Morgunblaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er í lagi að láta sig dreyma ef þú
bara heldur þig á jörðinni í raunveruleikanum.
Mundu að leyfa vinum og vandamönnum að
njóta sólskinsins með þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert skapandi og skemmtileg/ur og
átt auðvelt með að kenna öðrum eitt og ann-
að. Hættu að hugsa um hið ómögulega og
einbeittu þér þess í stað að því sem er fram-
kvæmanlegt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú er kominn tími til að hlusta á
sína innri rödd og hræðast ekki að fylgja
henni eftir. Dekraðu svolítið við sjálfa/n þig.
Samstarfsvilji er af skornum skammti.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ræktaðu það sem vekur áhuga þinn.
Farðu þó varlega og mundu að saklaust dað-
ur getur alltaf þróast upp í eitthvað alvar-
legra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ef þú gætir þess að hafa allt á hreinu,
máttu vænta þess að þér verði umbunað fyrir
vel unnin verk. Reyndu að yfirstíga hömlur
sem eðlislæg varkárni og óöryggi setja.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Einhverjar breytingar eru að brjótast
um í þér. Ræddu málin við þína nánustu og
sameiginlega getið þið fundið lausnina.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það getur reynst nauðsynlegt að halda
fast utan um hlutina til þess að maður missi
ekki frá sér ýmislegt sem manni er kært en
leyfðu hlutunum samt af hafa sinn gang.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að ganga úr skugga um
að ekki sé verið að ganga á rétt þinn. Ef eitt-
hvað vex þér í augum skaltu ýta því frá þér og
koma að því síðar. Þá hefurðu öðlast nýja
sýn.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er alltaf hollt að hlusta á sinn
innri mann og oft má hafa af draumum gam-
an. En mundu að sérhver er sinnar gæfu
smiður og þú átt ekki að stjórna öðrum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Losaðu þig við það sem ekki skipt-
ir máli. Vertu því þolinmóð/ur og gefðu öðr-
um tíma til þess að skilja um hvað málið
snýst. Sýndu öðrum þolinmæði og tillitssemi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hafðu í huga að á þessum tíma
ævi þinnar hentar þér best að sinna fjöl-
skyldu þinni og nánasta umhverfi. Bjartsýnin
er enn til staðar og hún hjálpar yfir hindranir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Eldri og reyndari vinur gefur þér góð
ráð í dag og þér er hollast að leggja eyrun við.
Ræddu deilumálin við þína nánustu og leit-
aðu leiða til að sætta ólík sjónarmið.
Samkvæmt nýjustu fregnumdunda Bretar sér frekar við
spjaldtölvu í rúminu en kynlíf. Ólaf-
ur Stefánsson rifjar upp að ekki
vildi Jón Hreggviðsson býtta á bók
og kvenmanni og yrkir:
Við sjafnaryndi segja stopp,
sýnist horfið kappið.
Fyrir mjúkan kvenmannskropp
komið er nú appið.
Hallmundur Kristinsson bregður
á leik í limru:
Ég man hvað við Magnús í Skógum
máttlausa okkur hlógum
að þeirri sjón
er umhverfðist Jón,
en ýmsum þótti víst nóg um.
„Hálfber ofan á lögreglubíl“ var
fyrirsögnin á Mbl.is sem varð
kveikjan að vísu Davíðs Hjálmars
Haraldssonar:
Oft það hendir ítran dreng
upp á snót að príla
en menn sem eru í miklum spreng
maka sig við bíla.
Sigrúnu Haraldsdóttur varð að
orði að það væri margt sem lög-
reglan þyrfti að vasast í:
Vissast þótti að stöðva strax
stimpingar og drengsins príl
sem að morgni mánudags
misnotaði löggubíl.
Vísnahorninu barst limra frá al-
þýðumanninum sem ku vera eftir
Óskar Jónsson:
Til rjúpna frá Rútsstöðum fóru
og röskir til gangs þeir vóru.
Þeir Þorsteinn og Halldór
og Óðinn sem er stór
og Óskar og Bergur son Þóru.
