Morgunblaðið - 04.10.2013, Síða 21

Morgunblaðið - 04.10.2013, Síða 21
hæðin sé nýtt og hilluplássið byggt hærra upp í loft. „Sama er í raun að segja um húsnæðið í heild. Við erum hér með 12.000 fermetra en vorum á 15.000 fermetrum áð- ur. Þar fór aftur á móti meira pláss í ganga, stigaganga, kjallara og skúmaskot. Hér fer aftur á móti ekki fersentimetri til spillis. Að hafa allt á einum stað er gríð- arlegur munur fyrir starfsfólkið og í framhaldinu fyrir viðskiptavini.“ Námskeið og líkamsrækt Í húsnæði Toyota er talsvert rými helgað starfsfólkinu, bæði til fundahalds, námskeiðasetu og ein- faldlega til líkamsræktar. „Við leggjum áherslu á að búa vel að starfsfólkinu okkar og erum með rúmgóða búningsaðstöðu sem jafn- ast á við það sem þekkist í með- alstórri sundlaug,“ segir Páll. „Líkamsræktarstöðin okkar er einnig býsna vel tækjum búin með almennilegum tækjum. Enda er stöðin vel sótt af starfsfólki sem gerir til dæmis mikið af því að koma í hádeginu og taka á því. Annars er stöðin onuð kl. sjö á morgnana og er opin til átta á kvöldin. Afsakanir fyrir því að komast ekki í ræktina bjóðast því engar,“ bætir Páll við og kímir. Í starfsmannasvæðinu er einnig að finna fundarherbergi sem Páll segir að kallist í daglegu tali „kennslustofan“ meðal starfsfólks, þó nær væri að tala um ráð- stefnusal, slíkt er flatarmálið. „Kennslustofa er engu að síður réttnefni því við starfrækjum það sem kallast Toyotaskólinn og erum stöðugt með námskeið. Þegar við fáum nýjan Auris eða nýja Co- rollu, svo dæmi sé tekið, þá eru tækninámskeið fyrir tæknimenn og bifvélavirkjana, sérstök sölu- námskeið fyrir sölumennina um hvern einasta bíl þar sem allt sölu- kerfið okkar kemur, og þá koma menn frá áðurnefndum söluaðilum, jafnt Akureyri sem og Selfossi og Reykjanesbæ, til að fræðast um nýja Corollu og allt sem að henni snýr. Hér er því nokkuð stíf starf- semi í þjálfun og endurmenntun. Tækniþróunin er einfaldlega það hröð að það er alltaf að gerast eitthvað nýtt og því þarf stöðugt að kenna það sem nýjast er.“ Mest munar um flæðið Sem fyrr sagði er starfsemin í heild sinni undir einu þaki við Kauptún, þar með talið standsetn- ing, réttingar og sprautun, þvotta- og bónstöð. Það er því ljóst að munurinn er margvíslegur þegar nýju húsakynnin eru borin saman við þau gömlu. Spurður um það í hverju mesti munurinn liggi að hans mati svarar Páll því til að það sé flæðið sem hið opna rými bjóði upp á. „Við fundum það strax á fyrsta degi hversu miklu munar að hafa einn inngang, sama hvert erindið er. Áður þurfti fólk að fara út og inn annars staðar til að komast á milli deilda hjá okkur, enda deildirnar í hólfum og gang- arnir enduðu oft í öngstræti. Þetta er meira eins og „mall“ hér í Kauptúninu og upplifun gesta eftir því. Og svo má ekki gleyma því að við erum alltaf með nóg af bíla- stæðum,“ segir Páll að endingu. jonagnar@mbl.is Varahlutalagerinn Minna gólfpláss er undir lagerinn í Kauptúninu en var á gamla staðnum; munurinn liggi í því að lofthæðin sé nýtt og hilluplássið byggt hærra upp í loft. Ekkert pláss til spillis. Klæðskeralausn „Verkstæðið var því skipulagt og innréttað nákvæmlega eins og við teljum að henti best fyrir svona starfsemi í byrjun 21. aldarinnar,“ segir Páll um verkstæðið í húsinu. MORGUNBLAÐIÐ | 21 522 4600 www.krokur.net Krókur er sérhæft fyrirtæki í flutningum og björgun ökutækja. Ef bíllinn þinn bilar er mikilvægt að fá fagmenn til að flytja bílinn á réttan og öruggan hátt. Krókur býður m.a. uppá:                24 stunda þjónustu allt árið um kring                   Taktu Krók á leiðarenda    !" #$% &  á þinni leið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.