Morgunblaðið - 05.09.2013, Page 39

Morgunblaðið - 05.09.2013, Page 39
ráðgjafa, hefur setið í stjórn Verk- efna- og námsstyrkjasjóðs Kenn- arasambands Íslands, verið fulltrúi í úthlutunarnefnd Þróunarsjóðs grunnskóla, og sat í landssambands- stjórn Delta Kappa Gamma, félags kvenna f fræðslustörfum. Gerður hefur setið í opinberum nefndum um félagsmál og mennta- mál á öllum skólastigum, var m.a. fulltrúi í barnavemdarnefnd Kópa- vogs 1970-74, sat í fræðsluráði Aust- urlands 1975-83, var formaður Jafn- réttisnefndar og tómstundaráðs Neskaupstaðar, sat í skólanefnd Húsmæðraskólans á Hallormsstað, formaður stjórnunarnefndar fram- haldsnáms á Austurlandi, formaður fjölda nefnda og starfshópa á vegum menntamálaráðuneytisins 1989-91, sat í stjórn Fulbright-stofunarinnar á Íslandi, í skólanefnd Samvinnuhá- skólans á Bifröst, sat í stjórn Endur- menntunarstofnunar HÍ og í nefnd- um menntamálaráðuneytisins sem mátu háskólanám í viðskipta- og rekstrarfræðum og byggingatækni. Sem fræðslustjóri sat Gerður í fjölda nefnda og starfshópa um stefnumörkun í fræðslumálum borg- arinnar og í skólamálanefnd Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. Hún sat í nefndum sem sömdu frumvörp að grunnskólalögum 1989-90 og 2006-2007 og fyrstu leikskólalög- unum 1990-91. Gerður starfaði í Rauðsokka- hreyfingunni við upphaf áttunda áratugarins og sat þar í miðstöð, var formaður áhugahóps um varðveislu og framgang Kvennasögusafns Ís- lands 1988-95, starfaði í Alþýðu- bandalaginu á áttunda áratugnum, sat tvisvar í miðstjórn þess og var formaður kjördæmisráðs Alþýðu- bandalagsins á Austurlandi. Gerður hefur skrifað fjölda greina í blöð og tímarit og bækur um menntamál. Á síðasta ári gaf hún út bókina Skil skólastiga: Frá leikskóla til grunnskóla og grunnskóla til framhaldsskóla. Gerður var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1999. „Á seinni árum hafa margvísleg félagsmál þokað fyrir áhuganum á barnabörnunum, garðinum, lestri og menningu,“ sagði Gerður spurð um áhugamálin. „Ég nýt þess að sitja við skriftir fyrri hluta dags, fæ innblástur frá trjánum mínum og útsýninu yfir El- liðavatn, fara svo út að ganga eða út í garð og hitta síðan góða vini eða fjöl- skyldu að kvöldi.“ Fjölskylda Gerður giftist 1965 Bjarna Ólafs- syni, f. 15.2. 1943, cand.mag. og fyrrv. framhaldsskólakennara. Þau skildu. Börn Gerðar og Bjarna eru Óskar, f. 19.7. 1966, sagnfræðingur og leið- sögumaður, búsettur í Lúxemborg, en dóttir hans er Lea; Ásta, f. 20.1. 1969, doktor í vinnu- og skipulags- sálfræði og ráðgjafi hjá Capacent, gift dr. Árna Sigurjónssyni, bók- menntafræðingi og skrifstofustjóra, börn þeirra eru Ólafur Kjaran há- skólanemi, Soffía Svanhvít og Gunn- ar Sigurjón, en dóttir Árna er Snjó- laug lögfræðingur. Systir Gerðar er Unnur Ósk- arsdóttir, f. 17.11. 