Morgunblaðið - 04.10.2013, Blaðsíða 22
22 | MORGUNBLAÐIÐ
Ekki ætti að koma á óvart ef Arctic
Trucks heldur áfram að vaxa í allar
áttir. Fyrirtækið hefur t.d. verið að
gera áhugaverða hluti á dekkjasvið-
inu. „Þróunarvinnan við Arctic
Trucks-dekkið hófst árið 1997 að mig
minnir og framleiðslan leit dagsins
ljós árið 2005. Þetta er eina 38
tommu dekkið fyrir 15 tommu felgur
sem gagngert er hannað fyrir akstur
í snjó og ís. Dekkið hefur líka þann
eiginleika að henta vel í almennan
akstur og er lygilega hljóðlátt þegar
ekið er á malbiki. Oft hefur það verið
ókostur við stærstu dekkin að þau
gefa frá sér mikinn nið á vegum en
dekkið frá Arctic Trucks hentar jafn
vel hvort sem ekið er um snjóbreiður
á hálendinu eða skotist út í stór-
markað.“
Arctic Trucks á Íslandi hefur á síðustu
misserum látið að sér kveða í ferða-
þjónustunni með því sem kallað er
The Arctic Trucks Experience. „Nokk-
ur leiðsögufyrirtæki bjóða upp á jökla-
ferðir á sérútbúnum bílum þar sem
ferðamennirnir eru einfaldlega farþeg-
ar en hjá okkur fær viðskiptavinurinn
að vera undir stýri á meðan leiðsög-
maður veitir tilsögn við aksturinn. Við
höfum yfir að ráða fimm bílum fyrir
þetta verkefni á bæði 38 og 44
tommu dekkjum og eru hálfs-
dagsferðirnar vinsælastar.“
Gaman er að heyra Steinar segja
frá að þeir sem fá að aka tryllitækj-
unum eru ekki endilega að sækjast
eftir því að þvera tiltekinn jökul eða
spana upp á tiltekinn tind. „Mesta
fjörið er einfaldlega að komast í snjó-
inn og oft nóg að spana um á jökul-
sporðinum, spóla og festast nokkrum
sinnum og verja drjúgum tíma í að
moka bílinn lausan. Þó svo ekki hafi
tekist að aka langa vegalengd koma
ferðamennirnir aftur í bæinn af-
skaplega sáttir.“
M
örgum kemur á óvart að
læra hversu umfangs-
mikill reksturinn er
orðinn hjá íslenska
jeppabreytingafyr-
irtækinu Arctic Trucks. Starfsemin
á Íslandi er í dag orðin aðeins lítill
hluti af alþjóðlegu veldi sem nær til
flestra heimsálfa.
Arctic Trucks verður til upp úr
aukahlutadeild Toyota-umboðsins
árið 1990 en slítur sig frá þeim
rekstri sem sjálfstætt fyrirtæki árið
2005. Eftir það varð þróunin mjög
hröð og Arctic Trucks varð á auga-
bragði þekkt nafn í heimi jeppa-
breytinga. „Kom þar m.a. til bíla-
þátturinn vinsæli Top Gear sem árið
2007 hélt í leiðangur á norðurpólinn
á bílum frá okkur. Var Arctic Trucks
nafnið þar mjög áberandi og er þessi
þáttur enn þann dag í dag sýndur
reglulega á sjónvarpsstöðvum um
allan heim,“ segir Steinar Sigurðs-
son sölustjóri. „Top Gear leitaði svo
aftur til Arctic Trucks um fimm ár-
um síðar til að aka upp að eldgosinu
á Eyjafjallajökli. Þar notuðum við að
nýju einn af bílunum sem ekið hafði
verið á norðurpólinn eftir að hafa
skellt á hann járnplötum og hlífum.“
Risaverkstæði í Noregi
Í dag er svo komið að Arctic Trucks
er með starfsstöðvar í ótal löndum.
„Stærst er verksmiðja okkar í Nor-
egi sem þjónustar bæði norskan al-
menning og er með sérstakan samn-
ing við norska herinn. Starfsemin
þar er í 4.000 fm húsnæði og á alla
vegu miklu stærri en það sem er í
gangi hérna á Íslandi. Í Dúbaí rek-
um við líka verkstæði í samstarfi við
Toyota-umboðið í borginni. Þó ekki
sé mikið um snjó og jökla á Arab-
íuskaganum þá reynist eyðimerk-
ursandurinn kalla á sams konar sér-
útbúna bíla, og dekk sem geta
nánast flotið ofan á gljúpu undirlag-
inu,“ útskýrir Steinar og bætir við
að um 5-6 starfsmenn séu í Dúbaí, í
kringum 20 á Íslandi og hafi farið
upp í um 70-80 í Noregi þegar mest
var.
