Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Side 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Side 23
leika heilaáverka skömmu eftir atburðinn. Einkenni alvarleika eru oft ekki eins sýnileg hjá börnum og hjá fullorðnum og heilasneið- mynd eða hefðbundin segulómun af heila eru ekki næmar á þá áverka á taugafrumum, sem valda breytingu á hugrænum þáttum, atferli og aðlögun. Í rannsókninni kom fram að þær breytur sem spáðu best fyrir um af- leiðingar til lengri tíma voru þyngd höf- uðhöggs og að hafa hlotið heilaáverka oftar en einu sinni. Börn og unglingar sem hafa hlotið þungt höfuðhögg eða heilaáverka oftar en einu sinni þurfa sérstaka eftirfylgd, jafn- vel þótt heilaáverkinn virðist í fyrstu vera vægur. Nýgengi heilaáverka lægra í dreifbýli en á Reykjavíkursvæðinu Í rannsókn Jónasar reyndist árlegt nýgengi vægra heilaáverka sem leiddu til innlagnar á sjúkrahús og nýgengi alvarlegri og ban- vænna heilaáverka svipað því sem lýst hafði verið í nágrannalöndunum. „Nýgengi heila- áverka var hærra meðal stráka en stelpna. Nýgengi vægra heilaáverka sem metnir voru á bráðdeildum var mun lægra í dreifbýli en á Reykjavíkursvæðinu. Þessi munur var sér- staklega áberandi í yngsta aldurshópnum. Vera kann að foreldrar ungra barna í dreif- býli leiti síður læknisaðstoðar vegna vægra heilaáverka en foreldrar á Reykjavíkursvæð- inu eða að slíkir áverkar séu síður skráðir í tölvuvæddar sjúkraskrár á landsbyggðinni. Fáir hljóta þá meðferð og endurhæfingu sem þeir þurfa Á árunum kringum 1990 hlutu að meðaltali 1-2 börn endurhæfingu á ári hverju hér á landi vegna afleiðinga heilaáverka. End- urhæfingin var að mestu bundin við skamm- tíma sjúkraþjálfun og hugræn endurhæfing var lítt þekkt hugtak. Í rannsókn Jónasar kom fram að um 40 þeirra 550 einstaklinga sem greindir voru með heilaáverka á árinu 1992-1993 lýstu umtalsverðum þrálátum af- leiðingum 16 árum síðar. Það má því áætla að endurhæfing hafi alls ekki mætt þörf. Í Bandaríkjunum hefur verið áætlað að einn af hverjum 20 einstaklingum sem tekst á við afleiðingar heilaáverka hljóti endurhæf- ingu við hæfi. Niðurstöður Jónasar benda til þess að enn skorti verulega á íhlutun og end- urhæfingu fyrir börn og unglinga með afleið- ingar heilaáverka hér á landi. Sérstaklega þarf að leggja áherslu á hugræna endurhæf- ingu. Hægt er að lesa doktorsritgerð Jónasar á www.skemman.is Morgunblaðið/Kristinn * Um 7% ungs fólks á fullorðinsaldri takastá við afleiðingar heilaáverka. Heilaáverkareru taldir vera ein helsta orsök sjúkleika og hömlunar meðal ungs fólks á Vesturlöndum. 1.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 Þ að má segja að börnin sjálf hafi átt þessa hugmynd. Ég byrjaði upp- haflega á að gefa út fótboltamynd- ir, spjöld með myndum af leik- mönnum meistaraflokkanna, undir nafninu Draumalið Pepsi. Þeirri útgáfu fylgdu svo- kallaðir býttimarkaðir sem voru settir upp á öllum helstu krakkafótboltamót- unum. Þar fóru krakkarnir að spyrja: „Hvað getum við gert til að fá svona myndir af okkur?