Morgunblaðið - 04.10.2013, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 04.10.2013, Qupperneq 8
Hraðhleðslustöðvar um allt suðvesturhornið A lltaf er eitthvað nýtt og spennandi að gerast í verslun BL enda flytur umboðið inn bíla frá níu framleiðendum. Þegar blaðamaður náði tali af Lofti Ágústs- syni markaðsstjóra var bílasýningin í Frankfurt nýafstaðin og mikið um nýjungar sem tengjast merkjunum sem BL flytur inn. Loftur segir áhugaverða þróun vera að eiga sér stað og líklegt að rafbílar muni verða enn meira áberandi á næstu miss- erum og árum. „Rafbíllinn Leaf frá Nissan, sem við kynntum nýlega er mest seldi raf- bíllinn á heimsvísu og þykir m.a. hafa það sem styrkleika að vera á allan hátt „venjulegur“ bíll af rafmótornum undanskildum. Það hefur loðað við rafbíla að vera helst til skrítnir og framúrstefnulegir og markaðurinn var greinilega tilbúinn að fá venjuleg- an rafbíl sem nýtist sem fullgildur fjölskyldubíll. Ekki skemmir heldur fyrir að Leaf varð nýlega fyrsti raf- bíllinn til að fá fimm stjörnur í evr- ópskum árekstrarprófunum.“ Frá Keflavík til Selfoss Um leið og rafbíllinn Leaf var kynnt- ur á Íslandsmarkaði skrifuðu BL, Nissan og Orkuveita Reykjavíkur undir samstarfssamning um uppsetn- ingu og rekstur hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla í dreifikerfi sem teygir sig langt út fyrir borgarmörkin. Er tilgangurinn að auka þá vegalengd sem hægt er að ferðast á rafhleðsl- unni eingöngu. „Hleðslustöðvakerfið mun teygja anga sína frá Keflavík í vestri til Borgarness í norðri og að Selfoss í austri og stækkar þar með akstursdrægi rafbíla höfuðborgarbúa um 100 km í allar áttir,“ útskýrir hann. „Hleðslustöðvarnar eru mjög skilvirkar og geta hlaðið tóma raf- geyma upp í 80% hleðslu á aðeins 30 mínútum sem er hæfilegur tími til að teygja úr útlimunum eða fá sér hress- ingu eftir staðsetningu stöðvanna en sá þáttur er í höndum Orkuveit- unnar.“ Hleðslustöðvarnar eru þegar á leið til landsins og áætlað að þær fyrstu verið teknar í gagnið fyrir áramót. Þó að salan á rafbílum hafi farið hægt af stað hér á landi segir Loftur hægt að greina að áhuginn er að aukast og tiltrú neytenda á þessari nýju gerð bíla að vaxa ár frá ári. Viðbúið hafi verið að tæki tíma að sannfæra markaðinn um kosti raf- magnsbílanna en horfurnar séu góð- ar. „Við getum t.d. litið til Noregs þar sem rafmagnsbílar eru í dag búnir að taka fram úr hefðbundnum bens- ínbílum í sölu í nokkrum héruðum Noregs. Með þeim ívilnunum sem yf- irvöld þar í landi bjóða fyrir innflutn- ing rafbíla er verð þeirra orðið mjög samkeppnisfært við verð hefðbund- inna bíla með bensín- eða dísilvélum og því raunhæfur kostur fyrir þorra fjölskyldna sem eru t.a.m. með tvo bíla á heimili. Rafbíll eins og Leaf eru líka eins umhverfisvænn og bíll getur orðið auk þess sem kostnaður við orkuna sem bíllinn notar er ekki nema 10% af því sem fljótandi elds- neytið er að kosta.“ Sterk og létt álbygging Úr litlu rafmagnsbílunum yfir í ómót- stæðilega lúxusjeppana. Nýr Range Rover Vogue var kynntur fyrr á árinu og árgerð 2014 af Range Rover Sport lenti á sýningargólfinu hjá BL í september. Loftur segir að Land Ro- ver gefi að vanda engan afslátt af gæðum og akstursgetu en sparneyt- nin aukist í stórum stökkum. „Mikill árangur hefur náðst með því að bæta skilvirkni bílvélanna en nú eru nýjar aðferðir við smíði sjálfs bílsins að leiða förina og er burðarvirki nýja Range Rover Sport um 420 kg léttara en í fyrri árgerðum. Jafngildir það hér um bil tveimur Harley Davidson- mótorhjólum.“ Þetta mikla þyngdartap næst með því að steypa burðarvirkið í stærri einingum. „Framleiðsluaðferðin hef- ur verið kölluð mono-steyping og er sú aðferð sem notuð hefur verið við gerð flugvélaskrokka til margra ára. Gríðarstórar einingar úr áli eru steyptar í einu lagi og útkoman mun léttari og sterkbyggðari en ef bíllinn væri byggður úr mörgum sér- steyptum stálpörtum.