Morgunblaðið - 04.10.2013, Side 38

Morgunblaðið - 04.10.2013, Side 38
Fallegir bílar kalla á rétta klæðnaðinn, ekki bara vegna notagildisins heldur líka vegna útlitsins. Er t.d. þekkt að mörgum þykir betra að vanda valið á skóm ef til stendur að tipla og trampa á bensíngjöfinni. Það er ekki auðvelt að spana í skóm sem gefa of mikið eða of lítið eftir, eða eru svo stórir að þeir fylla upp í fótarýmið. Góðir ökuhanskar eru líka eitthvað sem margir geta ekki verið án. Deilt er um hversu nauðsynlegt er að klæðast hönskum við akstur í dag og þörfin kannski ekki sú sama og fyrir 50 árum eða svo þegar veitti ekki af góðu gripi á stýrinu og hitastigið í farþegarýminu var heldur ekki alltaf nógu þægilegt. Að notagildinu slepptu er samt eitthvað svo snoturt við það að þeysast um á glæsilegri bifreið (sér í lagi ef taka má toppinn niður) og láta hendurnar hvíla á stýrinu klæddar í fallega ökuhanska úr leðri. Snotru hanskarnir á myndunum hér til hliðar eru frá breska fyrirtækinu Dents sem gert hefur hanska allt síðan 1777. Hanskarnir eru handgerðir úr besta fáanlega leðri og gætt vandlega að hverju smæsta smáatriði. Hanskarnir fást í netversluninni MrPorter.com og kosta 57.96 pund. ai@mbl.is Svo hendurnar fari vel á stýrinu Snotur baksvipur sem þekkist hvar sem er Morgunblaðið/Kristinn Þjarkur „Bæði hafa Skoda-bílar öðlast orðspor sem sterkbyggðir og áreiðanlegir bílar en líka hagkvæmir jafnt í kaupum sem rektsri,“ segir Sigurður um bíla tékkneska framleiðandans. Skoda er vinsælli á Íslandi en í öðrum löndum V-Evrópu. G aman hefur verið að fylgj- ast með þróuninni hjá Skoda síðustu áratugina. Þessi eldgamli tékkneski bílaframleiðandi hóf framleiðslu reiðhjóla árið1895 en fyrsta bifreiðin leit dagsins ljós árið 1905 og er Skoda því í smáum hópi réttnefndra öldunga í geiranum. Merkið dalaði eftir að járntjaldið lagðist yfir Austur-Evrópu en eftir hrun Berlínarmúrsins eignaðist Volkswagen verksmiðjur Skoda og upphófst nýtt blómaskeið. Íslendingar hafa líka tekið sér- stöku ástfóstri við tegundina og hvergi í Vestur-Evrópu á Skoda stærri hlutdeild í bílamarkaðinum. „Mikil uppbygging átti sér stað eftir kaup VW og Tékkarnir, sem eru miklir tæknimenn, gátu látið ljós sitt skína á ný,“ segir Sigurður Sigurðsson, sölustjóri Skoda hjá Heklu. „Bæði hafa Skoda-bílar öðl- ast orðspor sem sterkbyggðir og áreiðanlegir bílar en líka hag- kvæmir jafnt í kaupum sem rekstri. Þeir hafa verð tryggir einkunn- arorðum sínum, „Simply Clever“ og útbúa bíla sem gagnast fólki vel og eru eins og sniðnir fyrir þarfir fjöl- skyldunnar. Í ofanálag hefur tekist vel til með útlit bílanna upp á síð- kastið, aukið samræmi í útlits- hönnun yfir alla línuna og tekist að skapa vel heppnaðan og auðþekkj- anlegan afturhluta á öllum Skoda- bifreiðum þar sem C-laga ljós setja sterkan svip á baksvipinn.“ Hvorki of stór né of smár Octavia hefur um langt skeið verið vinsælasti bílinn í Skoda-flotanum og jafnan í efstu sætum yfir sölu- hæstu bíla hvers árs hér á landi. Sigurður segir vinsældir Octaví- unnar síst hafa dalað eftir hrunið og bíllinn hafi sannað sig rækilega sem kjörinn heimilisbíll. „Hann dugar vel sem eini bíllinn á heim- ilinu og er hvorki of stór né of smár til að mæta kröfum íslensks al- mennings. Hann ratar líka á rétta verðbilið þar sem ódýrasta útgáfan, kostar 3.790 þús. en vinsælasta módelið í dag kostar um 4.060 þús og bíllinn nær eingöngu seldur með dísilmótor.