Morgunblaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 31
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2013
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Hagfræðideild Landsbankans reikn-
ar með heldur meiri hagvexti á þessu
ári en spáð var í maí eða 2,5% í stað
1,8% en aftur á móti er hagvaxt-
arspáin fyrir 2014 og 2015 nú tölu-
vert lægri en hún var áður.
Daníel Svavarsson, forstöðumað-
ur Hagfræðideildar Landsbankans,
sagði á fundi þar sem þjóðhagsspá
deildarinnar fyrir árin 2013-2016 var
kynnt að í maí hefði verið reiknað
með að meðalhagvöxtur árin 2014 og
2015 yrði 3,65% en nú sé spáð að
hann verði 2,6%. Helgast það af
minni fjárfestingu í stóriðju en áður
var reiknað með. Jafnframt sé útlit
fyrir að það hægi verulega á hag-
vexti í lok spátímans og hann verði
1,7% árið 2016.
Deildin telur að verðbólgan verði
áfram talsvert yfir markmiðið Seðla-
bankans, sem er 2,5%, þar sem
reiknað er með lítilsháttar veikingu
krónu og viðvarandi háum verð-
bólguvæntingum á tímabilinu. Þó sé
gert ráð fyrir að verðbólgan haldist
að jafnaði undir efri vikmörkum
verðbólgumarkmiðsins.
Fram kemur í Þjóðarhag, ársriti
Hagfræðideildar Landsbankans, að
reiknað sé með að hagvöxturinn á
næsta ári verði að jöfnu borinn upp
af vexti einkaneyslu, fjármunamynd-
unar og framlagi utanríkisviðskipta
en að vöxtur landsframleiðslunnar
2015 verði knúinn áfram af aukinni
fjárfestingu og einkaneyslu og fram-
lag utanríkisviðskipta verði þá orðið
neikvætt.
Nær allur vöxturinn
í ferðaþjónustu
Vöxtur þjónustuútflutnings hefur
verið töluverður á síðustu árum en á
föstu gengi hefur vöxturinn numið
samtals 30% frá 2009 til 2012. Á
gengi ársins 2012 hefur útflutning-
urinn aukist um 87 milljarða króna.
Nær allan þann vöxt eða 98% má
skýra með vexti í ferðaþjónustu. Al-
mennur vöruútflutningur frá landinu
hefur enn ekki tekið við sér að neinu
ráði þrátt fyrir að fimm ár séu liðin
frá hruni og gengisfalli krónu. „Fyr-
ir utan einstaka vöruflokka, ál, sjáv-
arafurðir og ferðaþjónustu, er ekki
að sjá að bætt samkeppnisstaða hafi
haft nein teljandi áhrif á almennan
útflutning frá landinu,“ segir í Þjóð-
arhag.
Þar segir að smæð fyrirtækja setji
uppganginum töluverðar skorður og
kann það að skýra hvers vegna ann-
ar útflutningur frá landinu en ál-
framleiðsla, sjávarafurðir og ferða-
þjónusta hafi vaxið jafn lítið og raun
ber vitni. „Smæðin hefur þau áhrif
að erfiðara er að stofna til langtíma
viðskiptasambanda við stóra aðila
þar sem slíkir aðilar þurfa oft meira
magn en smá fyrirtæki geta fram-
leitt. Eins dregur smæðin úr slag-
krafti í sókn á erlenda markaði og
erfiðara og hlutfallslega dýrar er
fyrir smærri fyrirtæki en stærri að
koma sér á framfæri erlendis,“ segir
í Þjóðarhag.
Morgunblaðið/Kristinn
Þjóðhagsspá Landsbankans Hagfræðideild Landsbankans kynnti í gær
þjóðhagsspá sína fyrir árin 2013-2016 í Hilton Nordica.
Hægara yfir
2014 og 2015
Mat hagfræðideildar Landsbankans
Ekki er víst að rýmri fjárfesting-
arheimildir lífeyrissjóða til að
fjárfesta á First North-hliðarmark-
aðnum einar og sér muni laða að
fyrirtæki á markaðinn, segir í
Þjóðarhag, ársriti Hagfræðideildar
Landsbankans.
Forstjóri Kauphallarinnar hefur
kallað eftir því, t.d. fyrir ári í
Morgunblaðinu, að heimildir líf-
eyrissjóða verði lítillega rýmkaðar
sem myndi hafa í för með sér að
um 100 milljarðar yrðu tiltækir til
að fjárfesta í minni og með-
alstórum fyrirtækjum sem skráð
eru á hliðarmarkað Kauphall-
arinnar, First North. En sá mark-
aður hefur ekki náð fótfestu.
Fjárfesting í fyrirtækjum á First
North telst óskráð eign. Nú mega
sjóðirnir fjárfesta að hámarki
20% eigna sinna óskráðum eign-
um og það sem eftir stendur í
skráðum.
„Það er vissulega rétt að sú
breyting yrði líklega til þess að
fjölga fjárfestingum á fjár-
málamarkaðnum í ljósi þess
hversu mikilvægur eigendahópur
lífeyrissjóðir eru á aðalmarkaði
Kauphallarinnar. Aftur á móti
skipta fleiri þættir máli fyrir fyr-
irtæki sem eru að leita sér að
fjármagni og ekki víst að rýmri
fjárfestingaheimildir lífeyrissjóða
einar og sér laði fyrirtæki á mark-
að. First North er fyrst og fremst
ætlað litlum og meðalstórum fyr-
irtækjum í örum vexti í leit að
fjármagni. Fyrir slík fyrirtæki er
aukin þekking og aðgangur að
mörkuðum sem fylgir nýjum fjár-
festum jafn mikilvægt og fjár-
magnið sjálft. Því má segja að
einsleitur hópur fjárfesta á Ís-
landi komi að einhverju leyti í veg
fyrir að markaðurinn blómstri,“
segir í ársritinu.
Óvíst að rýmri heimildir nægi
EKKI TÖFRALAUSN FYRIR FIRST NORTH-HLIÐARMARKAÐINN