Morgunblaðið - 05.09.2013, Síða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013
Sveitarstjórnarmönnum, ekki síst
núverandi borgarfulltrúum Reykja-
víkur, hefur að undanförnu orðið tíð-
rætt um „vald“ sitt til að ákveða
skipulag sveitarfélags. Síðustu dag-
ana hefur þessi valdtúlkun færst á
hærra þrep því nú er sagt að um sé
að ræða „stjórnarskrárvarið vald
sveitarfélags til að ákveða skipulag
sitt“.
Ég hef til þessa tak-
markað skrif mín í dag-
blöð og tímarit við
tæknileg málefni, sem
ég tel mig hafa þekk-
ingu á, einkum tengd
flugmálum og flug-
rekstri. Ég er því ef-
laust að hætta mér út á
hálan ís við umfjöllun
um ákvæði stjórn-
arskrár og laga. Hafa
ber þó í huga, að
stjórnarskrá, lög og
reglugerðir, sem þegn-
um landsins er ætlað að fylgja, eiga
að vera þannig rituð, að almenn-
ingur skilji textann án þess að þurfa
að hafa lögfræðing sér við hlið.
Stjórnarskrá lýðveldisins er ekki
stórt skjal. Við útprentun af vefsíðu
Alþingis kemst hún fyrir á rúmlega
fjórum A4-blöðum. Ég hef vandlega
leitað í henni að ofangreindri vald-
heimild, en finn ekki. Hugsanlega
eru menn með í huga eftirfarandi
ákvæði 78. greinar: „Sveitarfélög
skulu sjálf ráða málefnum sínum eft-
ir því sem lög ákveða.“
Um skipulag landsvæða á Íslandi
gilda Skipulagslög nr. 123/2010 með
síðari breytingum. Samkvæmt þeim
er sveitarfélögum skylt að láta gera
ýmiss konar skipulag svæða sinna,
þar á meðal aðalskipulag. Meðal
markmiða laganna, sem skráð eru í
1. grein þeirra, er „að tryggja að
samráð sé haft við almenning við
gerð skipulagsáætlana þannig að
honum sé gefið tækifæri til að hafa
áhrif á ákvörðun stjórnvalda við
gerð slíkra áætlana“.
Í 3. grein segir: „Ráðherra fer
með yfirstjórn skipulagsmála sam-
kvæmt lögum þessum. Ráðherra til
aðstoðar er Skipulagsstofnun sbr. 4.
gr.“ (Í inngangi laganna er staðfest-
ing þess efnis, að þegar í lögunum sé
getið um ráðherra sé átt við um-
hverfis- og auðlindaráðherra.) Í
þessari sömu 3. grein segir enn-
fremur: „Sveitarstjórnir annast gerð
svæðis-, aðal- og deiliskipulagsáætl-
ana. Þær fjalla um leyfisumsóknir
og veita framkvæmdaleyfi og hafa
eftirlit með framkvæmd skipulags-
áætlana og framkvæmdaleyf-
isskyldum framkvæmdum.“ Ekki er
hér neitt að finna um
meint vald sveitar-
stjórna.
Í 29. grein segir
m.a.: „Sveitarstjórn
ber ábyrgð á að gert sé
aðalskipulag fyrir
sveitarfélagið. Skipu-
lagsnefnd sveitarfélags
annast í umboði sveit-
arstjórnar vinnslu,
kynningu og afgreiðslu
aðalskipulags. Sveit-
arstjórn samþykkir að-
alskipulag og sendir það Skipulags-
stofnun til staðfestingar.“ Enn bólar
ekkert á valdi sveitarfélaganna!
Í 32. grein er fjallað um afgreiðslu
og gildistöku aðalskipulags, og þar
segir m.a.: „Skipulagsstofnun skal
innan fjögurra vikna frá því að til-
laga að aðalskipulagi barst henni
staðfesta aðalskipulagstillöguna og
auglýsa hana í B-deild Stjórnartíð-
inda. Aðalskipulagið tekur gildi,
þegar það hefur verið samþykkt af
sveitarstjórn, hlotið staðfestingu
Skipulagsstofnunar og verið birt í B-
deild Stjórnartíðinda. Telji Skipu-
lagsstofnun að synja beri aðal-
skipulagi staðfestingar eða fresta
staðfestingu þess að öllu leyti eða
hluta skal hún senda um það tillögu
til ráðherra innan fjögurra vikna frá
því að henni barst tillaga að aðal-
skipulagi.“
Í lok greinarinnar segir: „Ráð-
herra synjar, frestar eða staðfestir
aðalskipulag skv. 4. mgr.“ Öllum
ætti því að vera vel ljóst, að umrætt
skipulagsvald er í höndum umhverf-
is- og auðlindaráðherra og Skipu-
lagsstofnunar, sem er sérhæfð rík-
isstofnun ráðherranum til aðstoðar á
þessu sviði.
Um skipulagsvaldið
Eftir Leif Magnússon
Leifur Magnússon
» Öllum ætti að vera
ljóst að umrætt
skipulagsvald er í hönd-
um umhverfis- og auð-
lindaráðherra og Skipu-
lagsstofnunar.
Höfundur er verkfræðingur.
