Morgunblaðið - 13.11.2013, Page 13

Morgunblaðið - 13.11.2013, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2013 „Við þurfum upplýsingar til að upp- fylla ákveðna staðla vegna skrán- ingar skjala- og ljósmyndasafna. Oddur hefur stóran ættfræðigrunn og það er gott fyrir okkur að geta leitað til hans,“ segir Þorsteinn Tryggvi Másson, héraðsskjalavörður á Héraðsskjalasafni Árnesinga á Sel- fossi. Nokkur héraðsskjalasöfn hafa samið við Ættfræðiþjónustu ORG um gagnkvæma miðlun upplýsinga. Þorsteinn Tryggvi segist vera reglulega í sambandi við starfsfólk Ættfræðiþjónustunnar. Hann segir einnig nauðsynlegt að hafa aðgang að góðu handbókasafni við skráningu safnanna. Vísa fólki til ORG Héraðsskjalasöfnin fá fyrirspurnir frá öðrum löndum um ættfræði og staði hér á landi og stundum kemur fólk í heimsókn í sömu erindagjörð- um. Segir Þorsteinn að því sé gjarn- an vísað til Ættfræðiþjónustunnar. Nefnir hann sem dæmi að dönsk hjón hafi komið á safnið á Selfossi í sumar. Maðurinn fæddist hér á landi en vissi engin deili á móður sinni. Með upp- lýsingum frá Ættfræðiþjónustunni og úr héraðsskjalasafninu var hægt að finna út frændgarð mannsins og meira að segja í hvaða húsi hann fæddist. Segir Þorsteinn að þetta hafi verið viss opinberun fyrir mann- inn. Mikilvæg upplýsingalind Morgunblaðið/Rósa Braga Hjá Oddi Hrafn Sveinbjarnarson, Gunnar Marel Hinriksson, Þorsteinn Tryggvi Másson, Sævar Logi Ólafsson og Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir.  Héraðsskjalasafn Árnesinga er eitt þeirra safna sem vinna með Ættfræðiþjónustu ORG  Fyrirspurnir að utan Akureyrarbær, í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands, efnir til hugmynda- samkeppni um nýtt kennileiti fyrir heimskauts- bauginn í Gríms- ey. Fram kemur í tilkynningu, að kennileitinu sé ætlað að vekja athygli á Grímsey sem ferða- mannastað. Verðlaunaféð er ein millj- ón króna en samkeppnin er opin hönnuðum, arkitektum og myndlist- armönnum. Skilafrestur gagna er til 31. janúar 2014. Leitað er að myndrænu tákni fyrir eyjuna sem gæti orðið að aðdrátt- arafli í sjálfu sér og hægt er að nota á ólíka vegu, t.d. við gerð minjagripa. Kennileitið þarf að styrkja Grímsey og stöðu hennar sem nyrsta odda Ís- lands, á heimskautsbaugnum. Kennileiti fyrir heim- skautsbauginn Á heimskautsbaug. Við þurfum að efla skólana. Ef flatur niðurskurður heldur áfram þá stefnir skólakerfið í sömu átt og heilbrigðiskerfið. 1. Við verjum miklum peningum í skólana. Ríflega helmingur af skattfé Reykjavíkurborgar fer í skólamál. 2. Skólar í Reykjavík geta staðið sig miklu betur og eiga að vera í fararbroddi á Íslandi. 3. Í skólunum liggur grunnurinn að nýsköpun og efnhagslegri velsæld til framtíðar. Leiðir til úrlausnar: A. Það þarf að minnka miðstýringu og gefa skólastjórnendum og kennurum aukið svigrúm. B. Við þurfum að vita meira um árangur og kynna afrakstur mikillar vinnu kennara betur fyrir foreldrum. C. Skólar þurfa að endurheimta leiðandi hlutverk sitt í nærsamfélaginu. D. Við þurfum að breyta kjarasamningum kennara. Kosningaskrifstofa Ármúla 7 » thorbjorghelga.is » thorbjorghelga Þorbjörg Helga 1. sæti Reykjavík Unnið er þessa dagana á vegum Landsnets að stækkun tengivirkis við Hóla í Hornafirði, sem auka á afhendingaröryggi raforku á Höfn. Verkefni þetta er liður í rafvæð- ingu fiskmjölsverksmiðja. Verkið felst í því að frá Hólum er lagður 1,5 km langur 132 kV jarðstrengur milli Hóla og tengivirkis RARIK á Höfn. Strengurinn kemur til við- bótar 132 kV línu sem þarna er. Einstakir verkþættir voru boðnir út í sumar og haust. Framkvæmdir við strenglögn og tengivirki hófust í september og ganga vel, skv. upplýsingum frá Landsneti. Gerð undirstaða og jarð- skauta í tengivirkinu á Hólum er lokið og uppsetning búnaðar að hefjast. Rafmagni verður hleypt á strenginn nærri áramótum. sbs@mbl.is Höfn Framkvæmdir á fullu. Styrkja strenginn til Hafnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.