Morgunblaðið - 04.10.2013, Page 19

Morgunblaðið - 04.10.2013, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ | 19 Sixt rent a car - Fiskislóð 18 - 101 Reykjavík - Sími: 540 2222 - www.sixt.is - langtimaleiga@sixt.is 10.000 Vildarpunktar Icelandair í október Ert þú til í langtímasamband? (Sixt langtímaleiga - fast mánaðargjald - engin óvænt útgjöld) A lmennt er reglan sú að eftir því sem bílarnir eru dýrari, því eigulegri eru þeir. Að þeysa um götur á heimsins kröft- ugustu og glæsilegustu bifreiðum er enda ekki á færi nema þeirra allra ríkustu. Dýrustu bílar heims kosta sumir á við einbýlishús á besta stað í Reykjavík og varla nema fyrir alþjóðlega auðjöfra, poppstjörnur og kóngafólk að sýna sig á þeim. En hverjir eru dýrustu bílarnir í dag? Ef undan eru skildir sérsmíð- aðir kostagripir sem aðeins eru seldir til útvalinna fyrirmenna, og safngripir sem slá met á upp- boðum, þá situr samt eftir allstór flokkur bíla sem hægt er að kaupa út úr næsta útibúi ef kortaheimildin leyfir. Til hægð- arauka er verðið hér að neðan gefið upp í bandaríkjadölum en óhætt er að tvöfalda verðið eða þar um bil til að sjá hvað bílarnir myndu kosta lentir á íslenskri grundu. Sportbílarnir frá Bugatti eru ekki aðeins þeir hraðskreiðustu heldur líka þeir dýrustu sem kaupa má. Þeir sem vilja eiga Bu- gatti Veyron 16,4 Grand Sport Vitesse í bílskúrnum þurfa að reiða fram að lágmarki 2,2 millj- ónir dala, um 264 milljónir króna. Hraðinn er dýru verði keyptur. Ekki síðri er Pagani Huyra sem er kannski með ögn lægri hámarkshraða en Bugattíinn en þeim mun liprari á keppnisbraut- inni. Síðustu tölur benda til þess að þessi handsmíðaði óður til bíla- hönnunar kosti um 1,5 milljónir dala, jafnvirði 180 milljóna króna. Ofursportbíllinn P1 frá McLa- ren er ekki mikið ódýrari, og heldur ekki mikið síðri. Þessi tvinn-mótors 727 hestafla kaggi á eftir að kosta um 1,3 milljónir dala þegar sala hefst á næsta ári. Í samanburði við dýrustu bíl- ana virðist Aventador frá Lam- borgini nánast ódýr. Öll 700 hest- öflin má eignast fyrir 387.000 dali. Ekki langt fyrir neðan er SLS AMG frá Mercedes Benz, með vængjahurðunum frægu, verðlagður á um 200.000 dali. Í svipuðum verðflokki lendir hinn knái og þokkafulli McLaren MP4 en árgerð 2013 kostar á Banda- ríkjamarkaði 239.000 dali sam- kvæmt Motor Trend. Í og við 300.000 dala markið eru líka Benteley Mulsanne (290.000), Ferrari FF (233.000), Ferrari Italia (261.000) og Aston Martin Rapide (226.000). Bílarnir frá Rolls Royce eru þeir dýrustu í fernra dyra flokkn- um. Kostar 2013 árgerðin af Phantom frá 400 til 470.000 dali sem jafngildir u.þ.b. 48 til 56 milljónum króna enda nostrað við bílinn í hólf og gólf. Þessir stóru drekar eru hlaðnir lúxusþæg- indum og kalla helst á það að hafa einkabílstjóra á launum. ai@mbl.is Blöðkur Hönnun Huyra brýtur hefðirnar á yndislegan hátt. Horn Aventador er ómótstæðilegur ítalskur tuddi.Formúga Á Bugatti er auðvelt að safna hraðasektum. Dýrustu bílar heims Nettur McLaren MP4 Spider er snagg- aralegur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.