Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Side 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Side 39
1.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 Í síðustu viku efaðist ég um að tískupistlar mínir yrðu fleiri þar sem ég var ekki viss um að komast lifandi í mark eftir 21 km hlaup. Eins undarlega og það hljómar þá er seigara í smáhest- inum en marga grunaði og komst hann í mark á tveimur klukkutím- um og 19 mínútum … Það er því ekkert annað uppi á teningnum en að halda áfram yfirferðinni á hausttískunni. Eitt af því sem er mest áberandi þetta haustið eru risavaxin háls- men. Stóru hálsmenin koma í alls- konar útgáfum, mest úr svona „gervigulli“, „gervidemöntum“ og „gerviperlum“ … Já þetta hljómar náttúrlega agalega en það er ald- eilis hægt að leika sér með þetta … eða það hélt ég! Frasinn „fake it til you make it“ hefur alltaf hljómað eins og músík í mín eyru eða þar til ég hitti „vin- tage-séns“ á bar (að næturlagi). „Vintage-sénsinn“ hafði ég varla séð í áratug enda vorum við korn- ung þegar leiðir okkar lágu saman og síðan hefur hann mest búið er- lendis. Eftir að hafa spjallað sam- an í nokkra sund leit hann á mig og sagði: „Þetta hálsmen er allt of „cheap“ fyrir þig Marta“ … Mig langaði mest að öskra, sparka í sköflung og kýla í maga, en af því ég er vönduð setti ég upp spari- bros og sagði honum að senda mér almennilegt hálsmen af meg- inlandinu. Þar sem hálsmenið hef- ur ekki enn skilað sér geri ég ráð fyrir að það sé fast í tollinum … Mér finnst alltaf jafn áhugavert að sjá skoðanamuninn hjá körlum og konum þegar kemur að klæða- burði kvenna. Kvenpeningurinn heldur oft og tíðum að hann sé al- gerlega „on fire“ ef hann fylgir nýjustu tískustraumunum eftir bókinni, en eftir að hafa gert nokkrar persónulegar rannsóknir held ég að þetta sé rangt. Karlar vilja að konur séu klassískar og alls ekki „cheap“. Eða allavega þeir meðvituðu (sem eru alls ekki allir … þetta er minnihlutahópur). Það kom á daginn að alvöru körlum, þeim meðvituðu, finnst svona „drasl-hálsmen“ alger við- bjóður og þeir skilja ekkert í okkur konunum að vera að veggfóðra á okkur hálsinn með þessu. Þeim finnst stórir klunnalegir hringir líka agalegir ásamt ósmekklegum illa pússuðum skóm og stórum belgmiklum peysum. Einn nefndi líka að allt of háir hælar væru „off“ og að konur yrðu eins og gamlir bændur úr A-Húnavatnssýslu í þeim (því fæstar í þeim gætu gengið á þeim). Þannig að, ef þú ert á allt of há- hæluðum skóm sem þú getur ekki gengið á, við belgmikla stóra peys- ur og með stóra og klunnalega skartgripi þá getur þú bara gleymt þessu … eða þannig. Hver kona á auðvitað að fylgja hjartanu og gera nákvæmlega það sem henni sýnist og kona á alls ekki að klæða sig til að þóknast karli – þvert á móti. Svo má ekki gleyma því að þeg- ar öllu er á botninn hvolft vill karl- peningurinn yfirleitt hafa kven- peninginn án fata … en það er önnur saga! martamaria@mbl.is Jackie Kennedy var alltaf með alvöru skartgripi. Díana prinsessa hefði aldrei látið sjá sig með „cheap“ hálsmen. „Þetta hálsmen er allt of „cheap““ Ódýr hálsmen. Laugavegur 40, 101 Reykjavík volcano@volcanodesign.is www.volcanodesign.is S: 5880100 Volcano Design fer um landið! 31. ágúst - 1. sept. Í Túninu heima, Mosfellsbæ. Í Kaffihúsinu Álafossi. Laugardag og sunnudag frá kl. 13-17. Allt á einum stað! Lágmarks biðtími www.bilaattan.is Bílaverkstæði Smurstöð Dekkjaverkstæði Varahlutir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.