„Á þessu ári vorum við svo að
opna samstarfsútibú (e. franchise) í
Kasakstan. Möguleikarnir á mark-
aðinum þar í landi blasa kannski
ekki við en Kasakstan er hrjóstrugt
land og býr þar fólk sem á mikið af
peningum þökk sé olíuiðnaðinum.
Svipaða sögu er að segja af Rúss-
landi þar sem við vinnum með
stærsta Toyota-umboði landsins
sem fær að nota merki Arctic
Trucks á 7-8 sölustöðum vítt og
breitt um þetta stóra land.“
Um skeið var rekið útibú í Bras-
ilíu en sú starfsemi virðist vera að
renna sitt skeið á enda. Reksturinn
er hins vegar í góðu standi hjá Arctic
Trucks í Suður-Afríku. Steinar segir
fyrirtækið hafa byggt upp umfangs-
mikið þjálfunar- og gæðaeft-
irlitskerfi og er þess gætt af mikilli
samviskusemi að hvergi sé vikið frá
þeim háu stöðlum sem vörumerkið
Arctic Trucks er þekkt fyrir.
„Starfsmenn samstarfsaðila okkar
ganga í gegnum ítarlegt fræðsluferli
og reglulega gerðar ítarlegar úttekt-
ir á vinnubrögðunum á hverjum
stað.“
Innanlandsmarkaður snarstoppaði
Aljóðlega starfsemin kom sér heldur
betur vel þegar kreppan knúði dyra
enda segir Steinar að umsvifin á Ís-
landi hafi minnkað mjög strax eftir
bankahrunið. „Árið 2008 runnu í
kringum 300 bílar í gegn hérna hjá
okkur í stórum eða litlum breytinga-
verkefnum en árið 2009 voru þetta
samtals níu stykki. Það má því tala
um snarstopp.“
Smám saman hefur þó ástandið
farið skánandi og bæði að innlendir
neytendur og svo erlendir kúnnar
sjá starfsmönnum verkstæðisins
fyrir verkefnum. „Við vorum t.d. ný-
lega að smíða 6x6 Hilux fyrir erlend-
an viðskiptavin og var þetta vígalega
ökutæki m.a. sýnt á 4x4 sýningunni
hér um daginn, við mikla hrifningu.
Eins er mikið að gera í verkefnum
fyrir landkönnuðahópa sem vilja
spreyta sig á suðurskautinu og fara
þá ýmist á bílunum sjálfum eða nota
þá sem stuðningsfarartæki á meðan
ferðast er á pólinn með öðrum
hætti.“
Íslensku neytendurnir gæta ögn
meira hófs í breytingunum nú en
þegar mest gekk á. „Fáir biðja okk-
ur um að gera stórbreytingar á bíl-
unum og algengast að verið sé að
gera rétt það sem þarf til að koma
jeppunum á 33 tomma dekk.“
ai@mbl.is
Sköpun Eflaust á þessi öflugi jeppi eftir margar ævintýralegar ferðir. Vandað Starfsmaður gaumgæfir hvert smáatriði enda gæðin ofar öllu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Möguleikar Steinar Sigurðsson segir nýjasta útibúið í Kasakstan. „Möguleikarnir á markaðinum þar í landi blasa kannski
ekki við en Kasakstan er hrjóstrugt land og býr þar fólk sem á mikið af peningum, þökk sé olíuiðnaðinum.“
Eru með starfsstöðvar
og útibú á ótalmörgum
stöðum á jarðkringlunni.
Nafn Arctic Trucks orðið
mjög þekkt í heimi
breyttra jeppa.
Grip Það dugar ekkert minna.
Kasakstan er hrjóstrugt
land og býr þar fólk sem á
mikið af peningum þökk sé
olíuiðnaðinum.
Arctic Trucks leggja undir sig heiminn
Íslenska
undradekkið
Skælbrosandi
ferðamenn
HE IMSKLASSA HLJÓMFLUTN INGUR
S K E I F A N 1 1 · S Í M I 5 3 0 2 8 0 0 · W W W . O R M S S O N . I S
SÍMI 550 4444
WWW.BT.IS
BÍLGEISLASPILARI · DEH-150MP
4X50 W MOSFET magnari · Útvarp með 24 stöðva minni · Spilar MP3,
WMA, WAV, CD-R/RW · AUX tengi á framhlið · Hægt að tengja við
fjarstýringu í stýri · EEQ, Tónstillir fyrir bassa, mið- og hátóna.
Verð: 19.900
BÍLGEISLASPILARI · DEH-4500BT
4X50 W MOSFET magnari · Útvarp með 24 stöðva minni · Spilar MP3,
WMA, WAV, CD-R/RW · AUX og USB tengi á framhlið · iPod í gegnum
USB · Bluetooth, mic fylgir · EEQ, Tónstillir fyrir bassa, mið- og hátóna.
Verð: 37.900,- kr.
Veldu vandað – það borgar sig alltaf.
Úrval af
gæðahátölurum
frá Pioneer