“ Sigurður segir smábílana Citigo og Fabia líka njóta mikilla vinsælda um þessar mundir og markaðinn greinilega hrifinn af smáum, liprum og sparneytnum bæjarbílum. Jepp- lingurinn Yeti á líka sína aðdá- endur. „Fabian hefur verið á mark- aðinum í núverandi útgáfu síðan 2007 og von á áhugaverðum hönn- unarbreytingum með næsta módeli. Sama er að segja um Yeti sem leit dagsins ljós árið 2010 og fær and- litslyftingu í byrjun næsta árs.“ Eðalvagninn Superb hefur einnig vakið athygli. „Þetta flaggskip Skoda hefur m.a. slegið í gegn með- al íslenskra leigubílstjóra og varla hægt að finna kröfuharðari við- skiptavini. Bílstjórarnir hafa komið þarna auga á glæsilegan bíl sem þolir mikla notkun og er hag- kvæmur í rekstri. Nýlega var gerð breyting á vélinni í Superb 4x4. Nú skilar hann 170 hestöflum en jafn- framt lækkar kolefnislosun bílsins svo hann lækkar í vörugjaldaflokki úr 35% niður í 25% með samsvar- andi lækkun á verði til kaupenda og er því kjörinn sem ráðherra- bifreið.“ ai@mbl.is Skoda hefur verið að gera skemmtilega hluti og heldur áfram að höfða sterkt til íslenskra neytenda. Hann dugar vel sem eini bíllinn á heimilinu og er hvorki of stór né of smár til að mæta kröfum íslensks almennings. Hann ratar líka á rétta verðbilið. 38 | MORGUNBLAÐIÐ Ákveðin atriði í hegðun neytenda hafa breyst eftir bankahrunið. Sigurður seg- ir að lán standi enn til boða þó svo að lánshlutfallið hafi lækkað og lánafyr- irtækin geri strangari kröfur. Þó að lánin séu fáanleg velji margir að stað- greiða bílinn. „Menn eru þá að selja gamla bílinn upp í þann nýja og greiða mismuninn út í hönd.“ Hann segir eldri viðskiptavini spennta fyrir minnstu bílunum, ólíkt því sem oft hefur verið. „En yngstu viðskiptavinirnir eru sjaldséðir, sennilega vegna þess að sá aldurshópur situr enn uppi með þungar byrðar í kjölfar hrunsins og svigrúmið er lítið fyrir kaup á nýjum bíl.“ Sigurður segir þess gætt í Heklu að eiga til vinsælar samsetningar af Skoda á lager en þeir sem vilja sníða bílinn algjörlega að eigin þörfum eiga þess kost og er þá biðtíminn oftast á bilinu 10-12 vikur. „Meðal þess sem kaupendur vilja sérpanta eru t.d. sóllúgur eða leðuráklæði á sætin, en ef bíll- inn er til í réttri útgáfu og rétta litnum á ekki að þurfa að taka nema 2-3 daga að fá nýja bílinn afhentan.“ Margir staðgreiða mismuninn Ice scraping is a thing of the past! With a Webasto parking heater. Enjoy the comfort and safety provided with a parking heater and choose from different control options with great useability. www.parkingheater.com T91 Thermo Call with AppHTM100 Aldrei að skafa! Með Webasto bílahitara. Þú hitar bílinn með fjarstýringu og þannig getur þú notið þæginda og öryggis. BÍLASMIÐURINN HF Bíldshöfða 16 110 Reykjavík sími 567 2330 bilasmidurinn@bilasmidurinn.is www.bilasmidurinn.is Thermo call með pp

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.