Morgunblaðið - 05.09.2013, Síða 10
Malín Brand
malin@mbl.is
A
llt frá frumbernsku
klæðast þær jökkum
sem eru svo þétt reim-
aðir að þær verða al-
veg flatbrjósta. Auk
þess sem þetta hlýtur að valda
þeim verulegum óþægindum þá
eyðileggur þetta alveg útlit þeirra
frá sjónarhóli þess sem kemur frá
siðmenntaðri hlutum heimsins.“
Þannig ritaði breski vísindamaður-
inn William Jackson Hooker sem
ferðaðist um Ísland árið 1809. Hann
skoðaði land og þjóð gaumgæfilega
og heillaðist mjög af faldbúningi
kvenna og þótti hann ægifagur.
Reyndar þótti honum búningurinn
fullþröngur yfir barm kvennanna,
sem hann vildi að öllum líkindum
sjá meira af, sé mið tekið af þessum
orðum hans sjálfs. Þrátt fyrir þá
meinbugi sem Hooker sá á faldbún-
ingi kvenna þótti honum þeir það
merkilegir að hann tók einn þann
fegursta með sér þegar hann hélt af
landi brott ásamt utanyfirflík eða
hempu. Búningurinn er að sögn
Sigrúnar Helgadóttur, höfundar
bókarinnar Faldar og skart, und-
urfagur og skrýddur miklu og verð-
mætu skarti og hempan með tveim-
ur silfurskjöldum og fjölmörgum
silfurkrækjum.
Búningurinn og hempan eru
nú varðveitt á Viktoríu- og Alberts-
safninu í Lundúnum.
Hundadagakonungur
bjargar faldbúningi
„Minnstu munaði að þessi veg-
legi búningur glataðist og má segja
það kraftaverki líkast að hann hafi
varðveist til dagsins í dag,“ segir
Sigrún. Tveimur dögum eftir að
freigátan sem Hooker var um borð
í lét úr höfn í Reykjavík, kom eldur
upp um borð. Sjógangur var mikill
og aðeins hægt að koma helmingi
skipverja í björgunarbáta. Á ögur-
stundu birtist segl við sjóndeildar-
hringinn og þar var enginn annar
en Jörundur hundadagakonungur á
ferð. Öllum um borð var bjargað en
aðeins fáeinum persónulegum mun-
um sem mönnum tókst að grípa
með sér. Öll vísindagögn Hookers
urðu eldi að bráð og var hann gjör-
samlega niðurbrotinn. Töldu þeir
sem af faldbúningnum vissu að
hann hefði brunnið eins og flest
annað sem um borð var.
Árið 1963 var Elsa E. Guð-
jónsson textíl- og búningafræð-
ingur að kanna íslenska gripi á
söfnum í Lundúnum. Hún rakst á
lýsingu á búningi í eigu safns Vikt-
oríu og Alberts og þóttist hún þar
þekkja hinn íslenska faldbúning
með brúðarskarti. Hann fannst í
Dularfullur uppruni
ófeigs faldbúnings
Íslenski faldbúningurinn vakti verðskuldaða athygli landkönnuða fyrr á öldum og
þótti hin mesta prýði. Þó nokkrir fluttu búninga með sér af landi brott og litlu
munaði að faldbúningurinn félli í gleymskunnar dá. Saga hans, auk annarra ís-
lenskra þjóðbúninga, er rakin í bók Sigrúnar Helgadóttur Faldar og skart, sem
kom út á aldarafmæli Heimilisiðnaðarfélags Íslands í sumar.
Morgunblaðið/Kristinn
Höfundur Sigrún Helgadóttir hefur óbilandi áhuga á þjóðbúningum.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013
Eitt og annað hvatti listamenn til að
flytja til Hveragerðis hernámsárið
1940 og árin þar á eftir. Þar á meðal
má nefna lágan húshitunarkostnað
og einnig þótti ýmsum hugmyndin
um að nýta hverina til matseldar
heillandi. Það má með sanni segja að
bærinn sé listamannabær og fjöldi
listamanna hefur sótt í kyrrðina og
sæluna í Hveragerði til að vinna að
listsköpun. Á vefsíðunni Listvinir.is
er ítarlega fjallað um alla þá lista-
menn sem aðsetur hafa haft í Hvera-
gerði í tímans rás. Þar er meðal ann-
ars tímalína með listamönnunum og
sagt frá húsum þeirra, fjölskyldum
og listaverkum. Samvinna lista-
manna á árunum í kringum 1940 var
mikil og létu þeir meðal annars bora
eftir hita, leiða í hús sín og settu upp
hitakassa á leiðslurnar fyrir matseld.