Vatnsmýrin er mýri
(votlendi) og óhentugt
byggingarland því um
20 metrar eru niður á
fast, sem þýðir langar
og dýrar súlur niður á
fast undir hugsanlegar
byggingar sem ekki er
heppilegt vegna jarð-
skjálfta. Mýri er land-
svæði þar sem grunn-
vatnsstaða er há og
jafnvel í yfirborði jarð-
vegsins. Forfeður okkar gáfu land-
svæðum nöfn við hæfi og ljóst er að
Vatnsmýrin var mjög svo mikið vot-
lendi fyrst orðinu vatn var skeytt
framan við mýrina! Sjálf mýrin er
núna að miklu leyti horfin undir
Reykjavíkurflugvöllinn og aðra
byggð, en þó er enn töluvert eftir af
henni. Fjöldi fugla verpir þar og er
varplandið friðað á þeim tímum árs-
ins sem varp stendur yfir eins og við
Norræna húsið. Vatnið í Tjörninni
er að miklu leyti úr Vatnsmýrinni.
„ … eins ákjósanleg undir
innanlandsflugvöll og
frekast má vera“
Framsýnir borgarfulltrúar
Reykjavíkur voru þegar árið 1937
farnir að skipuleggja að byggja flug-
völl í Vatnsmýri sem var heppilegt
sléttlendi og mýrin talin ónothæf
sem byggingarland. Í september
1937 var opinberlega birtur upp-
dráttur Gústafs E.
Pálssonar verkfræðings
og síðar borgarverk-
fræðings Reykjavíkur,
af „flughöfn í Vatns-
mýrinni í Reykjavík.“ Í
janúar 1939 samdi
Gústaf svo ítarlega
skýrslu fyrir bæjaryf-
irvöld þar sem gerður
var samanburður á sjö
valkostum í staðsetn-
ingu flugvallar fyrir
Reykjavík. Niðurstaða
þeirrar úttektar Gúst-
afs var sú að mælt var
með flugvelli í Vatnsmýrinni, sem
talin var vera „eins ákjósanleg undir
innanlandsflugvöll og frekast má
vera“. Í mars 1940 mælti skipulags-
nefnd Reykjavíkur með gerð flug-
vallar í Vatnsmýrinni sem bæjarráð
samþykkti. Það var því auðsótt fyrir
breska herinn að fá leyfi 1940 til að
byggja flugvöll á þessu sléttlendi í
Vatnsmýrinni með tilheyrandi
kostnaði, sem meðal annars fólst í að
keyra þúsundir vörubíla af rauðamöl
sem uppfyllingu fyrir flugbrautirnar
fyrir orrustuflugvélar, sprengi- og
flutningavélar þess tíma.
Flugvöllinn áfram
í Vatnsmýrinni
Hugmyndir marga aðila, jafnvel
kjörinna borgarfulltrúa, eru al-
gjörlega gegn almennri skynsemi
um Vatnsmýrina sem hentugt bygg-
ingarland! Framsýnir forfeður okk-
ar í Reykjavík svo og kjörnir þing-
menn þess tíma töldu svæðið í
Vatnsmýrinni hins vegar heppilegt
fyrir flugvöll. Ég er sammála öllum
þeim Íslendingum sem vilja að flug-
völlurinn verði áfram og í friði í
Vatnsmýrinni í Reykjavík, höf-
uðborg allra Íslendinga og gegni þar
mikilvægu hlutverki sem varanlegur
innanlandsflugvöllur á landi sem er í
eigu ríkissjóðs, og því eign allra Ís-
lendinga! Ég styð því heilshugar
undirskrift www.lending.is um að
flugvöllurinn verði áfram á sínum
stað!
Aðalskipulög
Varðandi svokölluð aðalskipulög
sveitarfélaga væri ánægjulegt ef öll
sex sveitarfélögin á höfuðborg-
arsvæðinu sameinuðust um eitt að-
alskipulag fyrir framtíðina með
heppilegum byggingarsvæðum höf-
uðborgarsvæðisins fyrir íbúðir og
atvinnustarfsemi svo og samgöngu-
leiðir. Á sameiginlegu svæði þeirra
allra eru án efa mörg hentugri bygg-
ingarsvæði en Vatnsmýrin!
Vatnsmýrin er mýri (votlendi)
og óhentugt byggingarland
Eftir Jón Hjaltalín
Magnússon
Jón Hjaltalín
Magnússon
» Framsýnir borgar-
fulltrúar Reykjavík-
ur voru þegar árið 1937
farnir að skipuleggja að
byggja flugvöll í Vatns-
mýri.
Höfundur er verkfræðingur.
Helgar
Alvöru
Nú er kominn tími á alvöru helgar-brunch
brunch
Steikt beikon
Spælt egg
Steiktar pylsur
Pönnukaka með sírópi
Grillaður tómatur
Kartöfluteningar
Ristað brauð
Ostur
Marmelaði
Ávextir
kr. 1740,- pr. mann
Barnabrunch á kr. 870
Ávaxtasafi og kaffi eð
a te fylgir.
H
u
g
sa
sé
r!
H
u
g
sa
sé
r!
Grillhúsið Sprengisandi og Tryggvagötu
Phone + 354 527 5000 www.grillhusid.is
Ótrúlega gómsæt byrjun
á góðum degi!
Alla laugardaga og su
nnudaga
frá kl. 11.30 til kl. 14
.30