Morgunblaðið - 04.10.2013, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 04.10.2013, Qupperneq 46
46 | MORGUNBLAÐIÐ Dalshrauni 1    www.dekkjasalan.is | 587 3757 DEKKJAVERKSTÆÐI NÝ DEKK NOTUÐ DEKK FELGUR PÓLÝHÚÐUN WWW.DEKKJASALAN.IS Við leysum málið! American Graffiti (1973) Tímalaus Klassík um fjóra vini í Kaliforníu ( Ron Howard, Richard Dreyfuss, Charles Martin Smith og Harrison Ford) sem eyða einni nótt árið 1962 í flest það sem skiptir unga menn máli; að hanga og kjafta, rúnta og spyrna á tryllitækjum sem fá bíladellumenn til að tárast. Sólgulur Ford ’32 ásamt ’55 og ’58 árgerðum af Chevy. Indæll og listavel heppn- aður óður til einfaldari tíma og það þarf að hafa býsna kaldrifjaðan huga til að finna ekki fyrir fortíðarþrá yfir henni þessari. Duel (1971) Ein fyrsta mynd Steven Spielberg sver sig að sumu leyti í ætt við Jaws, meistaraverkið sem hann gerði fjór- um árum síðar. En í stað gríðarstórs hvíthákarls er ófreskjan 18 hjóla trukkur með vitskertum bílstjóra sem ætlar að koma ökumanni fólks- bíls fyrir kattarnef, sama hvað. Dauðasökin? Að hafa tekið fram úr. Þegar framljós flutningabíls verða að augum brjálæðings er lítið gaman að vera á vegum úti – en myndin er hörkuspennandi og skemmtileg. The French Connection (1971) Eina myndin á þessum lista sem státar af því að hafa hreppt Ósk- arsverðlaun sem besta mynd ársins er ekki bílamynd í þeim skilningi orðsins, heldur harðsoðin saka- málamynd með Gene Hackman í fantaformi sem fantalöggan Popeye Doyle. Hins vegar skartar myndin einum svakalegasta bílaeltingaleik sögunnar þegar Doyle eltist við eit- urlyfjasmyglara; Doyle á ’71 Pontiac LeMans, bófinn um borð í lest á upp- lyftri lestarbraut. Klassík. Gone In 60 Seconds (1974) Leggið til hliðar allar kröfur um leikræn tilþrif, vandaðan söguþráð eða faglega tæknilega afgreiðslu. Búist aftur á móti við bílaelting- arleik með ’73 Mustang Mach 1 í að- alhlutverki sem varir í heilar 40 mín- útur þar sem hátt í eitt hundrað bílar mæta skapara sínum. Myndin kostaði klink í framleiðslu á sínum tíma og H.B. Halicki er allt í öllu, en myndin er samt langtum betri en endurgerðaróskapnaðurinn frá 2000 með Nicolas Cage og Angelinu Jolie. Le Mans (1971) Þetta er mynd um bíltúr úti á landi. Landið er Frakkland, og bíltúrinn er á 320 kílómetra! Steve McQueen fer með aðalhlutverkið í þvottekta bíla- mynd sem hverfist um samnefndan þolakstur. Hér er komin kappakst- ursmyndin sem allar aðrar eru born- ar saman við og ekki að ósekju. Bullitt (1968) Vitaskuld er ekki hægt að láta hjá líða að nefna þessa mynd, ef mein- ingin er að tala um bíla í kvikmynd- um á annað borð. Hressileg löggu- saga, Steve McQueen í algeru Morðæði Trukkurinn sem geymir geðsjúkling í Duel. Eftirför Móðir með barnavagn slapp í The French Connection, en ruslabingurinn fékk það óþvegið. Ökuþór Ryan O’Neal ekur fyrir óvandaða í The Driver. Öngþveiti Herra Hulot veit ekki hvaðan á sig stendur umferðin. Kappakstur Steve McQueen metur stöðuna milli stríða í Le Mans. Nostalgía Tvær af stjörnum American Graffiti stilla sér upp. Bílar í bíómyndum Það stríðir gegn landslögum sem og almennri skynsemi að aka eins og vitfirr- ingur. En það má vel hafa gaman af fantakeyrslu á sjónvarpsskjánum. Hér koma nokkrar sígildar bílamyndir sem innihalda bíla með einum eða öðrum hætti. Flestar hressilegan hraðakstur, aðrar bara fallega og fágæta bíla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.