“ og þannig fædd- ist í raun hugmyndin,“ seg- ir Jóhann Jóhannsson, frumkvöðull og for- stöðumaður ljósmyndasíðunnar Sport- Hero.is. Heimasíðan sérhæfir sig í ljós- myndum af ungum íþróttamönnum á hinum ýmsu íþróttamótum og gerir notendum kleift að panta myndir af sér í formi plak- ata og límmiða. „Þá fór ég að mynda börn í fótbolta og gefa þeim tækifæri á að búa til sínar eigin myndir með nafninu þeirra inn á og allt, þannig að þau voru í raun orðin fótboltahetjur, eins og fyrirmyndirnar þeirra,“ segir Jóhann, en slagorð fyrirtæk- isins er einmitt „vertu þín eigin hetja“. „Í kjölfarið höfðu fleiri íþróttahreyfingar sam- band við mig og spurðu hvort ég gæti sinnt fleiri íþróttum svo í dag erum við að mynda allar mögulegar íþróttir,“ bætir Jó- hann við. Þjónusta SportHero hefur sprungið út í sumar með tilkomu SportHero-límmiðabók- arinnar sem er fáanleg öllum í útibúum Ís- landsbanka þeim að kostnaðarlausu. Hug- myndin er sú að íþróttahetjurnar ungu panti myndir á límmiðaformi og býtti síðan myndunum, bæði við samherja og mótherja. „Þú getur rétt ímyndað þér hvaða áhrif þetta getur haft á félagslega þáttinn í íþróttastarfinu. Ef strákur eða stúlka er kannski í KR og þau eru farin að þekkja mótherja sína í Val, Þór, Keflavík og Grindavík alla með nafni af því að þau eru búin að skiptast á límmiðum þá myndast svo mikil tengsl milli allra,“ segir Jóhann og bendir einnig á þátt SportHero í því að skapa og varðveita minningar. „Inni í bók- unum er pláss fyrir eins konar leikskýrslu þar sem börnin geta skrifað niður eft- irminnileg atvik í hverjum leik fyrir sig. Þannig eru börnin að skapa og varðveita minningar, sem ég held að eigi eftir að reynast þeim ómetanlegt.“ Jóhann segir að eftir því sem hann kemst næst sé álíka þjónusta hvergi til annars staðar. Hann segir SportHero hafa farið rólega af stað með þjónustu sína í vor, en í dag er að finna um 110 þúsund myndir inni á síðunni. Þessi uppgangur hefur skapað grundvöll fyrir útrás, sem einmitt er á næsta leiti hjá fyrirtækinu. „ Í sumar höfðu danskir aðilar samband við mig og óskuðu eftir samstarfi. Úr varð að þeir eru að fjárfesta í félaginu og ætlunin er að fara af stað í Danmörku. Ég fylgi þessu eftir og nú er verið að forrita al- þjóðlega útgáfu af síðunni. Ég segi „al- þjóðlega“ af því að við stefnum á enn frek- ari útrás og erum til dæmis að byrja samningaviðræður við aðila í Noregi,“ bætir Jóhann við. Ásamt Jóhanni hafa sex aðrir ljósmyndarar starfað fyrir fyrirtækið en út- rásin kemur ekki til með að kalla á mikla stækkun að sögn Jóhanns. „ Alþjóðlega síð- an verður um leið myndabanki þar sem ut- anaðkomandi ljósmyndarar geta sett eigin myndir inn á síðuna, að því gefnu að þær fái samþykki, og þannig sjáum við fram á að geta tæklað stærri markað,“ útskýrir hann, spenntur fyrir framhaldinu. Minningar skapaðar og varðveittar Á HEIMASÍÐUNNI SPORTHERO.IS ER AÐ FINNA UM 110 ÞÚSUND LJÓSMYNDIR AF UNGUM ÍÞRÓTTAHETJUM SEM HÆGT ER AÐ PANTA OG SAFNA Í SÉRSTAKAR LÍMMIÐABÆKUR. FYRIRTÆKIÐ HYGGUR Á ÚTRÁS TIL DANMERKUR OG JAFNVEL VÍÐAR Í NÁINNI FRAMTÍÐ. Einar Lövdahl elg@mbl.is Jóhann Jóhannsson SportHero tók þátt í Gullegginu, frum- kvöðlakeppni Innovit, í upphafi árs og komst í hóp tíu bestu viðskiptahugmyndanna.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.