Pétur Stefánsson yrkir „einfalt
viðsnúnings sléttuband“, en í því
felst að vísan breytir um merkingu
sé hún flutt aftur á bak:
Lækka skuldir. Ekki er
aumur stjórnar vilji.
Hækka bætur. Sjaldan sér
Simmi mótgangs bylji.
Pétur blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af lögreglubíl, Simma og
kvenmannskroppi
Í klípu
„GET ÉG EKKI FENGIÐ NOTAÐA PARTA Á
LÆGRA VERÐI?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVERNIG ÆTLIST ÞIÐ TIL AÐ ÉG FINNI
VESKIÐ MITT Í MYRKRINU, FYRST ÞIÐ
LOKUÐUÐ FYRIR RAFMAGNIÐ?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að huga að fjölgun.
LÝTA-
LÆKNINGA-
STOFA
HITI OG ORKA HF.
HÉR KEMUR
ÍSSALINN.
AKKÚRAT
TÍMANLEGA.
MAGGA MÚRSTEIN
LANGAR NEFNILEGA Í
FROSTPINNA.
PABBI, AF HVERJU RÍKIR
EKKI FRIÐUR OG SAM-
HLJÓMUR MEÐAL ALLRA
MANNA?
FRIÐUR GÆTI VERIÐ
MÖGULEIKI, HAMLET
MINN ...
EN EKKI
SAMHLJÓMUR.
TIL ÞESS
ERU OF
MARGIR
LAGLAUSIR!
Víkverji er ánægður með að rút-urnar, sem fara frá Leifsstöð til
Reykjavíkur, bíða nú eftir komu-
farþegum mun nær byggingunni en
fyrr á árinu. Það hefur greinilega
verið hlustað á aðfinnslur farþega,
en enn vantar einhvers konar þak
yfir gangbrautina að rútunum og
helst líka yfir rúturnar. Dúkur eins
og er til dæmis strengdur yfir gang-
braut fyrir utan flugvöllinn í Glas-
gow kæmi að miklu gagni.
x x x
Annars skilur Víkverji ekki hversvegna rúturnar mega ekki bíða
eftir farþegum við Leifsstöð eins og
áður var og viðgengst á flugvöllum
víða um heim, jafnvel í löndum Evr-
ópusambandsins, þó heyrst hafi að
ástæðan fyrir fjarlægð rútustæð-
anna á Keflavíkurflugvelli sé einmitt
tilskipun frá Evrópusambandinu.
x x x
Þjónusta í Leifsstöð er til fyrir-myndar. Víkverji hefur farið um
marga flugvelli og hefur alls staðar
þurft að bíða svo og svo lengi eftir
farangri nema í Leifsstöð. Þar
bregst ekki að þegar Víkverji kemur
að færibandinu eftir skamma við-
dvöl í fríhöfninni er farangurinn
kominn.
x x x
Flestir komufarþegar úr flugi erumeð eina ferðatösku og eina
handtösku. Í Ameríkufluginu eru
flestir með tvær innritaðar töskur
og handfarangur að auki. Við þetta
bætast gjarnan pokar með sælgæti,
sígarettum og áfengi, sem keypt er í
fríhöfninni. Það getur verið erfitt að
halda á þessu eða draga langa leið,
að ekki sé talað um í roki og rign-
ingu en þá koma sérstakar kerrur í
góðar þarfir.
x x x
Þegar rútunum var ekið frá Leifs-stöð að Flugleiðahótelinu voru
kerrur þar til taks fyrir farþega. Á
BSÍ eru engar kerrur og er það mið-
ur, sérstaklega fyrir farþega sem
eru að koma úr Ameríkuflugi og eru
líklegri til þess að vera með meiri
farangur en þeir ráða almennilega
við. Þetta væri ekki mál ef leigubílar
mættu bíða í grennd við rúturnar en
því er ekki að heilsa. víkverji@mbl.is
Víkverji
Eins og hindin þráir vatnslindir þráir
sál mín þig, ó Guð. (Sálmarnir 42:2)
- með morgunkaffinu
Still rafmagns og dísellyftarar