1932, útgefandi, var gift Axel Einarssyni sem nú er látinn og eignuðust þau fjögur börn. Foreldrar Gerðar eru Jóna Svan- hvít Hannesdóttir, f. 14.11. 1911, d. 14.1. 2005 húsmóðir í Reykjavík, og Óskar Gunnarsson, f. 9.4. 1902, d. 23.7. 1970, verslunarmaður. Úr frændgarði Gerðar G Óskarsdóttur Gerður G. Óskarsdóttir Guðrún Jónsdóttir húsfr. á Efri-Grímslæk, af Bergsætt Einar Eyjólfsson b. á Efri-Grímslæk, af Nesjav.æ. Kristrún Einarsdóttir húsfr. í Rvík Hannes Ólafsson kaupmaður í Rvík Jóna Svanhvít Hannsdóttir bókaútgefandi í Rvík Steinunn Gísladóttir húsfr. í Brekkukkoti Ólafur Eyjólfsson verkam. í Brekkukoti í Rvík Pétur Þ.J. Gunnarsson stórkaupm Guðbjörg Ásgrímsdóttir húsfr. að Gufuskálum Pétur Jónsson hreppstj. að Gufusk. á Leiru Þorbjörg Pétursdóttir húsfr. í Rvík Gunnar Björnsson skósmiður í Rvík Óskar Gunnarsson bókaútg. og verslunarm. í Rvík Halldóra Bjarnadóttir frá Vestra-Geldingalæk Björn Björnsson b. á Fitjamýri Þorleifur Gunnarsson í Félagsbókbandinu Steindór Gunnarsson í Steindórsprenti Sigríður G. Blöndal húsfr Pétur H. Blöndal alþm Dr. Björn Karel Björnsson bókavörður við Konunglegu bókhlöðuna í Kaupmannah. Marteinn Einarsson kaupm. við Laugaveg Kristinn Einarsson, kaupm. við Laugaveg ÍSLENDINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013 Guðmundur Thorsteinsson,Muggur, fæddist á Bíldudal5.9. 1891 og ólst þar upp. Hann var sonur Péturs J. Thor- steinssonar, stórútgerðarmanns og athafnamanns á Bíldudal og víðar, og k.h., Ásthildar, dóttur Guð- mundar, prófasts og alþm. á Breiða- bólstað á Skógarströnd Einars- sonar, bróður Þóru, móður Matthíasar Jochumssonar skálds. Systir Ásthildar var Theodóra Thoroddsen skáldkona. Meðal níu systkina Muggs voru Borghildur, amma Ólafs B. Thors, fyrrv. framkvæmdastjóra Sjóvár, og Katrín, móðir Péturs J. Thorsteins- sonar sendiherra, en bræður Muggs, Samúel, Gunnar og Friðþjófur voru þekktir knattspyrnumenn. Muggur flutti með fjölskyldu sinni til Kaupmannahafnar 1903, stundaði þar myndlistarnám 1911-15 og fór námsferðir, m.a. til Þýskalands, Ítal- íu og Bandaríkjanna, enda var faðir hans einn umsvifamesti auðmaður landsins á sinni tíð. Muggur varð snemma mikils met- inn listamaður á Íslandi og í Dan- mörku. Verk hans minna í ýmsu á tíðaranda nýrómantískrar skáld- stefnu, fínleg, ljóðræn og trega- blandin. Þekktasta verk hans er kannski hin myndskreytta saga af Dimmalimm, en auk þess mynd- skreytti hann Þulur frænku sinnar, Theodóru Thoroddsen, gerði myndir við íslenskar þjóðsögur og mynd- skreytti fyrstu íslensku spilin sem lengi voru mjög vinsæl. Hann málaði olíu- og vatnslitamyndir, teiknaði, vann grafík og með kol og vann klippimyndir, s.s. myndina Sjöundi dagur í Paradís, sem er eitt af hans frægustu verkum. Hann bjó auk þess til brúður og hannaði og saum- aði föt, m.a. á systur sínar. Þá má geta þess að Muggur lék eitt aðalhlutverkið í kvikmyndinni Saga Borgarættarinnar, sem var tekin hér á landi árið 1919. Muggur lést úr brjóstveiki, langt fyrir aldur fram, aðeins þrjátíu og tveggja ára. Hans hefur þó ætíð ver- ið minnst sem eins fremsta lista- manns þjóðarinnar á síðustu öld. Hann lést 26.7. 