“ Svipaða sögu er að segja af BMW að þar hafa stórir sigrar unnist í bar- áttunni við eldsneytiseyðsluna. „Við frumsýndum nýverið þrjá nýja bíla: 428 coupe, 525 dísil og 320d Grand Tourismo sem vekja ættu mikla at- hygli. Grand Tourismo-bíllinn er með dísilvél og eyðir ekki nema 4,5 lítrum á hundraðið á meðan fjórhjóladrifinn 525-bíllinn eyðir í kringum 5 lítrum. Þróunin í bílvélum hjá BMW hefur verið með ólíkindum og þarf ekki að leita langt aftur til að finna bíla í þess- um stærðarflokkum sem eyddu 10 lítrum á hundraðið. ai@mbl.is Auka drægi rafmagnsbíla út úr höfuðborginni í sam- starfi við OR og Nissan. Ný framleiðsluaðferð léttir Range Rover Sport um sem nemur tveimur Harleyum. Morgunblaðið/Ómar Framfarir „Gríðarstórar einingar úr áli eru steyptar í einu lagi og útkoman mun léttari og sterkbyggðari en ef bíllinn væri byggður úr mörgum sérsteyptum stálpörtum,“ segir Loftur Ágústsson markaðsstjóri um nýja Land Roverinn. Rafmagnsbílar eru í dag búnir að taka fram úr hefð- bundnum bensínbílum í sölu í nokkrum héruðum Fylking Mikið hefur verið um nýungar í verslun BL upp á síðkastið og bílaframleiðendur kynnt bæði sniðuga og sparneytna smábíla og úthugsaðar lúxus-drossíur sem eiga ríkt erindi við íslenska markaðinn. 8 | MORGUNBLAÐIÐ Fáir bílaframleiðendur hafa vaxið jafn hratt á heimsvísu og Hyundai sem kominn er nú þegar í hóp 5 stærstu framleiðenda í heiminum og stefnir hratt á að komast í 3 sæti. Sala og um- setning á Hyundai-bílum hér heima hef- ur fylgt þessari þróun eftir og á síðasta ári flutti Hyundai í nýja aðstöðu í Kaup- túni 1 í Garðabæ. Loftur segir þetta hafa verið gert til að fylgja þróuninni eftir og búa vörulínunni viðeigandi um- gjörð. Helsta nýjung Hyundai á síðustu misserum var kynning á nýjum Santa Fe-sportjeppa sem notið hefur mikilla vinsælda en von er á nýjum ix35 milli- stærðar-sportjeppa á næstunni og nýj- um i10-smábíl. „Meðal þess sem kaup- endur kunna mjög vel að meta er að öllum nýjum Hyundai-bílum fylgir fimm ára ábyrgð. Þessi ábyrgð er alveg óháð akstri og veitir mikið öryggi og fyr- irsjáanleika í öllum rekstri bílsins.“ Neytendur sækja í ábyrgðina Renault hefur verið að sækja mjög á síðustu árin með sparneytnum dísil- vélum og hagstæðu verði. Loftur bendir t.d. á að á síðasta ári hafi fleiri ein- staklingar og fyrirtæki keypt Renault Megane en seldust af helsta keppi- nautnum í stærðarflokkinum; Golf frá Volkswagen. Subaru á sér tryggan hóp við- skiptavina enda bíll sem er á marga vegu kjörinn fyrir íslenskar aðstæður. „Þeir sem hafa átt Subaru kaupa Sub- aru aftur og aftur vegna reynslunnar og gæða sem einkenna þessa bíla framar öðru. Eins og títt er um japanska fram- leiðendur kjósa þeir yfirleitt að fara hægt í sakirnar og breyta ekki breyt- inganna vegna heldur halda fast í það sem vel er gert með það að leiðarljósi að auka gæði framleiðslunnar og það er það sem íslenskir Subaru-kaupendur kunna að meta. Subaru kynnti nýlega fyrstu BOXER-dísilvélina sem framleidd er í heiminum en það eru einmitt þver- liggjandi BOXER-vélar og fjórhjóladrif sem í gegnum tíðina hafa gert það að verkum að Subaru-bílar eru öruggir í akstri við erfiðar aðstæður.“ Megane fram úr Golf og Subaru á sínum stað Aldur bílaflotans á landinu hefur hækkað mikið eftir hrun þar sem fjölskyldur hafa þurft að neita sér um að skipta eins ört um bíla og tíðkaðist á árunum fyrir hrun. Við þessar kringumstæður eykst mik- ilvægi fyrirbyggjandi viðhalds. BL býður viðskiptavinum sínum þjón- ustu sem Loftur segir að létti undir við rekstur bílsins með fyrirbyggjandi reglu- bundnu eftirliti, viðskiptavinum sínum að kostnaðarlausu. Þjónustan kallast léttskoðun og byggist á ýtarlegri ástand- sskoðun sem framkvæmd er á þar til gerðri skoðunarbraut. „Mikið hefur verið sótt í þessa þjónustu og er hægt að koma til okkar fyrirvaralítið með bílinn í þessa þjónustuúttekt. Í Léttskoðun er gengið úr skugga um að allt sé með felldu. Upplagt er að koma í léttskoðun ef ökumanni þykir eitthvað hafa breyst í bílnum eða ef hann verður var við ný hljóð í akstri. Ef eitthvað þarfnast við- gerðar þá kemur það fljótt í ljós og oft hægt að laga með minni tilkostnaði en ef vandinn hefði fengið að vera ógreindur. Léttskoðuninni getur líka fylgt ákveðin hugarró, vitandi að allt í bílnum virkar eins og það á að gera.“ Léttskoðun til að greina vandann strax ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN • TANGARHÖFÐA 4 110 REYKJAVÍK • SÍMI: 515-7200 • FAX: 515-7201 NETFANG: osal@osal.is • www.osal.is Nýtt á lager! Bodyhlutir á vörubíla Mercedes-Benz MAN Scania Volvo o.fl

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.