Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 1
Gaman Skíðamenn á Tröllaskaga.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Sú uppbygging sem Orri Vigfússon
stendur fyrir í Fljótum er í sam-
vinnu við Chad R. Pike, aðal-
framkvæmdastjóra og varaformann
fjárfestingarsjóðsins Blackstone í
Evrópu, en Blackstone er einn
stærsti fjárfestingarsjóður í heimi.
Á bænum Deplum, sem Orri og fé-
lag Pikes keyptu fyrir nokkrum ár-
um, stendur til að reisa lúxusgisti-
hús fyrir nokkur hundruð milljónir
króna í vetur. Gistihúsið verður rek-
ið undir merkjum Eleven Experi-
ence, sem er í eigu Pikes, en fyrir-
tækið býður upp á lúxusgistingu í
hæsta gæðaflokki víða um heim. Í
skála fyrirtækisins í frönsku Ölp-
unum kostar nóttin fyrir tíu manna
hóp frá 12.500 bandaríkjadölum eða
1,5 milljónum króna. Innifalið í verð-
inu er alls kyns þjónusta, s.s. skíða-
ferðir með þyrlum, matur o.fl.
Orri segir að eftir eigi að ákveða
endanlega hvernig aðkomu Pikes
verði háttað og hversu mikla fjár-
muni hann leggi til. Nú til dags sé
erfiðara fyrir Íslendinga að keppa
um fjármagn en reiknað sé með því
að Pike, eða félag í hans eigu, komi
með peninga inn í landið í gegnum
fjárfestingarleið Seðlabankans. »6
Yfirmaður hjá Blackstone leggur til fé
Ætla að reisa lúxusgistihús í Fljót-
unum fyrir afar efnaða ferðamenn
Ljósmynd/Eleven Experience
F I M M T U D A G U R 5. S E P T E M B E R 2 0 1 3
206. tölublað 101. árgangur
HUNDADAGAKON-
UNGUR BJARGAÐI
FALDBÚNINGI
ÝMIST HIMNA-
SENDING EÐA
BÖLVUN
KAFFIHÚS Í
FYRRVERANDI
DRAUGAHÖLL
VIÐSKIPTABLAÐ ÞINGEYRI 20FALDAR OG SKART 10
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Baldur Arnarson
baldur@mbl.is
„Við vonum að allir komi til fundarins
með því hugarfari að ná árangri og
hótanir liggi ekki í loftinu,“ segir Sig-
urgeir Þorgeirsson, formaður samn-
inganefndar Íslands í makríldeilunni,
um fyrirhugaðan fund í Reykjavík
næstu helgi. Sigurgeir segir hótanir
ESB um refsiaðgerðir gegn Íslandi í
aðdraganda fundarins vissulega
valda vonbrigðum.
„Það segir sig sjálft að það eru
ákveðin vonbrigði að eftir að þessi
fundur var boðaður, og eftir að allir
aðilar höfðu þegið fundarboð, skuli
því enn hafa verið veifað að refsi-
aðgerðir ESB gegn Íslandi væru í
undirbúningi. Við göngum engu að
síður bjartsýnir til fundarins. Við er-
um með góðan málstað, og við ætl-
umst til að aðrir, ekki síður en við,
komi með uppbyggilegar tillögur,“
segir Sigurgeir.
Fundað verður í Reykjavík á laug-
ardag og sunnudag. Meðal fulltrúa
strandríkjanna sem koma til fundar-
ins eru John Spencer, fulltrúi ESB,
Ann Kristin Westberg, Noregi, og
Herluf Sigvaldsson, Færeyjum.
Hófst fyrir nokkrum árum
Forsaga deilunnar er sú að makríll
fór að ganga inn í lögsögu Íslands í
miklu magni upp úr miðjum síðasta
áratug og veiðar Íslendinga jukust
mikið 2007 til 2010. Allt frá því að far-
ið var að stjórna nýtingu makríls á
vettvangi Norður-Atlantshafsfisk-
veiðiráðsins 1999 sóttist Ísland eftir
að verða viðurkennt strandríki en var
ekki samþykkt fyrr en 2010.
Deilan um skiptingu stofnsins hef-
ur staðið síðan 2008.
Hótanir ESB varpa skugga
Fundur í makríldeilunni í Reykjavík um helgina „Erum með góðan málstað“
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Bitbein Makríll er ný auðlind.
Lausafjáreignir Landsbankans í
gjaldeyri námu 145 milljörðum í lok
júní og hafa meira en tvöfaldast á
aðeins einu ári. Á öðrum fjórðungi
jukust þær um 25 milljarða.
Greinendur á markaði segja að
þessi mikla gjaldeyrissöfnun
Landsbankans, sem kemur til af
nauðsyn vegna 300 milljarða skuld-
ar í erlendri mynt við kröfuhafa
gamla Landsbankans, ráði hvað
mestu um að gengi krónunnar hef-
ur lítið sem ekkert styrkst síðustu
mánuði. hordur@mbl.is »Viðskipti
Gjaldeyrissöfnun
hamlar styrkingu
Landsbankinn Skuldar LBI 300 milljarða.
Árni Gunnars-
son, forstjóri
Flugfélags Ís-
lands, segir að
verði norður/
suður-flugbraut-
inni á Reykjavík-
urflugvelli lokað
árið 2016, eins
og gert er ráð
fyrir í aðalskipulagi borgarinnar,
sé ekki grundvöllur fyrir áfram-
haldandi áætlunarflugi frá Vatns-
mýrinni. ,,Ef menn ætla að halda
sig við þessa dagsetningu árið 2016
og leggja niður aðra af aðalflug-
brautum vallarins, þá yrði áætl-
unarflugi í Vatnsmýrinni sjálf-
hætt.“ »12
Sjálfhætt ef flug-
brautin lokast 2016
Grænmetisuppskeran er um mánuði seinna á
ferðinni nú en í venjulegu árferði. Ræktunar-
skilyrði hafa verið erfið vegna bleytu og kulda.
Allt bendir til að gulrótauppskeran verði sér-
staklega lítil. Bændur binda vonir við að sept-
embermánuður verði hlýr, þá gæti orðið bjart-
ara yfir uppskerunni. Á Flúðum nýttu
grænmetisbændur sólina vel í gær og kepptust
við að taka upp. »4
Morgunblaðið/RAX
Keppst við að taka upp kálið á sólardegi
Erfitt ár hjá grænmetisbændum og uppskeran um mánuði seinna á ferðinni en í venjulegu árferði
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG