Morgunblaðið - 05.09.2013, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 05.09.2013, Qupperneq 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Snyrting Spænskar gæðasnyrtivörur, fram- leiddar úr náttúrulegum hráefnum, og eru fyrir alla daglega umhirðu húðar. Fjölbreyttar vörur sem henta allri fjölskyldunni. Sjá nánar í netversluninni: www.babaria.is Hljóðfæri Þjóðlagagítarpakki: kr. 23.900. Gítar, poki, ól, auka- strengir, stilliflauta og kennslu- forrit. Gítarinn ehf., Stórhöfða 27, s. 552 2125. www.gitarinn.is, gitarinn@gitarinn.is Geymslur Ferðavagnageymsla Borgarfirði Geymum tjaldvagna, fellihýsi, hjól- hýsi, báta og fleira í upphituðu rými. Gott verð. Sími 499 3070. E-mail solbakki.311@gmail.com Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Verslun 7.9.13 Trúlofunar- og giftingar- hringar Auk gullhringa eigum við m.a. tita- nium- og tungstenpör á fínu verði, frí áletrun. Sérsmíði, framleiðsla og viðgerðarþj. ERNA Skipholti 3, s. 552 0775, www.erna.is. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bílar Mercedes Benz C200-stg. 300.000 Hvítur ´97 módel, nýskoðaður, keyrður 270 þ. km, dráttarkrókur, lítur ágætlega út (smá ryð). Ásett 450.000, stg. 300.000 kr. Uppl. 847 9083 (helst e. kl. 17). Skoda Octavia diesel 6/2013 3ja mánaða gamall. Ekinn 17 þús. km, með um 500.000 króna afslætti. Verð: 3.590.000. www.sparibill.is Fiskislóð 16 - sími 577 3344. Opið kl. 12-18 virka daga. Bílaþjónusta Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Húsviðhald Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verkefni. Sími 847 8704 manninn@hotmail.com mbl.is alltaf - allstaðar ✝ Þorgeir Björg-vinsson fæddist í Kópavogi 19. mars 1964. Hann lést 21. ágúst 2013. Foreldrar hans voru Björgvin Jóns- son, f. 26. ágúst 1929, d. 20. apríl 2008, og Kristín Guðmundsdóttir, f. 26. september 1934. Systkini Þorgeirs voru: Stúlka, andvana fædd 1956, Guðmundur, f. 1958, Hrafnhild- ur, f. 1960, Jón Óttar, f. 1964, d. 1986, Kolbeinn, f. 1967. Hinn 14. júlí 1984 kvæntist Þorgeir Klöru Guðrúnu Haf- steinsdóttur, f. 9. janúar 1965. Þau eignuðust fjórar dætur. 1) Hugrún Diljá, f. 23. maí 1985, maki Stefán Atli Guðnason. Dóttir þeirra er Klara Líf. 2) Íris Rut, f. 29. júlí 1987, maki Atli Bjarnason. Dóttir þeirra er María Margrét. 3) Lýdía, f. 18. desember 1992, 4) Eygló, f. 26. mars 1998. Ungur að árum stofnaði Þorgeir verktakafyrirtæki og starfaði sjálfstætt við þá starfsgrein alla tíð. Lengst af með verktakafyrir- tækið Heimi og Þorgeir ehf. Síð- ustu árin með verktakafyrir- tækið Jákvætt ehf. Útför Þorgeirs fer fram frá Lindakirkju í dag 5. september 2013, og hefst athöfnin kl. 15. Á kveðjustund er þungt um tungutak og tilfinning vill ráða hugans ferðum. Því kærum vini er sárt að sjá bak og sættir bjóða Drottins vilja og gjörðum. En Guðs er líka gleði og ævintýr og góð hver stund er minningarnar geyma. Farðu vel, þér fylgir hugur hlýr á ferð um ljóssins stig, og þagnarheima. (Sigurður Hansen.) Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði.) Kveðja. Þín systir, Hrafnhildur. Elsku Þorgeir okkar. Nú er komið að kveðjustund, sem okk- ur finnst vera allt of snemmt. Við vitum þó að amma Guðbjörg tekur vel á móti þér og hugsar um þig þangað til við hittumst á ný. Við minnumst allra góðu stundanna sem við áttum saman, þar sem við systurnar eigum okkar annað heimili hjá ykkur Klöru. Allar ferðirnar sem við fórum í; hestaferðir, sumarbú- staðaferðir, utanlandsferðir og fleira. Þau voru ófá skiptin sem þú bakaðir vöfflur fyrir okkur öll og grillaðir dýrindismat. Þú varst aldrei aðgerðarlaus og hafðir alltaf nóg fyrir stafni, hvort sem það var vinnan, heim- ilið eða eitthvað annað. Þú fannst þér alltaf nóg að gera enda algjör nagli og dugnaðarforkur. Líf þitt og yndi var fjölskyldan þín, sem þú hugsaðir svo vel um. Við munum hugsa vel um þær og hlúa hvert að öðru. Minning þín mun lifa með okkur öllum. Elsku Klara, Diljá, Stebbi, Íris, Atli, Lýdía, Eygló, Klara Líf og María Margrét, megi Guð vera með ykkur á þessum erfiðu tímum og styrkja ykkur. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Minning þín er ljós í lífi okkar. Guðbjörg, Steinunn og Hrönn. Góður vinur er farinn frá okk- ur. Með þakklæti og hlýju í huga minnumst við þín, elsku Þorgeir. Við minnumst útileganna og sumarbústaðaferðanna, þar sem krikketsettið þitt var oftast dreg- ið fram. Jólanna okkar allra sam- an, þar sem þú hafðir skreytt húsið ykkar Klöru þinnar, hátt og lágt bæði innan- og utandyra með allskonar seríum, jólasvein- um og snjókarli. Áramótin þar sem þú sprengdir tertur á stærð við litla frystikistu. Sólarlanda- ferðanna þar sem þú gekkst bæ- inn þveran og endilangan með einhverja af stelpunum þínum í kerru á undan þér. Þú varðst alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni og áttir erfitt með að sitja kyrr. Hugur okkar er fullur af sorg og söknuði, en minningarnar um góðan dreng mun lifa með okkur um ókomna tíð. Guð blessi minningu þína. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Elsku Klara okkar, Hugrún, Stebbi, Íris, Atli, Lýdía, Eygló og litlu stelpurnar Klara Líf og María Margrét, Guð gefi ykkur styrk og veri með ykkur. Bergþóra (Þóra) og Ólafur Óli. Félagi minn og vinur Þorgeir Björgvinsson er fallinn frá. Við höfðum ekki verið í miklu sam- bandi síðustu þrjú ár, en ég fylgdist vel með mínum manni úr fjarska og fannst nafnið á hans nýja fyrirtæki, Jákvætt, lýsandi fyrir Þorgeir því í þau mörgu ár sem að við störfuðum saman voru það hans einkunnarorð. Þorgeiri kynntist ég árið 1980 þar sem við störfuðum saman hjá Hlaðbæ hann þá einungis 16 ára gamall og þá strax áberandi fyrir dugnað og skapandi vinnulag. Við störfuðum síðan saman hjá því ágæta fyrirtæki með hléum allt til ársins 1987. Árið 1990 hefjum við síðan rekstur saman og má segja að við höfum verið í daglegu sambandi allt til þess dags er við ákveðum að loka fyr- irtæki okkar 2009. Þorgeir var alla tíð jákvæður, og greiðvikinn og þekki ég engan mann sem var jafn óverkkvíðinn og hann. Þorgeir var með eindæmum morgunhress og fannst fátt betra en byrja daginn snemma. Hann átti það til að hringja í mig upp úr klukkan 05.00 og vildi að við drifum í að skipuleggja daginn. Þá var hann búinn að vera vak- andi í einhvern tíma og vildi leyfa mér að sofa aðeins lengur. Við brölluðum margt saman og fyrstu árin okkar voru tæki og tól kannski ekki svo merkileg við áttum t.d. marga bíla sem Þor- geir kallaði einnota, en við hjökk- uðumst þetta áfram og höfðum mikið gaman af. Þegar við vorum að byrja sjálfstætt handmokuð- um við heilu dagana upp úr görð- um og plönum í kerrur sem hengdar voru aftan í Lödur og ókum draslinu á haugana. Síðan fórum við í Björgun þar sem mokað var möl í kerrurnar og síðan var mokað úr kerrunum aftur á verkstað. Við gleymdum okkur líka oft langt fram eftir nóttu og í eitt slíkt skipti þegar við vorum að skipta um hedd- pakkningu í einhverri eðaldrusl- unni mætti lögreglan á staðinn þar sem eiginkonurnar voru farnar að undrast um okkur og við á þessum tíma ekki með far- síma. Þetta voru ljúfir og skemmtilegir tímar. Fjölskyldan var Þorgeiri afar mikilvæg og áttum við oft góðar stundir þar sem við skiptumst á sögum af börnum okkar og dá- sömuðum öll þeirra afrek. Þor- geir elskaði og dáði Klöru sína og dýrkaði dætur sínar. Ég man vel hversu stoltur hann var þegar hann fékk sitt fyrsta barnabarn, hann ljómaði og þá fannst honum lífið fullkomið. Þegar maður er í rekstri er ekkert mikilvægara en að treysta þeim sem maður á reksturinn með og ekki síður mikilvægt að eiga gott persónulegt samband við meðeiganda sinn. Þannig maður var Þorgeir Björgvinsson. Hann taldi aldrei eftir sér að að- stoða mig í mínum persónulegu málum og hjálpaði mér oft við ýmislegt sem stóð í mér. Þegar ég lít til baka yfir samstarf og samvinnu okkar Þorgeirs er ég þakklátur fyrir að hafa fengið að starfa með honum og eiga hann sem vin í öll þessi ár. Mig tekur sárt að hafa ekki tækifæri til að fylgja vini mínum í dag vegna vinnu erlendis þar sem ég er staddur á sjó undan ströndum Afríku en hugur minn er hjá ykkur. Ég sendi ykkur kæra fjöl- skylda, Klara, Hugrún, Íris, Lydía og Eygló, vinum og að- standendum öllum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning góðs vin- ar, Þorgeirs Björgvinssonar Heimir Heimisson. Þorgeir Björgvinsson Lára Fjeldsted Hákonardóttir ✝ Lára FjeldstedHákonardóttir fæddist 12. mars 1917. Hún lést á hjúkrunarheimil- inu Ísafold 21. ágúst 2013. Lára var jarð- sungin frá Laugar- neskirkju 29. ágúst 2013. ur í hárri elli. Þessi hörkugella sem stóð vaktina daga sem nætur, í gleði og sorg, og kom ætíð fílefld úr hverri at- rennu við lífsins ólgusjóa. Aldrei hef ég kynnst duglegri konu, aldrei lífsglað- ari, aldrei bjart- sýnni. Konu sem vissi ekki hvað upp- gjöf var. Konu sem naut hverrar stundar, elskaði lífið, naut vinn- Lára á 1, aðal- skvísan í Laugarneshverfinu til margra áratuga hefur kvatt okk- unnar jafnt sem frítímans og gekk glæst og tignarleg til hvers verks hvort sem það var að stíga dans, lyfta glasi eða hnýta krans um miðja nótt eftir að dagsverkinu lauk og aðrir höfðu lagst til hvílu. Já, hún Lára mín var einstök kona, ég get vitnað um það eftir áratuga nábýli. Við vorum útverð- ir Kirkjutúnsins í yfir 60 ár, hún á Hrísateigi 1 ég á Hofteigi 4. Minningarnar hrannast upp. Aldrei kom svo sólarglæta að Lára og dæturnar væru ekki komnar út í sólbað og röðuðu sér á tröppurn- ar móti suðrinu hver annarri sæt- ari og hlátrasköllin glumdu út yfir túnið. Ég man líka Jón svo glæsi- legan með svarta og vel greidda hárið sitt, svo ljúfan og góðan. Mannlífið í Laugarneshverfinu á þessum árum var yndislegt. El- ísbúð, andspænis Láru, með sín- um ómótstæðilegu marengskök- um sem kostuðu 25 aura og bráðnuðu uppi í manni. Elís kaup- maður með sína voldugu ístru og úrfestina sem bylgjaðist yfir bumbuna milli hnappagatsins og vestisvasans og hógværa Sigur- björg sem afgreiddi mann þegar maður bað um hálft franskbrauð og kvart normal. Og þegar frú Guðlaug, kaupmannsfrúin, sem ellin var farin að leika grátt, týnd- ist og lagði af stað fótgangandi með púðana sína í fanginu austur á land, þá hjálpaði allt krakka- stóðið í hverfinu Elísi og Sigur- björgu að leita að henni. Neðan við Láru og Jón var gamli Kirkju- bólsbærinn þar sem Sólveig gamla gaf hænunum sínum og fyrir neðan rann Fúlilækurinn í Fúlutjörnina þar sem við fórum á skauta við sjávarkambinn. Klepp- ur, leið 3, ók niður Laugarnesveg- inn frá Tungu og kallaði Kirkjuból við túnfótinn hjá Láru. Laugar- neskirkjan var okkar næsti ná- granni, þar átti Lára mörg sporin eftir að blómabúðin Runni komst á laggirnar. Áratugum saman prýddu blómin frá henni altarið í fallegu kirkjunni okkar. Og fáir voru þeir Laugarnesbúar sem fóru í gröfina án þess að kistur þeirra skörtuðu skreytingu frá listakonunni Láru. Ég held satt að segja að Lára hafi aldrei sofið á þessum árum, eða bara haft það eins og hestarnir, sofið standandi. Hún vann dag og nótt, en ef svo bar undir var hún komin út á djammið á næsta augnabliki, enda stóðu vonbiðlarnir í röðum, en hún hafði svo góðan samanburð að þeir urðu allir frá að hverfa. Það gat enginn farið í sporin hans Jóns. Þegar barnabörnin bættust við var alltaf fullt út úr dyrum hjá Láru. Og þá eins og forðum, röð- uðu allir sér á tröppurnar ef sólin gægðist fram. Og alltaf kunni Lára að meta lífsins lystisemdir, skveraði sig upp, setti á sig flottan hatt, lokkana í eyrun og var þotin. Nú hefur hún lagst til hinstu hvílu við hlið Jóns síns eftir hálfr- ar aldar aðskilnað. Ég þakka þeim báðum góð og gengin spor. Þeirra er gott að minnast. Guðfinna Ragnarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.