Á síðunni er að finna ýmiss konar
fróðleik í nútíð og fortíð í Hveragerði.
Vefsíðan www.listvinir.is
Listamannabær Áhugi listamanna á Hveragerði hefur haldist síðan um 1940.
Matseld í hverunum heillaði
Steingrímur Sigurgeirsson hefur
skrifað um mat og vín um árabil á
ýmsum stöðum, meðal annars í
Morgunblaðinu. Árið 2000 kom út
bókin Heimur vínsins eftir Stein-
grím og nú hefur önnur bók, 300
blaðsíðna vínfróðleikur, bæst við.
Bókin Vín – frá þrúgu í glas, eftir
Steingrím er komin út og ætlar
hann að fagna útgáfunni á Vínbarn-
um í Templara,sundi í dag klukkan
17, stundvíslega.
Þar verður boðið upp á léttar
veitingar, skálað, sötrað og spýtt og
vonast Steingrímur til að sjá þar
sem flesta vínáhugamenn.
Endilega …
Bókin Útgáfunni verður fagnað í dag.
… mætið í útgáfugleði
Fjarðarkaup
Gildir 5. - 7. september verð nú verð
áður
mælie. verð
Svínalundir, kjötborð .................. 1.498 2.398 1.498 kr. kg
Svínabógur, kjötborð.................. 698 898 698 kr. kg
Ali Bayonne skinka..................... 1.198 1.495 1.198 kr. kg
Ali hunangskótilettur léttreyktar... 1.698 1.998 1.698 kr. kg
Hagkaup
Gildir 5. - 8. september verð nú verð
áður
mælie. verð
Holta úrb. skinnlausar bringur ..... 2.099 2.799 2.099 kr. kg
Ísl. naut 4% nautahakk .............. 1.759 2.199 1.759 kr. kg
Laxabitar frosnir......................... 1.274 1.698 1.274 kr. kg
Myllan heilsubrauð .................... 299 449 299 kr. stk.
Kjarval
Gildir 5. - 8. september verð nú verð
áður
mælie. verð
Gourmet ungnautahakk.............. 1.598 2.027 1.598 kr. kg
BN ýsublokk.............................. 1.188 1.398 1.188 kr. kg
SS bláberjahelgarsteik ............... 2.558 3.198 2.558 kr. kg
Nóa kex bitar, 175 g .................. 339 379 339 kr. pk.
Krónan
Gildir 5.-8. september verð nú verð
áður
mælie. verð
Ungnauta entrecote, erlent ......... 2.989 4.598 2.989 kr. kg
Frönsk hvítlaukspanna ............... 1.358 1.598 1.358 kr. kg
Kjúklingur með lime/rosmarin..... 1.198 1.349 1.198 kr. kg
Kindafille og kindalundir............. 1.998 2.998 1.998 kr. kg
Nóatún
Gildir 6.-8. september verð nú verð
áður
mælie. verð
Lamba prime, kjötborð ............... 2.898 3.498 2.898 kr. kg
Ungnautalund 1/1 / ½, kjötborð 5.488 6.098 5.488 kr. kg
ÍM kjúklingalæri, úrb. ................. 2.158 2.398 2.158 kr. kg
SS hálflæri jurtakryddað ............. 1.998 2.569 1.998 kr. kg
Þín Verslun
Gildir 5.-8. september verð nú áður mælie. verð
Nautainnralæri, kjötborð ............ 2.998 3.998 2.998 kr. kg
Nautafillet, kjötborð ................... 3.998 4.964 3.998 kr. kg
Nautagúllas, kjötborð................. 2.169 2.894 2.169 kr. kg
Nautasnitzel, kjötborð ................ 2.398 2.998 2.398 kr. kg
Helgartilboð
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Sunnuhlíð 12, Akureyri, sími 462 1415
www.tonabudin.is
Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340
www.hljodfaerahusid.is
Yamaha píanó og flyglar
með og án “silent” búnaðar.
Áratuga góð reynsla gerir
Yamaha að augljósum kosti
þegar vanda skal valið.
Veldu gæði,
veldu