Morgunblaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 35
35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2013
Vandvirkir Hallgrímskirkja á Skólavörðuholti er eitt fegursta mannvirki Reykjavíkur. Mikilvægt er að umhverfi hennar sé snyrtilegt og vandað sé til verka þegar hellur eru lagðar við guðshúsið.
Golli
Í allmörg ár hefur
staðið til í velferð-
arráðuneyti og nú heil-
brigðisráðuneyti að
gera þjónustusamninga
við öldrunarstofnanir
landsins. Samningar
þessir áttu að vera í
höndum Sjúkratrygg-
inga Íslands skv. lögum
nr. 112/2008. Í 56. gr.
laganna segir að
ákvæði IV. kafla laganna, Samn-
ingar um heilbrigðisþjónustu, komi
til framkvæmda eigi síðar en 1. júlí
2009. Svo sem ekkert athugavert
við það sem slíkt að fresta þessu
einu sinni í upphafi lagasetningar.
Það sem vekur hins vegar athygli
er að þessum kafla laganna hefur
ítrekað verið frestað með útgáfu
sérstakra laga þar sem frestunin
ein er innihald laganna. Fyrst í
desember 2009 er gildistöku IV.
kaflans frestað til 1. janúar 2011.
Þá er í desember 2010 aftur frestun
á gildistökunni til 1. janúar 2012.
Enn og aftur er gildistöku frestað í
desember 2011 til 1. janúar 2013.
Síðasta frestun var gerð í desember
2012 til 1. janúar 2015. Með ítrek-
uðum frestunum er
komið í veg fyrir að
Sjúkratryggingar Ís-
lands geri þjónustu-
samninga við þá sem
reka öldrunarheimili
landsins. Skýringar á
þessu geta verið
margar. Ég tel þó að
einungis tvær komi
til greina á þessum
síendurteknu frest-
unum. Annars vegar
treysta stjórnvöld
ekki Sjúkratrygg-
ingum Íslands til að gera þessa
samninga eða að stjórnvöld vita að
þessir samningar koma til með að
kosta ríkissjóð mun hærri fjár-
hæðir en greitt er fyrir þessa þjón-
ustu í dag. Fyrrnefnda skýringin
er ótrúverðug þar sem starfsfólk
SÍ hefur margra ára reynslu af
gerð sambærilegra samninga og
þar vinnur margt mjög hæft starfs-
fólk. Eftir stendur þá seinni skýr-
ingin sem ég hef reyndar haldið
fram í mörg ár. Ráðuneyti velferð-
ar-, heilbrigðis- og fjármála vita
nefnilega sem er að þegar verður
farið að semja, hvenær svo sem
það verður, þá kemur í ljós að sú
þjónusta sem öldrunarheimilin
veita í dag kostar mun meira en
ríkið greiðir fyrir í dag, enda hafa
allflest öldrunarheimili landsins
verið rekin með halla undanfarin
ár.
Nú stekkur heilbrigðisráðneytið
eflaust til og segir kröfulýsingar,
sem birtar hafa verið á heimasíðu
ráðuneytisins og fjalla um þær
kröfur sem ráðuneytið gerir til
öldrunarheimilinna varðandi veit-
ingu þjónustunnar, vera ígildi þjón-
ustusamnings. Skilyrði og lýsingar
á því hvernig þjónusta á að vera á
öldrunarheimilum, sem birtar eru
einhliða á heimasíðu ráðuneytis,
geta aldrei talist vera skriflegur
samningur. Það væri svona svipað
og að halda því fram að umdeildar
sjónvarpsauglýsingar SA um
tveggja prósenta launahækkun sem
birst hafa undanfarið væru ígildi
samnings – og að ASÍ væri þar
með búið að samþykkja þessa
tveggja prósenta launahækkun. Það
sjá allir að slíkt gengur einfaldlega
ekki upp. Grund hefur sinnt öldr-
unarþjónustu frá árinu 1922 og
Hrafnista í Reykjavík frá árinu
1957. Aldrei hafa verið gerðir skrif-
legir samningar um rekstur þess-
ara heimila en þau til samans fá um
þrjá milljarða á ári frá ríkisvaldinu
til rekstrar heimilanna. Svipaða
sögu er að segja um flest öldr-
unarheimili landsins.
En ítrekaðar frestanir á gerð
skriflegra þjónustusamninga er
ekki það ótrúlegasta í þessu máli.
Afstaða Ríkisendurskoðunar til
þeirrar staðreyndar að greiddir eru
margir milljarðar króna út úr rík-
issjóði á hverju ári án skriflegra
samninga þar um, án þess að stofn-
unin grípi til viðeigandi ráðstafana,
vekur enn meiri furðu. Sú ágæta
stofnun hefur oft bent á minna al-
varleg tilvik varðandi greiðslur úr
ríkissjóði og samningsleysi stofnana
sem fá greitt úr ríkissjóði. Hvað
varðar þessa ótrúlegu linkind Rík-
isendurskoðunar hef ég enga skýr-
ingu á henni en fróðlegt væri að fá
að vita.
Eftir Gísla Pál
Pálsson »Hvað varðar þessa
ótrúlegu linkind
Ríkisendurskoðunar hef
ég enga skýringu á
henni en fróðlegt væri
að fá að vita.
Gísli Páll Pálsson
Höfundur er formaður Samtaka
fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Tugmilljarðar greiddir úr
ríkissjóði en engir samningar
Morgunblaðið/Golli
„Sú þjónusta sem öldrunarheimilin veita kostar mun meira en ríkið greiðir
fyrir í dag,“ segir greinarhöfundur.