Morgunblaðið - 05.09.2013, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 05.09.2013, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013 BAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Nauðsynlegt er að Íslendingar haldi vöku sinni gagnvart mansali og vændi sem því tengist. Í Noregi geri litháska mafían og nígerískir glæpa- menn út fjölda vændiskvenna sem þeir haldi í heljargreipum of- beldis og vímu- efnafíknar. „Fyrir um ári var mér sagt að litháska mafían væri á Ís- landi og ég varð mjög hissa. Ég hélt ekki að hún gæti náð fótfestu í svona litlu sam- félagi.“ Þetta segir Mildrid Mikkelsen sem stýrir Rosa-prosjectet, athvarfi og hjálparsamtökum fyrir fórnarlömb mansals í Osló. Íslendingar verði að reyna hvað þeir geta til að losna við lithásku maf- íuna enda sé hún bæði hættuleg og vel skipulögð. Í fyrra tók Rosa-prosjectet á móti 146 einstaklingum sem talið var að væru fórnarlömb mansals, þar af voru sextán karlmenn. Fjórtán börn fylgdu mæðrum sínum í athvarfið. Rosa-prosjectet hefur aðstoðað margar konur frá Eystrasaltsríkj- unum og eru konur frá Litháen flest- ar í þeim hópi en þær koma einnig frá Lettlandi og Eistlandi. Nú er tæplega fertug vændiskona frá Lett- landi í gæsluvarðhaldi vegna rann- sóknar á vændiskaupum á Íslandi en í hennar tilviki leikur ekki grunur á mansali. Mildrid segir að það þekkist að konur komi frá Eystrasaltsríkjunum upp á eigin spýtur til að stunda vændi, án aðkomu glæpasamtaka. Það sé á hinn bóginn algengt að glæpamenn nái tökum á þeim með einhverjum hætti, þótt síðar verði. Það fer ekki á milli mála að Mild- rid telur ástandið í Litháen verst og þaðan hefur hún heyrt afar ljótar sögur, bæði frá konum sem hafa orð- ið fórnarlömb mafíunnar og frá Kar- itas, samtökum sem aðstoða fórnar- lömb mansals í Litháen. Lithásk kona sem leitaði hjálpar Rosa-prosjectet fyrir um tveimur ár- um lýsti því að hún hefði verið neydd til að horfa á þegar kærasti hennar var myrtur. Hún var síðan sprautuð með heróíní til að gera hana háða fíkniefninu. „Þannig höfðu þeir stjórn á henni,“ segir Mildrid. Áður en konur séu þvingaðar í vændi sé algengt að þeim sé nauðgað af hópi karlmanna til að brjóta niður mótstöðuafl þeira. Jafnvel þótt kon- unum takist að sleppa sé erfitt fyrir þær að snúa aftur til Litháens því glæpamönnunum reynist auðvelt að hafa uppi á þeim og þvinga þær aftur í vændi. „Skipulagðir glæpahópar í Litháen bera alls enga virðingu fyrir mannslífum,“ segir Mildrid. Undanfarið hafi komið fram dæmi um að litháskir glæpamenn beini spjótum sínum að lítillega greindar- skertum stúlkum, í þeirri von að þeim reynist erfiðara að leita til yfir- valda og bera vitni fyrir dómi. Miklir möguleikar á mansali Frá því Rosa-prosjectet hóf starf- semi árið 2009 hafa konur frá Níger- íu ávallt verið fjölmennasti hópurinn en að meðaltali hafa 25 nígerískar konur leitað þar aðstoðar á ári. Mildrid segir að meirihluti vænd- iskvenna í Noregi sé frá öðrum lönd- um og stærsti hópurinn komi frá Nígeríu. Einnig komi margar frá Búlgaríu, Rúmeníu og Litháen. „Ef þú kaupir kynlíf í Noregi eru miklir möguleikar á að konan sé fórnarlamb mansals,“ segir hún. Ástæðan fyrir miklum fjölda kvenna frá Nígeríu megi að hluta rekja til efnahagserfiðleika á Ítalíu og Spáni. „Ástandið er betra hér í Noregi og glæpamennirnir geta því náð meiri peningum út úr þeim hér,“ segir Mildrid. Konurnar séu ekki eingöngu þvingaðar í vændi því þær séu einnig látnar flytja illa fengið fé og fíkniefni. Mildrid segir sérstaklega erfitt fyrir nígerísku konurnar að brjótast undan þessu oki. Fyrir því séu eink- um tvær aðstæður. Annars vegar hafi þær margar verið látnar vinna eið, oft í formlegri athöfn, um að þær hlýði glæpamönnum og rjúfi þær eið- inn muni þær hljóta ill örlög. „Konur sem hingað hafa komið hafa sturlast og kennt eiðrofinu um sturlunina. Ef þær þjást af þunglyndi er eiðrofinu einnig kennt um,“ segir hún. Hins vegar sé þeim talin trú um að þær skuldi glæpamönnunum stórfé og hætti þær að borga, hvað þá ef þær leita til yfirvalda, fái fjölskylda þeirra í Nígeríu að kenna á því. Þrátt fyrir þetta hafi sumum tekist að losna úr vændinu. „En það er erf- itt að hjálpa þeim,“ segir Mildrid. Minnihlutinn fáist til að leggja fram kæru og bera vitni í dómsmáli, en hið síðarnefnda sé skilyrði fyrir því að þær fái hæli í Noregi. Beri þær ekki vitni sé líklegast að þær verði sendar til Ítalíu eða Spánar, á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, og þar eigi glæpahóparnir auðvelt með að hremma þær á nýjan leik Norðmenn, líkt og Íslendingar, hafa farið sænsku leiðina, þ.e. gert vændiskaup ólögleg, en vændissala er ekki refsiverð. Mildrid telur að þessi aðferð hafi leitt til minni eftir- spurnar eftir vændi. Nöfn þeirra sem eru sektaðir eða sakfelldir fyrir vændiskaup eru ekki birt opinberlega, ekki frekar en hér á landi. Mildrid hlær dátt þegar hún er spurð hvort hún telji að gera eigi nöfn vændiskaupenda opinber. „Já, hví ekki. Ég held að það myndi örugglega letja þá til þess að kaupa konur,“ segir hún. Gerð háð heróíni og þvinguð í vændi  Reyni hvað þeir geti til að losna við lithásku mafíuna  Lítillega greindarskertar stúlkur fórnarlömb  Stærstur hluti vændiskvenna í Noregi er frá Nígeríu  Íslendingar haldi vöku sinni gagnvart mansali AFP Neyð Víða í fátækum ríkjum Austur-Evrópu hafa konur neyðst út í vændi eða eru neyddar til vændis. Þessi mynd er frá Úkraínu. Mildrid Mikkelsen Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is Komið og upplifið nýja Natuzzi gallerýið okkar 100% made in Italy www.natuzzi.com Við bjóðum velkomna ítalska hönnun Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar. Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi. Staður þar sem fólki líður vel.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.