Morgunblaðið - 29.11.2013, Síða 6

Morgunblaðið - 29.11.2013, Síða 6
Síldveiðiskip Stærri skip sem ekki komust undir brúna útveguðu minni báta sem fylgdu síldinni eftir og „smöluðu“ henni fjær landi. Skjalfest Ljósmyndari tekur myndir af mótorbátum sem hjálpuðu til við að fylgja síldinni í Kolgrafafirði eftir. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Til stendur að mæla að nýju í dag það síldarmagn sem er í Kolgrafa- firði. Mælingar Hafrannsóknastofn- unar frá því í gær sýndu að um 70 þúsund tonn voru í firðinum. Þorsteinn Sigurðsson hjá Haf- rannsóknastofnun segir að ástæða hafi þótt til að mæla magnið að nýju sökum þess að talið var að hvell- hettur, sem notaðar voru í gær til þess að fæla síldina úr firðinum, hafi skilað árangri. Hann segir að ekki hafi tekist að staðfesta að hluti síldarinnar hafi þegar yfirgefið fjörðinn sökum þess að dagsbirtan þvarr. Af sama skapi var ekki hægt að útiloka það ef miðað er við það hvernig síldin hagaði sér þegar hvellhetturnar sprungu. Súrefnið er nægt Hann segir að tilraunin verði svo endurtekin aftur í dag. „Það er ekki fært undir brúna nema á ákveðnum tímum upp á flóð og fjöru. Svo stýrir birtan því líka. En endanleg afstaða um það hvernig staðið verður að þessu verður tekin á fundi klukkan tíu í fyrramálið [í dag] og endanleg ákvörðunartaka er þar,“ segir Þor- steinn. Hann telur að meginumfjöll- unarefni þess fundar verði hvernig tekið verði á því ef aðgerðirnar heppnast og síldin fer úr firðinum. Þorsteinn fylgdist einnig með súr- efnismettuninni í firðinum en hún var að hans sögn yfir 80% í gær. Til samanburðar var hún um 20% þegar til síldardauðans kom í fyrravetur. Ástæða þykir til að mæla að nýju  Árangur af notkun hvellhetta þykir gefa ástæðu til bjartsýni  Ákveða þarf hvað gera eigi ef síld- in fer úr firðinum  Súrefnismettunin í firðinum langt yfir þeim mörkum þegar síldin drapst Morgunblaðið/Árni Sæberg Starað í hafið Hlynur Pétursson hjá Hafrannsóknastofnun fylgdist með síldinni eftir að búið var að sprengja hvellhetturnar. Starfsmenn Hafrann- sóknastofnunar fylgdust með hegðun síldarinnar og súrefnismettun í sjónum í Kolgrafafirði í gær. Til stendur að endurtaka sprengingarnar. Thunderflash Hvellhetturnar sem notaðar voru nefnast Thunderflash og gefa frá sér vægan titring í sjónum. Veisla Háhyrningum í Kolgrafafirði leiddist það ekki að gæða sér á síldinni sem fyrirfinnst í firðinum í miklu magni. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2013 Hæstiréttur hefur þyngt dóm yfir karlmanni, sem braut kynferðislega gegn barnabarni sínu, úr 18 mánaða fangelsi í tveggja ára fangelsi. Þá var manninum gert að greiða 800 þús- und krónur í miskabætur. Einnig ber honum að greiða 1.049.427 krón- ur í sakarkostnað auk 789.867 króna í áfrýjunarkostnað. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa brotið þrívegis gegn stúlku- barni á tímabilinu 2009-2011; tvisvar á heimili sínu og einu sinni í tjaldi á tjaldsvæði. Maðurinn neitaði sök frá upphafi en skýrði þó frá því að á umræddu tímabili hefði hann verið ofdrykkju- maður og gjarnan misst minnið þeg- ar áfengi var haft við hönd. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að maðurinn braut þrívegis al- varlega gegn ungu barnabarni sínu við aðstæður þar sem stúlkan var í umsjá hans. Þá segir að af framburði mannsins, svo langt sem hann nái, verði ráðið að hann hafi reynt að skýra frá af hreinskilni og ekki leit- ast við að fegra hlut sinn. Að öðru leyti eigi ákærði sér engar máls- bætur. Braut þrívegis al- varlega gegn barni  Hæstiréttur þyngdi dóm um hálft ár Að sögn Huga Ólafssonar, skrifstofustjóra hjá Umhverfisstofnun, er verið að velta upp ólíkum kostum til þess að finna varanlega lausn sem stuðlar að því að síld drepist ekki í Kolgrafafirði. Fram hafa komið ýmsar hug- myndir, meðal annarra að loka fyrir fjörðinn eða að rjúfa brúna til þess að greikka fyrir súrefnisflæði. Ekki sé þó hlaupið að slíkri ákvörðun. „Slíkt er dýrt og þarf að fara í gegnum mat á umhverfisáhrifum. Eins tekur fram- kvæmdin langan tíma. Því verður ekki farið í slíkar „drastískar“ aðgerðir í vetur a.m.k.,“ segir Hugi. Bendir hann á að lokun fjarðarins, sem er einn þeirra kosta sem talað hefur verið um, þurfi mikinn undirbúning við. Þá hafi menn lýst yfir efasemdum um skynsemi þess að fjarlægja brúna. Ekki í aðgerðir í vetur UNNIÐ ER AÐ VARANLEGRI LAUSN FYRIR KOLGRAFAFJÖRÐ Skannaðu kóðann til að sjá mynd- skeið frá Kolgrafa- firði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.