Morgunblaðið - 04.10.2013, Blaðsíða 12
12 | MORGUNBLAÐIÐ
Öflugir TUDOR High Tech
rafgeymar fyrir jeppa.
U
nnendur Porsche hafa haft
yfir mörgu að gleðjast upp
á síðkastið. Hefur verið
hálfgerð hátíðarstemning
hjá Bílabúð Benna á árinu
en því var fagnað í ár að hálf öld er
liðin frá því að fyrsti Porsche 911-
bíllinn leit dagsins ljós. „Nýr 911 kom
á markað og hefur hlotið mjög góða
dóma. Það er helst að hörðustu
Porsche-aðdáendur finni bílnum það
til foráttu að vera of góður. Í gegnum
tíðina hafa 911 bílarnir verið þekktir
ekki aðeins fyrir kraftinn heldur fyrir
að vera óargadýr sem gerði kröfur til
ökumannsins en með nýrri tækni
grípur búnaður bílsins inn í áður en
ökumaðurinn missir stjórn og því er
hann virkilega akstursvænn,“ segir
Björn Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri bílasviðs. „Í október munum
við svo kynna 911 Turbo sem er einn
öflugasti fjöldaframleiddi bíll heims
með 560 hestafla vél og er að fá lof-
samlegar umsagnir hjá bílagagnrýn-
endum um allan heim.“
Björn segir 911-línuna alla jafna
ekki seljast í mörgum eintökum hér á
landi en tryllitækið eigi sína dyggu
fylgismenn sem líta á bílinn sem ann-
að og meira en ökutæki. „Í huga
margra er það að kaupa 911 líkara
því að kaupa listaverk eða safngrip
heldur en bíl. Því er heldur ekki hægt
að neita að ef litið er til verðþróun-
arinnar í sögulegu samhengi má eiga
von á að 911 sé með betri fárfest-
ingum sem völ er á því bílarnir hafa
reynst halda sér mjög vel í verði og
jafnvel verða verðmætari eftir því
sem árin og áratugirnir líða.“
„Skemmtilegur að eiga og aka“
Af allri Porsche-línunni eru það Ca-
yenne-bílarnir sem seljast best á Ís-
landi. Björn segir íslenska mark-
aðinn mjög hrifinn af dísilútgáfunum
af Cayenne. „Bíllinn er að eyða 7,2
lítrum á hundraðið í blönduðum
akstri, er samt ekki nema 7,6 sek-
úndur í hundraðið og er útkoman
gríðarlega skemmtilegur bíll að eiga
og aka.“
Cayenne-salan segir Björn að sé
smám saman að ná sér aftur á strik
eftir byltuna sem varð í kjölfar efna-
hagshruns. „Þrátt fyrir að bíllinn sé
virkilega vel búinn þá gefst við-
skiptavinunum okkar tækifæri á að
„sérsníða“ bílinn eftir eigin höfði.
„Hægt er að velja úr fjölda aukahluta
og breytinga, frá áklæðinu á sæt-
unum og lakkinu á ytra byrðinu yfir í
alls konar þægindi og lausnir sem
auka á öryggið og notagildi bílsins
eða gera aksturinn léttari. Margir
setja saman draumabílinn með for-
ritum sem finna má á alþjóðlegum
heimasíðum Porsche og koma með
útprentunina til okkar en öðrum þyk-
ir gott að setjast niður með þaul-
reyndum sölumanni og fara í samein-
ingu yfir hvað er gott að velja.
Sumum þykir gagnlegt að fá t.d. stíl-
ráðgöf við val á litum á meðan aðrir
vilja tryggja að bíllin sé þannig sam-
ansettur að auki líkurnar á góðri end-
ursölu seinna meir. Afgreiðslutíminn
er svo aðeins 5-6 vikur.“
ai@mbl.is
worldwide unlimited
Gripur Gamall og nýr 911. Tryllitækið í Porsche-fjölskyldunni hefur verið tamið í nýasta bílnum sem þykir vera sérlega ökumannsvænn. Fegurðin fer heldur ekki framhjá neinum og eldist bíllinn vel.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Pöntun Björn Ragnarsson segir kaupendur vilja sérsníða bílin að sínum þörfum .
Tákn Porsche á sér langa sögu.
Smellur Cayenne er vinsælasti Porsche bíllinn á Íslandi enda kostum prýddur.
Kynna 911 Turbo í októ-
ber: 560 hestafla trylli-
tæki sem rakar að sér
góðum dómum. Cay-
enne leiðir söluna og
kaupendur sérsníða bíl-
inn að smekk sínum og
þörfum.
Í október munum við svo
kynna 911 Turbo sem er
einn öflugasti fjölda-
framleiddi bíll heims með
560 hestafla vél.
Tókst „of“ vel upp við nýja 911
Chevrolet hefur látið að sér kveða á íslenska markaðinum og
er nú orðin þriðja söluhæsta bíltegundin með 8,5% markaðs-
hlutdeild. „Við höfum lagt mikla áherslu á að bjóða vel búna
bíla á hagstæðu verði. Chevrolet er yfir 100 ára gamalt fyr-
irtæki og er það hluti af General Motors sem er einn stærsti
bílaframleiðandi heims.“ segir Björn. „Í byrjun þessa árs
kynntum við Volt og það verður forvitnilegt að sjá hvernig
þróunin verður í rafmagnsbílum á næstu árum. Volt hefur
sýnt að hann henti vel íslenskum aðstæðum og blandi saman
á góðan hátt sparneytni og löngu drægi. Verðið á Volt var að
lækka um 500 þús. fyrir skömmu og er hann nú í verðflokki á
við jeppling. Áhugi kaupenda fer vaxandi enda fer gott orð af
bílnum og hefur hann t.d. í tvö ár lent í efsta sæti í könnunum
þar sem mælt er hvort eigendur bíla myndu kaupa samskonar
bíl aftur.“
Spark-smábíllinn hefur slegið í gegn og segir Björn að eft-
irspurnin sé greinilega sterk eftir ódýrum og nettum bæjar-
bílum. „Það er alveg magnað að geta keypt nýjan bíl fyrir inn-
an við tvær milljónir króna og þetta eru hagkvæmir bílar þar
sem ökumaðurinn situr nokkuð hátt, liprir í akstri og ráða vel
við slabb og vetrarveður. Nýjasta árgerðin er útbúin Blue-
tooth-tengingu svo hægt er að tengja snjallsímann við hljóm-
tækin þráðlaust,“ útskýrir hann. „Enn eru jepplingarnir vin-
sælasti stærðarflokkurinn hér á landi en smábílarnir hafa
sótt hratt á upp á síðkastið og ef fram heldur sem horfir verð-
ur skiptingin á endanum hér eins og hún er t.d. í Danmörku
þar sem á bilinu 50-60% af nýjum bílum eru smábílar.“
Björn segir að á síðustu árum hafi orðið algjör endurnýjun
á framboði Chevrolet. „Flestir þekkja vel Captiva-jepplinginn
sem hefur verið á markaðnum frá 2006. Captiva er 7 manna
með öflugri 184 hestafla dísilvél og sjálfskiptur. Fyrr í þessum
mánuði kynnti Bílabúð Benna Chevrolet Trax sem er litli bróð-
ir Captiva-sportjeppans: nokkuð minni en þó rúmgóður og
boðinn með sparneytinni 1,7 l dísilvél.“
Spark slær í gegn og Volt lofar góðu
Hönnun Stæðilegur framsvipurnn einkennir merkið.
Stíll Jepplingar Chevrolet þykja vel heppnaðir í alla staði.