Morgunblaðið - 04.10.2013, Qupperneq 6
F
yrst er að nefna hinn nýja
CR-V-jeppa frá Honda
sem hefur verið alveg
gríðarlega vel tekið,“ seg-
ir Gestur. „Úrvalið af út-
færslum á þessum vinsæla bíl
eykst enn frekar núna í haust. Við
erum til dæmis að fá inn nýjan
1600-díselbíl, sem verður með
framhjóladrifi, alger sparibaukur
enda hagkvæmur í rekstri. Þar
verður við komin með ódýrari bíl,
með betra aðgengi og fullt af
plássi og á hann vafalaust eftir að
henta fjölskyldufólki alveg sérlega
vel.“ Gestur bætir því við að þessa
sömu vél sé Bernhard að fá í
Honda Civic, bæði í fimm dyra út-
færslu og svo í Civic Station-
gerðinni sem væntanleg er eftir
áramót.
„Þar er á ferðinni alveg gríð-
arlega spennandi bíll, sem okkur
vantar tilfinnanlega í vöruúrvalið
okkar.“
Eftirsóttur Peugeot 2008
Gestur segir að talsverð eft-
irvænting ríki sömuleiðis í hinu
merkinu sem Bernhard hefur um-
boð fyrir, sem er franski framleið-
andinn Peugeot. „Við erum að fá
nýjan 308-bíl, en það módel hefur
jafnan verið söluhæsti bíllinn okk-
ar frá Peugeot. Svo erum við að fá
annan Peugeot, sem við ætluðum
reyndar að vera búnir að frum-
sýna hér á landi, bíl sem heitir 2008. Salan á honum hefur verið
með slíkum ólíkindum í Evrópu að
hann stendur okkur einfaldlega
ekki til boða enn sem komið er,
því hann er uppseldur. Þeir mark-
aðir sem við höfum sótt okkar bíla
á eru að selja bíla þessa dagana
sem verða framleiddir í janúar og
febrúar. Þá fá kaupendur bílana í
seinni hluta febrúar eða mars.
Sem stendur er því um hálfs árs
bið eftir honum, en þeir hjá Peu-
geot gáfu það út að þeir hygðust
tvöfalda framleiðsluna á 2008-
bílnum til að mæta þessari miklu
eftirspurn og vonandi fer fram-
boðið eitthvað að glæðast hér á Ís-
landi.“ Gestur bætir því við að út-
lit sé fyrir að eftirspurnin verði
með svipuðu sniði hér og verið
hefur á meginlandi Evrópu. „Við
erum þegar farnir að bóka fólk á
biðlista eftir þessum bíl. Það getur
vart beðið eftir að fá að skoða og
prófa bílinn.“
Eyðslugrannur í borgarstússið
Gestur segir að miklar vinsældir
Peugeot 2008-bílsins megi að öll-
um líkindum skýra með breyttum
áherslum fólks þegar það kaupir
sér nýjan bíl. „Þetta er bíll sem
svipar til lítils jepplings, ekki fjór-
hjóladrifinn en byggður líkt og
jepplingur. Mynstrið í bílakaupum
er í þá átt að fólk er frekar að
minnka við sig bílana og vill hafa
þá eyðslugranna sömuleiðis, og
þar kemur 2008-bíllinn mjög
sterkur inn. Þú færð aðeins minni
bíl en samt einhvern veginn fullt
af plássi,“ bætir hann við. „Það fer
vel um alla, mjög gott fótapláss er
aftur í og svo er bíllinn einfaldlega
byggður þannig að hann virkar
mjög spennandi á fólk þegar það
sér hann. Þetta höfum við orðið
varir við þegar fólk sér myndir af
bílnum og svo höfum við sömuleið-
is fengið fólk hingað til okkar í
heimsókn sem hefur séð bílinn er-
lendis og verið spennt fyrir hon-
um. Virkilega fallegur bíll sem
fangar augað og áhugann.“
Ábyrgð á bílum og þjónustu
Gestur minnir á mikilvægi þess að
leita til viðurkennds þjónustuaðila
þegar kemur að því að hugsa um
bílinn. „Hér hjá Bernhard bjóðum
við upp á alla viðgerðar- og vara-
hlutaþjónustu, og það er okkur
hjartans mál að veita góða þjón-
ustu. Það er það sem þetta gengur
allt saman út á; að fylgja sölu á
góðum bíl eftir með góðri þjón-
ustu. Það er grunnurinn að þessu
öllu saman. Þeir sem kaupa hjá
okkur bíl fá alla þjónustu kringum
sína bíla hjá okkur, frá a til ö.“
Gestur tekur fram að augljóslega
sé fólk farið að hugsa meira um að
sinna viðhaldinu á bílum sínum og
mikil vakning í því að fá um leið
sem besta þjónustu. „Bæði er það
til að njóta bílsins betur meðan
hann er í eigu viðkomandi og auð-
vitað líka til að tryggja sem best
endursöluverð. Bíleigendur borga
heldur ekki miklu meira fyrir við-
urkennda þjónustu en þá þjónustu
sem engin ábyrgð er á. Það er
ákveðið öryggi í því að láta við-
urkenndan aðila um þjónustuna,
bæði fyrir eigendur nýrra bíla og
eins fyrir þá sem eru að skoða
notaða,“ segir Gestur Benedikts-
son hjá Bernhard.
jonagnar@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Heildarlausn Hér bjóðum við upp á alla viðgerðar- og varahlutaþjónustu, og það er okkur hjartans mál að veita góða þjón-
ustu. Það er það sem þetta gengur út á; að fylgja sölu á góðum bíl eftir með góðri þjónustu,“ segir Gestur Benediktsson.
Vinsæll Úrvalið af útfærslum á hinum vinsæla CR-V eykst enn frekar núna í haust.
Þá mun Bernhard bjóða nýjan 1600-díselbíl, sem verður með framhjóladrifi.
Eftirspurn Peugeot 308 er með söluhæstu gerðum hins franska framleiðanda. Hér stillir hann sér upp við Millau-brúna.
Kaupendur bíða spenntir
Ýmsir áhugaverðir bílar eru væntanlegir á næstu
mánuðum hjá Bernhard, eins og Gestur Benedikts-
son söluráðgjafi segir frá. Bæði er von á nýjum bíl-
um frá Peugeot og Honda sem vakið hafa mikla
lukku erlendis, eins og Gestur segir frá.
Mynstrið í bílakaupum er í
þá átt að fólk er frekar að
minnka við sig bílana og
vill hafa þá eyðslugranna
sömuleiðis, og þar kemur
2008-bíllinn sterkur inn
Skutbíll Væntanlegur Civic Station er spennandi bíll sem Gestur og félagar hjá
Bernhard bíða eftir að geta boðið óþreyjufullum kaupendum.
Eftirvænting Vinsældir Peugeot 2008 hafa verið slíkar að hann er uppseldur á
meginlandi Evrópu og kemur hingað eftir áramót.
6 | MORGUNBLAÐIÐ