Morgunblaðið - 04.10.2013, Síða 10

Morgunblaðið - 04.10.2013, Síða 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ A skja er umboðsaðili fyrir Mercedes Benz-bifreiðar sem þekktar eru fyrir glæsileika og hugvits- samlega samsetningu og KIA sem hefur að sama skapi komið mörgum á óvart. Bilanatíðni bílanna hefur lækkað mjög á undanförnum árum og ábyrgist framleiðandinn nýja bíla í heil sjö ár. Að sögn Jóns Trausta Ólafssonar, framkvæmda- stjóra Öskju, kunna kaupendur af- skaplega vel við að sjö ára ábyrgð sé á nýjum KIA. Þeir hafa verið mjög góðir í endursölu og eftirsóttir á markaði nýrra bíla. „Þessi sjö ára ábyrgð hefur hitt algjörlega í mark. Neytendur eru að leita eftir bestu kaupunum í dag og hluti af því er að kaupa sér bíl sem er með lengstu ábyrgðina og KIA er með lengstu ábyrgðina sem er í boði á markaðnum í dag. Flestir aðrir eru með ábyrgð sem er frá tveimur árum til fimm ára. Ábyrgðin þýðir að almennur rekstr- arkostnaður og viðhaldskostnaður lækkar og þar af leiðandi lítum við svo á að þetta séu mjög skynsamleg kaup. Þeir gætu aldrei boðið þessa sjö ára ábyrgð ef framleiðandinn treysti ekki fyllilega þeirri vöru sem hann selur,“ segir Jón Trausti. Argandi villidýr á götunni Allar línurnar frá KIA hafa verið end- urnýjaðar á síðastliðnum árum en einnig hafa tvær gerðir bæst við á þessu ári. KIA Carens er sjö manna fólksbíll sem er einkar sparneytinn og rúmgóður. KIA CEÉD GT býr yf- ir rúmlega 200 hestöflum og er ætlað að keppa við VW Golf GTI. „Þetta er náttúrlega bara argandi villidýr, yfir 200 hestöfl og með mjög miklum bún- aði og það er hrein unun að aka bíln- um. Hann styrkir líka breiddina hjá KIA,“ segir Jón Trausti um sportbíl- inn sem framleiddur er í verksmiðju KIA í Slóvakíu og þykir ein sú full- komnasta í heimi. Hagkvæmir vöruflokkar Á milli ára hefur sala á fólksbílum frá Benz aukist um 25%. Í ljósi þess að bílamarkaðurinn hefur farið niður um 5% er athyglisvert að rýna aðeins í þessar sölutölur. „Það helgast í raun og veru af því að framleiðandinn nær mjög góðum árangri í sparneytnum vélum sem þýðir í raun hérna á Ís- landi að bílarnir falla í hagkvæma vöruflokka við tollafgreiðslu og eru þar af leiðandi samkeppnishæfari en þeir hafa verið áður. Mercedes Benz er það framarlega í allri þróun að þeir eru á undan markaðnum með þessar sparneytnu dísilvélar og nú eru þeir komnir með dísil-hybrid vélar.“ Það er margt framundan hjá Benz. Raf- bíll er væntanlegur á markaðinn á næsta ári, nýr C-Class og GLA- smájeppi verður sömuleiðis kynntur. Nýr E-Class var nýlega kynntur og seinna í vetur kemur nýr S-Class. At- vinnubílaflotinn mun einnig taka stakkaskiptum þegar nýr og spar- neytinn Sprinter kemur á markað með öllum þeim búnaði sem fæst í fólksbílunum frá framleiðandanum. Skynjar þreytu ökumannsins Tækninýjungar tengdar öryggi eru af ýmsum toga hjá þýska risanum. Á meðal nýjunga er fjarlægðarskynjari sem skynjar hversu hratt bílstjórinn nálgast næsta bíl fyrir framan í um- ferðinni. Hann lætur bílstjórann vita ef hann nálgast bíl óreðlilega hratt og hægir á sér. Akreinavari er enn ein nýjungin og virkar þannig að hann stýrir bílnum aftur inn á akreinina ef bíllinn er að fara að rása út af. Síðast en ekki síst ber að nefna þreytuskynj- arann. Hann les í aksturslag öku- mannsins og skynjar ef ökumaðurinn er farinn að taka óvenjulegar ákvarð- anir við aksturinn. Þá blikkar kaffi- bollaljós í mælaborðinu til að minna ökumanninn á að ef til vill sé ekki af- leit hugmynd að stoppa eins og eitt andartak. malin@mbl.is Rennilegur Mercedes-Benz leggur mikið upp úr glæsileika og tækninýjungum. Hér er GLA 220 CDI. Samkeppni Nýjum Ceéd GT er ætlað að keppa við VW Golf GTI á markaði Sportlegur Ceéd GT er hlaðinn aukabúnaði og er hvergi til sparað. Kynslóðaskipti Sprinter kemur með sparneytinni vél og vönduðum staðalbúnaði. Nýr sportbíll og þreytuskynjari Á hverju hausti er mikill erill hjá bílaumboðunum þegar nýjar árgerðir bíla koma í hús. Askja er þar engin undantekning og eru margir bílaáhugamenn spenntir að fá að prófa þar væntanlegar gerðir. „Ábyrgðin þýðir að al- mennur rekstrarkostnaður og viðhaldskostnaður lækkar og þar af leiðandi lítum við svo á að þetta séu mjög skynsamleg kaup. Þeir gætu aldrei boð- ið þessa sjö ára ábyrgð ef framleiðandinn treysti ekki fyllilega þeirri vöru sem hann selur,“ Framkvæmdastjórinn Jón Trausti Ólafsson við fjölskyldubílinn KIA Carens. Smájeppi Mercedes-Benz GLA 220 CDI verður kynntur á næsta ári. Smiðjuvegur 2, 200 Kópavogur www.bifreidaverkstaedi.is s. 587 1350 TOYOTA ÞJÓNUSTA ALLAR ALMENNAR BÍLAVIÐGERÐIR Nýtt á Bifreiðaverkstæði Kópavogs, HJÓLASTILLINGAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.