1924. Merkir Íslendingar Muggur 85 ára Ingibjörg Sveinbjarnardóttir 80 ára Ellen Þorkelsdóttir Ragnheiður Þorsteinsdóttir Svala Aðalsteinsdóttir Svava Sigurjónsdóttir 75 ára Birkir Skarphéðinsson Kári Jónsson Leó Þórhallsson Tryggvi Ísaksson 70 ára Guðný Þorvaldsdóttir Hermann Bragason Hróbjartur Vigfússon Jórunn Jóhannesdóttir Lára Þorsteinsdóttir Ragnheiður Hjaltadóttir Valdís Þórðardóttir 60 ára Anna Cynthia C. Leplar Bárður Guðmundsson Guðmundur Gíslason Guðni Geir Kristjánsson Ólafur Búi Gunnlaugsson Ólafur Þ.B. Sveinsson Sigurður H. Guðmundsson Þórður Sturluson Þór Wium 50 ára Dariusz Stanislaw Sobiecki Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir Sigurbjörg R. Marteinsdóttir Sigurður Þórisson Þröstur Emilsson 40 ára Auður Ósk Guðmundsdóttir Bjarki Eggert Steingrímsson Bjarki Már Jóhannsson Einar Kolbeinsson Guðmundur Kristján Sigmundsson Halldóra Eiríksdóttir Jón Heiðar Jónsson Júlíus Viðar Axelsson Linda Mjöll Kemp Magnúsdóttir Soffía Valdís Ásólfsdóttir 30 ára Helgi Skúli Skúlason Hildigunnur Helgadóttir Hjördís Arnardóttir Ingólfur Halldór Bjarnason Jónína Björgvinsdóttir Kristjana Sigríður Árnadóttir Ólafur Ingi Bergsteinsson Sylwia Baginska Tinna Finnbogadóttir Til hamingju með daginn 30 ára Garðar ólst upp á Norðfirði, er búsettur á Reyðarfirði og er vöru- bifreiðastjóri. Maki: Freydís Hrefna Hlynsdóttir, f. 1985, hús- freyja. Börn: Páll Helgi, f. 2003, Magnús Orri, f. 2007, og Pálína Hrönn, f. 2008. Foreldrar: Guðni Geirs- son, f. 1959, bifvélavirki á Norðfirði, og Pálína Sig- urðardóttir, f. 1961, stuðn- ingsfulltrúi. Garðar Guðnason 40 ára Vignir ólst upp á Eyrarbakka, lauk BSc- prófi í sjúkraþjálfun við HÍ og starfar sjálfstætt. Maki: María Fjóla Harð- ardóttir, f. 1975, hjúkr- unarfræðingur. Synir: Hörður Óli, f. 2004, og Patrekur Logi, f. 2008. Foreldrar: Jón Bjarni Stefánsson, f. 1945, fyrrv. útgm. og verslunarm., og Svanborg Oddsdóttir, f. 1948, d. 2013, kennari. Vignir Bjarnason 30 ára Ester lauk prófum í innanhúsarkitektúr frá Isad í Mílanó og er verk- efnastjóri sölu- og mark- aðsmála hjá Kea hótelum. Maki: Ólafur Ágúst Jens- son, f. 1981, starfsmaður hjá Arctik Portal. Dóttir: Tinna Karitas Ólafsdóttir, f. 2010. Foreldrar: Björn Magn- ússon, f. 1953, sviðstjóri hjá Þjóðskrá Íslands, og Sveinbjörg Sveinsdóttir, f. 1955, sjúkraliði. Ester Björnsdóttir Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.