
1991 þegar hann lék aðal-
hlutverkið í myndinni Love.
Fyrir þá frammistöðu fékk hann
fjölmörg verðlaun, bæði al-
þjóðleg og innlend. „Ég hef
aldrei leikið í geimmynd áður.
Það var meðal þess sem fékk
mig til að taka við þessu hlut-
verki. Ég sérhæfi mig í klass-
ískum verkum í Rússlandi eins
og Fávitanum eftir Dostojevskí.“
Í myndinni leikur hann snilling
sem sér nefnilega ekki fólk
heldur bara tölur og reiknar allt
út. „Það er ekki erfitt að leika
snilling,“ segir hann og hlær.
„Rússneskar myndir fara ekki
mikið út fyrir Rússland en ég á
töluvert dyggan og stóran aðdá-
endahóp þar sem ég reyni að
vera í góðum tengslum við. Ég
get allavega alveg farið út án
þess að það séu mættir ljós-
myndarar fyrir utan hjá mér.
Það vita ósköp fáir hver ég er
utan Rússlands.“
Mironov finnst Ísland fallegt
og gaman að vera í tökum á Ís-
landi. „Þessir tökustaðir eru frá-
bærir. Ég hef aldrei áður leikið í
mynd þar sem tökustaðirnir eru
svona fullkomnir. Alls staðar þar
sem við höfum komið er eins og
tölva hafi teiknað þessa staði
upp. Ég þarf varla að hafa fyrir
því að leika. Ég fæ tvo frídaga
til að skoða landið og ætla að
nýta þá, leigja mér kannski flug-
vél eða þyrlu til að ná sem flest-
um stöðum á sem skemmstum
tíma.“
Stutta hárið heillaði
Leikkonan Anya Chipovskaya
leikur hitt aðalhlutverkið í Cal-
culator, konuna sem Yevgeny
verður ástfanginn af og breytir
sýn hans á þann heim sem hann
lifir í. „Ég hef leikið í ellefu ár,
en núna leik ég meira í leik-
húsum í Rússlandi. Það er mikill
heiður fyrir mig að leika á móti
Yevgeny því hann á og rekur
sitt eigið leikhús. Hann er frá-
bær leikari og mjög gott að
leika á móti honum. Hann er
mjög virtur í Rússlandi og Cal-
culator er stórmynd á okkar
mælikvarða,“ segir Anya sem
þurfti ekki að hugsa sig lengi
um áður en hún samþykkti að
leika í þessari mynd. Hún gat
nefnilega látið gamlan draum
rætast. „Mig hefur alltaf dreymt
um að vera með stutt hár og ég
fékk þann draum uppfylltan í
þessari mynd, sem er persónu-
legur sigur fyrir mig.“
Anya hefur haft aðeins meiri
tíma til að kynna sér land og
þjóð og er hrifin af því sem hún
hefur séð og upplifað. „Þetta er
ótrúlega fallegt land. Ég fór til
dæmis að Seljalandsfossi og
gekk bak við fossinn þar sem
mér fannst tíminn standa í stað.
Ég trúði ekki hvað þetta var fal-
legt,“ segir hún um leið og það
er bankað á hurðina á hjólhýsinu
hennar. Hún á að mæta í tökur.
YEVGENY MIRONOV HÉR Á LANDI
Rússneskur
Tom Cruise
YEVGENY MIRONOV ER MARGVERÐLAUNAÐUR
Í HEIMALANDI SÍNU RÚSSLANDI OG KALLAÐUR TOM
CRUISE ÞEIRRA RÚSSA. MIRONOV SETTIST NIÐUR MEÐ
BLAÐAMANNI SUNNUDAGSBLAÐSINS Í HLÉI FRÁ TÖKUM
Á RÚSSNESKU FRAMTÍÐARMYNDINNI CALCULATOR
AR SEM HANN LEIKUR EITT AF AÐALHLUTVERKUNUM
ÁSAMT VINNIE JONES OG ÖNYU CHIPOVSKAYU.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Aðalleikarar myndarinnar ræða saman á tökustað.
Vinnie Jones, Anya Chipovskaya og Yevgeny Mironov.
Leikstjóri myndarinnar Fedor
Bondarchuk að störfum.
* „Ég hef aldreiáður leikið ímynd þar sem töku-
staðirnir eru svona
fullkomnir. Alls
staðar þar sem við
höfum komið er eins
og tölva hafi teiknað
þessa staði upp.“
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Sími: 564 4700
Opnunartími Dalvegi:
Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
VINSÆLASTA RJÓMATERTAN Í 45 ÁR
fæst hjá Reyni bakara